Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þýðir nokkuð að hlaða þessu drasli á sleðann, Geiri gaur? Það vill enginn fá þetta í skóinn. HeildargreiðslurÁbyrgðasjóðslauna námu rúm- um 733 milljónum króna árið 2003. Höfðu þær tvö- faldast frá árinu 2001. Áætlað er að þær verði um 800 milljónir króna á þessu ári. Markmið laga um Ábyrgðasjóð launa er m.a. að tryggja launamönnum og lífeyrissjóðum greiðsl- ur vegna vangoldinna krafna þeirra við gjald- þrot vinnuveitanda. Sæv- ar Sigurgeirsson, formað- ur stjórnar Ábyrgðasjóðs- ins, segir að eigið fé sjóðsins hafi verið uppurið í lok ársins 2003. Til þess að sjóðurinn geti unnið úr þeim vanda og látið enda ná saman fyrir árslok 2006 þurfi að hækka tekjustofn sjóðs- ins, þ.e. svokallað ábyrgðargjald, úr 0,04% í 0,16%. Slík hækkun, segir Sævar, er þó samningsatriði milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins. Í nýrri álitsgerð Vinnumála- stofnunar og stjórnar Ábyrgða- sjóðs launa er fjallað um ástæður útgjaldaaukningar úr sjóðnum síðustu árin. Segir þar að nær- tækasta skýringin sé gríðarleg fjölgun gjaldþrotaskipta sem og stærri gjaldþrot en áður. Er í því sambandi m.a. bent á að fjöldi gjaldþrota hjá einstaklingum og fyrirtækjum hafi verið 679 árið 2001 en 1.074 árið 2003. Að álitinu vann Harri Ormarsson lögfræð- ingur. Fleiri skýringar á útgjalda- aukningunni eru nefndar í álits- gerðinni. Ábyrgð stjórnenda fyr- irtækjanna, sem verða gjaldþrota, er þar m.a. nefnd til sögunnar. Forsvarsmenn fyrirtækjanna fari til dæmis allt of seint af stað með að biðja um gjaldþrotaskipti. Það þýði að fyrirtækin séu nánast allt- af eignalaus þegar farið sé út í skiptin og því fáist lítið sem ekk- ert upp í kröfur. „[Í] miklum meirihluta tilvika eru það kröfu- hafarnir sem biðja um skiptin, en ekki fyrirsvarsmenn fyrirtækj- anna,“ segir í álitsgerðinni. Í þessu sambandi má benda á að 357 einkahlutafélög voru úr- skurðuð gjaldþrota hjá Héraðs- dómi Reykjavíkur árið 2003. Af þeim voru 228 þegar afgreidd sem eignalaus bú. Í álitsgerðinni er reyndar hnykkt á því að það sem einkenni gjaldþrota fyrirtæki um þessar mundir sé að búin séu í flestum tilvikum eignalaus. Átak í að handtaka skuldara Ein ástæða þess að bú koma seint til gjaldþrotaskipta er að Sýslumannsembættið í Reykjavík er ekki nógu skilvirkt, að því er segir í álitinu. Ennfremur er seinagangi hjá Héraðsdómi Reykjavíkur kennt um. Gjaldþrotaskiptakrafa er iðu- lega byggð á árangurslausri fjár- námsgerð, eins og það er kallað, frá viðkomandi sýslumanni. Í lög- um er gert ráð fyrir því að ferlið frá fjárnámsbeiðni til gjaldþrota- skipta taki nokkrar vikur. Reynd- in er hins vegar sú, segir í álitinu, að þetta ferli taki ár eða lengur. Réttarkerfið bjóði nefnilega upp á að skuldarar komist undan, t.d. með því að virða að vettugi boðun sýslumanns um að mæta í fjár- námsfyrirtöku. „Þetta [er] slæmt fyrir búin þar sem þarna vinnst tími til að skjóta undan eignum og stundum hafa riftunarfrestir liðið. Fyrirtækin kannski farin á kennitöluflakk því kerfið er svo svifaseint og því oft á tíðum of seint að grípa í taumana.“ Auk þessa segir í álitinu að margt bendi til þess að breytt við- skiptaumhverfi hér á landi eigi þátt í því hve þrotabú komi seint til skipta og hve eignalítil þau séu. Bankarnir séu t.d. í auknum mæli farnir að fá svokölluð allsherjar- veð hjá fyrirtækjum, þ.e. veð í við- skiptakröfum, hlaupareikningum, vörum og fasteignum. „Þannig eru búin oft keyrð hart og lengi áður en þau koma til skipta, en bankinn þá jafnframt búinn að hirða allt sem máli skiptir.“ Í lok álitsgerðarinnar er bent á mögulegar úrbætur. Þar segir m.a. að löngu sé orðið tímabært, að margra mati, að breyta gjald- þrotalögum á þann hátt „að hægt sé að knýja fram gjaldþrotaskipti á grundvelli árangurslauss fjár- náms þótt gerðarþoli hafi ekki mætt og lýst yfir eignaleysi og engar skráðar eignir til trygging- ar kröfum að finna.“ Ennfremur þyrfti Sýslumanns- embættið í Reykjavík í samvinnu við lögreglu að gera verulegt átak í að handtaka skuldara sem ekki sinna boðunum yfirvalda. „Hand- taka menn samdægurs ef þeir ekki sinna lögregluboðunum. Svo- leiðis átak í 3 til 4 mánuði myndi vera fljótt að fréttast og skuldarar myndu því sinna boðunum betur en áður.“ Sævar Sigurgeirsson segir að álitsgerðin hafi verið kynnt fé- lagsmálaráðherra. Í ráðuneyti hans sé verið að skoða niðurstöður hennar. Ingvar Sverrisson, fulltrúi Alþýðusambands Íslands, í stjórn sjóðsins, og Hrafnhildur Stefánsdóttir, fulltrúi Samtaka at- vinnulífsins í stjórn sjóðsins, segja nauðsynlegt að álitsgerðin hafi verið gerð. „Þetta er þörf álits- gerð og margt athyglisvert í henni. Við munum fara nánar yfir hana,“ segir Hrafnhildur. Fréttaskýring | Greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa hafa aukist mikið Eigið fé sjóðs- ins er uppurið Gríðarleg fjölgun gjaldþrotaskipta Auðvelt að stofna ný og ný félög  Í álitsgerð fyrir Ábyrgðasjóð launa segir m.a. að „eitthvað [sé] um það að sömu rekstraraðil- arnir sjáist aftur og aftur sem forsvarsmenn og stofnendur gjaldþrota félaga. Þannig virðast menn með sögu gjaldþrota á bak við sig eiga hægt með að stofna ný og ný félög,“ segir í álitsgerð- inni. Er m.a. tekið dæmi af einum einstaklingi sem hefur verið stjórnarmaður í 10 félögum eða fleirum, sem úrskurðuð hafa ver- ið gjaldþrota á sl. 4 árum. arna@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.