Morgunblaðið - 02.12.2004, Qupperneq 59
*
* *
Nýr og betri
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 8.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
kl. 6. B.i. 14 ára.
Kolsvört
jólagrínmynd
með Billy Bob
Thornton
... þú missir þig af
hlári
*
*
Frá leikstjóra RUSH HOUR og
RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd Kl 8.
Ein besta
spennu- og
grínmynd ársins
www.laugarasbio.is
Kr. 500
www.regnboginn.is
M.M.J. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 14 ára.
H.J. Mbl.
Kvikmyndir.is
VINCE VAUGHN BEN STILLER
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd Kl. 5.45, 8 og 10.15.
TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Ó.Ö.H / DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5.45 og 10.15 B.i. 12 ára.
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT?
LÍF OG FJÖR Á SALTKRÁKU EINGÖNGU SÝND UM HELGAR
Jólaklúður Kranks Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄ ❄❄ ❄❄
❄
❄ ❄❄
❄
❄ ❄ ❄
❄
❄
Hverfisgötu ☎ 551 9000
Sjáumst
í bíó
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 59
FÖSTUD.OGLAUGARD3.-4.12.’04
SÁLIN
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
FORSALAMIÐAFIMMTUD.
02.11.KL.14. -18
MIÐAVERÐÍFORSÖLU
1900KR.
...TRYGGIÐYKKURMIÐA,SÍÐASTKOMUST
MIKLUFÆRRIAÐENVILDU!!!
NÁNARIUPPLÝSINGAR
HANSJÓNSMÍNS
K
Ö
-H
Ö
N
N
U
N
/
P
M
C
Þetta reyndist þá bara enneinn hræðsluáróðurinn.Máttlausar tilraunir „auð-
valdsins“ til að ráðskast með
neysluvenjur fjöldans, af sinni
einskæru afturhaldssemi. En stað-
reyndirnar liggja fyrir, tölurnar
komnar á blað – Netið er EKKI að
ganga af sölu á tónlist dauðri.
Plötusala hefur hreint ekki lagst
af eins og svartsýnustu útgef-
endur og tónlistarmenn höfðu
spáð eftir að hægt var orðið að
skiptast á tónlist á Netinu, án end-
urgjalds. Net-
verjar höfðu
hamrað á því
fyrir að þvert
á móti myndi
Netið glæða
almennan tónlistaráhuga og alls
ekki skaða viðskipti með tónlist
en töluðu fyrir daufum eyrum.
En nú kemur á daginn að Net-verjar höfðu rétt fyrir sér og
framleiðendur rangt. Hvernig
ætla þessir plötuútgefendur ann-
ars að skýra eftirfarandi stað-
reynd: Sala á plötum hefur aukist
frá ári til árs og aldrei verið meiri
en einmitt eftir að almenningur
fór að neyta og skiptast á tónlist á
Netinu.
Árið 2003 var metár í sölu á
hljómplötum á Íslandi og nú ber-
ast þær fregnir frá Bretlandi að
plötusala hafi aldrei verið meiri á
einu ári en frá september 2003 til
september 2004 þegar hún jókst
um 3% frá árinu áður.
Um leið berast þær fregnir frá
áreiðanlegum óháðum netfrétta-
miðlum í Bandaríkjunum að þrátt
fyrir að útgefendur þar hafi gefið
út yfirlýsingar um annað hafi sal-
an síður en svo dregist saman,
jafnvel aukist.
Þessar misvísandi yfirlýsingar
framleiðenda eru sagðar grund-
vallast af því að þær tölur sem
þeir hafa stuðst við í yfirlýsingum
sínum um samdrátt í plötusölu
eru byggðar á útreikningum RI-
AA – samtaka hljómplötufram-
leiðenda í Bandaríkjunum – og
mæla aðeins plötudreifingu, á
meðan tölur Soundscan – sem ein-
faldlega telur seld eintök úr versl-
unum út frá strikamerki – hafa
þvert á móti sýnt fram á beina
söluaukningu, sem m.a. nam 9% á
síðasta söluári.
Misræmi þetta á milli dreif-
ingar og sölu er talið hafa með
breytta og „nútímalegri“ við-
skiptahætti smásalanna að gera.
Þeir séu farnir að kaupa inn
minna magn í einu og þá jafn-
óðum og plötur seljast, með það
fyrir augum að lágmarka birgða-
söfnun sína, og draga þar með úr
áhættunni. Þetta kann að hafa
dregið úr sölu framleiðenda tón-
listar en segir minna um beina
sölu til neytenda.
Kemur það líka heim og saman
við þær fregnir sem reglulega
berast af sölumetum sem falla í
Bandaríkjum, einkum í því hversu
hratt nýjar plötur seljast.
Þessi söluaukning á sér stað á
sama tíma og netfréttastofa BBC
segir frá því að ólögleg dreifing á
tónlist á Netinu hafi aldrei verið
meiri og það þrátt fyrir velgengni
tónlistarnetverslana í Bretlandi.
Hvað þýðir þetta annað en aðNetið sé, þrátt fyrir allan
„þjófnaðinn“ sem þar fer fram, að
gera tónlistariðnaðinum – en þá
sér í lagi tónlistinni – gott. Þessi
endurgjaldslausa og þar af leið-
andi „ólöglega“ dreifing sem
stunduð sé á Netinu virki sem
bein kynning á tónlist sem síðar
skili sér í aukinni sölu.
Netverjar hafa, sem fyrr segir,
haldið þessum sjónarmiðum á lofti
frá upphafi „veraldarvefjarins“,
að þessi nýju tónlistarsamskipti
séu fyrst og fremst til þess að
auka almennan áhuga á tónlist.
Þeir sem áður voru plötukaup-
endur kaupi nú ennþá meira eftir
að hafa kynnst þessari botnlausu
upplýsingaveitu og að hinir sem
minna keyptu – vegna þess að
þeir vissu ekki hvað þeir ættu að
fá sér – séu nú líka farnir að
kaupa plötur, eftir að hafa loksins
fundið sína tónlist með hjálp Nets-
ins, eða réttara sagt annarra net-
verja.
Eftir standa þeir sem einungis
hlaða niður tónlist af Netinu og
kaupa ekkert. En eru það ekki
bara hinir sömu og tóku tónlist
upp úr útvarpi eða fengu lánaðar
plötur og létu sér nægja að eiga
þær á snældum?
Hvað sem því líður þá hlýtur
söluaukning á plötum og tónlist
almennt í verslunum og á Netinu,
samfara síauknum ólöglegum við-
skiptum með tónlist á Netinu,
fyrst og síðast að benda til stór-
aukins áhuga og neyslu á tónlist.
Netið er því sannarlega besti vin-
ur tónlistarinnar.
Netið er besti vinur
tónlistarinnar
’Sala á plötum hefuraukist frá ári til árs og
aldrei verið meiri en
einmitt eftir að almenn-
ingur fór að neyta og
skiptast á tónlist á
Netinu.‘
AF LISTUM
Skarphéðinn Guð-
mundsson
skarpi@mbl.is