Morgunblaðið - 03.12.2004, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Íslenskir ostar
– ljúffeng gjöf
sem gleður
NOKKUÐ úrkomusamt var í borginni í gær og um
miðjan dag gerði mikla hundslappadrífu. Víst er
að margir hafa blotnað hressilega enda snjóflygs-
urnar afar stórar og óvenju blautar. Þessir veg-
farendur á Laugavegi létu veðrið þó ekki aftra sér
frá því að heilsa upp á lítið kríli sem undi hag sín-
um væntanlega vel í skjólinu sem barnavagninn
veitir gegn veðrum og vindum.
Morgunblaðið/Golli
Í hundslappadrífu
ALLT stefnir í að verðmæti innflutnings frá
Bandaríkjunum verði mun meira í ár en í
fyrra og munar þar mest um snaraukinn inn-
flutning á fólksbílum vegna sterkari stöðu
krónunnar gagnvart Bandaríkjadal.
Allt árið í fyrra voru fluttir inn bílar frá
Bandaríkjunum fyrir um 630 milljónir en var í
lok október orðið einum milljarði króna meira
og gæti slagað hátt í tvo milljarða við lok árs-
ins.
Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar inn
vörur frá Bandaríkjunum fyrir 22,3 milljarða
króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en
allt árið í fyrra voru fluttar inn vörur þaðan
fyrir liðlega 16 milljarða. Stærstur hluti aukn-
ingarinnar liggur í innflutningi á flugvélum
sem nam tæpum fimm milljörðum í ár en var
hverfandi í fyrra.
En sé litið burt frá flugvélum hefur annar
innflutningur aukist um 7,5% og á þá enn eftir
að bætast við innflutningurinn tvo síðustu
mánuði þessa árs og kann aukningin milli ára
því að mælast í tveggja stafa tölu þegar upp
verður staðið. Og munar þar mest um bílana
sem fyrr segir. Þá er greinilegt að fyrirtækin
hafa aukið innflutning á hrávörum og rekstr-
arvörum í ár en verðmæti þess innflutnings
hefur aukist um hátt í milljarð króna, úr tæp-
um 2,2 milljörðum í tæpa 3,2 milljarða fyrstu
tíu mánuði ársins. Innflutningur á matvöru og
öðrum neysluvörum virðist aftur á móti lítið
hafa breyst.
Vörur frá Bandaríkjunum vega ekki þungt í
heildarinnflutningi landsmanna, hlutfallið var
ekki nema 7,4% í fyrra en um 11% árið 2002 en
það ár var innflutningur flugvéla verulegur.
Margfalt fleiri bílar fluttir til
landsins frá Bandaríkjunum
4 listamenn
bætast á heið-
urslaunalista
MEIRIHLUTI menntamálanefndar
Alþingis leggur í dag fram tillögu
um hverjir hljóta heiðurslaun lista-
manna á næsta ári. Listamennirnir
eru 27 en þeir voru 25 á síðasta ári.
Fjórir einstaklingar bætast á
listann, Þorbjörg Höskuldsdóttir
listmálari, Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari og leikararnir Jón Sig-
urbjörnsson og Kristbjörg Kjeld.
Tveir af heiðurslaunalistanum
létust á árinu, Svava Jakobsdóttir
og Rögnvaldur Sigurjónsson.
ALLT útlit er fyrir að sækja þurfi
þorra þess vinnuafls sem starfa mun
við byggingu Fjarðaáls á Reyðarfirði
til útlanda, þar sem lítill áhugi er
meðal Íslendinga á störfunum.
Að sögn Glúms Baldvinssonar,
nýráðins upplýsingafulltrúa Bechtel
á Íslandi, sem er aðalverktaki við
byggingu Fjarðaáls, var upphaflega
gert ráð fyrir að stór hluti vinnuafls
við byggingu álversins yrði íslensk-
ur. Reiknað er með að 1.500–1.800
manns muni starfa við álversfram-
kvæmdirnar þegar mest lætur 2006.
100 Íslendingar að störfum
Að sögn Glúms kom í ljós þegar
farið var að kanna það betur að lík-
lega yrði verktakinn að sækja meg-
inþorra vinnuaflsins til útlanda og
stærri hluta en upphaflega var gert
ráð fyrir. Viðbrögð við auglýsingum
um störf eru lítil samkvæmt heim-
ildum blaðsins.
Jarðvegsframkvæmdir við álverið
eru hafnar og gert ráð fyrir að álver-
ið verði gangsett í apríl 2007, gangi
áætlanir eftir. Að sögn Glúms eru
ríflega 100 Íslendingar nú þegar að
störfum við jarðvegsframkvæmdir í
tengslum við álverið og við byggingu
starfsmannaþorps, á vegum ýmissa
undirverktaka.
Líkur á að fáir Íslendingar komi að byggingu Fjarðaáls
Lítil viðbrögð við auglýsingum
28 árekstrar
í borginni
MIKIL hrina árekstra reið yfir höf-
uðborgina í gær þegar 28 ökumenn
lentu í óhöppum í hálku. Allmargir
árekstrar höfðu orðið fyrrihluta
dagsins en upp úr klukkan 15, þegar
byrjaði að snjóa, fjölgaði óhöppum
hratt. Að meðaltali verða um ellefu
árekstrar í borginni á dag. Mest er
um minniháttar nudd.
EINTAK af fyrstu prentun Guðbrandsbiblíu frá
árinu 1584, áritað af Guðbrandi biskupi, var selt
hjá Bruun Rasmussen-uppboðshúsinu í Kaup-
mannahöfn á miðvikudaginn fyrir rétt tæpar fjór-
ar milljónir íslenskra króna, þegar seldar voru
bækur úr stóru safni milljónamæringsins Bjarne
Saxhof sem nýlega lést. Mun kaupandinn vera ís-
lenskur og því mun biblían væntanlega rata heim
til Íslands innan tíðar eftir aldalanga dvöl erlend-
is. Danskur safnari keypti hana fyrir fáum árum
á uppboði á Englandi og seldi Bjarne Saxhof hana
skömmu síðar en væntanlega hefur Guðbrands-
biblían verið seld til Englands á 17. öld.
Danski safnarinn bað séra Ragnar Fjalar Lár-
usson prófast að þýða áritanir á titilsíðu biblíunn-
ar og þekkir séra Ragnar því vel til biblíunnar og
á auk þess tvö eintök sjálfur. Hann segir fást mun
hærra verð fyrir áritaðar Guðbrandsbiblíur en
óáritaðar. Þessi biblía hafi verið í góðu ástandi en
ekki í upprunalegu bandi, heldur bundin í 17. ald-
ar band í Englandi.
Þessa bók fæ ég klaustrinu
á Skriðu, Guði til lofs
„Þessa bók fæ ég klaustrinu á Skriðu, Guði til
lofs og æru og hans blessaða orði.
Anno 1585. Eiríkur Árnason,“ segir í áletr-
uninni.
Séra Ragnar segir að Eiríkur þessi, sem verið
hafi sýslumaður, hafi dáið árið eftir og hafi þá
væntanlega ekki verið búinn að greiða biblíuna.
„Þá tekur Guðbrandur hana aftur og strikar
yfir þetta og skrifar: Þessa biblíu hef ég fengið
séra Birni á Völlum. Anno 1588. Guðbrandur Þor-
láksson.“
Séra Ragnar segir áreiðanlegt að breskir að-
alsmenn sem hingað hafi komið hafi keypt hér
bækur fyrir lítið og farið með þær utan, þar á
meðal væntanlega þessa biblíu, en Guðbrands-
biblían hafi komið út í 500 eintökum árið 1584,
það sé nokkuð víst. Séra Ragnar segir að í skýrslu
um biblíueign Íslendinga frá því um 1820 hafi
komið fram að þá hafi á annað hundrað Guð-
brandsbiblíur verið til. „En núna hef ég verið að
leita að Guðbrandsbiblíum, bæði hér á landi og
erlendis, og ekki fundið nema kannski 40 eintök,
þar af eru um 30 hér heima. Þannig að það hefur
mikið glatast frá því skýrslan var gerð,“ segir
séra Ragnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Séra Ragnar Fjalar Lárusson með eintak af
Guðbrandsbiblíu sem er í hans eigu.
Árituð Guð-
brandsbiblía
keypt heim
til Íslands
♦♦♦