Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SAMTÖK verslunar og þjónustu
hafa sent frá sér yfirlýsingu, dag-
setta 29. nóvember 2004, þar sem
þess er krafist að ríkið dragi sig út
úr verslunarrekstri í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar og að tollfrjáls
verslun fyrir komufarþega í flug-
stöðinni verði lögð af.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
vill af þessu tilefni taka fram eft-
irfarandi:
Rekstrarfyrirkomulag í flug-
stöðinni er í samræmi við lög frá
Alþingi og reglur sem stjórnvöld
hafa sett þar að lútandi. Það er
athyglisvert að Samtök verslun-
ar og þjónustu nefna hvergi í yf-
irlýsingu sinni umfangsmikið
forval vegna verslunarreksturs í
flugstöðinni sem stjórn Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar hf.
efndi til nú í haust. Yfir 50 um-
sóknir bárust og í dag, 30. nóv-
ember, verða einmitt póstlögð
bréf til um 30 fyrirtækja, þar
sem óskað er eftir frekari við-
ræðum um nánari útfærslu hug-
mynda þeirra og um tilheyrandi
viðskiptaáætlun. Það er með
öðrum orðum unnið markvisst
að því að gefa einkafyrirtækjum
færi á að stunda margvíslegan
verslunarrekstur í flugstöðinni.
Því ættu Samtök verslunar og
þjónustu að fagna en í raun
sýna þau málinu undarlegt tóm-
læti. Þannig sendu samtökin
fulltrúa sína hvorki á kynning-
arfund í Reykjavík né í vett-
vangsskoðun í flugstöðinni þeg-
ar forvalið var kynnt
sérstaklega. Þau leituðu heldur
ekki upplýsinga um málið.
Ef fríhafnarreksturinn yrði boð-
inn út í heild sinni eru líkur á að
sérhæfð, erlend verslunarfélög
myndu hreppa hnossið í krafti
stærðar sinnar og reynslu af
sambærilegri starfsemi á flug-
völlum annars staðar. Hugnast
Samtökum verslunar og þjón-
ustu slík framtíðarsýn betur,
fyrir hönd umbjóðenda sinna, en
núverandi rekstarfyrirkomulag?
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
framkvæmir í ár og á næsta ári
fyrir um 2,5 milljarða króna í
flugstöðinni og við hana í því
skyni að stórauka verslun og
þjónustu við flugfarþega og
flugrekendur. Þetta gerist án
þess að þjónustugjöld hækki,
þökk sé fjármunum sem starf-
semi FLE hf. skilar og varið er
til að standa undir framkvæmd-
um við stækkun hússins og
breytingar af ýmsu tagi. Það er
ljóst að ef ekki kæmu til tekjur
af verslunarrekstri yrði að
leggja á ný þjónustugjöld á far-
þega til að unnt væri að standa
undir nauðsynlegum fram-
kvæmdum við flugstöðina.
Sala áfengis og tóbaks er stór
hluti af veltu komuverslunar
flugstöðvarinnar. Þetta eru
vörur sem ríkið stýrir sölu á og
leggur á háa skatta hérlendis,
vörur sem farþegar á leið til Ís-
lands myndu kaupa erlendis og
flytja með sér hingað til lands ef
komuverslunin yrði aflögð. Frí-
hafnarverslunin hér keppir því í
þessum efnum við fríhafnir á er-
lendum flugvöllum. Komuversl-
unin er til þæginda fyrir ferða-
menn og meira að segja má
færa rök fyrir því að hún spari
flugfélögum eldsneyti með því
að selja vörur hér heima sem
ferðafólk myndi ella hafa í far-
angri sínum á leiðinni og þyngja
flugvélarnar sem því nemur!
Komuverslunin á Keflavíkur-
flugvelli vekur athygli víða er-
lendis. Til dæmis kynntu ráða-
menn félags, sem annast
rekstur á stærsta flugvelli Nor-
egs, Gardermoen, sér rekstur
hennar sérstaklega og hyggjast
hefja hliðstæða starfsemi þar
innan tíðar. Rekstarfyrirtæki á
fleiri alþjóðlegum flugvöllum í
Noregi horfa til Íslands af sama
tilefni.
Samtök verslunar og þjónustu
fullyrða að Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar hf.verði ,,beggja
vegna borðs, þ.e.a.s. bæði leigu-
sali og keppinautur leigutaka“
gagnvart einkafyrirtækjum sem
stunda rekstur í flugstöðinni.
Hið rétta er að núna um ára-
mótin tekur sjálfstætt félag með
eigin framkvæmdastjórn við for-
ræði verslunarreksturs Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar hf.
Rekstur fasteignarinnar heyrir
áfram undir FLE hf.
F.h. FLE,
Höskuldur Ásgeirsson
framkvæmdastjóri,
Hrönn Ingólfsdóttir
forstöðumaður markaðssviðs.
Hvers vegna þögn og tómlæti
varðandi forval um verslun-
arrekstur í flugstöðinni?
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
ÞAR SEM undirritaður er ein-
arður áhugamaður og sjálfskip-
aður sérfræðingur í megrun-
arkúrum telur hann vert að geta
þeirra helstu sem hafa notið vin-
sælda þetta árið.
Í upphafi árs var
einn kúr öðrum vin-
sælli, sá sami og naut
mestra vinsælda á
árinu 2003. Hér er að
sjálfsögðu átt við Atk-
inskúrinn sem margir
þekkja sem „Ásmund-
arkúrinn“. Kúrinn sá
er mjög öfgakenndur
fitu- og próteinríkur
kúr þar sem kolvetni
(sykrur), sem er mik-
ilvægasti orkugjafinn,
er sagður offituvald-
urinn mesti.
Í framhaldi af dvínandi áhuga á
Atkins fór í auknum mæli að bera
á því að farið var að spyrja und-
irritaðan út í kúr sem virðist eiga
ættir að rekja til Danmerkur og
kallaður manna á meðal „danski
kúrinn“. Í þessum kúr er mjög
mikið lagt upp úr hollustu og sem
dæmi má nefna að þá neytir fólk
um 600 gramma af grænmeti á
dag og fjögurra til fimm ávaxta.
Vandkvæði við að tileinka sér slíkt
mataræði til lengri tíma liggja í
augum uppi og hafa verið staðfest
í samtölum við ýmsa sem farið
hafa á kúrinn. Vandkvæðin liggja
meðal annars í því mikla magni
grænmetis og ávaxta sem fólki er
gert að borða, en þessi mikla
neysla getur leitt til þess að fólk
fái ógeð á grænmeti og ávöxtum
og það hreinlega gefst upp. Í kjöl-
farið verður neysla hollmetisins
mun minni en manneldisráðlegg-
ingar segja til um. En því má
bæta við að „danski kúrinn“ er
næringarefnalega ekki óhollur
megrunarkúr, þvert á móti, gagn-
stætt Atkins-kúrnum þar sem
traðkað er af fullum þunga á nán-
ast öllum manneldisráðleggingum.
Síðla árs gerast svo
þau undur og stór-
merki að tveggja daga
kolvetnaríkur megr-
unarkúr (Hollywood-
kúrinn) er kynntur til
sögunnar og nær kúr-
inn sá arna ótrúlegum
vinsældum. Kúrinn
felst í því að drekka
einn lítra af „Holly-
wood-ávaxtasafa“ á
dag og kostar kúrinn
litlar 2.850 krónur.
Dýr ávaxtasafi það!
Safinn hefur verið vel
auglýstur og auglýs-
ingarnar prýða gjarnan myndir af
hæstánægðum þokkagyðjum sem
dásama áhrifamátt kúrsins enda
hafa þær að eigin sögn lést um allt
að fjögur kíló á tveimur dögum!
Að síðustu má geta kúrs sem
hefur verið mikið auglýstur á und-
anförnum vikum, meðal annars í
útvarpsþætti á Rás 2 og á fem-
in.is, en þar hefur verið hægt að
fylgjast með tveimur köppum
(kalla sig „kótellettukarlana“) fara
á kostum. Ef fram heldur sem
horfir er hér á ferðinni kúr sem
mun njóta mikilla vinsælda þegar
jólahátíðin er um garð gengin. Hér
er átt við „South Beach-mat-
aræðið“ sem einfaldlega er enn
einn fitu- og próteinkúrinn, þar
sem kolvetnaríkum (sykruríkum)
mat eins og kornmeti, ávöxtum og
kartöflum er úthýst, ekki síst á
fyrstu vikum kúrsins. En í fyrsta
kafla bókarinnar má lesa eftirfar-
andi: „Næstu 14 dagana má ekki
borða brauð, hrísgrjón, kartöflur,
pasta eða sætabrauð. Ekki heldur
ávexti.“
Það verður spennandi að fylgj-
ast með hvaða og hvers konar
megrunarkúra muni reka á Ís-
landsfjörur á ári komandi og
kannski munu birtast okkur
áhugaverðir og spennandi kúrar.
Sem dæmi má nefna að heyrst
hefur að í mekka megrunarrugls-
ins, þ.e. að sjálfsögðu í Bandaríkj-
unum, sé í boði megrunarkúr þar
sem fólk leitast við að „borða rétt“
með tilliti til þess hvaða stjörnu-
merki það tilheyrir. Kannski ein-
hverjum finnist fráleitt að hugsa
til þess að hægt sé að telja fólki
trú um að það ætti að haga mat-
aræði sínu í samræmi við stjörnu-
merki sitt. Þeir hinir sömu mættu
þá hafa í huga að fyrir nokkrum
árum tókst að selja fjölda fólks
hér á landi þá ótrúlegu hugmynd
að það ætti að temja sér mataræði
eftir því í hvaða blóðflokki það
væri!
Megrunarkúrar heilla
sem aldrei fyrr
Ólafur Gunnar Sæmundsson
fjallar um megrunarkúra ’Það verður spennandiað fylgjast með hvaða
og hvers konar megrun-
arkúra muni reka á Ís-
landsfjörur á ári kom-
andi og kannski munu
birtast okkur áhuga-
verðir og spennandi
kúrar. ‘
Ólafur Gunnar
Sæmundsson
Höfundur er næringarfræðingur.
EIN er sú saga um Írak sem ekki
hefur verið sögð. Lánardrottnar í
Parísarklúbbnum svokallaða sam-
þykktu að afskrifa 80% af erlendum
skuldum Íraks við
meðlimi klúbbsins ný-
verið. Eins og haft var
eftir Bush forseta er
þetta samkomulag
meiriháttar alþjóðlegt
framlag til áframhald-
andi pólitískrar og
efnahagslegrar endur-
uppbyggingar Íraks.
En það er fleira hægt
að segja um efnahags-
legan árangur í Írak,
miklu fleira.
Röð efnahagslegra
afreka
Árið 1979 voru lífskjör
í Írak ámóta og á Ítal-
íu. Þegar ríkisstjórn
Saddams Husseins féll
var verg landsfram-
leiðsla svipuð og í fá-
tæku þróunarlandi og
Írak var orðið skuld-
ugasta ríki heims.
Þessi ömurlegi arfur,
auk alvarlegs ástands
í öryggismálum, er
mikil hindrun á vegi
efnahagslegrar þróun-
ar.
Þrátt fyrir þessa
erfiðleika þrauka
Írakar og ná árangri.
Stefna þeirra gerði
það að verkum að
efnahagsleg afköst
fyrstu tíu mánuði árs-
ins 2004 voru 51,7%
meiri en á sama tíma 2003. Tekjur á
mann árið 2004 eru áætlaðar 780
dalir og hafa hækkað úr um það bil
500 dölum árið 2003.
Íraska ríkisstjórnin hefur sett
fram trausta efnahagsáætlun. Seðla-
banki landsins, sem nú er orðinn
sjálfstæður, hefur hemil á verðbólg-
unni en neysluvísitalan hækkaði að-
eins um 5,7% fyrstu átta mánuði
ársins 2004 samanborið við 46% árið
2003. Gengi hins nýja dínars gagn-
vart bandaríkjadal hefur hækkað
um 27% á einu ári.
Á sama tíma hefur olíumálaráðu-
neyti Íraks staðið sig frábærlega við
að koma framleiðslunni aftur í gang,
þrátt fyrir ítrekaðar árásir á olíu-
mannvirki. Í september á þessu ári
var hráolíuframleiðsla Íraka að
meðaltali 2,54 milljónir tunna á dag,
sem er svipað magn og fyrir stríð.
Endurkoma Íraka inn
í alþjóðlegt hagkerfi
Ríkisstjórn Íraks hefur unnið að því
hörðum höndum að koma landinu
aftur inn í hið alþjóðlega hagkerfi.
Írak hefur haft áheyrnarfulltrúa hjá
Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO)
síðan í febrúar á þessu ári og tekur
nú fyrstu skrefin í áttina að því að
gerast fullgildur meðlimur stofn-
unarinnar.
Eftir margra mánaða ítarlegar
samningaviðræður undirritaði rík-
isstjórn Íraks 436 milljóna dala
samning við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn, í september 2004.
Þessi samningur –
fyrstu samskipti Íraka
við sjóðinn í rúm 20 ár
– er merki um það að
efnahagsstefna Íraka
er á réttri leið.
Enduruppbygging
Íraks nýtur víðtæks
stuðnings á al-
þjóðavettvangi, þar á
meðal frá Sameinuðu
þjóðunum, átta stærstu
iðnríkjum heims, og
ríkjum sem lögðu til
rúmlega 14 milljarða
dala í styrkjum og lán-
um, í Madríd í október
2003, til viðbótar þeim
18 milljörðum sem
Bandaríkjamenn hafa
lofað. Þessi óvenjumikli
stuðningur er staðfest-
ing á efnahagslegum
möguleikum Íraka og
viðurkenning á stað-
bundnu mikilvægi
landsins.
Geta og kjarkur
Íraka
Í september var ég for-
maður bandarískrar
sendinefndar sem tók
þátt í fundum sameig-
inlegrar efnahags-
nefndar í Bagdad með
fulltrúum Íraka. Að
loknum þessum fund-
um fannst mér mikið til
um sérfræðiþekkingu og einurð
Íraka. Þær efnahagslegu framfarir
sem átt hafa sér stað í Írak til þessa,
þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður,
bera getu Íraka og kjarki gott vitni.
Þetta á sérstaklega við um það fólk
sem á sæti í ríkisstjórn Íraks, og
sem tekur mikla persónulega
áhættu með því að vinna að því að
byggja upp lýðræðislegt og frjálst
Írak.
Írak þarfnast hjálpar okkar
Írak þarf enn á hjálp að halda, sér-
staklega frá iðnríkjunum. Í slíkri
hjálp þarf að felast stuðningur við
öryggisaðgerðir, sem eru lykilatriði
til að árangur náist bæði til skemmri
og lengri tíma, auk enduruppbygg-
ingar og fjárfestinga. Hjálp frá
þróuðu ríkjunum væri sérstaklega
vel þegin núna þegar ríkisstjórn
Íraks ryður brautina fyrir fyrstu
lýðræðislegu kosningarnar í land-
inu, hinn 30. janúar nk. Eins og Sa-
leh, aðstoðarforsætisráðherra Íraks,
sagði á fundi með gefendum í Tókýó
í október sl. er aðstoð ekki ölmusa
heldur fjárfesting í betri framtíð
fyrir ríki í mikilvægum heimshluta.
Írak –
ósögð saga
Alan P. Larson fjallar um
efnahagsþróunina í Írak
Alan P. Larson
’Árið 1979 vorulífskjör í Írak
ámóta og á Ítal-
íu. Þegar rík-
isstjórn Sadd-
ams Husseins
féll var verg
landsfram-
leiðsla svipuð og
í fátæku þróun-
arlandi og Írak
var orðið skuld-
ugasta ríki
heims. ‘
Höfundur er aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna í
efnahags- og landbúnaðarmálum.
Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is
Blómavasar • Karöflur • Gjafir
Jólaskeið
Ernu
kr. 6.700
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Silfurbúnaður
Landsins
mesta úrval