Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 67
SANNKÖLLUÐ jólastemmning er
komin í húsið á Gljúfrasteini, hús
Halldórs Laxness og fjölskyldu
hans sem nú er orðið safn. Guðný
dóttir skáldsins hefur hjálpað til við
jólaundirbúninginn í ár og dekkað
upp borðið í borðstofunni eins og
gert var á aðfangadagskvöld á
heimili hennar, sett fram sérstakt
dúkkuhús og dúkkusafn sem stillt
var upp á jólum en átti annars
samastað í skrifstofu Halldórs.
3.000 manns í heimsókn
Að sögn Guðnýjar Dóru Gests-
dóttur, forstöðumanns safnsins að
Gljúfrasteini, hefur aðsókn í húsið
verið talsverð síðan safnið var opn-
að fyrir almenningi 4. september
síðastliðinn. „Frá því að við opn-
uðum hafa komið yfir 3.000 manns
hingað, sem er talsvert með tilliti til
þess að við höfum ekki auglýst mik-
ið, heldur hefur þetta einfaldlega
spurst út,“ segir hún. „Við höfum
fengið marga hópa, flesta af Íslend-
ingum, en þó reyting af ferðamönn-
um líka. Við eigum von á að straum-
ur þeirra aukist með vorinu.“
Guðný bætir við að margir Ís-
lendingar séu skiljanlega spenntir
að heimsækja þetta hús, sem er nú
loks opið almenningi. „Fólk hefur
lesið sögur Halldórs og flestir vita
nokkuð mikið um hann, en fáir hafa
komið inn í húsið. Ég held að það
veki forvitni margra. Það sem ég er
ánægðust með er að fólk hefur farið
héðan brosandi, og það er auðvitað
besta kynningin.“
Gestir á Gljúfrasteini fá heyrn-
artól við komuna með hljóð-
leiðsögn, sem hefur mælst afar vel
fyrir. „Fólk getur þannig upplifað
stemmninguna í húsinu. Auður
Laxness lýsir hinum ýmsu hlutum í
húsinu, og maður heyrir líka í Hall-
dóri. Rúnturinn tekur um hálf-
tíma,“ útskýrir Guðný. Að auki hef-
ur verið sett upp
margmiðlunarsýning í bílskúrnum,
þar sem einnig er verslun með bæk-
ur Laxness og fleiri hluti.
Upplestur úr nýjum bókum
Bókmenntadagskrá hefur verið
skipulögð á Gljúfrasteini nú fyrir
jólin með upplestrum rithöfunda úr
bókum sem komið hafa út að und-
anförnu. Þeir Halldór Guðmunds-
son, Þórarinn Eldjárn og Jónas
Ingimundarson riðu á vaðið um síð-
ustu helgi og mæltist það afar vel
fyrir, að sögn Guðnýjar. „Það var
þétt setið og sumir þurftu að standa
eða sitja í tröppunum frammi. En
það var voða notaleg stemmning og
heimilisleg, og það á auðvitað ekk-
ert betur við í þessu húsi en að lesa
upp. Það var líka gaman að fá Auði
sem kom og fylgdist með, og hafði
gaman af,“ segir hún að síðustu.
Á morgun munu Gerður Kristný,
Bragi Ólafsson, Einar Már Guð-
mundsson og Kristín Ómarsdóttir
lesa upp úr bókum sínum kl. 15.30.
Næsta sunnudag á sama tíma mun
síðan verða síðasti upplesturinn
fyrir jólin, þegar Pétur Gunn-
arsson, Haukur Ingvarsson, Birna
Anna Björnsdóttir og Auður Jóns-
dóttir lesa upp úr bókum sínum, en
sú síðastnefnda er einmitt barna-
barn skáldsins og nafna ömmu sinn-
ar.
Bókmenntir | Jólastemmning á Gljúfrasteini
Auður Laxness mætti ásamt fjölmörgum góðum gestum á upplestur á Gljúfrasteini um síðustu helgi. Hér er hún
með þeim sem lásu upp úr bókum sínum: Jónasi Ingimundarsyni, Þórarni Eldjárn og Halldóri Guðmundssyni.
Borðstofuborð heimilisins hefur verið dekkað upp eins og gert var á að-
fangadagskvöld hjá Halldóri Laxness og fjölskyldu hans.
Þétt setið en
notaleg stemmning
ingamaria@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 67
MENNING
SÝNING kanadísku listakon-
unnar Ericu Eyres, „It’s for the
best“, verður opnuð í Gallerí
Dverg í kvöld kl. 20. Erica Eyres
fæddist árið 1980 í Winnipeg,
Kanada. Árið 2002 lauk hún
BFA-gráðu í myndlist við Há-
skólann í Manitoba, Kanada og
útskrifaðist nú í ár með MFA-
gráðu frá Listaakademíunni í
Glasgow, Skotlandi, þar sem hún
er nú búsett.
Á sýningunni sýnir Erica ný
verk. Fyrst má þar nefna vídeó-
verkið „Without Arms“, háðslega
heimildarmynd um fjórar vinkon-
ur sem stofna stjórnmálaflokk á
menntaskólaárunum og ákveða í
sameiningu, sem yfirlýsing-
araðgerð, að höggva af sér hægri
handlegginn. Nokkru síðar
ákveður ein þeirra að láta sauma
handlegg sinn aftur á sig. Afleið-
ing þess er að hún einangrast frá
hópnum og neyðist til að draga
sig úr honum. Í myndinni koma
konurnar fram í viðtölum og eru
nafnlausar og einkennalausar.
Meðfram sýningu myndarinnar
sýnir Erica líka röð teikninga
sem sýna afskræmdar fegurð-
ardrottningar. Þær brosa stoltar
til áhorfandans, prýddar kór-
ónum og gapandi holum í andlit-
unum. Þær virðast vongóðar og
tilbúnar til keppni, þrátt fyrir
viðbjóðsleg sárin. Líkt og kon-
urnar í vídeóverkinu „Without
Arms“, eru fegurðardrottning-
arnar nafnlausar. Nöfn þeirra og
vísanir í heimalönd þeirra eru
klipptar út.
Teikningarnar og vídeóverkin
eru hvort tveggja skopstælingar
á gjörningum 7. áratugarins, þar
sem mikið var unnið með sjálf-
skapaðan sársauka til þess að
hneyksla áhorfendur og bjóða
þeim birginn. Með verkum sínum
varpar Erica upp spurningum
varðandi þrána um raunverulega
og ímyndaða frægð. Sýningin
gerir óskýra línuna milli hláturs
og vorkunnar, hæðist að striti
kvenna fyrir viðurkenningu, og
íhugar hversu langt þær ganga í
fórnum sínum.
Myndlist | Erica Eyres í Galleríi Dvergi
Háðsk ádeila á strit
og frægðardrauma
Afskræmd fegurðardrottning úr
röð teikninga í Galleríi Dvergi.
Gallerí Dvergur er í kjallara að
Grundarstíg 21 í Þingholtunum.
Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudags, kl. 18–20 og eftir sam-
komulagi til 26. desember. Lokað
verður 24. og 25. des.
Á Þorláksmessu býður Gallerí
Dvergur gestum sinum upp á jóla-
drykk kl. 22–23.