Morgunblaðið - 25.09.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 261. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Gróðurhús
Valgeirs
Rekur eigið hljóðver og hefur unn-
ið með Björk í sex ár | Menning
Lesbók | Yfirlitssýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur
Ragnar Bjarnason Íslendingar á djasshátíð Börn |
Prinsar og prinsessur Keðjusagan Gátur Íþróttir |
Undanúrslit í bikarnum Sérblað um enska boltann
BÖRNIN á leikskólanum á Klömbrum við Háteigsveg í Reykjavík biðu í eft-
irvæntingu eftir „táknmálsbangsanum“ í gær í tilefni af degi heyrnarlausra á
sunnudaginn kemur. Slagveðrið gerði það hins vegar að verkum að ekki var
hægt að fara út að taka á móti honum og því biðu þau eftir honum í tryggu
skjóli. Spáð er skúrum um sunnanvert landið í dag en bjartviðri á sunnudag
með heldur kólnandi veðri. Í öðrum landshlutum er spáð skúrum.
Morgunblaðið/RAX
Beðið eftir „táknmálsbangsanum“
FJÖLSKYLDA Kenneths Bigleys,
bresks gísls í höndum mannræn-
ingja í Írak, lét í gær dreifa tugþús-
undum flugrita í Bagdad þar sem
borgarbúar eru beðnir að gera hvað
þeir geta til að bjarga lífi Bigleys.
Alls voru dreifimiðarnir um 50.000
talsins og einkum dreift í Mansour-
hverfinu þar sem Bigley og tveimur
Bandaríkjamönnum var rænt. Hafa
hryðjuverkamennirnir hálshöggvið
báða Bandaríkjamennina.
Tveimur egypskum fjarskipta-
verkfræðingum var rænt í Bagdad í
fyrrinótt og fjórum löndum þeirra og
tveimur Írökum í fyrradag. Voru all-
ir mennirnir starfsmenn sama fyr-
irtækis. Ekkert er enn vitað með
vissu um örlög tveggja ítalskra
kvenna, sem rænt var fyrir nokkru.
Hjálpar-
beiðni í
flugritum
Liverpool. AFP.
Átta/18
Leiðari/30
ÍSLENSKT fyrirtæki, 3-PLUS hf., hefur hannað
og þróað leiktæki og gagnvirka fræðsluleiki sem
nú er selt undir merkjum leikfangarisans Fisher
Price í Bandaríkjunum og Berchet í Evrópu. Leik-
tækið sem er þráðlaust breytir venjulegum DVD-
spilara í leikjavél fyrir gagnvirka og þroskandi
leiki ætlaða börnum frá 3 ára aldri.
Í Bandaríkjunum selur Fisher Price tækið und-
ir heitinu InteracTV en í Evrópu er það markaðs-
sett undir heitinu DVD-kids. Fisher Price er í eigu
Mattel sem er langstærsta leikfangafyrirtæki í
heimi.
100 þúsund leikir
seldir í Frakklandi
Nú þegar hefur Fisher Price dreift 600 þúsund
tækjum og yfir einni milljón leikja í verslanir
vestra. Stefnt er að því að milljón tæki fari í sölu í
Bandaríkjunum fyrir jólin en Fisher Price ætlar
sér ekki að setja vöruna á aðra markaði en Banda-
ríkjamarkað fyrr en á næsta ári, að sögn stofn-
enda fyrirtækisins, Helga G. Sigurðssonar og Jó-
hannesar Þórðarsonar.
DVD-kids fór fyrst á markað í Frakklandi árið
2003 og var með söluhæstu vörum dreifiaðila 3-
PLUS, leikfangarisans Berchet. Á síðasta ári
seldust 45 þúsund leiktæki í Frakklandi og 100
þúsund leikir.
Leikir fyrir DVD-kids og InteracTV eru byggð-
ir á þekktum teiknimyndapersónum t.d. skjald-
bökunni Franklin, Dodda, fílnum Babar og
Svampa Sveinssyni. Þegar hafa verið gefnir út 14
leikir á átta tungumálum og fleiri eru í vinnslu.
Leiktækið er skilgreint sem þroskaleikfang og
er það notað með sérhönnuðum DVD-diskum og
stýrispjöldum. Með hljóðum, myndum, táknum og
fleiru geta börn tekið þátt í því sem fram fer í sjón-
varpinu á gagnvirkan hátt og aðeins með því að
snerta réttan flöt á stýrispjaldinu.
DVD-kids mun koma í verslanir á Íslandi 20.
október, á sama tíma og í Skandinavíu. Myndform
hefur tryggt sér söluréttindi á DVD-kids á Íslandi.
Fyrirtækið 3-PLUS hf. var stofnað árið 1999 og
eru hluthafar á þriðja tug og starfsmenn 11. Að-
alskrifstofur fyrirtækisins eru í Reykjavík og er 3-
PLUS einnig með skrifstofur í Frakklandi og
Danmörku. Öll framleiðsla fer fram í Asíu.
Íslenskt fyrirtæki selur gagnvirkt leiktæki undir merkjum Fisher Price
Stefnt að sölu millj-
ón tækja í Banda-
ríkjunum fyrir jól
Breytir/6
GAGNVIRKNI í sjónvarpi hefur verið þekkt
tækni um árabil og notuð t.d. í tölvuleiki fyrir
eldri börn en yngri börn höfðu ekki notið henn-
ar í neinum mæli. „Þarna var tækifærið,“ segir
Jóhannes Þórðarson, sem stofnaði 3-PLUS
ásamt Helga G. Sigurðssyni.
„Við sáum að þarna var hilla sem var alveg
tóm og ekki margir sem voru að spá í þetta,“seg-
ir Helgi. „Þetta olli okkur erfiðleikum fyrst í
stað, því þetta var algjörlega óþekkt en þetta
hjálpaði okkur á seinni stigum. Við vorum á
réttum stað á réttum tíma.“
Einn af útgangspunktunum var að barnið
gæti leikið sér eitt í tækinu, án aðstoðar foreldr-
anna, en það var einnig nýtt hvað tölvutengt efni
fyrir ung börn varðaði. „Þetta var gatið sem við
sáum og við einbeittum okkur að,“ segir Jóhann-
es.
Morgunblaðið/Golli
Leiktækið er framleitt í tveimur útgáfum, allt
eftir því hvar það fer á markað.
Á réttum stað á
réttum tíma
TÉKKUM, sem vilja gefa blóð
eða beinmerg, verður hér eftir
launað fyrir með tveimur
stórum glösum eða einum lítra
af bjór. Er það liður í herferð-
inni „Bjór fyrir blóð“ en henni
er ætlað að fjölga reglulegum
blóð- og beinmergsgjöfum.
Jaroslav Novak, ritstjóri
tékknesks bjórtímarits, átti
hugmyndina að þessu og verð-
ur herferðinni hleypt af stokk-
unum í Prag og síðan um landið
allt. Búist er við, að landsmenn
muni bregðast vel við enda eru
Tékkar heimsins mestu bjór-
svelgir og skola niður 162 lítr-
um á hvern íbúa árlega.
Fá bjór
fyrir blóð
Prag. AFP.
Lesbók, börn og íþróttir í dag