Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
81%landsmanna
telur Morgunblaðið miðil
að sínu skapi❉
❉Gallup mars 2004
Morgunblaðið 81%
Skjár 1 76%
mbl.is 64%
Fréttablaðið 76%
Sjónvarpið 66%
Stöð 2 63,4%
Rás 2 58,1%
Bylgjan 55%
„Morgunblaðið er
miðill að mínu skapi“
Gerðin | Betri stofan í félagsmiðstöðinni Hæðar-
garði var vígð í gær, en betri stofan er handa-
vinnuherbergi þar sem hægt er að eiga notalegar
stundir með hannyrðir eða kaffibolla. Af því tilefni
litu krakkarnir af leikskólanum Jörfa í heimsókn
og þáðu jólaöl og piparkökur og sungu þegar
kveikt var á ljósunum á jólatré í Listigarði
Hæðargarðs.
„Það var kanillykt í loftinu, jólasöngvar sungn-
ir, kveikt á jólatrénu og allir með jólablik í augum.
Barnsaugun eru alveg nauðsynleg til að skynja
jólin í sínu rétta samnhengi, maður fær hálfpart-
inn tár í augun þegar blessuð börnin fara að
syngja. Svo þetta var alveg yndisleg morgun-
stund,“ segir Ásdís Skúladótttir, verkefnisstjóri
Hæðargarðs.
Fjöldi eldra fólks sem tekur þátt í starfi félags-
miðstöðvarinnar var samankominn til að njóta
þessarar jólalegu stundar og vígja betri stofnuna.
Þar var einnig opnuð sýning með málverkum
Gerðar Sigfúsdóttur, og Brynhildur Björnsdóttir
söng jólalög fyrir gestina við píanóundirleik Jóns
Möller.
Börnin komu í
betri stofuna
Morgunblaðið/Sverrir
Kveikt á jólaljósum Kynslóðirnar mættust í félagsmiðstöðinni Hæðargarði í gær þegar kveikt var á
ljósunum á jólatrénu og leikskólabörnin og eldri borgararnir gengu saman í kringum jólatréð.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kópavogur | Mjöll-Frigg fékk
ekki leyfi til að geyma og vinna
úr klórgasi á lóð sinni við
Vesturvör í Kópavogi, og var
umsókn fyrirtækisins vísað frá
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarð-
ar- og Kópavogssvæðis á fundi
nefndarinnar á mánudag.
Fyrirtækið flutti starfsemi sína
frá Reykjavík til Kópavogs sl.
sumar.
Í fundargerð heilbrigðis-
nefndarinnar kemur fram að
ekki var gerð fullnægjandi
grein fyrir staðháttum á vinnu-
stað í umsókn Mjallar-Friggj-
ar, auk þess sem ekki var gerð
grein fyrir því hvort starfsemin
samrýmdist deiliskipulagi, og
húsnæðið fullnægði ákvæðum
skipulags- og byggingarlaga.
Því var umsókninni vísað frá.
Guðmundur Einarsson, for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar og Kópavogs,
segir að af þessu leiði að fyrir-
tækið megi ekki starfa á þessu
svæði, né megi það geyma klór-
gas þar. Hann segir ekki ljóst
hvort eitthvað sé eftir af gasinu
á svæðinu. Ef svo er þurfi að
flytja það á brott, og ekki sé
leyfilegt að flytja meira á stað-
inn.
Ekki er búið að fara í gegn-
um alla öryggisþætti hjá Mjöll-
Frigg, og að sögn Guðmundar
var það undir fyrirtækinu
sjálfu komið að hlúa að öryggis-
þættinum, bera málið undir
byggingarfulltrúa, vinnueftirlit
og slökkvilið áður en það er
sent til heilbrigðiseftirlitsins.
Fyrirtækið gæti sótt um að
nýju og lagt fram öll umbeðin
gögn, eða kært frávísunina til
ráðherra þyki því heilbrigðis-
eftirlitið hafa farið offari.
Öryggismál ófullnægjandi
Menn á vegum heilbrigðis-
nefndarinnar hafa farið á vett-
vang og kynnt sér ástandið,
segir Sigurgeir Ólafsson, vara-
formaður heilbrigðisnefndar
Hafnarfjarðar- og Kópavogs-
svæðis. Samkvæmt því sem
þeir hafa tjáð nefndinni kemur
m.a. fram að svæðið er frekar
opið og öryggismál mættu vera
betri. Að auki hefur nefndin
ekki fengið að sjá viðbragðs-
áætlanir fyrirtækisins ef eitt-
hvað færi úrskeiðis.
Mjöll-
Frigg
fékk ekki
starfsleyfi
Reykjavík | Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, nýr borgarstjóri
Reykvíkinga, tók formlega við
starfinu af forvera sínum, Þórólfi
Árnasyni, í Ráðhúsinu í gærmorg-
un og afhenti Þórólfur henni lykla-
völdin í Ráðhúsinu við það tilefni.
Fyrsta embættisverk nýja
borgarstjórans var að undirrita
samkomulag milli Reykjavíkur-
borgar, félagsmálaráðherra,
menntamálaráðherra, Rauða kross
Íslands og Velferðarsjóðs barna um
verkefnið Framtíð í nýju landi.
Verkefnið snýr að ungu fólki af
víetnömskum uppruna en í ár eru
liðin 25 ár síðan fyrsti hópur Víet-
nama fluttist til landsins. Steinunn
er sextándi borgarstjóri Reykjavík-
ur frá því embættið varð til árið
1908, en þá var íbúafjöldi Reykja-
víkur aðeins um 10 þúsund.
Morgunblaðið/Sverrir
Borgarstjóraskipti Þórólfur afhenti Steinunni Valdísi lyklana.
Steinunn Valdís tók við
embætti borgarstjóra
Vesturbær | Unnið er myrkranna
á milli þessa dagana við að klára
framkvæmdir við Suðurgötuna, þó
ef til vill sé það ekki mikið afrek
þegar skammdegið færist yfir og
farið er að myrkva um kl. 16 á
daginn. Stefnt er að því að opna
Suðurgötuna að fullu fyrir umferð
10. desember, og var verið að mal-
bika og ganga frá gangstéttar-
köntum þegar ljósmyndari átti
leið hjá.
Morgunblaðið/Golli
Unnið myrkranna á milli
Hafnarfjörður | Skilmálar sem
banna íbúum í Áslandshverfi og öðr-
um nýlegum hverfum að setja loftnet
á hús sín eru fallnir úr gildi og hindra
því ekki íbúa í að setja upp örbylgju-
loftnet, sem er nauðsynlegt til þess
að ná stafrænum sjónvarpssending-
um, t.d. frá Digital Ísland.
Hafnarfjarðarbær hefur fengið
nokkurn fjölda fyrirspurna um þessa
skilmála frá fólki sem hefur haft hug
á því að setja upp örbylgjuloftnet, og
hefur þeim öllum verið svarað því til
að skilmálarnir um loftnetin sem
skrifað var upp á þegar lóðum var út-
hlutað séu fallnir úr gildi, segir Guð-
mundur Benediktsson, bæjarlög-
maður í Hafnarfirði.
Þegar Áslandshverfið og önnur
nýleg hverfi voru skipulögð var
ákveðið að leggja kapal í öll húsin, og
setja skilyrði um að loftnet mættu
ekki vera á húsunum vegna þess að
engin þörf væri fyrir loftnetin, enda
íbúar skyldaðir til að borga fyrir
kapalinn.
Nettari loftnet
Í kjölfarið hafa bæði aðstæður og
tæknin breyst, og því þótti ástæða til
að endurskoða þessa skilmála, segir
Guðmundur. „Mér skilst að með
þessu nýja digital-kerfi þurfi að vera
loftnet, þetta er nú ósköp lítið og nett
loftnet, og miklu nettara en þessi
loftnet voru. Tæknin hefur breyst
mikið og það er allt annað umhverfi
en var í þessu.“
Tækniþróun fellir skilmála úr gildi
Mega setja loft-
net á hús sín
Hafnarfjörður | Alls buðu 13 fyrir-
tæki í niðurrif á húsum á Norður-
bakka, og var lægsta boðið innan við
43% af kostnaðaráætlun, sem hljóm-
aði upp á röskar 70 milljónir króna.
Húsin sem á að rífa eru um 8.300 fer-
metrar, og á niðurrifinu að vera lokið
15. apríl nk.
Tilboð voru opnuð á þriðjudag, og
voru 10 af 13 tilboðum sem bárust í
verkið í heild, en þrjú tilboð bárust í
niðurrif á einstökum húsum. Af þeim
sem buðu í allt verkið átti BT sögun
lægsta tilboðið, 29,9 milljónir króna.
Bortækni karbó bauð 31,3 milljónir,
en önnur tilboð voru mun hærri.
Hæsta tilboðið kom frá Ístaki, sem
bauð 109,7 milljónir króna í verkið.
Útboð í niðurrif opnuð