Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 12.12.2004, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Eftir ferð með Dettifossi frá Reykjavík til Hull á Englandi kom Halldór Laxness til Barcelona í september 1933. Á móti honum á járnbrautar- stöðinni tók vinur hans og skólabróðir Helgi P. Briem, sendifulltrúi Íslands í borginni, og með honum var Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann og Halldór fóru á nautaat meðan á dvölinni í borg- inni stóð. Með Jónasi frá Hriflu á nautaati í Barcelona 1933 Sól skein í Barcelona, en ókyrrð var ílandinu. Eftir að Alfons XIII. Spán-arkonungur hafði hrökklast frá völd-um 1931, hafði verið stofnað lýðveldi.Verkföll voru tíð og róstur á götum, ekki síst þegar leið að þingkosningum, en fyrri umferð þeirra var 19. nóvember 1933 og seinni umferðin 3. desember. Stjórnleysingjar og sameignarmenn voru öflugir í Katalóníu, þar sem Barcelona stendur. En Spánverjar létu óróann ekki raska venjum sínum. Skömmu eftir komu sína fór Kiljan með þeim Helga P. Briem og Jónasi Jónssyni frá Hriflu á nautaat. Hringleikahúsið, þar sem það fór fram, var sneisafullt. Það var reist eins og Colosseum í Róm, stórt svið í miðju, en sæti hækkandi allt um kring. Ekkert þak var yfir og haustsólin brennandi heit. Utarlega í hringnum sátu nokkrir menn gamla húðarjálka. Þessir riddarar voru í sterkum brynjum úr járni og leðri og hver þeirra með langa burtstöng í hendi. Þegar naut æddi inn á sviðið, réðst það á þá til skiptis. Þeir vörðu sig lítillega með burt- stönginni. Áður en varði, hafði nautið rekið hest á hol. Riddarann sakaði ekki, þegar reiðskjóti hans féll helsærður niður. Því olli brynjan og snar- ræði hans. En þetta var aðeins forleikur. Að- stoðarmenn nautabanans birtust með mislit klæði í annarri hendi og örvar í hinni. Þegar nautið rann á einn þeirra, brá hann litklæðinu fyrir sig, vék fimlega til hliðar og stakk um leið örvum í herðakamb nautsins. Hinir aðstoðar- mennirnir tóku við og héldu áfram að espa dýr- ið á sama hátt, uns það var orðið sárt og hálf- ært. Þá steig sjálfur nautabaninn fram á sviðið. Sá var klæddur aðskornum, þröngum búningi, með litklæði í annarri hendi, en hárbeitt sverð í hinni. Nautið æddi að honum. Hann brá fyrir sig litklæðinu og hljóp til hliðar. Nautið gerði hverja atrennuna af annarri, en nautabaninn vék undan, uns hann komst í færi. Þá lagði hann sverði sínu í hjartastað nautinu og særði það til ólífis. Mannfjöldinn laust upp fagnað- arópi. Þessi leikur var endurtekinn hvað eftir annað. Átta naut voru drepin í þetta skipti. Gengið á fund þýskra nasista sumarið 1936 Kiljan sat þing PEN, alþjóðasamtaka ljóð- skálda og rithöfunda, í Buenos Aires í sept- ember 1936 og eftir skamma viðdvöl í Lund- únum héldu þau hjónin, Kiljan og Ingibjörg, til Þýskalands. Kiljan átti brýnt erindi í Berlín. Hann þurfti að greiða úr útgáfumálum sínum í Þýskalandi. Þótt fyrra bindið af Sjálfstæðu fólki hefði kom- ið út hjá Zinnen Verlag um vorið, var allt óvíst um útkomu seinna bindisins og Sölku Völku, sem var fullþýdd. Eftir valdatöku þjóðernis- jafnaðarmanna réð dr. Kippenberg ekki lengur neinu í Insel Verlag, sem hafði vísað bókinni frá sér. Hasselbalch hafði boðið nokkrum öðr- um þýskum útgáfufyrirtækjum Sölku Völku og fengið góðar undirtektir. En fyrirtækin hik- uðu, því að Kiljan var talinn kommúnisti. Hass- elbalch hafði goldið Erwin Magnus, þýðanda Sölku Völku í Þýskalandi, laun og dregið af reikningi Kiljans hjá sér. Zinnen Verlag fékk ekki heldur leyfi til að færa ritlaun Kiljans yfir í danskar krónur. Hasselbalch skrifaði því danska sendiherranum í Berlín bréf, sem hann fékk Kiljan til að fara með þangað. Þar sagði: Sá, sem færir yður þetta bréf, hinn íslenski rithöfundur Halldór Laxness, hefur fyrir mín orð hagað heimferð sinni frá P. E. N. þingi í Buenos Aires á þann veg, að hann kæmi við í Berlín, í því skyni að reyna í fyrsta lagi að fá greitt fé, sem hann og um leið ég eigum inni hjá Zinnen Verlag í Vín, en það hefur útibú í Berlín að Gneisenaustrasse 66, og í öðru lagi að vísa al- veg á bug orðasveimi, sem samkvæmt upplýs- ingum Zinnen Verlag er á kreiki um það, að Lax- ness eigi að vera kommúnisti. Þetta hefði að öllum líkindum þær tvær afleiðingar, að hann fengi ekki skuld Zinnen Verlag við sig greidda og að lagt yrði bann við útgáfu bóka hans í Þýska- landi. Ég er eftir að hafa fengið bréf frá Laxness sannfærður um, að orðasveimurinn er tilhæfu- laus. Því yrði ég sendiherranum afar þakklátur, ef þér getið aðstoðað Laxness í að leysa þau mál, sem valdið hafa miklum erfiðleikum síðasta hálfa árið. Í Berlín tók Kiljan sér gistingu á Hotel Nordland og kom bréfinu í danska sendiráðið föstudaginn 16. október. Þremur dögum síðar skrifaði Herluf Zahle sendiherra kurteislegt bréf til Hasselbalchs, þar sem hann sagðist vera reiðubúinn að ræða, að hvaða liði hann gæti orðið Kiljan. Sendiherrann sendi sama dag fyrirspurn til Jóns Krabbe, fulltrúa í ís- lenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn, um það, hvort Hasselbalch hefði rétt fyrir sér um Lax- ness, sem hann þekkti sjálfur ekkert til. Jón Krabbe svaraði sendiherranum nokkr- um dögum síðar og sagðist geta veitt honum eftirfarandi upplýsingar: Halldór Laxness er framúrskarandi rithöf- undur og alls ekki neinn stjórnmálamaður, áróð- ursmaður eða þátttakandi í stjórnmálahreyfing- um. Ég get ekkert sagt um, hverjar einkaskoðanir hans eru, en ég hef vissulega heyrt þann orðasveim, sem þér minnist á í bréfi yðar, og það er hugsanlegt, að eitthvað hafi um hann birst í íslenskum blöðum, en eins og áður sagði hefur Laxness sjálfur engu valdið um það. Þegar hann hefur skrifað í íslensk blöð, hefur það verið í stjórnarblað jafnaðarmanna hér í Reykjavík. Það sýnir, hversu mikillar almennrar virðingar Laxness nýtur á Íslandi, að Alþingi hefur með stuðningi allra flokka veitt honum hæstu rithöfundarlaun, sem það veitir, 5 þúsund krónur. Ég er sammála yður um það, að bréf Hasselbalchs veitti yður of litlar upplýsingar til að andmæla orðasveimi. En ef yður finnast þess- ar upplýsingar mínar ófullnægjandi, þá getið þér beðið Laxness, þegar hann snýr sér til yðar, að staðfesta þær með sérstakri yfirlýsingu um, að hann hafi aldrei tekið þátt í starfsemi komm- únista hvorki á Íslandi né utan þess. Kiljan fór hins vegar til Kaupmannahafnar án þess að hafa fengið úrlausn sinna mála. Þangað kom hann með konu sinni föstudaginn 23. október 1936. Þau leigðu sem fyrr herbergi í Puggårdsgade 2. Kiljan fer á miðilsfund haustið 1937 Í september 1937 dvaldi Kiljan um skeið á Laugarvatni og kynntist þá sálarrannsóknum. Þetta haust fékk Eggert Guðmundsson list- málari Kiljan einnig til að sækja með sér fund hjá Láru miðli. Eggert hafði mikinn áhuga á sálarrannsóknum, en Kiljan vildi kynna sér ís- lenskan miðilsfund og bera saman við þann, sem hann hafði sótt í San Diego í ársbyrjun 1928. Meðal annarra gesta á fundinum var gamall vinur Kiljans frá Kaupmannahöfn, Jón Norland læknir. Kiljan var vísað til sætis beint á móti Láru miðli. Eggert var annar maður til vinstri við miðilinn og Jón þriðji til hægri. Bókarkafli | Halldór Kiljan Laxness var afkastamikill á rithöfundaferli sínum. Á árunum 1932–48 sem segir frá í Kiljan, öðru bindi ævi- sögu skáldsins eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, greinir frá tíma er hann skrifaði sumar sínar helstu skáldsögur, m.a. Sjálfstætt fólk, Heimsljós og Íslands- klukkuna. Í þeim kemur fram sálarstríð Halldórs og efi, en á sama tíma kom hann fram út á við sem beinskeyttur talsmaður rót- tækra stjórnmálaskoðana, alltaf viss í sinni sök. Hér er fjallað um kynni Halldórs af Jónasi frá Hriflu og handan- heimaöflum sem og hjóna- bands- og fjárhagsörð- ugleika skáldsins. Myndin er í eigu Þjóðminjasafns Halldór Kiljan Laxness var ræðumaður á útifundi kommúnista 1. maí 1936 og hvatti til samfylkingar kommúnista og jafnaðarmanna. Hann var venjulega mjög vel klæddur en dró við þetta tækifæri upp gömul föt, sem hann notaði ella aldrei. Konu hans, Ingu, blöskraði þetta „falserí“ eins og hún kallaði það. Reynsla af miðli og mótlæti Erlendur í Unuhúsi var hollvinur Kiljans. Hann lést í febrúar 1947, og til- einkaði Kiljan honum Atómstöðina, sem kom út ári síðar. Erlendur var önnur fyrirmynd organistans í þeirri bók, en Þórður Sigtryggsson, fasta- gestur í Unuhúsi, hin. Þetta málverk af Erlendi gerði Nína Tryggvadóttir. Kiljan situr við skriftir í íbúð, sem hann leigði á Vesturgötu 28 eftir að Ingibjörg fór frá honum 1940. Árin 1940 til 1943 voru honum að mörgu leyti erfið, en eftir það vænkaðist mjög hagur hans. Með Íslandsklukk- unni varð hann þjóðskáld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.