Morgunblaðið - 13.09.2003, Page 23
m23m23
BERIN BLÁ OG RAUÐ
SKREYTIÐ MEÐ BERJUM
Frystið rifsberjaklasa, reyniberjaklasa eða önnur ber (án sykurs) og
notið sem skraut, til dæmis á matarborðið eða í jólaföndrið. Best
er að nota víða dós með loki.
BERSÖGLIR DRYKKIR
Setjið ber (rifs, bláber, jarðarber eða einhver önnur ber) í klaka-
box, hellið vatni yfir og frystið. Til verða skrautlegir klakar sem
fríska upp á drykkina.
ÍS MEÐ BLÁBERJADRAUMASÓSU
Bræðið 2 msk af ósöltu smjöri í litlum potti á meðalhita. Bætið við
1/2 l af bláberjum og 1/4 bolla af sykri. Hrærið í þar til safinn fer
að renna úr berjunum, u.þ.b. 2 mínútur. Kælið aðeins og hellið
sósunni volgri yfir ís og skreytið með berjum. Draumur á draum
ofan!
VANILLURIFS
Setjið rifsber og sykur í skál og látið standa. Búið til vanillukrem
með 4 dl mjólk, hituð í skaftpotti með hálfri vanillustöng. Pískið 4
eggjarauður með 40 g af sykri og hellið dálitlu af hitaðri mjólkinni
yfir. Hellið síðan öllu aftur í pottinn og látið vera á hitanum, án
þess að sjóði, þar til kremið þykknar. Kælið, jafnvel yfir nótt í ís-
skáp. Setjið lag af sykruðum rifsberjum, muldum makkarónum og
vanillukremi í litlar skálar eða glas, skreytið með þeyttum rjóma.
MÖFFINS MEÐ FERSKUM BERJUM
4 1/2 dl hveiti
2 1/2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
1 1/2 dl sykur
1 egg
1,8 dl mjólk
60 g bráðið og ósaltað smjör
2 1/2 dl fersk ber, t.d. bláber eða rifsber, einnig má nota ávexti
2-3 msk perlusykur
Blandið saman öllum þurrefnum í skál. Gætið þess að lyftidufið
blandast vel við mjölið. Bætið við eggi, mjólk, bráðnu smjöri og
smávegis af sítrónuflusi. Blandið öllu mjög vel saman (í hrærivél
eða blandara). Hrærið þó ekki of lengi því þá verður deigið seigt.
Blandið síðan berjunum varlega saman við deigið með sleif. Ber í
súrari kantinum eins og rifsber má sykra nokkru áður en þau eru
sett út í deigið.
Hitið ofninn í 200 gráður. Ef notuð eru möffinsform úr málmi er
best að hita þau áður í 5 mínútur áður en þau eru smurð og deig-
inu hellt í þau. Fyllið að 3/4 og stráið perlusykri yfir. Bakið í u.þ.b.
10 mínútur Minnkið þá hitann í 180 gráður og bakið þær ljós-
gullnar í u.þ.b. 10 mínútur í viðbót. Látið kökurnar kólna á rist í
nokkrar mínútur áður en þær eru teknar úr forminu. Bornar fram
nýbakaðar.
Berjablátt brauðið
Franskt eggjabrauð með bláberjum
og sýrópi er ljúffengur morgunmatur