Morgunblaðið - 03.12.2004, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 57
MENNING
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Faxafeni 12
Opið 10 - 18 virka daga
og 10 - 16 laugardaga.
www.66north.is
af öllum flíspeysum til jóla.
20%afsláttur
Lýstu upp jólin með ljósum frá Ljósbæ
Faxafeni 14 s. 568 0850
Pílutjöld ehf
Faxafeni 12
108 Reykjavík
s. 553 0095
www.pilu.is
• Gardínustangir
• Felligardínur
• Bambusgardínur
• Sólskyggni
Smíðum og
saumum eftir máli.
Allt fyrir gluggann
Stuttur afgreiðslutími
HÝSILL er yfirskrift fyrstu einkasýn-
ingar Sigurðar Guðjónssonar, er útskrif-
aðist frá Listaháskóla Íslands í fyrra, sem
stendur yfir í Kling & Bang galleríi. Á yf-
irskriftin vel við andrúmið sem listamað-
urinn leitast við að skapa. Tilfinningalegur
viðbjóður sem grefur sig í undirmeðvitund-
ina og felur sig þar líkt og sníkill sem sogar
frá manni næringu og orku. Gróteskleikinn
er ráðandi, ekki ósvipað og við höfum verið
að sjá hjá Gabríelu Friðriksdóttur sem er
augljós áhrifavaldur á listsköpun Sigurðar,
nema að hann heldur sig fjarri öllum popp- og
teiknimyndakúltúr sem annars spilar mikla
rullu í verkum Gabríelu. Ekki má heldur
gleyma Matthew Barney í því sambandi sem er
farinn að verða ansi fyrirferðarmikill í verkum
íslenskra myndlistarmanna.
Sigurður sýnir ljósmyndir, hljóðskúlptúr,
myndbandsgjörning og kvikmynd. Pirrandi
lúðrablástur rífur í mann hvar sem maður
gengur um rýmið án þess þó að skemma önnur
verk. Að því leytinu er sýningin að ganga upp
sem heil innsetning. Ég mundi þó segja kvik-
myndina sem listamaðurinn sýnir í kjallara
gallerísins vera þungamiðju sýningarinnar og
tvímælalaust mest spennandi þátt hennar.
Mætti ætla að listamaðurinn hafi komið kvik-
myndavélinni fyrir í undirmeðvitund hýsilsins
og myndað hina ýmsu andstyggilegu óra sem
þar leynast. Efniskennd kvikmyndarinnar er
óáþreifanleg og undirtónninn dulrænn. Leik-
stjórinn David Lynch kemur mér sterklega til
hugar og margt minnir líka á japanska kvik-
myndagerð, s.s. Rashomon (1950) eftir Akira
Kurosawa og Kwaidan (1964) eftir Masaki
Kobayashi, enda andatrú Japana ekki svo ýkja
ólík okkar Íslendinga.
Í fréttatilkynningu sem galleríið sendi á net-
inu var Sigurður nefndur „bjartasta vonin“.
Kannski meiri brandari en alvara á ferð hjá
höfuðpaurum Kling & Bang og þá skemmti-
legur leikur við fjölmiðla, en blaðamenn skella
ósjaldan slíkum titlum á unga myndlistarmenn,
sem þeir taka í viðtal, án þess að rökstyðja það
neitt frekar. Svona til þess að hafa viðtalið
merkilegra en ella. Ég tel þó óhætt að skipa
Sigurði Guðjónssyni allavega í hóp hinna
björtu vona og spennandi verður að sjá þegar
sterkir áhrifavaldar fara að hverfa aftar í bak-
grunninn og sérkennin njóta sín betur í for-
grunninum.
Björt von
MYNDLIST
Kling & Bang gallerí
Opið fimmtudaga til sunnudags frá 14-18.
Sýningu lýkur 19. desember.
Blönduð tækni – Sigurður Guðjónsson
Jón B.K. Ransu
Gróteskleikinn er ráðandi. Frá sýningu Sigurðar
Guðjónssonar í Kling & Bang galleríi.
LUCIANO Pavarotti hyggur á lokatónleika-
ferðalag um 40 borgir á næsta ári áður en
hann lýkur söngferli sínum, en tenórinn fyll-
ir 70. árið á næsta ári.
Það er breski framleiðandinn Harvey
Goldsmith sem er hugsuðurinn á bakvið tón-
leikana, sem haldnir verða um allan heim,
þar á meðal í London, New York, París og
Buenos Aires.
Pavarotti sagði í samtali við Reuters-
fréttastofuna að hann vissi ekki hvenær eða
hvar lokatónleikar ferðalagsins yrðu haldnir,
en þegar þeir væru búnir væri hann einnig
búinn. „Þetta er langt ferðalag, en ég mun
aldrei koma fram eins og rokkari, kvöld eftir
kvöld. Að hámarki mun ég syngja tvenna til
þrenna tónleika á mánuði,“ sagði hann. „Í 43
ár hef ég ferðast út um allt. Stundum veit ég
ekki í hvaða rúmi ég vakna.“
Velgengni í plötuútgáfu
Pavarotti er einn hinna „Þriggja tenóra“
og hefur selt yfir 100 milljónir platna, og
telst því sá klassíski tónlistarmaður sem not-
ið hefur mestrar velgengni í sögu hljóm-
plötuútgáfu.
Óperan á þó hug hans allan og hann segir
að hann vilji gjarnan að sín verði minnst sem
„mjög alvarlegs óperusöngvara“. Hann
hætti hins vegar störfum sem slíkur í fyrra,
og kennir nú söng við tónlistarskólann í
heimabæ sínum, Modena á Ítalíu.
Tónlist | Tenórsöngvarinn Luciano Pavarotti fer
í fjörutíu borga lokaferðalag á næsta ári
Heldur upp á sjö-
tugsafmælið í leiðinni
Reuters
Tenórinn Luciano Pavarotti er á leið í loka-
tónleikaferðalagið, enda bráðum sjötugur.