Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 41 UMRÆÐAN SPILAKASSAR hafa verið til umfjöllunar í Morgunblaðinu und- anfarna viku. Í samantekt blaðsins síðastliðinn sunnudag var meðal annars rætt við Ólaf M. Ólafsson, sem hefur haldið því fram að rekstur spila- kassa á Íslandi sé ólöglegur samkvæmt almennum hegning- arlögum. Hér er um að ræða alvarlega ásökun. Hún er til allrar hamingju á misskilningi byggð. Rekstur spilakassa er leyfður á Íslandi eins og í nágranna- löndum okkar, þar með talið Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Álit þeirra sem til þekkja er að íslenska rekstrarfyrirkomulagið sé til fyr- irmyndar og eftirsóknarvert fyrir aðra, þar eð hagnaður af rekstri spilakassanna rennur óskiptur til góðra málefna í þágu samfélags- ins. Hér á landi má rekja rekstur kassa til 1972 þegar Rauði kross Íslands hóf rekstur söfnunarkassa. Í dag eru rekstraraðilar spila- kassa tveir, Íslandsspil, sem eru í eigu Rauða kross Íslands, Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og SÁÁ, og Happdrætti Háskóla Ís- lands. Íslandsspil og happdrættið lúta ólíkum skilyrðum til reksturs spilakassa. Þótt margt sé líkt með rekstrinum er starfsemin ólík í grundvallaratriðum. Rekstur spilakassa byggist á lögum Starfsemi Íslandsspila byggist á lögum nr. 73/1994 um söfn- unarkassa og starfsleyfi dóms- málaráðherra. Félagið rekur um 600 kassa í söluturnum og á vín- veitingahúsum. Hámarksvinningur er 10.000 krónur í söluturnum og 100.000 krónur á vínveitinga- húsum. Ekki er um uppsöfn- unarpott að ræða líkt og í kössum happdrættisins. Ágóðinn skilar sér allur til samfélagsins í gegnum starfsemi Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og SÁÁ. Starfsemi Happdrættis Háskóla Íslands er byggð á heimild í lögum nr. 13/1973 um happ- drættið. Dómsmálaráðherra hefur veitt happdrættinu heimild til reksturs spilakassa. Rekur það nú um 350 kassa á vínveitingahúsum og í sérstökum spilasölum (Gull- regni/Gullnámu). Hámarksvinn- ingur er 800.000 krónur í Gull- regni og hærri í Gullnámu, þar sem er uppsöfnunarpottur. Ágóðinn rennur til húsbygginga og fleiri verkefna innan Háskól- ans. Rekstur spilakassa er sam- kvæmt framansögðu lögmætur. Hann á sér stoð í heimild löggjaf- ans, þ.e. lögunum, og heimild framkvæmdavaldsins, þ.e. starfs- leyfi veittu af ráðherra á grund- velli laganna. Lög- gjafanum er án efa heimilt að mæla svo um í lögum, að til- tekin háttsemi sé heimil að ákveðnum skilyrðum uppfylltum þótt slík starfsemi sé almennt bönnuð og jafnvel refsiverð. Al- menn hegningarlög verður að skýra til samræmis við önnur lög. Háttsemi sem sérstaklega er lýst lögmæt í lögum getur ekki orðið grundvöllur refsiábyrgðar. Fullyrðing um að rekstur spilakassa sé andstæður almennum hegningarlögum er því á misskilningi byggð. Lækka mætti vinninga Við sem stöndum að rekstri Ís- landsspila erum meðvituð um þá hættu sem stafar af spilafíkn og afleiðingum hennar fyrir viðkom- andi og fjölskyldur þeirra. Okkur er einnig ljós sú ábyrgð sem fylgir rekstri spilakassa. Íslandsspil hafa á liðnum árum verið leiðandi í ástundun ábyrgrar stefnu þar sem megináhersla hefur verið lögð á:  Að fyrirbyggja þátttöku ung- menna undir 18 ára aldri.  Að afla upplýsinga um spila- hegðun Íslendinga.  Að auka líkur á að þeir sem haldnir eru spilafíkn leiti sér hjálpar.  Að styðja við starf þeirra sem aðstoða fólk sem haldið er þessari fíkn. Afstaða Íslandsspila er skýr að því leyti að það er ekki vilji fé- lagsins að einstaklingar sem haldnir eru spilafíkn spili í kössum á þess vegum. Þótt margt hafi áunnist má vafalaust gera betur í þeirri við- leitni að draga úr hættu á spila- fíkn. Að því marki hefur verið og verður áfram unnið innan Íslands- spila. Það er skoðun okkar að rétt sé að lækka vinninga í spilaköss- um hér á landi til samræmis við nágrannalönd okkar, þannig að hámarksvinningur nemi aldrei hærri fjárhæð en 15–20.000 krón- um. Forsenda slíkra breytinga er að sömu eða sambærileg lög gildi um starfsemi þeirra sem reka spila- kassa. Þessi breyting hefði það í för með sér að uppsöfnunarpottur Happdrættis Háskóla Íslands yrði aflagður og hámarksvinningur í öðrum kössum þess myndi lækka úr 800.000 krónum í 15–20.000 krónur. Hámarksvinningur í kössum Íslandsspila myndi að sama skapi lækka úr 100.000 krónum í sömu fjárhæð. Með þessari ákvörðun mætti draga verulega úr neikvæðum áhrifum spilakassa hér á landi og ásókn spilafíkla í þá. Ábyrg umræða leiðir til framfara Sumir sem fjallað hafa um spila- fíkn hafa ítrekað tengt vanda þeirra sem haldnir eru spilafíkn við spilakassa. Kannanir sýna að þessi nálgun er villandi því hlutfall spilafíkla er jafnvel enn hærra meðal þátttakenda í bingói, veð- spilum og ýmsum öðrum peninga- leikjum hér á landi. Mikilvægt er því að meta aðstæður heildstætt þegar fjallað er um mögulegar úr- bætur. Samkvæmt könnun á spila- hegðun Íslendinga, sem IMG Gall- up vann fyrir Íslandsspil árið 2000, gaf 1 prósent þeirra, sem spilað höfðu í Lottói árið fyrir könnunina, svörun um spilafíkn, 3,9 prósent þeirra sem spilað höfðu í Íslenskum getraunum/ Lengjunni, 4,5 prósent þeirra sem spilað höfðu í bingói og 8,5 pró- sent þeirra sem tekið höfðu þátt í annars konar peningaleikjum en þessum og spilakössum. Sam- bærilegt hlutfall í spilakössum var 2,2 af hundraði. Þessar niðurstöð- ur sýna að spilafíkn er ekki aðeins bundin við spilakassa hér á landi, heldur fyrirfinnst hún ekki síður, og jafnvel í enn meira mæli, í mörgum öðrum peningaleikjum. Markviss, upplýst og opinber umræða um spilafíkn er af hinu góða, því hún hvetur þá sem haldnir eru slíkri áráttu til að end- urmeta stöðu sína og leita sér að- stoðar. Mikilvægast er þó að slík umræða byggist á áreiðanlegum, ábyrgum og faglegum forsendum því einungis þannig getur hún leitt af sér bættan árangur til fram- tíðar. Löglegur og ábyrgur rekstur spilakassa Jóhannes Rúnar Jóhannsson fjallar um rekstur spilakassa ’Markviss, upplýst ogopinber umræða um spilafíkn er af hinu góða, því hún hvetur þá sem haldnir eru slíkri áráttu til að endurmeta stöðu sína og leita sér aðstoðar.‘ Jóhannes Rúnar Jóhannsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Íslandsspila. Jón bóndi í Ölfusi veit hvað hann syngur þegar kemur að sölu bújarða Ef þú ert að leita að bújörð þá ertu í traustum höndum með Jón þér við hlið Til þjónustu reiðubúinn í síma 896 4761 Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17. Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi. Hafnargata 20, Keflavík Sími 426 7711 Fax 421 1700 www.es.is Eignamiðlun Suðurnesja Glæsilegt 190 fermetra einbýlishús við Dvergholt ásamt 22 fer- metra bílskúr. Sérlega glæsilegt og vandað hús, m.a. parket á gólfum, vandaðar innréttingar og allur frágangur er fyrsta flokks. Lóð er fullfrágengin og afgirt með góðum sólpöllum. Sjáið fleiri myndir og upplýsingar á vefsíðu okkar www.es.is Einbýlishús - Hafnarfirði DVERGHOLT 9 Sigurður V. Ragnarsson, lögg. fasteignasali Atvinnuhúsnæði Gilsbúð - Gbæ - sérlóð Nýkomið í einkasölu gott atvinnuhúsnæði á sérlóð. Um er að ræða steypt hús með loft- hæð ca 7 metrar og háum innkeyrsludyrum. Húsið er samtals 724 fm þar af 140 fm milli- loft með góðum gluggum, þ.e. (skrifstofuhús- næði). Malbikuð lóð, en lóðin er 1650 fm. Tilvalin eign fyrir heildsölur o.fl. Góð staðsetning. Verð 55 millj. 106694 NORÐURBRÚ - GLÆSIEIGNIR - GARÐABÆ Nýkomnar í einkasölu tvær glæsilegar 125 fm íbúðir á annarri og þriðju hæð með bílageymslu í nýju lyftuhúsi í Bryggjuhverfinu í Garðabæ. Íbúðirnar skiptast í forstofu, gang, tvö herbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, borð- stofu, þvottahús og geymslu. • Íbúðirnar eru fullbúnar með vönduðum innréttingum og gólfefnum. • Vönduð AEG tæki, ísskápur og uppþvottavél fylgja. • Suðursvalir, útsýni. • Innangengt í bílageymslu. • Vandaður frágangur að utan sem innan. • Íbúðirnar eru til afhendingar nú þegar. • Myndir á mbl.is Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is Mjög góð 92,7 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi auk 19,7 fm bílskúrs (alls 112,4 fm.) Íbúðin skiptist í flísalagt anddyri, parketlagða stofu, kork- lagt eldhús, flísalagt baðherbergi og tvö svefnherbergi. Úr stofu er gengið út á stórar suðvestur svalir með glæsilegu út- sýni til suðurs og vesturs. Bílskúr er með heitu og köldu vatni, hillum og hurðar- opnara. Stutt í alla þjónustu. Íb. getur losnað fljótlega. V. 17,9 m. Jóhann sýnir, sími 856-2007 Lyngmóar 11 - 3. hæð Opið hús milli 14 og 16 í dag
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.