Morgunblaðið - 03.12.2004, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
A
fganskir golf-
áhugamenn héldu
fyrsta golfmótið í
Afganistan í rúm 30
ár í nótt á besta, og
reyndar eina golfvellinum í land-
inu.“ Svona hljómaði upphaf
íþróttafréttar í ríkissjónvarpinu
fyrir réttri viku síðan. Þetta átti
greinilega að vera „skemmtilega
fréttin“ það kvöldið – það mátti
ráða af glaðhlakkalegri röddu
fréttamannsins. Nú geri ég ekki
ráð fyrir að hann hafi brugðið
sér til Afganistan til þess að afla
fréttarinnar en það er auðvitað
stór spurning hvað þeim sem
framleiddu
hana upp-
haflega gekk
til. Ef til vill
var mark-
miðið að
sannfæra
Vesturlandabúa um að í Afgan-
istan væru hlutirnir loks á upp-
leið. Fólk þar í landi væri jafn-
vel farið að leika golf eins og
við.
Íþróttafréttamaður RÚV kom
þó með íslenskan „vinkil“ á
fréttina í lok hennar með því að
segja að hér væru hugsanlega
komnir útrásarmöguleikar fyrir
íslenska golfvallarhönnuði á
framandi slóðum – og það mætti
jafnvel kalla það þróunarhjálp!
Eftir að ég heyrði þessa frétt
læddust að mér hugsanir um
hvort svipaðar fréttir verði ef til
vill á boðstólum frá Írak eftir
nokkur ár. Ætli þá verði búið að
yfirbuga uppreisnarmenn að
mestu, Bandaríkjamenn búnir
að fækka stórkostlega í herliði
sínu og fjölmiðlar farnir að snúa
sér að léttara hjali? Kannski
fáum við þá að sjá nokkra
íraska karla leika golf eða fót-
bolta í stað þess að heyra leið-
inlegar fréttir um mæðra- og
ungbarnadauða, fátækt eða
barnavinnu, svo nokkur atriði
sem einkenna lífið í Afganistan
séu nefnd.
Ef marka má fréttir frá Írak
að undanförnu virðist raunar að
nokkur tími muni líða þar til við
getum leyft okkur að gleyma
Írökum. Enn standa stríðsátök í
landinu, hvað sem líður allri um-
ræðu um að innrásinni sé lokið.
Í skýrslu bandarískra heilbrigð-
issérfræðinga sem nýlega birtist
í læknatímaritinu Lancet er það
metið svo að um 100.000
óbreyttir borgarar hafi fallið í
Írak frá því innrás Bandaríkja-
manna hófst í mars í fyrra. Er
það „miður“ að innrásin hafi
bitnað á óbreyttum borgurum,
að því er fram kom í máli for-
manns utanríkismálanefndar Al-
þingis í Kastljósi í vikunni.
Út frá þessu og fleiru sem í
ljós hefur komið eftir að inn-
rásin í Írak hófst, væri und-
arlegt ef hér færi ekki fram al-
varleg umræða um réttmæti
þess að hafa Ísland á lista yfir
hinar svonefndu staðföstu þjóðir
sem studdu innrásina. Það að
kalla slíkt vitleysisumræðu er
móðgandi fyrir lýðræðið.
Raunar hafa ráðamenn hér á
landi lengi vitað að stór meiri-
hluti þjóðarinnar var andsnúinn
ákvörðuninni – það hefur komið
skýrt fram í skoðanakönnunum.
Á Íslandi virðist lýðræði hins
vegar ekki jafngilda því að taka
þurfi mark á sjónarmiðum
meirihlutans. Að auki má nefna
að engin gereyðingarvopn hafa
fundist í Írak, en með tilvist
þeirra var innrásin réttlætt. Nú
grípa sumir til þess að útskýra
hana með því að benda á hörm-
ungarnar sem almenningur hafi
búið við í stjórnartíð Saddams –
sem þeir hinir sömu höfðu eng-
an gaum gefið svo áratugum
skipti og voru ekki ástæða þess
að ráðist var inn í Írak. Um
hugsanlega afsökunarbeiðni Ís-
lendinga á stuðningnum við inn-
rásina New York Times og
brotthvarf af listanum yfir vilj-
ugar þjóðir segi ég: Betra seint
en aldrei!
En hvað sem öðru líður er
innrásin í Írak orðinn hlutur.
Þess vegna er mikilvægasta
verkefnið núna að koma fólkinu
í Írak til hjálpar. Það verkefni
er alls ótengt því hvort Íslend-
ingar eru á stuðningslista inn-
rásarinnar eða ekki þrátt fyrir
að Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra hafi reynt að tengja
þetta tvennt saman á þingi í vik-
unni. Þar sagði hann meðal ann-
ars að Samfylkingin vildi ekki
styðja uppbyggingu í Írak því
hún ætlaði sér aldrei að „verða
stór“.
En hvað ætla Íslendingar að
gera til þess að aðstoða Íraka?
Ég lýsi hér með eftir áætlun um
slíkt. Frændur okkar Svíar voru
ekki á listanum yfir hinar stað-
föstu þjóðir.
Samt ákváðu þeir á dögunum
að veita 384 írönskum Kúrdum,
sem flúðu Írak þegar innrásin
hófst í mars í fyrra, hæli í Sví-
þjóð. Var um að ræða þriðjung
hóps sem hafði hírst í flótta-
mannabúðum SÞ í eyðimörkinni
milli Íraks og Jórdaníu í eitt og
hálft ár.
Hafa íslensk stjórnvöld í
hyggju að bjóða hingað fólki
sem eiga um sárt að binda
vegna innrásarinnar? Ekkert
hef ég heyrt af því. Raunar kom
fram hjá Guðmundi Árna Stef-
ánssyni, þingmanni Samfylking-
arinnar, í vikunni, að aldrei
hefði verið rætt um það á Al-
þingi hvernig haga ætti upp-
byggingarstarfi í Írak. Þetta
telst undarlegt í ljósi þess að
það er meira en eitt og hálft ár
liðið frá því ákveðið var að Ís-
land styddi „hið verðuga verk-
efni“ í Írak eins og utanrík-
isráðherra kallaði það. Það
dugir ekki að segjast ætla að
auka útgjöld til friðargæslu og
þróunarmála, þjóðin á heimtingu
á því að heyra nánar um fyr-
irætlanir stjórnvalda í þessu
máli. En íslensk stjórnvöld virð-
ast kunna því ágætlega að
hegða sér líkt og laumufarþegar
í strætisvagni. Og kannski bíð-
um við bara eftir því að þörf
verði á golfvallarhönnuðum í
Írak?
Staðfesta án
ábyrgðar
Frændur okkar Svíar voru ekki á
listanum yfir hinar staðföstu þjóðir.
Samt ákváðu þeir á dögunum að veita
384 írönskum Kúrdum, sem flúðu
Írak þegar innrásin hófst í mars í fyrra,
hæli í Svíþjóð.
VIÐHORF
Eftir Elvu Björk
Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Sveinn Aðalsteinsson: „Nýj-
asta útspil Landsvirkjunar og
Alcoa er að lýsa því yfir að
Kárahnjúkavirkjun, álbræðsl-
an í Reyðarfirði og línulagnir
þar á milli flokkist undir að
verða „sjálfbærar“!“
Hafsteinn Hjaltason:
„Landakröfumenn hafa engar
heimildir fyrir því, að Kjölur
sé þeirra eignarland, eða eign-
arland Biskupstungna- og
Svínavatnshreppa.“
María Th. Jónsdóttir: „Á
landinu okkar eru starfandi
mjög góðar hjúkrunardeildir
fyrir heilabilaða en þær eru
bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inn-
taki engu fremur háskólagráð-
ur en þær sem TR útskrifaði
nemendur með, nema síður
sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
SEM FORELDRI barns í
Brekkuskóla á ég víst að hafa
heimtað afsökunarbeiðni vegna
auglýsingar sem kom frá kenn-
urum skólans þar sem
þeir tilkynntu andlát
skólastefnunnar,
„ánægðir kennarar –
góður skóli“.
Þessi krafa okkar
foreldra var ekki bor-
in undir mig enda
hefði ég neitað að
koma nálægt henni
því að sannast sagna
óttast ég ekkert
meira en að andláts-
fregnin eigi eftir að
reynast rétt.
Þegar seinast var
samið við grunnskólakennara full-
yrti ég að sveitarstjórnir yrðu held-
ur betur að taka til hendinni svo
ekki færi illa þegar kæmi að næstu
samningagerð. Ekkert var gert. Ef
sá kennarasamningur, sem nú ligg-
ur fyrir, verður samþykktur og ef
sveitarstjórnir bregðast eins við og
fyrir fjórum árum, þá er ég hrædd-
ur um að auglýsing Brekkuskóla-
kennara verði kaldur raunveru-
leiki, ekki aðeins í einum skóla,
heldur gjörvöllu íslenska grunn-
skólakerfinu. Og hver á þá að biðja
hvern afsökunar?
Þýlyndir kennarar,
hlýðnir nemendur
Mig langar til að reyna að útskýra
af hverju ég óttast um framtíð ís-
lenska grunnskólans. Okkur for-
eldrum hefur orðið tíðrætt um
kennara sem fyrirmyndir barnanna
okkar og að þeir hafi brugðist þess-
ari skyldu sinni. Þeir áttu að hlýða
þegar þeim var skipað í skólann
aftur.
En hvað hefur ekki dunið á kenn-
urum undanfarið. Alþjóð á að trúa
því að laun þeirra hækki um 25%
næstu fjögur árin eða svo þegar
sannleikurinn er nær
15%. Þeir hafa verið
harðlega gagnrýndir af
þingmanni sem stað-
hæfir að þessi launa-
hækkun sé ógn við ís-
lenskt samfélag og þeir
hlustuðu á oddvita
tveggja sveitarfélaga
ræða í sjónvarpi af
mikilli vanþekkingu og
ruglanda um kjaramál
kennara og eru þó báð-
ir á ágætum launum
við að setja sig inn í
málin.
Ég gæti haldið svona áfram og
nefnt ýmis ummæli mennta-
málaráðherra og foreldra sem fallið
hafa í deilunni en spyr þess í stað:
Viljum við þýlynda og svínbeygða
kennara sem munu aldrei aftur
standa upp til að verja rétt sinn? Á
skólakerfið að unga út hlýðnum
ungmennum sem aldrei bregða út
af þeirri leið sem við fullorðna fólk-
ið viljum að þau gangi?
Er þetta fyrirmyndin sem við
leitum að handa börnunum okkar?
Víst eru kennarar
aumingjar
Ég var eitt sinn kennari og ríkið
sveikst um að greiða mér, og öðr-
um kennurum við skólann, hluta
launa okkar. Eftir nokkrar umræð-
ur samþykkti hópurinn að leggja
niður vinnu yrðu peningarnir ekki
komnir tiltekinn dag. Einn kennari
í hópnum, gamalreyndur í faginu,
spurði þá: En ef það kemur bara
loforð um greiðslu?
Alveg sama, svöruðum við. Ef
engir peningar þá engin kennsla.
Svo rann dagurinn upp og það
kom loforð að sunnan en engir pen-
ingar.
O, jæja, sögðum við. Þetta má
ekki bitna á börnunum. Við höfum
altjent loforðið.
Kennslunni var haldið áfram og
peningarnir komu eftir dúk og
disk.
Lengi á eftir gat ég ekki horfst í
augu við sjálfan mig án þess að sjá
þar aumingja á ferð. Með meiri
þroska hef ég þó áttað mig á því að
ein af undirstöðum alls skólastarfs
er einmitt þessi aumingjaskapur
(les: sveigjanleiki). Ef hann hverfur
úr skólunum þá er ekki von á góðu.
Með öðrum orðum: Ef kennarar
grunnskólanna taka upp harða pen-
ingamálastefnu og aumingjaskap-
urinn, sem mér fannst vera forðum,
hverfur þá munum við sitja uppi
með vonda skóla.
En það gengur varla endalaust
að aðeins annar aðilinn sýni sveigj-
anleika eða hvað? Ég tala nú ekki
um ef mótaðilinn gengur beinlínis á
lagið eins og hefur verið gert. Hvar
myndi það til dæmis teljast launa-
manni til kjarabóta, og reiknast
með í öllum tölum kjarasamnings,
þegar ráðinn er nýr starfsmaður
vegna ört vaxandi viðskipta fyr-
irtækisins? Þessu þurfa kennarar
að sæta.
Mér finnst sannast sagna að það
standi okkur nær, foreldrum barna
í Brekkuskóla, að krefja oddvita
okkar um afsökunarbeiðni vegna
sofandaháttar þeirra síðustu fjögur
árin. Þó er meira um vert að við
knýjum þá til aðgerða svo koma
megi í veg fyrir að hremmingar
undanfarinna vikna og mánuða
endurtaki sig.
Munum að samþykki kennarar
fyrirliggjandi samning þá munu
þeir vorið 2008 standa í svipuðum
sporum og þeir gera núna. Og hvað
þá?
Afsökunarbeiðni
afþökkuð
Jón Hjaltason fjallar
um kennaradeiluna ’En það gengur varlaendalaust að aðeins ann-
ar aðilinn sýni sveigj-
anleika eða hvað? ‘
Jón Hjaltason
Höfundur er faðir
barns í Brekkuskóla.ÞAÐ ER aumt lýðræðið í hópi
félagsskapar sem
kennir sig við lýðræði
þegar sá sami hópur
tekur sér vald til að
tala fyrir hönd ann-
arra sem ekki aðhyll-
ast hinn sama „lýð-
ræðisboðskap“. Í
yfirlýsingu þeirri sem
„Þjóðarhreyfingin“ er
nú farin að safna fé
fyrir, til að birta í er-
lendu stórblaði, leyfir
þessi hópur sér að
tala fyrir hönd allra
Íslendinga – óháð
skoðunum þeirra á
málefninu. Slík fram-
ganga ber ekki mik-
inn vott um virðingu
fyrir lýðræðinu né
heldur persónufrelsi
einstaklingsins. Þá er
því haldið fram sem
staðreynd í yfirlýs-
ingu „Þjóðarhreyfing-
arinnar“ að með yf-
irlýsingu íslenskra
stjórnvalda hafi verið
brotin íslensk lög og
alþjóðalög. Vissulega
geta menn haft á því skoðanir
hvort lög hafi verið brotin eða
ekki en það er dómstóla að skera
úr um hvort svo sé. Það hafa dóm-
stólar ekki gert og því er mál-
flutningur sem þessi bæði villandi
og rangur. Þá er athygli vert að
sjá nú að talsmenn „Þjóðarhreyf-
ingarinnar“ telja að hin íslenska
lýðræðishefð hafi verið brotin.
Þessir sömu talsmenn gáfu lítið
fyrir hina íslensku lýðræðishefð
þegar forsetinn tók þá ákvörðun
sl. sumar að neita að
samþykkja fjölmiðla-
lögin – tækifær-
ismennskan ríður ekki
við einteyming.
Burtséð frá því
hvort „Þjóðarhreyf-
ingin“ sé að leggja
mér og fleirum orð í
munn þá vekur hug-
mynd þeirra um birt-
ingu yfirlýsingarinnar
mér ugg í brjósti. Er
skynsamlegt að draga
athyglina að Íslend-
ingum og Íslandi með
þessum hætti? At-
hygli hryðjuverka-
manna hefur hingað
til beinst annað en til
Íslands og Íslendinga.
Er þörf á því að
minna þá á okkur sér-
staklega?
Talsmenn „Þjóð-
arhreyfingarinnar“
hafa upplýst að birt-
ingin í hinu erlenda
stórblaði kosti u.þ.b.
þrjár milljónir. Þar
við bætist kostnaður
við auglýsingar hér heima. Þess-
um fjármunum væri að mínu mati
betur varið til uppbyggingarstarfs
í Írak en afsökunarbeiðni í fjöl-
miðlum.
Söfnun „Þjóðar-
hreyfingarinnar“ –
nei takk!
Gunnar Ármannsson
fjallar um auglýsingu
Þjóðarhreyfingarinnar
’Vissulega getamenn haft á því
skoðanir hvort
lög hafi verið
brotin eða ekki
en það er dóm-
stóla að skera úr
um hvort svo
sé.‘
Gunnar Ármannsson
Höfundur er héraðsdómslögmaður.