Morgunblaðið - 03.12.2004, Side 62
62 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
** *
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Kolsvört jólagrínmynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
*
**
* *
www.borgarbio.is
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4.
VINCE VAUGHN
Ó.Ö.H. DV
BEN STILLER
DodgeBallS.V. Mbl.
Kolsvört jólagrínmynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.com
PoppTíví
Sýnd kl. 6 og 8.
TIM ALLEN JAMIE LEE CURTIS
Ó.Ö.H / DV
Ó.Ö.H / DV
Ein besta
spennu- og
grínmynd ársins
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15
PoppTíví
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Miðasala opnar kl. 15.30
kl. 4, 6, 8 og 10.
Jólaklúður Kranks
Jólamynd fjölskyldunnar
Jólaklúður Kranks
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
Óttist endurkomuna
því hann er mættur aftur
vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
❄❄
❄
❄
❄
❄ ❄
❄❄❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄ ❄❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
Sjáumst
í bíó
Sjáumst
í bíó
HLJÓMSVEITIN Á móti sól hefur
verið vinsælasta ballsveit landans
undanfarin ár. Fyrir stuttu gaf sveit-
in út plötuna 12 íslensk topplög sem
er tökulagaplata eins og nafnið gefur
til kynna og inniheldur sígild íslensk
lög í flutningi sveitarinnar. Á móti
sól gefur sjálf út en Zonet dreifir.
„Þessi hugmynd hefur skotið upp
kolli við og við hjá okkur,“ segir
Heimir Eyvindarson hljómborðsleik-
ari. „Við vinsuðum úr gríðarlega
löngum lista sem m.a innihélt lög
með Purrki Pillnikk og Þey á tíma-
bili!“
Heimir segir að plötur sem þessar
virðist iðulega liggja undir ámæli,
þetta þyki jafnvel vera ódýrt útspil.
Hann blæs hins vegar á slíkt.
„Það er svo erfitt að telja fólki trú
um að mögulega liggi einhverjar aðr-
ar ástæður að baki plötunni en
gróðavon. En þannig er það nú bara.
Við gerðum þetta af því að okkur
langaði til að gera þetta og við höfð-
um mjög gaman af því að vinna plöt-
una. Svo einfalt er það nú.“
Heimir leiddi blaðamann í gegnum
lagalistann og skýrði frá ástæðum
þess að af hverju nákvæmlega þessi
ákveðnu tólf topplög væru á plöt-
unni.
Fram á nótt
[Nýdönsk]
„Björn Jörundur er í miklu uppá-
haldi hjá okkur öllum og á að baki
mörg frábær lög. Þetta er fáránlega
góður partíslagari.“
Sagan af Nínu og Geira
[Brimkló og Diddú]
„Þetta lag átti ekkert að fara inn
lengi vel. Birgitta Haukdal syngur
bakraddirnar og Bo sjálfur lagði til
forláta hljóðnema sem hann og Egill
Ólafsson fluttu inn til landsins fyrir
margt löngu.“
Sirkus Geira Smart
[Spilverk þjóðanna]
„Það kom aldrei neitt annað til
greina en að taka eitt lag með Spil-
verkinu. Vandamálið snerist aðallega
um hvaða lag átti að taka.“
Rangur maður
[Sólstrandagæjarnir]
„Þetta er yngsta lagið. Við
ákváðum að fara dálítið lengra með
reggíið. Sólstrandagæjarnir tengjast
okkur líka en Stefán trommari
trommaði með þeim og Sævar gít-
arleikari spilaði aðeins með þeim
líka.“
Rómeó og Júlía
[Bubbi Morthens]
„Ég var alveg brjálaður Bubba-
aðdáandi á yngri árum og elti m.a.
MX21 um allt land. Hljómsveitin var
vön að taka „No Woman No Cry“ og
renna sér svo beint í þetta lag. Geð-
veikt. Okkar útgáfa af laginu er eins
og útgáfa MX21, eða eins og mig
minnir að hún hafi verið a.m.k.“
Traustur vinur
[Upplyfting]
„Það var ekkert smáræðis vesen
að landa þessu lagi. Sævar var búinn
að ná gítarsólóinu en það var ein-
hvern veginn ekki að virka. Það var
ekki fyrr en Jens Hansson (saxófón-
leikari Sálarinnar) prófaði að blása
sóló sem þetta small loksins.“
Ég fann þig
[Björgvin Halldórsson]
„Af sólóplötu Björgvins frá 1978,
Ég syng fyrir þig. Samkór poppara,
sem inniheldur meðlimi úr Á móti
sól, Sóldögg, Írafár og Í svörtum föt-
um leysir Karlakór Reykjavíkur af í
bakröddum. Þetta lag var ekki inni
lengi vel þar sem okkur fannst vera
komin of mörg Bjöggalög á diskinn.
En svo ákváðum við bara að sleppa
öllum kvótapælingum.“
Uppboð (Viltu í nefið?)
[Valgeir Guðjónsson]
„Lag sem við gerðum ásamt Sól-
dögg undir nafninu Á móti Sóldögg.
Það kom út í sumar en við tókum það
upp aftur fyrir plötuna. Ég er nú orð-
inn svo gamall að ég spilaði þetta lag
á böllum þegar ég var að byrja í
bransanum, ca ’88.“
Dísa
[Síðan skein sól]
„Magni söngvari þrýsti á um taka
eitthvað með SSSól. Við vorum búnir
að þaulæfa „Lof mér að lifa“ en svo
kom þessi hugmynd upp. Við vorum
svo að þvælast uppi á Bylgju, eitt-
hvað að ræða þessi mál og þá vindur
sér upp að okkur stúlka, starfsmaður
þar, og spyr af hverju við séum að
tala um „Dísu“. Þá vildi svo til að hún
var að fara að hitta hópinn sem lék í
myndbandinu næsta kvöld. Við
ákváðum að taka þessu sem merki.“
Stolt siglir fleyið mitt
[Áhöfnin á Halastjörnunni]
„Þetta er fyndið lag. En algjör
snilld. Gylfi Ægisson er mjög lúnk-
inn við að semja einföld en óhemju
grípandi lög. Við tókum þetta einu
sinni á þorrablóti í Óðinsvéum og það
varð allt vitlaust enda fer iðulega
mikil þjóðrembuorgía í gang á þess-
um erlendu þorrablótum. Við höfum
leikið þetta lag síðan á böllum við
gríðarlegar undirtektir.“
Ég veit þú kemur
[Ellý Vilhjálms]
„Þetta er Eyjalagið, með greini.
Ég leit aldrei við þessu lagi fyrr en
ég upplifði þjóðhátíðina og datt inn í
stemninguna þar. Við höfum bæði
flutt þetta þar og á böllum og það er
eins og þetta lag eigi sér vissan stað í
hjörtum Íslendinga.“
Eitt lag enn
[Brimkló]
„Það er ein svakalegasta falsetta
íslenskrar poppsögu í þessu lagi.
Upprunalega sungin af Guðmundi
Benediktssyni en sonur kemur hér í
föður stað þar sem Pétur Örn sá um
að klifra upp tónstigann. Þetta lag
var einu sinni á efnisskrá hljóm-
sveitar sem hér Danshljómsveit Ein-
ars Bárðarsonar. Ég og Sævar vor-
um með meistaranum í sveitinni og
Einar söng falsettuna á böllunum!“
Tónlist | Hljómsveitin Á móti sól gefur út plötuna 12 íslensk topplög
Tekið á því
12 íslensk topplög er fimmta breiðskífa hljómsveitarinnar Á móti sól.
12 íslensk topplög er komin út
www.amotisol.is
arnart@mbl.is
AMPOP hefur verið boðið að leika
á tveimur stórum tónlist-
arhátíðum, South by Southwest í
Austin og North by Northeast í
Toronto, en þær fara fram á
næsta ári.
Sveitin er nýkomin frá Englandi
þar sem hún lék m.a. á In the
City-hátíðinni í Manchester ásamt
Vínyl.
Útgáfa í Japan á nýjustu plötu
sveitarinnar, Made for Market, er
þá í farvatninu auk þess sem
vinnslu á þriðju plötu sveitarinnar
er að ljúka. Búast má við að stutt-
skífa, sem yrði forsmekkur að
breiðskífunni, líti dagsins ljós
snemma á næsta ári en sú stóra
er svo áætluð í sumar.
Tónlist | Ampop
Kjartan og Biggi eru kjarni Ampop.
Boðið
á tvær
hátíðir
www.ampop.co.uk
mbl.is
STJÖRNUSPÁ