Morgunblaðið - 02.12.2004, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Njóttu lífsins í dag og leitaðu uppi
ánægjulega afþreyingu. Farðu í bíó eða í
partí, horfðu á íþróttaleik og slettu úr
klaufunum með smáfólkinu, ef þú getur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir átt mikilvægt samtal við for-
eldri í dag. Þetta er góður dagur til þess
að stússast heima og sinna húsverk-
unum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er í nógu að snúast núna. Sinntu er-
indum, farðu að versla, stattu í samn-
ingaviðræðum og heimsæktu systkini.
Þú kemur miklu í verk en mundu að taka
fyrir eitt í einu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Kannski langar þig til þess að kaupa
eitthvað skrautlegt og litríkt. Dramatík
og hugrekki bærist innra með þér.
Tunglið er í ljóni og þig langar til þess að
líta út eins og kvikmyndastjarna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í þínu merki núna, það þýðir
að gæfan er örlítið hliðhollari þér en
flestum öðrum á meðan. Berðu fram
óskir sem þú vilt fá jákvætt svar við, þær
gætu ræst.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að finna tíma fyrir sjálfa þig
núna. Jafnvel hálftíma einvera er nóg til
þess að rétta kjölinn. Þú þarft tíma til
þess að henda reiður á hugsunum þínum
og róa þinn innri mann.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samræður við vini verða ánægjulegar í
dag, einkum og sér í lagi samtal við vin-
konu. Þú hefur þörf fyrir að láta móðan
mása þessa dagana. Láttu það eftir þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fólk veitir þér eftirtekt í dag, tjaldaðu
öllu sem þú átt til. Tunglið er í ljóni og
trónir hátt í þínu sólarkorti, kannski að
þú eigir mikilvægt samtal við yfirmann
þinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að bregða út af vananum í dag.
Hristu upp í rútínunni. Farðu aðra leið í
vinnuna en venjulega, kíktu í aðrar
verslanir og keyptu tímarit sem þú hefur
aldrei séð áður.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sinntu smáatriðum er varða tryggingar,
skuldir, skatta og lánstraust. Þetta eru
vissulega leiðinleg skriffinnskuverkefni,
en nauðsynleg engu að síður.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samtöl við aðra eru full merkingar um
þessar mundir. Tunglið er beint á móti
vatnsberanum núna, það gerir þig um-
burðarlyndari og samvinnuþýðari en þú
átt að þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nýtur þess að stússast og koma lífi
þínu í röð og reglu. Taktu þig til og
hentu að minnsta kosti fimm hlutum sem
þú þarfnast alls ekki lengur.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert krafturinn uppmálaður og tekur á
öllu sem þú átt í daglegu lífi. Þú ljómar
þegar mest gengur á. Persónuleiki þinn
og siðferði er sterkt og þú berð virðingu
fyrir slíkum eiginleikum í fari annarra.
Þú hleypur ekki af hólmi í átökum.
Leggðu mikið á þig á næsta ári, þú átt
breytingar í vændum 2006–7.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hroki, 4 að-
finnslur, 7 endurtekið, 8
snaginn, 9 háð, 11 nöldra,
13 dýr, 14 sundfugl, 15
þæg, 17 þröngt, 20 skel, 22
álitleg, 23 ganglimum, 24
þvaðra, 25 röð af lögum.
Lóðrétt | 1 kvenklæðn-
aður, 2 umboðsstjórn-
arsvæðið, 3 virki, 4 fyrr, 5
ásjóna, 6 annríki, 10 kúg-
un, 12 ílát, 13 títt, 15 gang-
fletir, 16 dýs, 18 í upp-
námi, 19 lengdareining, 20
smáalda, 21 krafts.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gallalaus, 8 Sævar, 9 tinds, 10 ill, 11 mögur, 13
akrar, 15 holds, 18 galta, 21 tól, 22 Papey, 23 örugg, 24
Bragagata.
Lóðrétt | 2 akveg, 3 lúrir, 4 litla, 5 unnur, 6 ásum, 7 ósar, 12
und, 14 kúa, 15 hopa, 16 lepur, 17 stygg, 18 glögg, 19 laust,
20 agga.
Skemmtanir
Café Victor | Dúettinn Sessý og Sjonni
leikur á Café Victor í kvöld.
Kaffi List | Disco Volante spilar Reggae
og dub á Kaffi List í kvöld.
Kaffi Sólon | Magni og Sævar á Móti Sól
spila og syngja fyrir gesti á 2 hæð í Kaffi
Sólon. Sérstakur gestur er Hreimur Örn
Heimisson.
Tónlist
Akureyrarkirkja | Kvennakór Akureyrar
ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju og Kór
Glerárkirkju halda tónleika kl. 20 til
styrktar Mæðrastyrksnefnd. Stjórnendur:
Þórhildur Örvarsdóttir, Eyþór Ingi Jóns-
son og Hjörtur Steinbergsson. Kynnir er
Skúli Gautason. Aðgangur kr. 1000, frjáls
framlög vel þegin. Frítt fyrir börn.
Café Rosenberg | Bill Bourne með tón-
leika kl. 22.
Grand Rokk | Smokey Bay Bluesband kl.
22.
Hitt húsið | Á Fimmtudagsforleik í Hinu
Húsinu í kvöld munu rokksveitirnar Abú-
Dabí, Himmler og The Telepathetics heyja
innrás frá rokk- og bítlabænum Keflavík.
Sveitirnar munu leika músík af sinni al-
kunnu snilld. Tónleikarnir hefjast klukkan
20. 16 ára aldurstakmark og aðgangur
ókeypis.
Hressó | Groundfloor spilar frumsamda
tónlist í anda Nick Cave/Damien Rice.
Hefst upp úr kl. 22.
Kvennakór Reykjavíkur | Kvennakór
Reykjavíkur flytur á aðventu ásamt
þremur einsöngvurum, strengjaleikurum
og orgelundirleik: Missa Brevis eftir Moz-
art og perlur klassísku meistaranna Bach,
Brahms, og Schubert í Grafarvogskirkju
kl. 20. Stjórnandi Sigrún Þorgeirsdóttir.
Rex | Hammondleikarinn Sigurður Hall-
dór Guðmundsson, úr reggae hljómsveit-
inni Hjálmum og plötusnúðurinn Margeir
spinna saman kl. 22.30. Aðgangur er
ókeypis.
Myndlist
Akranes | Gylfi Ægisson sýnir um 60
akrýlmyndir.
Árbæjarsafn | Í HLUTANNA EÐLI stefnu-
mót lista og minja.
Gallerí 101 | Daníel Magnússon myndlist-
armaður – Matprjónagerð lýðveldisins
kynnir: Innihald heimilisins.
Gallerí Dvergur | Anke Sievers – Songs
of St. Anthony and Other Nice Tries.
Gallerí Fold | Guðrún Indriðadóttir, Eing-
unn Erna Stefánsdóttir og Áslaug Hösk-
uldsdóttir – Þrjár af okkur. M.J. Levy
Dickinson – Vatnslitaverk.
Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson – Arki-
tektúr
Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins-
son – Ókyrrar Kyrralífsmyndir.
Gallerí Tukt | Illgresi. Manifesto: Illgresi
er svar alþýðunnar við elítunni!
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir –
Efnið og andinn
Grafíksafn Íslands | Í dimmunni – sam-
sýning.
Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í
Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra
Íslendinga.
Hólmaröst, Lista- og menningarverstöð
| Jón Ingi Sigurmundsson – Olíu- og
vatnslitamyndir.
Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sýnir myndir sínar í Menn-
ingarsalnum.
Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð-
argjöf í Hönnunarsafninu.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir sýnir
olíumálverk – Leikur að steinum
Kling og Bang gallerí | Sigurður Guð-
jónsson – Hýsill
Listasafn ASÍ | Erling Þ.V. Klingenberg
og David Diviney – Ertu að horfa á mig /
Are you looking at me. Sara Björnsdóttir
– Ég elska tilfinningarnar þínar.
Listasafn Árnesinga | Tumi Magnússon –
Innsetning
Listasafnið á Akureyri | Patrick Kuse –
Encounter
Listasafn Íslands | Ný Íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
20 listamenn sýna.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Þrjár
sýningar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal,
Salóme eftir Richard Strauss í Vestursal
og úrval verka úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur á neðri hæð safnsins.
Listasafn Reykjanesbæjar | Valgarður
Gunnarsson – Eilífðin á háum hælum.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Grafísk hönnun á Íslandi. Stendur til ára-
móta. Erró – Víðáttur. Stendur til 27. feb.
nk.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvals-
safni.
Listmunahúsið | Sýning á verkum Valtýs
Péturssonar.
Norræna húsið | Vetrarmessa
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir –
Inni í kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir
–Eilífðin er líklega núna.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir –
–sKæti–
Tjarnarsalur Ráðhúss | Ketill Larsen –
Sólstafir frá öðrum heimi.
Listasýning
Handverk og Hönnun | Hjá Handverki og
hönnun stendur yfir jólasýningin „Allir fá
þá eitthvað fallegt…“ Sölusýning þar sem
32 aðilar sýna íslenskt handverk og list-
iðnað úr fjölbreyttu hráefni.
Bækur
Borgarleikhúsið | Upplestur og tónlist í
anddyri Borgarleikhússins kl. 20. Léttur
jóladjass og kaffihúsastemning. Höfund-
arnir sem lesa eru Halldór Guðmundsson,
Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín Eiríks-
dóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir, Sigmund-
ur Ernir og Þórarinn Eldjárn. Aðgangur
ókeypis.
Súfistinn | Höfundar Eddu útgáfu lesa úr
nýjum bókum á Súfistanum, Laugavegi
18, kl. 20. Einar Már Guðmundsson les úr
Bítlaávarpinu, Baggalútar úr Sannleik-
anum um Ísland og Árni Johnsen úr Lífs-
ins Melódí. Allir velkomnir.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer fimmtudags
ins 2. desember er 58964
Fyrirlestrar
Karuna Búddamiðstöð | Hugleiðsla kl.
12.10–13 að Ljósvallagötu 10.
www.karuna.is.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | 3ja daga námskeið
fyrir stafrænar myndavélar 7.–9. des.
kl.17–20. Farið í stillingar vélarinnar og
ýmsir möguleikar hennar útskýrðir; ljós-
op, hraði, White Balance, ISO, pixlar ofl-
.Tekið verður fyrir myndataka, mynd-
bygging, tölvumál ofl. Skráning og nánari
uppl.á www.ljosmyndari.is.
Fundir
Grand Hótel | Félag MBA–HÍ boðar til
morgunverðarfundar kl. 8.15. Gylfi Magn-
ússon dósent við Viðskipta– og hag-
fræðideild HÍ og Edda Rós Karlsdóttir
forstöðumaður greiningardeildar LÍ varpa
ljósi á tilkomu nýrra lánamöguleika á
markaðnum, áhrif þeirra á hagvöxt,
gengi, verðbólgu og skuldir heimilanna.
Aðg. kr. 1.500.
GSA á Íslandi | Fundur í kvöld kl. 20.30, í
Tjarnargötu 20. Ef þú hefur reynt allt, en
átt samt við átröskun að stríða, þá ert þú
velkominn á fund. www.gsa.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin
gengur frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur
í Fossvogi kl. 18.
Börn
Árbæjarsafn | Hægt er að fylgjast með
undirbúningi jólanna eins og hann var í
gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægj-
ast á glugga og kíkja í potta, börn og full-
orðnir fá að föndra, syngja jólalög og
ferðast um á hestvagni. Messa og sögu-
stund fyrir börnin.
Kynning
Maður lifandi | Borgartúni 24, býður upp
á ráðgjöf í hómópatíu á fimmtudögum kl.
13–15 í vetur. Kristín Kristjánsdóttir
hómópati aðstoðar viðskiptavini og svar-
ar spurningum. Ráðgjöfin er ókeypis.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. Be2 c5 6. d5 e6 7. Rf3 O-O 8.
O-O exd5 9. exd5 Ra6 10. h3 Rc7
11. Bf4 h6 12. Bg3 a6 13. a4 Hb8
14. a5 b5 15. axb6 Hxb6 16. Dd2
Bd7 17. Bd3 Rh5 18. Bh2 f5 19.
Dc2 Re8 20. Ha2 g5 21. Hfa1 g4
22. hxg4 fxg4 23. Rd2 Bd4 24.
Rde4
Staðan kom upp í fyrra hluta Ís-
landsmóts skákfélaga sem fram
fór fyrir skömmu í húsakynnum
Menntaskólans í Hamrahlíð.
Andri Áss Grétarsson (2335)
hafði svart gegn Sigurjóni Sig-
urbjörnssyni (1910). 24... g3! 25.
Rxg3 Hxf2 26. Dxf2 Bxf2+ 27.
Kxf2 Df6+ 28. Ke2 Rf4+ og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
HIP-HOP sveitin Antlew/Maximum (A/M)
heldur útgáfutónleika á Gauknum í kvöld
kl. 21 í samstarfi við Smoketown Records
og útvarpsþáttinn Chronic á Xinu 977.
Tilefni tónleikanna er útkoma plötunnar
„Time Money And Patience“.
Á tónleikunum koma fram AntLew/
Maximum, Dj Mad Erb, Dj Skinny T og
danshópurinn 5th element. Kynnir kvölds-
ins verður The African pimp.
A/M hafa starfað saman í um 6 ár bæði
hér á landi og í Svíþjóð. Árið 2002 gaf
sveitin út smáskífuna „Wyld Out“ í sam-
vinnu við rapparann El Da Seinsei frá New
York. Smáskífan fékk dreifingu víða um
heiminn ásamt því að heyrast á hinum
ýmsu blönduspólum. Sveitin hefur
löngum verið meðal helstu frumkvöðla
hip-hop menningar hérlendis, en Max-
imum var einn meðlima hljómsveitarinnar
Subterranean sem gáfu út fyrstu íslensku
rapp-plötuna hérna heima.
Á þessari nýju plötu sinni fengu A/M til
liðs við sig góða gesti og má þar nefna
Blackfist sem var einn af meðlimum Sub-
terranean, Akrobatik (Def Jux) og Sage
Francis svo einhverjir séu nefndir.
Maximum (Magnús Jónsson) segir
áhersluna hjá A/M vera lagða á að gera
góða tónlist með þéttum töktum. Textar
þeirra fjalla um lífsreynslur og atburði
daglegs lífs. „Þetta snýst um að fólk
skemmti sér. Við reynum að hafa tónlist-
ina þannig að fólk geti dansað og dillað
hausnum og hafa eitthvað fyrir alla,“ seg-
ir Maximum og bætir við að platan komi til
landsins á föstudagsmorgun og geti fólk
þá gætt sér á góðgætinu í helstu plötu-
búðum. „Við vonum að fólk komi að
skemmta sér með okkur. Við lofum góðri
stemmningu og skemmtun. Því má bæta
við að ef átta stelpur mæta í hóp milli tíu
og ellefu, þá fá þær frítt inn.“
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Antlew/Maximum með út-
gáfutónleika á Gauknum
Húsið er opnað kl. 21.00 og kostar
500 kr. inn.
Fréttasíminn
904 1100