Morgunblaðið - 12.12.2004, Page 47

Morgunblaðið - 12.12.2004, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 47 MINNINGAR Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför okkar ástkæra GUÐJÓNS MAGNÚSSONAR, dvalarheimilinu Seljahlíð. Álfheiður G. Guðjónsdóttir, Guðmundur Hlynur Guðmundsson og fjölskylda, Gunnar H. Guðjónsson, Aðalheiður Sigvaldadóttir og fjölskylda, börn Ingimars Guðjónssonar og fjölskyldur þeirra. Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR GÍSLADÓTTUR fyrrv. ráðherrafrúar frá Borgarnesi. Sérstakar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar, sem og starfsfólki Þjónustu- íbúða aldraðra við Dalbraut. Gísli V. Halldórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir, Sigurður I. Halldórsson, Steinunn Helga Björnsdóttir, Sigurbjörg G. Halldórsdóttir, Kristján Örn Ingibergsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, ÁRMANNS EYDAL ALBERTSSONAR fyrrv. vélstjóra, Vegamótum í Garði. Jónas Eydal Ármannsson, Margrét Þyri Sigurðardóttir, Sigurður Albert Ármannsson, Ólöf Ragnheiður Ólafsdóttir, Elfa Eydal Ármannsdóttir, Atli Alexandersson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, DAVÍÐ HELGASON, Laufási 3, Egilsstöðum, áður til heimilis í Fellsási 5, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 17. desember kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast Davíðs, er bent á að stofnaður hefur verið reikningur til styrktar barna- og unglingastarfi Golfklúbbs Fljótsdals- héraðs. Það var hans hjartans mál að koma því vel af stað. Reikningur nr. 0175-05-073042, kt. 500387-3199. Auður Ragnarsdóttir, Dagný Davíðsdóttir, Edda Davíðsdóttir, Kristján Magnússon, Kristín Hrund Davíðsdóttir, Thron Alm, Davíð Kári Kárason, Jónas Thronson Alm, Nora Iris Alm, Ingimundur Helgason, Þórður Helgason. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför RAGNHEIÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR, Hringbraut 52, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-6 á Landspítala Fossvogi. Jóhannes Valgeir Reynisson, Gyða Þórdís Þórarinsdóttir, Árni Reynisson, Anna S. Bjarnadóttir, Eyjólfur Reynisson, Una Gísladóttir, Jóhann Reynisson, Suphit Donkanha, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bjarni Metúsal-em Ragnarsson fæddist í Víkurgerði í Fáskrúðsfirði 27. nóvember 1950. Hann andaðist á heimili sínu í Reykja- vík hinn 13. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Elín Bjarnadóttir húsfreyja og Ragnar Björgvinsson bóndi í Víkurgerði. Systkini Bjarna voru sex. Eft- irlifandi eru Sigrún, Jóhanna Sigurbjörg og Björgvin Jónas. Bjarni ólst upp við öll venjuleg sveitastörf. Hann var gagnfræð- ingur frá Alþýðuskólanum á Eið- um, fór svo í lýðhá- skóla í Reykholti í einn vetur. Hann var á sjó á bátum frá Fá- skrúðsfirði og Stöðv- arfirði, en eignaðist sjálfur bát sem hann gerði út um tíma. Hann var mikill íþróttamaður og stundaði þær eftir því sem tækifæri leyfðu. Hann hafði gaman af handa- vinnu ýmiss konar og eftir hann liggja margir góðir gripir. Bálför Bjarna fór fram í kyrr- þey og var aska hans flutt austur í Kolfreyjustaðarkirkjugarð í Fá- skrúðsfirði. Eftir andlát bróður er hann missti haustið 1975, en þeir voru fæddir sinn á hvoru árinu og fermdust sam- an og voru mjög nánir, flosnaði Bjarni upp á Austurlandi. Hann fluttist til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Hann kynntist gömlum manni fyrir sunnan, sem hét Magnús, og bjuggu þeir saman meðan Magnús lifði. Kallaði Bjarni hann fóstra sinn. Hjá þessum gamla manni átti Bjarni góða daga, samdi þeim einstaklega vel. Var gaman að heimsækja þá þegar við fórum til Reykjavíkur, gæjana á Freyjugötunni, eins og þeir kölluðu sig. Það var skarð fyrir skildi að missa þig, Bjarni bróðir, en þú ert horfinn langt fyrir aldur fram. Það er mikil sorg og söknuður hjá okkur. Við systkinin – Sigrún og Bjarni – bjuggum í sömu blokkinni í Hátúni 10A, hin síðari ár. Fórum saman í göngutúra á hverjum degi og ekki má gleyma sundinu í Vesturbæjar- lauginni og hressti það okkur mikið. Þú varst mér alltaf góður bróðir og á ég margar góðar minningar um þig. Þegar ég slasaðist í fyrra varst þú mín hægri hönd í öllu, þar sem heim- ili okkar voru í sömu blokkinni en sitt á hvorri hæð, hjálpuðumst við að með allt. Þú keyrðir mig allt á bíln- um þínum. Þér kæra sendi ég kveðju með kvöldstjörnunni bláu. Það hjarta sem þú áttir en er svo langt mér frá. Þar mætast okkar augu þó ei oftar sjáumst hér, en Guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nú kveð ég þig með sárum sökn- uði og þakka þér fyrir allt. Hinstu kveðjur frá Jóhönnu, Björgvin og fjölskyldum. Þín systir, Sigrún. BJARNI METÚSAL- EM RAGNARSSON langt í frá. Þórunn var kona, sem kom til dyranna eins og hún var klædd og lá ekki á skoðunum sín- um. Mér þótti sérstaklega vænt um glaðværð hennar og kímnigáfu; oft var húmorinn svartur og beittur og beindist ekki síst að henni sjálfri. Við urðum góðar vinkonur, áttum oft með afbrigðum skemmtilegar stundir, án barna minna sem og með þeim. Einnig ræddum við sam- an á alvarlegum nótum á erfiðum stundum og ég dáist að henni fyrir þann styrk sem hún sýndi, þegar hún varð fyrir þungum áföllum nokkrum sinnum í lífinu. Ég hef stundum velt því fyrir mér, hvers vegna fólk skrifi minn- ingargreinar. Sjálf hef ég takmark- aða trú á því, að látið fólk geti lesið blöðin eða fylgst með lífinu eftir andlát sitt, en vil þó ekkert útiloka. Við Þórunn ræddum svolítið um þessi mál. Þótt ég skrifi þessi fá- einu orð til minningar um hana, er þeim hvorki beint til hennar né annarra, heldur er þetta eins konar kveðja, líklega skrifuð í einhverri sjálfselsku, þar sem ég gat ekki kvatt hana fyrir andlátið. Þórunn var svo sérstök kona, að hennar persónu verða ekki gerð skil með einhverjum skrifum. Hún var hjartahlý, skapstór, ástrík og ljúf, stundum öskureið og ill eða gat hlegið innilega og grátið skömmu síðar. Hún var kímin, kaldhæðin, glettin, fjörug, skemmtileg og kátínuna átti hún til alveg fram á síðustu daga, þrátt fyrir söknuð sinn eftir fyrri heilsu og híbýlum. Þetta er að sjálfsögðu mín skoðun á Þórunni, sem er byggð á mínum kynnum af henni. Ég votta afkomendum Þórunnar og öðrum aðstandendum hennar sam- úð mína og barna minna. Þórunn var engin venjuleg kona. Eva Hreinsdóttir. Þórunni kynntist ég gegnum Braga Halldórsson skólabróður minn og skákfélaga. Á árunum um og upp úr 1970 kom ég oft á heimili Þórunnar og manns hennar, Hall- dórs Benediktssonar, í Úthlíð og síðar á Langholtsvegi. Þangað var gott að koma, og húsráðendur skilningsríkir á þeirri undarlegu þörf sumra manna að grúfa sig yfir skákborð í tíma og ótíma. Ég var þarna um tíma hálfgildings heima- gangur og viðhéldust kynni fram eftir árum. Aldrei skorti á góðan viðurgerning og þannig móttökur að manni fannst eiginlega sjálfsagt að ganga bara inn og setjast í sóf- ann eða við eldhúsborðið og fá sér kaffi, maður var alltaf eins og heima hjá sér. Þórunn var af kjarngóðum ætt- um að austan og var sjálf mikil myndarkona og skörungur, rösk og glaðvær, kunni að segja broslegar sögur af öðrum heimilismönnum, sem ekki skulu hafðar á oddi hér. Hún var dugleg hannyrðakona og prjónaði mikið vettlinga og sokka sem yngri kynslóðirnar nutu góðs af. Kappsöm var hún líka og fékk ég að finna fyrir því þegar stundum vantaði fjórða mann í bridds og ég dreginn að spilaborðinu. Hún vildi láta hlutina ganga og hafði ekki mikla samúð með manni sem þurfti að velta fyrir sér hvort betra væri að láta út laufasjöið eða tígultíuna. Þá var stundum rekið á eftir. Eitt sinn deildum við (í góðu að sjálfsögðu) um hanteringu á ýsu, hvernig hún væri látin í pottinn, veðjuðum harðfiskpakka. Svo fór að ég hafði rétt fyrir mér aldrei þessu vant, en var farinn norður í heimahaga þegar úrslit deilunnar urðu ljós. Ég var eiginlega búinn að gleyma málinu þegar í pósti barst pakki með umræddum harð- fiski sem ég snæddi af bestu lyst. Mörg svona smá atvik, sem ylja í minningunni, komu upp í hugann, þegar fréttin barst um andlát Þór- unnar. En mest vil ég þakka Þór- unni fyrir alla hennar góðvild og al- úð í minn garð. Skal þessi sómakona kærlega kvödd. Loks votta ég Braga og Hreini, barna- börnum og öðrum aðstandendum samúð mína. Jón Torfason. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORSTEINU KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR frá Hanhóli. Alúðar þakkir til starfsfólksins á Eir. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Minningargreinar Þökkum innilega samúð og vinarhug við and- lát og útför frænda okkar og vinar, SIGMUNDAR STEFÁNS BJÖRNSSONAR frá Kollugerði, Hvannavöllum 6, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar á Akureyri og einnig til starfsfólks Fjórðungs- sjúkrahússins og Kristnesspítala. Soffía Björnsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Brynhildur Einarsdóttir, Sigríður Höskuldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.