Morgunblaðið - 02.12.2004, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Völuspá
á laugardag
Lestu bókina fyrst
og gagnrýnina á eftir?
Lestu Lesbókina fyrst
og bókina svo?
Jólabækurnar
+
Hefur íslenska
bókmenntastofnunin þagað
þunnu hljóði um kenningar
Helga Hálfdanarsonar
um Völuspá? ÞAÐ ER greinilegt að Klúbburinn Geysir stendur sig
mjög vel og þar er verið að vinna góða hluti. Þetta er mat
þeirra Peters Travisanos og Peters Foulkes, sem eru at-
vinnumálaráðgjafi og klúbbfélagi í Genesis-klúbbnum í
Bandaríkjunum sem starfar, líkt og fjögur hundruð aðrir
klúbbar í þrjátíu löndum um heim allan.
Klúbbarnir starfa eftir hugmyndafræði Fountain
House sem miðar að því að efla hæfileika og styrkja ein-
staklinga sem eiga eða átt hafa við geðræn veikindi að
stríða. Að sögn Önnu S. Valdemarsdóttur, framkvæmda-
stjóra Klúbbsins Geysis, sér Genesis-klúbburinn einnig
um að þjálfa starfsmenn klúbba víðs vegar um heim og
aðstoða klúbbana við að fá úttekt og viðurkenningu frá
ICCD, þ.e. alþjóðasamtökum Fountain House.
Aðspurðir segja þeir Travisano og Foulkes tilgang
ferðar sinnar hingað fjölþættan. „Markmið heimsóknar
okkar er að kynna okkur starfsemina hér og gefa leið-
beiningar um áframhaldið. Heimsóknin er þannig liður í
því að fylgja eftir framkvæmdaáætlun sem starfsmenn og
meðlimir Klúbbsins Geysis settu saman í kjölfar starfs-
þjálfunar sinnar hjá okkur úti í Bandaríkjunum fyrir ári.
Að auki höfum við lagt leið okkar í hin ýmsu fyrirtæki til
að kynna stjórnendum hugmyndina um „ráðningu til
reynslu“ sem er afar góð leið til þess að hjálpa klúbb-
félögum til þess að komast aftur á atvinnumarkaðinn.“
Aðspurðir segjast þeir afar ánægðir með starfsemi
Klúbbsins Geysis. „Maður finnur það strax þegar maður
kemur hingað í hús hvað andinn er góður. Það er greini-
legt hvað starfsmenn og félagar vinna vel saman sem ein
heild og ánægjulegt að verða vitni að því hve gott vinnu-
andrúmsloftið er,“ segir Travisano og leggur áherslu á
ánægju sína yfir því hve hátt hlutfall klúbbfélaga sækja
ýmist skóla eða vinnu. „Af því er augljóst að félagar líta á
Klúbbinn Geysi sem lið í því að halda áfram með líf sitt.
Þannig er klúbburinn ekki nein endastöð heldur stökk-
bretti aftur út í lífið. Það má því með sanni segja að í
klúbbinn liggi stórar dyr inn og jafnframt stórar dyr út.“
Ráðning til reynslu góð og
hagkvæm fyrir fyrirtækin
Að sögn Önnu hefur Klúbburinn Geysir allt frá stofnun
árið 1999 lagt sitt af mörkum til að hjálpa félögum klúbbs-
ins að komast aftur út í lífið. „Einn liður í því er það sem
kallast „ráðning til reynslu“, en hún felst í því að fyrirtæki
gera samning við Klúbbinn Geysi um að ráða til sín ein-
staklinga sem hafa átt við geðræn veikindi að stríða en
eru komnir langt á batavegi. Um er að ræða tímabundna
ráðningu í 6–9 mánuði. Nú þegar erum við með þrjú
„ráðningu til reynslu“ störf, þ.e. hjá Félagsþjónustunni,
Regnbogabörnum og Íslandsbanka og um áramótin bæt-
ist félagsmálaráðuneytið síðan í hópinn.“
Eins og fyrr gat var eitt markmiðið með heimsókn
Travisano og Foulkes að heimsækja íslensk fyrirtæki og
kynna stjórnendum „ráðningu til reynslu“. Spurðir um
viðtökur segir Travisano þær hafa verið býsna góðar.
„Það hefur vissulega margt breyst á umliðnum árum.
Þegar ég hóf að vinna fyrir Genesis-klúbbinn fyrir rúm-
um áratug og fór að reyna að sannfæra atvinnurekendur
um að þeir ættu að ráða til sín félaga undir merkjum
„ráðningar til reynslu“ leið mér oft eins og ég væri að fara
fram á greiða. Með árunum hef ég hins vegar áttað mig á
því að slík ráðning er ekki síður góð og hagkvæm fyrir
fyrirtækin. Félagar okkar eru ekki aðeins góðir starfs-
menn heldur fá atvinnurekendur einnig gott stuðnings-
net sem gerir það að við getum t.d. tryggt 100% mætingu
sem kemur fyrirtækjum auðvitað til góða. Oft held ég að
það komi stjórnendum fyrirtækja raunverulega á óvart
hversu góðir og hæfir starfsmenn félagar okkar eru,“
segir Travisano og minnir um leið á að það krefst mikillar
vinnu og þrautseigju að búa til störf sem falla undir
„ráðningu til reynslu“ sökum þeirra fordóma gagnvart
geðsjúkum sem enn eru við lýði. „En reynsla sýnir okkar
að fordómarnir gagnvart geðsjúkum virka í raun mun
meira hamlandi en sjúkdómurinn sjálfur.“
Gerir vinnustöðum gott
Anna tekur undir það að viðtökur hafi verið góðar hjá
fyrirtækum, „enda finna góð fyrirtæki til samfélagslegr-
ar ábyrgðar. Ég vil þó taka fram að það er ekki verið að
búa til störf fyrir okkar félaga heldur eru þetta störf sem
eru til og vantar einhvern til að sinna þeim. Okkar upp-
lifun er að þetta geri vinnustöðunum afar gott. Þetta virð-
ist auka samheldnina hjá starfsfólki fyrirtækisins, þar
sem þau eru stolt af vinnustaðnum fyrir að taka þátt í
svona verkefni. Einnig er ljóst að starfsmenn eru ánægð-
ir með að fá tækifæri til að kynnast fólki með annan bak-
grunn, sjá fólk vaxa og takast á við ábyrgð og læra starf-
ið.“
Virkar sem stökk-
bretti aftur út í lífið
Morgunblaðið/Golli
„Maður finnur strax hvað andinn er góður hér í Klúbbn-
um Geysi. Það er greinilegt hvað starfsmenn og félagar
vinna vel saman sem ein heild og ánægjulegt að verða
vitni að því hve gott vinnuandrúmsloftið er,“ segja Peter
Foulkes og Peter Travisano sem staddir eru hér á landi
m.a. til að kynna sér starfsemi klúbbsins.
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gær
við fullveldiskökunni úr hendi Reynis Þorleifssonar,
bakarameistara og formanns Landssambands
bakarameistara, og Hjálmars E. Jónssonar stjórn-
armanns. Kakan verður til sölu í bakaríum um allt
land í tilefni af fullveldisdegi Íslendinga, 1. desem-
ber.
Bakstur fullveldiskökunnar er liður í átaki sem
Landssamband bakarameistara efnir til á aðventunni
undir kjörorðinu „Veljum íslenskt í bakaríum um jól-
in“. Átakið, sem er liður í landsátakinu „Veljum ís-
lenskt og allir vinna“, hófst sl. laugardag og stendur
til 20. desember. Viðskiptavinum bakaríanna gefst
kostur á að taka þátt í landsleik Labaks með því að
skrifa nafn sitt og símanúmer aftan á kassakvittun
sína og stinga henni í lukkupott í bakaríinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson tekur við fullveldiskökum úr hendi Reynis Þorleifssonar, t.h., og Hjálmars E. Jónssonar.
Halldór fékk fullveldiskökur