Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 61 MENNING New Artist-in-Residence Programme for the Performing Arts Are you professionally involved in the performing arts as an actor, director, choreographer, performer, composer or dramaturg? Do you yearn for the opportunity to immerse yourself in your chosen art form? Would you like to take on new artistic challenges in a Nordic country other than your own? You can now apply for a residency period at a Nordic performing arts academy through NordScen’s new ‘artist-in-residence’ programme: NORDIC [RESORT]. You can draw up your own project — and we will provide the time, place and setting for artistic development, focus and research, together with seven of the Nordic region’s leading performing arts academies. NordScen will cover accommodation and travel expenses in connection with the residency period. The deadline for applications for the artist-in-residence programme for 2005/2006 is 1st March 2005 NORDIC [RESORT] For further information about Nordic Resort and an application form: www.nordscen.org/ nordicresort NordScen contact person: Anna Thelin tel: +45 33 22 45 55 e-post: at@nordscen.org www.nordscen.org NordScen: Nordic Centre for the Performing Arts is the Nordic Council of Ministers’ institution for the performing arts Kominn er út hljómdisk-urinn Svanasöngur áheiði með sönglögumtónskáldsins Sigvalda Kaldalóns. Á disknum er að finna margar af þekktustu perlum tón- skáldsins sem og lög sem sjaldan eða aldrei hafa verið flutt áður. Jón- as Ingimundarson píanóleikari hafði umsjón með útgáfunni, vali á flytj- endum og lögum. Flytjendur eru: Ólafur Kjartan Sigurðarson barítón, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, mezzósópranarnir Sigríður Aðal- steinsdóttir og Sesselja Kristjáns- dóttir, tenórarnir Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium og Jónas sem leikur á píanó með öllum söngvurunum. Stefnt er að því að gefa út heild- arsafn tónskáldsins en þessi tvöfaldi hljómdiskur er fyrsti hluti útgáf- unnar. Með hljómdiskunum fylgir vegleg efnisskrá með öllum söng- textunum, á íslensku og í enskri þýðingu. Fjöldi ljósmynda úr fjöl- skyldualbúmi Sigvalda Kaldalóns prýðir hana einnig og Jón Ásgeirs- son tónskáld og Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifa um Sigvalda og verk hans. Í texta Trausta segir meðal ann- ars: „Innkoma Sigvalda Kaldalóns í íslenskt tónlistarlíf á sínum tíma var hógvær í fyrstu, undirleikur á harmóníum eða píanó á söng- skemmtunum, þátttaka í söng- hópum og kirkjutónlistarstarfi. Allt án þess að nokkrum dytti í hug það stíflubrot sem varð þegar hann 35 ára gamall, orðinn héraðslæknir vestur í Ármúla við Djúp, laumaði með aðstoð vinar síns Sigurðar Þórðarsonar á Laugabóli út hefti með sjö sönglögum. Á fáum árum varð hann vinsælasti sönglagahöf- undur þjóðarinnar og hefur vin- sældunum ekki linnt síðan. Áhrif hans voru margþætt, hér má af handahófi nefna þrennt: Í fyrsta lagi varð frumkvæði hans fjölda sönglagahöfunda gríðarleg fyr- irmynd, í öðru lagi reyndust lögin stórkostlegur happafengur fyrir söngvara um land allt, og í þriðja lagi urðu tónsmíðar hans einskonar viðmið þeirra sem vildu meiri og betri menntun, „áfram, lengra, upp og hærra“.“ Hugmyndin að útgáfu á einsöngs- lögum Sigvalda Kaldalóns er af- komenda tónskáldsins. Minning- arsjóður Sigvalda Kaldalóns var stofnaður 1998 og er ætlað að standa straum af heildarútgáfu á tónsmíðum Sigvalda. Minning- arsjóðurinn, afkomendur tónskálds- ins, Menningarmiðstöðin Gerðuberg og Smekkleysa standa að þessum fyrsta hluta útgáfunnar, en styrkt- araðilar útgáfunnar eru: Íslands- banki, KB banki, Orkuveita Reykja- víkur og Sjóvá-Almennar. Engin smáframkvæmd Ester Kaldalóns er eitt af afa- börnum tónskáldsins, sem hafa unn- ið af kappi að útgáfunni. „Und- irbúningurinn að útgáfunni er orðinn langur; – hefur staðið frá árinu 2000. Þá komum við barna- börnin okkur saman um að það væri orðið tímabært að gefa út geisladisk með lögum hans. Þótt margir hefðu sungið lögin hans inn á geisladiska með öðrum lögum var enginn disk- ur til með lögum hans eingöngu. Þegar við fórum að ræða málin nán- ar, komumst við að þeirri nið- urstöðu að við vildum gefa öll verk- in hans út; rúmlega 200 sönglög. Það er engin smáframkvæmd.“ Kaldalónsbörnin byrjuðu á því að tala við Jónas Ingmundarson, vegna reynslu hans og þekkingar á ís- lenskri söngtónlist. Hann tók erindi þeirra vel og var tilbúinn til að leið- beina þeim um útgáfuna. „Okkur samdist svo um það að Jónas yrði listrænn stjórnandi fram- kvæmdarinnar og myndi velja alla söngvara og velja hvaða lög hver syngi. Það var mikið verk fyrir Jónas að fara í gegnum öll lögin og ákveða þetta, en upptókur hófust svo árið 2001. Þá voru um 50 ein- söngslög tekin upp, fyrir tvo diska. Það er ekki hægt að setja meira en um 25 lög á hvern disk. Við sáum framá að þetta yrðu gríðarlega margir diskar, sennilega átta diskar alls og að verkefnið myndi taka langan tíma.“ Ester segir að Jónas hafi ráðlagt þeim að fara sér hægt; verkefnið yrði að fá að taka þann tíma sem með þyrfti og vera vandað. „Það var metnaðarmál að útgáfan yrði vönduð, jafnvel þótt það tæki lengri tíma.“ Masterinn að disknum – það er fullbúin upptaka til fjölföldunar, var tilbúinn fyrir einu og hálfu ári, en þá var öll hönnunin eftir auk framleiðslu disksins. Ester segir að fjölskyldan hafi fengið þau ráð frá góðu fólki, að best yrði fyrir þau að snúa sér til Ásmundar Jónssonar í Smekkleysu með framhaldið, vegna reynslu hans í útgáfu íslenskrar tónlistar. „Við vorum auðvitað öll óvön hljóm- plötuútgáfu og því kom ekki annað til greina en að fá reyndan mann í þetta. Okkur samdist um það að fjölskyldan og minningarsjóðurinn kostuðu söngvarana, píanóleikinn og upptökurnar og allt sem þeim fylgir. Ásmundur fékk svo starfs- fólk Gerðubergs í lið með sér við gerð bæklingsins með öllum text- unum og þýðingum á ensku. Elísa- bet Þórisdóttir í Gerðubergi og hennar fólk hafa reynslu af útgáfu geisladiska og textaþýðingum af þessu tagi. Ásmundur sá líka um að fá hönnuð, Ólaf Engilbertsson, til að gera bæklinginn og umbúðirnar sem best úr garði. Mér finnst þetta sérstaklega fallegt, og hafa tekist vel. Ég er mjög ánægð með útkom- una, þótt þetta hafi tekið sinn tíma. Nú er að líta fram á veginn og huga að næstu skrefum.“ Tók þrjátíu ár að gefa nóturnar út Ekki er komin tímasetning á næsta disk í röðinni að sögn Ester- ar, en hún vonast til að hægt verði að hefjast handa fljótlega eftir ára- mótin. Nokkrar upptökur eru þegar til, fyrir blandaðan kór og barnakór, en Ester segir að af rúmlega 200 verkum Sigvalda Kalda- lóns séu rétt innan við hundr- að kórverk auk nokkurra hljóðfæraverka. Stefnt er að því að öll þessi tónlist komi út. „Faðir minn, Snæbjörn Kaldalóns, elsti sonur Sig- valda, sá til þess á sínum tíma, að öll verk Sigvalda yrðu gefin út á nótum, og hvert einasta lag sem við vit- um um er því til á nótum. Við vitum þó að einhver lög hafa glatast. Það tók þrjátíu ár að koma nótnaheftunum út.“ Það kann mörgum að þykja undarlegt í ljósi vin- sælda verka Sigvalda Kalda- lóns, að heildarútgáfa þeirra skuli ekki hafa litið dagsins ljós löngu fyrr. Ester segir að þessu megi vissulega velta fyrir sér, því lögin hans hafi fyllt tónleikasali áratugum saman. „Mörg laga hans eru til á diskum, en það eru bara svo oft sömu lögin – glansnúmerin, og lög sem fólk þekkir. Það eru miklu fleiri lög geysilega falleg, en heyr- ast sjaldnar, eða nánast aldrei. Þau eiga svo sannarlega erindi við al- menning í dag.“ Afþakkaði fálkaorðuna Minningarsjóðurinn um Sigvalda Kaldalóns hefur að sögn Esterar getað sótt um fé til útgáfunnar í ýmsa menningarsjóði, og STEF- gjöld af sölu disksins renna í sjóð- inn til útgáfu þess sem eftir er. „Þeir fjármunir einir myndu aldrei hrökkva til, því höfundarrétturinn fellur niður 70 árum eftir dauða tónskáldsins, og eftir þann tíma kemur ekkert inn í STEF-gjöld. Þess vegna verðum við að leita ann- arra styrkja.“ Sigvaldi Kaldalóns bjó yfir mikl- um persónutöfrum, og segir Ester að fjölskyldan hafi öll dáð hann. Hann hafi þó verið bæði hlédrægur og feiminn. „Hann gat helst ekki staðið upp þótt klappað væri fyrir honum, og afþakkaði meira að segja fálkaorðuna. Hann var sérstaklega hlédrægur, en þó mjög gestrisinn. Hann átti það til, þegar hann bjó í Grindavík, að hlaupa út á götu og kalla í næsta mann þegar hann var búinn að semja eitthvað sem hann var ánægður með. Þá þurfti hann að fá einhvern til að hlusta með sér og fá álit viðkomandi, þótt það væri ekkert tónlistarmenntað fólk. Hann vildi vita hvernig lögin hans kæmu fyrir eyru almennings. Hann var heppinn að vera giftur afar duglegri konu. Mér er sagt að hún hafi ekki haft mikinn áhuga á tónlist, en hún sá þó til þess að hann fengi næði til að semja. Hún virti hann og dáði, sá um heimilið, var hjúkrunarkona og tók af honum mörg störf til að létta honum lífið. Það má þakka henni mikið, því hún gerði allt sem í henn- ar valdi stóð til að hann gæti samið lögin sín. Hún skildi hvaða þýðingu það hafði.“ Tónlist | Heildarútgáfa á verkum Sigvalda Kaldalóns hafin, að frumkvæði afabarna tónskáldsins Hann vildi vita hvernig lögin hans kæmu fyrir eyru almennings Sigvaldi Kaldalóns við flygilinn sinn. Morgunblaðið/Þorkell „Hann gat helst ekki staðið upp þótt klappað væri fyrir honum, og afþakkaði meira að segja fálkaorðuna. Hann var sérstaklega hlédrægur,“ segir Ester Kaldalóns um afa sinn, tónskáldið Sigvalda Kaldalóns. begga@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.