Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 49

Morgunblaðið - 24.09.2004, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 49 MENNING Tónleikahald á Íslandi hefursjaldan eða aldrei verið einslifandi og í ár. Yfirstandandi vika hefur t.a.m. verið með eindæm- um blómleg. Blonde Redhead hélt eftirminnilega tónleika í Austurbæ fyrr í vikunni, dyggilega studd frá- bærum íslenskum listamönnum og í gær hélt Damien Rice sína aðra tón- leika á árinu og festi enn í sessi þá miklu hylli sem hann nýtur hér.    Og rétt eins og það sé orðið dag-legt brauð þá leikur í kvöld á Grand Rokk rokksveit frá Nirvana- borginni Seattle sem heitir Minus The Bear. Sveitin sú ku hafa fengið væna athygli í erlendu pressunni síðustu vikur og gerir nú „tilkall til heims- frægðar“ eins og komist er að orði einhvers staðar. Það er heldur ekki svo hæpin ályktun þegar rennt er í gegnum fyrstu stóru plötu sveitarinnar Highly Refined Pirates sem kom út í sumar; ágætasti gripur þar á ferð. Koma Minus The Bear á leið sinni yfir hafið er dæmi um ánægjulega þróun sem átt hefur sér stað und- anfarið, en erlendar hljómsveitir – einkum þær sem enn teljast lítt þekktar á heimsmælikvarðanum óræða – eru farnar að sjá Ísland sem raunhæfan og ákjósanlegan við- komustað á tónleikaferðum sínum. Loksins.    En þrátt fyrir tíðar heimsóknirmá ekki gleyma íslenska tón- listarlífinu sem einnig er í miklum blóma, eins og þéttskipuð dagskrá helgarinnar ber vitni um. Á Nasa verða t.a.m. haldnir tvenn- ir stórtónleikar, í kvöld og á morg- un. Í kvöld ætla Stuðmenn að sýna á sér nýja hlið er þeir renna í gegnum djassprógrammið sitt sem þeir fluttu í Sánkti Pétursborg um síðustu helgi. Frítt er inn á tónleikana, sem er lofsvert framtak tónleikahaldara. Gus Gus verður svo með tónleika á Nasa á morgun, en það er ekki oft sem sú stórmerkilega rafdanssveit treður upp hér á landi. Ætla má að þar verði boðið upp á nýtt efni, en Gus Gus hefur einmitt verið að vinna hægt og bítandi að næstu plötu á eft- ir hinni mjög svo vaxandi og e.t.v. vanmetnu Attention. Þá mun hættulegasta sveit Íslands Mínus, halda tónleika á Gauknum í kvöld, ekki eina, heldur tvenna! Líkt og á Stuðmannatónleikana á Nasa verður frítt inn á fyrri tónleika Mín- uss, sem að auki verða án aldurs- takmarks. Lofsvert framtak það hjá Mínus og styrktaraðilum þeirra. Á morgun mun svo hin bráð- efnilega hljómsveit Hjálmar halda útgáfutónleika á Grand Rokk en á dögunum sendi hún frá sér hina fantagóðu plötu Hljóðlegar af stað – sem færa má góð rök fyrir að sé fyrsta alvöru íslenska reggíplatan. Ef þetta er ekki nóg fyrir þyrsta tónlistarunnendur verða þeir að sætta sig við að bíða eftir Airwaves- tónlistarhátíðinni sem fram fer í lok október. Þar troða upp á annað hundrað hljómsveitir og listamenn vítt og breitt um borgina á fjórum dögum. „Aðeins“! Lifandi tónlist AF LISTUM Skarphéðinn Guðmundsson skarpi@mbl.is Ljósmynd/Robin Laananen Seattle-sveitin Minus The Bear spil- ar á Grand Rokk í kvöld. Á NIÐURNÍDDRI lestarstöð í af- skekktu þorpi í Rússlandi bíða ungur maður og ófrísk eiginkona hans eftir lest. Parið, sem búsett er í Moskvu, hefur þann starfa að ferðast um og pranga brauðristum inn á andvara- lítið sveitafólk. Sölumennskan hefur gengið vel og þau bíða þess eins að komast burt úr þessari holu. En lest- in lætur bíða eftir sér, og svo birtast þorpsbúarnir sem telja sig hafa verið svikna í viðskiptum. Kaldranalegur stórborgarveruleikinn og lífið úti á landi rekast harkalega á, með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum. Þetta er leikritið Svört mjólk, eftir Vassilíj Sígarjov, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þar takast á mótsagnirnar í Rússlandi samtímans, en verkið fjallar jafnframt um mik- ilvægar spurningar óháðar stað og tíma og einkennist í senn af hráu raunsæi og ljóðrænu, mildi og hörku, en síðast en ekki síst djúpu innsæi og leiftrandi húmor. Vasílíj Sígarjov, höfundur leikrits- ins er aðeins 27 ára en hefur þegar vakið gífurlega athygli í leikhúslífi Evrópu. Hið virta höfundaleikhús Royal Court Theatre í London hefur frá því árið 2001 sett upp þrjú leikrit eftir hann, Plasticine, Svarta mjólk og nú síðast Ladybird. Plasticine vakti strax mikinn áhuga á Sígarjov og hlaut hann fyrir það Evening Standard-verðlaunin sem efnilegasta leikskáld ársins. Uppfærslan fékk hins vegar blendna dóma, og sagði gagnrýnandi The Guardian, Michael Billington að leiktextinn hefði goldið fyrir gauraganginn í allt of „kvik- myndalegri“ uppfærslunni. Verkið hefði verið betra aflestrar eitt og sér, en á sýningunni. Hann gaf sýning- unni aðeins tvær stjörnur af fimm mögulegum. Þegar Royal Court sýndi Svarta mjólk ári síðar voru gagnrýnendur á einu máli um að Síg- arjov hefði tekist að skrifa enn betra og dýpra leikverk, og Billington sem gaf nýja verkinu fjórar stjörnur, skrifaði þá að Svört mjólk væri ólíkt sterkara verk, þar sem teflt væri saman myndum af sérkennilega hrjúfu hjónabandi unga fólksins og óendanlegum mótsögnum rússnesks samfélags. Hann sagði styrk verksins og snilld Sígarjov einmitt felast í áhrifamiklu samspili þessara tveggja mynda hins persónulega og sam- félagslega, en einnig því hvernig hann fléttar saman kommúníska for- tíð landsins og ógnandi nútímann, sem virðist á stundum vaða langt framúr stað og stund með boðaföll- um. Philip Fisher gagnrýnandi The British Theatre Guide tekur í svip- aðan streng og segir að illu heilli sé niðurstaða þessarar svörtu kómedíu sú, að Sígarjov sé jafnsvartsýnn á framtíð Rússlands og þegar hann lít- ur til baka á eymdarlega fortíðina. Susannah Clapp, gagnrýnandi The Observer, líkti verkinu við röntgen- mynd þar sem áhorfendur rýndu í innsta kjarna landsins sem væri svo stórt, að heilu landssvæðin með heilu þjóðarbrotin innbyrðis gætu hreinlega gleymst og orðið eftir í fortíðinni sem þjóðin þráði svo heitt að komast út úr. Það hefur verið sagt um Vassilíj Sígarjov, að hann byggi verk sín á reynslu úr eigin lífi. Hann fæddist ár- ið 1977 í verkamannafjölskyldu í hrjáðum iðnaðarbæ Verkhnaya Salda við rætur Úralfjalla, en býr nú í Jeka- terínburg þar sem hann ritstýrir bók- menntatímariti. Hann hefur samið yf- ir tug leikrita sem sviðsett hafa verið víða um Rússland og víðar í Evrópu. Í viðtali við The Times í fyrra sagði Sígarjov spurður um pólitískan boð- skap verka sinna, að hann hefði eng- an áhuga á pólitík, og myndi aldrei fá hann. „Opinber pólitík breytir engu og hefur ekkert að segja. Allt sem hefur einhverja þýðingu gerist milli fólks, og pólitíkin er bara leiklist. Hún hefur ekki áhrif á neitt, nema kannski auðinn. Ekki einu sinni á stríðin. Það er ekki á valdi pólitíkusa að hefja eða stöðva stríð.“ Sígarjov segir sitt starf vera að fá fólk til að hlæja og gráta, og hafa áhrif á kenndir þess og tilfinningar. Hann hafnar því einnig að aðrar bók- menntir hafi haft áhrif á hann, og segir að mun meira spennandi hlutir gerist í lífinu, en í bókum. Þó skipar hann sjálfum sér í hefð Tsjekvos, sem líka samdi verk um fólk til sveita á tímum mikilla þjóðfélagsbreytinga. „Mig langar að semja verk um fólk sem gengur þyrnum stráðan stíg í átt að ljósinu,“ segir hann. Sígarjov fjallar oft í leikritum sín- um um hlutskipti ungs fólks sem er að reyna að fóta sig í harkalegum veruleika samtímans. Ólafur Egill Egilsson, sem útskrifaðist leikari úr Listaháskóla Íslands árið 2002 og hefur starfað með Vesturporti frá þeim tíma, leikur annað aðalhlutverk verksins, en þetta er frumraun hans í Þjóðleikhúsinu. Hann segir það kær- komna tilbreytingu að stíga á fjalir Þjóðleikhússins, og ekki síst að kynn- ast eldri og reyndari leikurum. Hann telur orð leikskáldsins, Vassilíjs Síg- arjovs um þyrnum stráða stíginn eiga við um okkur öll. „Lífið er erfitt og við erum öll að leita að einhverri ham- ingju og lífsfyllingu. Aðstæður fólks eru miserfiðar og þyrnarnir mis- hvassir eftir því hvar fólk fæðist og hvert verið er að fara.“ Ólafur Egill segist sjá Svarta mjólk sem dæmi- sögu sem við eigum öll heima í – allir sem átt hafa í sambandi við aðra manneskju og hafa þurft að hafa í sig og á. „Þetta er spurningin um sálina og rassgatið. Hvenær deyr sálin og hvort seturðu á undan? Það þarf nefnilega að halda rassgatinu á lífi líka.“ Leiklist | Þjóðleikhúsið frumsýnir rússneskt samtímaverk á Smíðaverkstæðinu í kvöld Pólitíkin er leiklist Morgunblaðið/Sverrir Ólafur Egill Egilsson og Arnbjörg Hlíf Valsdóttir í hlutverkum sínum. begga@mbl.is eftir Vassilíj Sígarjov Þýðandi: Ingibjörg Haraldsdóttir Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson Hljóðmynd: Sigurður Bjóla Búningar: Filippía I. Elísdóttir Leikmynd: Vytautas Narbutas Leikarar: Ungi maðurinn: Ólafur Egill Egilsson Unga konan: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir Aðrir: Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Kjartan Guðjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Krist- björg Kjeld og Jóhann Sigurð- arson. Svört mjólk fg wilson Sími 594 6000 Rafstöðvar Veitum ráðgjöf og þjónustu fyrir allar stærðir og gerðir rafstöðva FGWILSONmase Allt til músaveiða og fl ugnaveiða Rafmagnsfl ugnabanar, límborðar, fl ugnaljós o.fl . Verslunin er staðsett á Selfossi Opið mán.-fi m. 9-13, föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14 Gagnheiði 59 • meindyravarnir@meindyravarnir.is www.meindyravarnir.is • s: 482 3337 & 893 9121 15% afsláttur af Le Corbusier húsgögnum MIRALE Grensásvegi 8 sími: 517 1020 Opið: mán. - föstud. 11-18 laugard. 11-15 Mirale er umboðsaðili Cassina á Íslandi. Vaxtalausar greiðslur í allt að 6 mánuði. Raðsamninga í allt að 36 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.