Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 29          !"#  $%"%#  " "# & ' &( ' )( ' ( *+$%,% % -" ., /''" Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum m.v. 2 fyrir 1. Netverð pr. mann Kr. 2.900 Verð á mann, m.v. 2 í herbergi, hótel Limmathof, pr. nótt með morgunmat. Kr. 5.900 Verð á mann, m.v. 2 í herbergi, hótel Senator, pr. nótt með morgunmat. Beint flug Heimsferða, 29. desember, brottför frá Keflavík kl. 8.00 • 1. janúar, brottför frá Zürich kl. 19.30 Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel. Tveir fyrir einn - Áramótaveisla í Zürich frá kr. 19.990 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að njóta áramótaveislu í Sviss á ótrúlegum kjörum. Þú bókar 2 flugsæti, en greiðir aðeins fyrir 1 og getur kynnst þessari frábæru borg.Zürich er stærsta borg Sviss og liggur í hjarta landsins við hið fagra Zürichvatn. Hér er að finna heillandi stemmningu um jól og áramót, hin stórkostlega flugeldasýn- ing um hver áramót er stærsta partý í Sviss og hingað koma þúsundir til að fylgjast með stemmningunni og njóta matar og drykkjar á hverju götuhorni fram eftir nóttu. Að þessu sinni voru jóla-sveinarnir heldur bráð-látir og komu til byggðanokkru áður en þjóðtrú-in segir til um og tíma- bært var að setja litla skó út í glugga. Fullorðið fólk þarf að nota hugmyndaflugið til að útskýra slíkt háttalag þeirra kumpána en getur huggað sig við að ung börn geta sætt sig við undarlegustu skýring- ar. Þannig eyddi pabbi minn öllum grunsemdum um tilvist jólasvein- anna þegar ég furðaði mig á að nokkrir molar af jólasælgæti, sem fjölskyldan hafði útbúið í samein- ingu, höfðu ratað ofan í skóinn minn. Hann sagði að líklega hefði Gluggagægir verið orð- inn uppiskroppa með góðgæti, séð þetta fínerí inn um eldhúsgluggann og stolið handa mér nokkrum mol- um. Þegar ég var að alast upp var fátt um fína drætti í verslunum enda svokallað haftatímabil og innflutn- ingur af skornum skammti. Til allr- ar Guðs lukku fyrir jólasveinana voru ávextir einungis fáanlegir til hátíðabrigða og þannig gat fagur- rautt epli eða safarík appelsína ver- ið kærkominn glaðningur fyrir krakka sem höfðu hegðað sér vel. En jólasveinarnir höfðu glöggt auga með smáfólkinu og þegar út af bar með skikkanlega framkomu var þetta hnöttótta, sem maður nagaði upp úr skónum í næturmyrkrinu, ekki dýrindis ávöxtur heldur stærð- ar laukur sem undan sveið í tvenn- um skilningi. Ekki man ég til þess að jólasveinarnir hafi verið svona strangir við krakkana mína en þeir bökuðu okkur foreldrunum óttaleg vandræði á stundum. Það var loks- ins komin á ró í húsinu eftir erfiðan vinnudag í jólaannríkinu og tíma- bært að slaka á þöndum taugum þegar skyndilega uppgötvaðist að ekkert var til í skóinn. Á þeim árum var verslunum lokað klukkan sex, nema svokallaðar sjoppur sem höfðu takmarkað úrval á boðstólum. Stundum var ekki um aðra kosti að ræða og svo var brotist út í hvass- viðri og fannfergi skömmu fyrir lok- un til að afstýra yfirvofandi harm- leik næsta dag. Almennt eru börn umburðarlynd gagnvart kenjum jólasveinanna og gera sér ekki rellu út af því hvort Stúfur eða Gáttaþefur séu til í mis- munandi stærðum og gerðum eða Pottasleikir geti verið á mörgum stöðum í einu. Svona er nú barns- hugurinn skemmtilegur. Honum gengur samt illa að sætta sig við fullkomið óréttlæti. Og hvernig er líka hægt að kyngja því að jóla- sveinarnir mismuni freklega þeim sem á þá trúa? Það er engin sann- girni í því að óþekktarangar fái spennandi myndbönd eða tölvuleiki í skóinn en þægu börnin þurfi að sætta sig við límmiða eða strok- leður. Þess vegna er þeirri kurt- eislegu ábendingu komið á framfæri við jólasveinana að örlæti þeirra taki dálitið mið af hegðun barna og þeir stilli gjöfum sínum í hóf svo að þeir verði ekki fyrsta táknið um rangsleitni heimsins í augum lítilla sakleysingja. Til umhugs- unar fyrir jólasveina HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Guðrúnu Egilson FASTEIGNIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.