Morgunblaðið - 11.12.2004, Page 35
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steinunn Björns-
dóttir leikskóla-
kennari.
„Hefðirnar, fjöl-
skyldan og jólaund-
irbúningurinn á leik-
skólanum.“
HVAÐ ER ÓMISSANDI Á JÓLUM?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 35
DAGLEGT LÍF
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Seltjarnarnesi, s. 561 1680
Glæsilegt
úrval af
yfirhöfnum
LOKSINS ÁÍSLENSKU!
5-kallarnir fimu úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Queer Eye
for the Straight Guy vita manna best hvernig karlmenn
geta bætt útlit sitt og innlit, matreiðslu, hárgreiðslu,
háttalag og gert lífið skemmtilegra.
Nú hafa þeir skrifað bók sem hefur farið eins og eldur í
sinu um heiminn. Hinsegin hollráð fyrir
svoleiðis karlmenn er stórskemmtileg, gagnleg og
smart bók í frábærri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.
Betur sjá hýr augu en auga
– hinsegin hollráð fyrir svoleiðis karlmenn
Flott gjöf fyrir stráka
á öllum aldri!
Konur, takið mennina með!
Gísli Rúnar Jónsson og Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari
kynna bókina í Hagkaupum Kringlunni kl. 15.30 og í
Smáralind kl. 16.30 í dag og á morgun.
Þeir verða til skrafs og ráðagerða
um allt sem viðkemur innliti og útliti!
BÓKIN FÆST Í TVEIMUR LITUM!
www.salkaforlag.is
I Í
NÚ ÞEGAR tími aðventu og
jóla fer í hönd er mikið um
samveru- og gleðistundir.
Gleðistundum sem þessum
fylgja oft kræsingar og góð-
gæti. Það er gott og blessað og
hluti af okkar menningu. Samt
má velta því fyrir sér hvort
ekki megi gæta hófs í neyslu
sætinda og gosdrykkja á þessum árstíma
sem öðrum.
Kannanir sýna að við borðum allt of
mikið af sykri og drekkum allt of mikið af
sætum drykkjum. Hvert mannsbarn á Ís-
landi neytir að meðaltali 50,9 kg af sykri
á ári á meðan sykurneysla flestra ann-
arra þjóða er mun minni. Sem dæmi má
nefna að sykurneysla Finna er að með-
altali 33,4 kg á mann á ári. Hins vegar
neytum við að meðaltali 119 kg af græn-
meti og ávöxtum á ári en meðaltalsneysla
Finna er 151 kg á ári. Þessar tölur gefa
okkur ákveðna innsýn í okkar neyslu-
venjur, samanborið við aðra, og benda til
þess að hér megum við heldur betur taka
okkur á.
Öll viljum við halda tönnum okkar heil-
brigðum og fallegum alla ævina. Það er
því mikilvægt að huga vel að forvörnum
og vera vakandi yfir neysluvenjum okkar
og barnanna okkar.
Vinsamleg tilmæli til
jólasveinanna
Jólasveinarnir eru nú að koma
niður af fjöllunum, hver á fætur
öðrum, til þess að gleðjast með
okkur hinum sem búum til sjávar
og sveita. Þegar þeir koma til
byggða eru þeir sannkallaðir gleðigjafar
– syngja og tralla og gefa góðum börnum
glaðning í skóinn. En okkur langar að
biðja jólasveinana að hafa eft-
irfarandi í huga:
Kæru jólasveinar, við hjá
Lýðheilsustöð viljum biðja
ykkur að gæta hófs í sælgæt-
isgjöfum. Það er mikið sæl-
gæti í boði fyrir börnin okkar.
Í matvöruverslunum og sjopp-
um eru heilu sælgætisbarirnir
og blessuð börnin horfa þar löngunar-
augum á litadýrðina. Sumir foreldrar
reyna að stemma stigu við sælgæt-
isneyslu barnanna með því að hafa ákveð-
ið skipulag á sætindaáti, t.d. með því að
hafa sérstakan nammidag aðeins einu
sinni í viku. Við hvetjum því alla jóla-
sveina til að gefa börnum frekar ávexti,
t.d. epli, mandarínur, vínber, eða bara lít-
il leikföng eða bækur.
Foreldrar og börn athugið
Tennurnar eru jafn viðkvæmar í des-
ember eins og aðra mánuði ársins.
Byrjum ekki daginn á neyslu sælgætis.
Það er slæmur siður á öllum árstímum.
Barnatennur og nýuppkomnar tennur
eru sérstaklega viðkvæmar fyrir tann-
skemmdum.
Til þess að draga úr hættu á tann-
skemmdum skiptir meira máli hversu oft
við neytum sykurs en hversu mikils.
Sælgæti sem klístrast við tennurnar,
t.d. karamellur, hlaup og lakkrís, er lengi
að eyðast af yfirborði tannanna. Á meðan
liggja tennurnar í sýrubaði.
Nauðsynlegt er að bursta tennurnar
vel og vandlega kvölds og morgna með
flúortannkremi.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA|Lýðheilsustöð
Karíus og Baktus fara
ekki í jólafrí
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir, verkefnastjóri
tannheilsu hjá Lýðheilsustöð. FASTEIGNIR
mbl.is
ÞRÖNGAR buxur eru næstalgengasta orsök þess að far-
símar bila, að því er könnun Siemens í Svíþjóð leiddi í ljós,
en greint er frá henni á vef Berlingske Tidende. 300 manns
tóku þátt í könnuninni. Algengustu ástæður fyrir biluðum
gemsum voru rigning eða högg á símann. Þröngir og litlir
buxnavasar komu einnig sterkir inn. Hér eru tíu algengustu
ástæðurnar:
Að missa símann á jörðina
Þröngar buxur
Að nota símann í rigningu
Að fleygja símanum á jörðina
Hundur eða barn kemst í símann
Að missa símann í klósettið
Að missa símann í vatn
Að gleyma símanum á bílþakinu
Sviti kemst í símann vegna íþróttaiðkunar
Að missa símann í snjóinn
Hvers vegna bila gemsarnir?
Hefðirnar