Morgunblaðið - 02.12.2004, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLENSK erfðagreining og Vel-
ferðarsjóður barna bauð þátttak-
endum í mentorverkefninu Vináttu
til jólastundar í húsnæði ÍE í gær.
Kári Stefánsson las jólasögu fyrir
börnin og Siggi efnafræðingur
sýndi áhugaverða efnafræði-
tilraun.
Mentorverkefnið Vinátta hófst
árið 2001 og hefur Velferðarsjóður
barna á Íslandi rekið það frá upp-
hafi. Velferðarsjóður barna var
stofnaður árið 2000 af ÍE og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu. Markmið sjóðsins er að
hlúa að hagsmunamálum og vel-
ferð barna á Íslandi.
Mentorverkefnið Vinátta byggist
á þeirri hugmyndafræði að sam-
skipti barns og leiðbeinanda þess
séu jákvætt innlegg í líf barns því
hann verði barninu fyrirmynd.
Tengslin sem myndast milli leið-
beinanda og barns geta bætt við
möguleika barnsins við mótun
sjálfsmyndar og komið fram meðal
annars í auknum námsáhuga og ár-
angri auk aukinnar lífsleikni.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurður V. Smárason, efnafræðingur Íslenskrar erfðagreiningar, sýnir börnunum áhugaverða eðlisfræðitilraun.
Jólastund
Vináttu vel sótt
BESTA vísbendingin í Nýfundna-
landi um að jólin séu í nánd er árleg
innreið hundraða Íslendinga í versl-
unarerindum. Þannig lýstu kan-
adískir fjölmiðlar áhrifum komu ís-
lenskra leiguflugsfarþega til St.
John’s á dögunum. Í morgun voru
væntanlegir heim farþegar úr seinni
ferð Hópferðamiðstöðvarinnar-
Vesturleiðar ehf., en þeir stóðu fyrir
leiguflugi til Nýfundnalands nú í
haust, líkt og á hverju ári frá 1998.
Grein fréttastofunnar Canadian
Press birtist í mörgum blöðum. Þar
er Íslendingunum lýst svo að þeir
séu „þessir með sneisafullu inn-
kaupakerrurnar“. Víkingar nú-
tímans koma vopnaðir greiðslukort-
um og sækjast ekki síst eftir
merkjavöru í gallabuxum og íþrótta-
skóm. Í fréttinni sagði að búist væri
við því að Íslendingarnir eyddu um
600.000 kanadískum dollurum á sex
dögum eða jafnvirði 30 milljóna
króna í St. John’s.
Fyrsti hópurinn, um 200 manns,
kom til St. John’s í síðustu viku. Í
flestum verslunum höfðu verið
hengd upp skilti úti í glugga þar sem
stóð: „Velkomnir íslensku gestir“.
Hillur höfðu verið fylltar og starfs-
fólkið var í viðbragðsstöðu.
Í fréttinni var rætt við Íslending
sem sagði að vöruverðið í St. John’s
væri mun lægra en heima á Íslandi.
Auk fatnaðar keyptu landarnir skíði,
snjóbretti, reiðhjól, leikföng, DVD,
hugbúnað og heimilistæki. Einn lét
sig ekki muna um að kaupa sér Ford
Mustang-bifreið. Svo mikið var
keypt í síðustu viku að að skilja varð
eftir um og yfir 100 ferðatöskur er
lagt var upp til Keflavíkur, sam-
kvæmt heimildum Fréttavefjar
Morgunblaðsins (mbl.is).
Mjög vinsælar ferðir
Leiguflugið til St. John’s hófst á
sínum tíma vegna áhafnaskipta þeg-
ar fjöldi íslenskra rækjuskipa var við
veiðar á Flæmska hattinum. Selt var
í laus sæti í flugvélunum og lærðu
margir að meta það að heimsækja
Nýfundnaland. Ólöf V. Bóasdóttir,
framkvæmdastjóri Hópferða-
miðstöðvarinnar-Vestfjarðaleiðar
ehf., segir að þessar ferðir njóti mik-
illa vinsælda.
„Þegar breytingar urðu í rækju-
veiðum á Flæmska hattinum var
ákveðið að breyta þessu í jólaversl-
unarferðir og það varð strax mjög
vinsælt, enda hagstætt að kaupa inn í
St. John’s,“ sagði Ólöf.
Þrjú undanfarin haust hefur verið
flogið með 480 sæta breiðþotu Atl-
anta og hefur vélin verið fullsetin í
hvert skipti. Ólöf segir að í ár hafi
breiðþotan ekki verið tiltæk og því
voru farnar tvær ferðir með flug-
vélum Flugleiða sem taka 200 far-
þega. Færri en vildu komust með í
fyrri ferðinni, en tvö sæti voru laus í
þeirri seinni. „Það hafa verið fasta-
gestir í þessum ferðum nánast öll ár-
in og sumir hafa farið í allar ferð-
irnar,“ sagði Ólöf. „Við erum komin
inn á dagatalið í Nýfundnalandi.
Fyrst kemur hrekkjavakan, þá koma
Íslendingarnir og á eftir þeim kemur
aðventan!“Kristján Baldursson, far-
arstjóri hópsins í St. John’s í Ný-
fundnalandi, sagði í samtali við
Morgunblaðið að íslensku gestunum
væri mjög vel tekið í borginni.
„Ferðamálaráð St. John’s hefur gert
mikið til að greiða götu okkar og
sama á við um borgarráð og borg-
arstjórn,“ sagði Kristján. „Þeir setja
sig í samband við alla sem mögulega
gætu greitt okkar götu og hafa
áhuga á að veita okkur þjónustu. Það
á við um flugstöðina, aðila sem bjóða
upp á skoðunarferðir, samgöngu-
fyrirtæki og ekki síst verslanir. Hér
eru tveir stórir verslanaklasar, stórt
vöruhús og mjög skemmtilegur mið-
bær. Fólk, sem hefur farið áður með
okkur, lítur meira á þetta sem af-
slöppunarferð en verslunarleið-
angur. Heimamenn eru einstaklega
viðmótsþýðir, gestrisnir og hafa
mikla þjónustulund. Farþegar okkar
tala alltaf um hlýlegu viðtökurnar,“
sagði Kristján.
Ferðamálaráð St. John’s hefur
kannað hug ferðafólksins við brott-
för. Kristján segir að þar komi fram
að um þriðjungur farþeganna hafi
farið áður í þessar ferðir.
„Það er eins og þjóðhöfðingjar séu
að mæta þegar við lendum hér. Það
er tekið á móti okkur með keltneskri
tónlist og risastórum kökum. Um
helmingur íbúanna er af írsku bergi
brotinn og við finnum til skyldleika
með þessu fólki.“
Íslandskynning á Holiday Inn
St. John’s er á stærð við Reykjavík
með um 120 þúsund íbúa. Þar er lág
glæpatíðni, vegalengdir stuttar og
umferðin þægileg. Forsvarsmönnum
ferðanna var boðið í móttöku hjá
borgarstjórninni og síðastliðið mánu-
dagskvöld var Íslandskynning á
Holiday Inn-hótelinu í borginni. Þar
kynntu fulltrúar Hópferðamiðstöðv-
arinnar-Vestfjarðaleiðar Ísland,
ásamt John L. Joy, kjörræðismanni
Íslands. Dreift var kynningarefni frá
skrifstofu Ferðamálaráðs í New
York, sýndar myndir og fleira héðan
og haldnar ræður. Að sögn Kristjáns
var húsfyllir og kynningunni vel tek-
ið. Hann segir að ferðamála- og
borgaryfirvöld St. John’s hafi lýst
miklum áhuga á frekari samskiptum
við Íslendinga, ekki síst að þau geti
verið í báðar áttir. Til að svo megi
verða þarf að auka tíðni flugferða
milli landanna.
Víkingar nútímans koma vopnaðir greiðslukortum í verslanirnar í St. John’s í Kanada
Íslendingar boða
komu jólanna
GRÍMSEYINGAR fundu vel
fyrir skjálftahrinunni sem gekk
yfir í fyrrakvöld og -nótt í
kringum eyna, þegar stærsti
skjálftinn mældist 3,6 stig á
Richter nálægt miðnætti. Vel á
annan tug skjálfta kom fram á
mælum Veðurstofunnar fram á
nótt, flestir á bilinu 1,3–2,6 stig
á Richter.
Að sögn Helgu Mattínu
Björnsdóttur, fréttaritara
Morgunblaðsins í Grímsey, var
varla um annað talað í eynni í
gærmorgun þegar íbúar risu úr
rekkju og fóru til náms og
vinnu. Fólk hefði fundið fyrir
drunum og töluverðri hreyfingu
en hlutir þó ekki dottið úr hill-
um.
Sumum varð ekki
svefnsamt um nóttina
Ekki hefði gripið um sig nein
hræðsla en sumir beðið í nokk-
urri skelfingu eftir næsta
skjálfta. Eyjarskeggjum hefði
sumum hverjum ekki orðið
svefnsamt um nóttina en allir
haldið ró sinni.
Grímseyingar
fundu fyrir
skjálftahrinu
HAMBORGARHRYGGUR verður
á borðum 54% þjóðarinnar og er
langvinsælasti jólamaturinn, ef
marka má niðurstöðu Þjóðarpúls
Gallup. Þar var fólk m.a. spurt hvað
það hefði haft í matinn á að-
fangadag jóla í fyrra og hvað það
ætli að borða nú á aðfangadag.
Hamborgarhryggurinn virðist held-
ur vera að sækja í sig veðrið, en
51,4% aðspurðra snæddu hann í
fyrra.
Næst hamborgarhryggnum að
vinsældum kemur lamb (9,6%),
svínasteik (8%), kalkúnn (7%),
hangikjöt 4,4% og 2,9% ætla að hafa
rjúpur, hvað sem tautar og raular.
Hamborgarhrygg-
urinn vinsælastur