Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Til sölu lítið notaðir 4 vetrarhjól- barðar á felgum með koppum 195/65. 5 þús. stk. 4 álfelgur 157/ 13 7 þús. stk. Uppl. í s. 586 2082 og 693 6764. Driver.is Ökukennsla, aksturs- mat. Subaru Legacy, árg. 2004. Björgvin Þ. Guðnason, sími 895 3264 www.driver.is Útsala. Til sölu Volvo 460 GLE 2.0, árgerð 1994. Bíllinn er skemmdur eftir tjón og fæst á að- eins 50 þús. staðgreitt. Nánari upplýsingar í síma 899 5522. Toyota Landcruiser 80 dísel T-Intc 1995. 1995 árgerð, ekinn aðeins 177 þ. km. 35" dekk, sjálf- skipt, org-læsingar, krókur, spoil- er, millikælir o.fl. Toppeintak! Mjög fallegur. Verð 2,8 millj. Ath. skipti. Sími 663 2430. Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia Sportage '02, Terrano II '99, Cherokee '93, Nissan P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza '97, Legacy '90-'94, Isuzu pickup '91 o.fl. Toyota Corolla GLi 1600 - 16v árg. 1993. Ekinn aðeins 138 þ. km. Sjálfskipt, allt rafdrifið, sumar- og vetrardekk, krókur, fallegur bíll! Gott viðhald! Verð 380 þ. kr. S. 663 2430, 565 2430. Frábær bíla- kaup! GOLIGHT LEITARLJÓS RadíóRaf ehf., Smiðjuvegi 52, Kópavogi, s. 567 2100. www.radioraf.is35 tommu dekk og felgur. Er með 10 tommu breiðar álfelgur, 35/15 dekk í góðu ástandi. Dekk ný, micro-skorin og jafnvægis- stilt, ca hálfslitin. Verð 39 þ. Sími 690 1223 - 564 1223. VERKEFNIÐ Blátt áfram er for- varnarverkefni Ungmennafélag Ís- lands (UMFÍ) og felst í að efla for- varnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur standa á bak við verkefnið, en báðar urðu þær fyrir kynferðislegri misnotkun í æsku. Að sögn Svövu þótti þeim systrum ekki vera nóg að gert í for- varnarmálum hér á Íslandi, og að auki þótti þeim umræðan hérlendis vera yfirhöfuð mjög lítil. Þær tóku það þá að sér að reyna að vekja at- hygli á málefninu þegar rétta tæki- færið gafst. Svava segir upphaf verkefnisins eiga rætur að rekja til þess tíma þeg- ar hún bjó úti í Bandaríkjunum og las auglýsingu í blaði með yfirskrift- inni „Ein af vinkonum dóttur þinnar er misnotuð kynferðislega. Veist þú hver hún er?“ Hún segir auglýs- inguna ekki hafa látið sig í friði, en fyrir neðan hana var svo vísað á heimasíðu grasrótarsamtaka í Bandaríkjunum sem beita sér í bar- áttunni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Eftir að hafa kynnt sér efni síðunnar ákvað Svava að hafa sam- band við framkvæmdastjóra sam- takanna og fékk hún leyfi til að láta þýða bækling samtakanna á ís- lensku. Sjö skrefa bæklingur gefinn út Sjö skrefa bæklingi, fyrir ábyrgt fullorðið fólk, var dreift á öll heimili í landinu nú í haust. „Það sem okkur fannst mjög mikilvægt við þennan bækling var að ábyrgðin á þessu er sett á herðar fullorðna fólksins,“ segir Svava, og bætir því við að það sé mjög mikilvægt að tala um þessa hluti við börn og að þeim sé kennt hvað má og hvað ekki. Hún segir börn vera mjög ábyrgðarfull og viti kannski að kynferðislegt ofbeldi gagnvart þeim sé ekki rétt, en ef ekkert sé talað við þau að fyrra bragði, og þeim bent á leið til að fá hjálp, séu litlar líkur á því að þau segi frá atburðinum fyrr en á full- orðinsárum. Börnin telja oft að þau hljóti að vera svona slæm að þau bjóði sjálf upp á þetta ofbeldi. „Það er þessi hrikalega skömm sem er svo mannskemmandi og fer verst með mann og maður missir traust á öll- um í umhverfinu,“ segir Svava og bætir við að eitt af því erfiðara sem hún hafi þurft að kljást við í fram- haldinu hafi verið að læra að treysta fólki á nýjan leik og sjálfri sér í leið- inni. Hún segir að það sé þó hægt að vinna úr þessu og miklu máli skipti að ræða um þessa hluti, en byrgja þá ekki inni. „Í hvert skipti sem ég get staðið fyrir framan fólk og sagt: „Já, ég lifði af kynferðislegt ofbeldi“, þá losa ég mig við þessa skömm sem ég bar í mörg ár,“ segir Svava og bætir við að það hafi verið alveg fáránlegt að hún hafi skammast sín fyrir það að brotið hafi verið á henni. „Þetta eru helstu afleiðingar þessa ofbeldis, þolendur bera skömmina og gera það oftast einir,“ segir Svava. Sigríður, systir Svövu, átti fund með UMFÍ sem tók að sér að styrkja þýðingu og útgáfu bæklingsins. Svava segir það hafa gert þeim systrum auðveldara um vik að fá aðra aðila til þess að styrkja verk- efnið, en Íslandsbanki og Sjóvá- Almennar styrktu útgáfu bæklings- ins. „Það sem okkur þykir mestu máli skipta er að breyta samfélagsvitund- inni um þennan málaflokk. Við höf- um verið að reyna að gera þetta á eins jákvæðan hátt og við getum af því að við viljum fá jákvæða teng- ingu við þetta verkefni,“ segir Svava. 17% íslenskra barna misnotuð Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknar, sem var birt árið 2002, kom fram að 17% íslenskra barna verða fyrir kynferðislegri misnotkun fyrir 18 ára aldur, eða fimmta hver stúlka og tíundi hver drengur. Svava segir það þó því miður vera svo að margir brotaþola segi aldrei frá sinni lífs- reynslu. „Þess vegna grunar mig að tölurnar séu hærri,“ segir Svava og bætir því við að hún yrði afar glöð ef grunur hennar reyndist ekki á rök- um reistur, en hún vonast til þess að fleiri rannsóknir verði fram- kvæmdar á þessu sviði. Ef breyta á samfélagsvitundinni þá verður líka að hjálpa gerendum kynferð- isafbrota sem eru veikt fólk að sögn Svövu. Eins og staðan er nú skortir bæði úrræði fyrir gerendurna og börnin sem verða fyrir ofbeldinu. Nauðsynlegt sé að koma börnum, sem lendi í kynferðislegu ofbeldi, í góða ráðgjöf ásamt því að styðja fjöl- skylduna, sem bæði fyllist skömm og oft er mikil afneitun að sögn Svövu. Jóladiskur gefinn út Svava segir tónlistarmennina Grétar Örvarsson, Sigríði Beinteins- dóttur og Maríu Björk Sverrisdóttur hafa komið með þá hugmynd að gefa út geisladisk, sem krakkar úr Söng- skólanum syngja á, til styrktar mál- efnum Blátt áfram, diskurinn ber heitið Jólastjörnur og fæst um land allt. „Það er þeirra markmið að gera þetta kannski á hverju ári og finna eitthvert málefni, sem varðar börn, til þess að styrkja, og þau völdu og buðu okkur að taka þátt í þessu.“ Hún segir ágóðann af sölu disksins renna til verkefnisins Blátt áfram, og kann Svava þeim Grétari, Sigríði og Maríu bestu þakkir fyrir að veita málstaðnum lið. Hún segir að með útgáfu geisladisksins sé auk þess verið að efla aðrar forvarnir, en íþróttafélögum og öðrum fé- lagasamtökum um allt land var boð- ið að selja, og fá félögin þá hlut af söluágóðanum. Hún segist vona að aukin umfjöllun leiði til þess að þeir sem hafi lifað af kynferðislegt of- beldi sem börn leiti sér hjálpar. Svava tekur fram að hún sé ekki sérfræðingur og því vísi hún á Barnaverndarstofu, Barnahús, Neyðarlínu lögreglunnar og Hjálp- arsíma Rauða krossins 1717. Verk- efnið Blátt áfram gangi fyrst og fremst út á að sýna fólki hvernig það á að leita sér hjálpar og hvaða leiðir séu fyrir hendi. Hún segir ýmis verkefni vera í undirbúningi, t.d. sérstakt brúðleikhús sem mun fara í grunnskólana, en það verkefni er styrkt af Velferðarsjóði barna og Forvarnarnefnd Reykjavíkur. „Við erum með margt á döfinni, við erum bara rétt að byrja,“ segir Svava. Upplýsingar um verkefnið er að finna á www.blattafram.is. Skiptir máli að breyta samfélagsvitundinni Morgunblaðið/Þorkell Sigríður Beinteinsdóttir, Svava og Sigríður Björnsdætur, María Björk Sverrisdóttir og Grétar Örvarsson standa að útgáfu disksins. Svava Björnsdóttir, verkefnisstjóri forvarn- arverkefnsins Blátt áfram, segir viðtali við Jón Pétur Jónsson að úrræði skorti bæði handa gerendum og þol- endum kynferðislegs of- beldis gegn börnum. jonpetur@mbl.is „ÁHERSLUR Samtaka um betri byggð munu áfram beinast að því að stöðva útþenslu borgarinnar og þétta hana inn á við,“ segir Örn Sig- urðsson, arkitekt og stjórnarmaður í samtökunum. „Til að svo megi verða þarf að taka aðalskipulagið upp og gjör- breyta forsendum þess. Forsendur núverandi aðalskipulags eru þær að þarna verði flugvöllur a.m.k. út þetta skipulagstímabil til 2024 og þess vegna verði flestum þeim 60 þúsund nýju höfuðborgarbúum fundinn staður á austursvæðunum,“ segir hann og bendir á að samtökin andæfi þessari stefnu. Nýkjörin stjórn Samtaka um betri byggð boðaði til fréttamanna- fundar í gær þar sem kynnt voru verkefni samtakanna og nýjar áherslur í skipulagi höfuðborgarinn- ar næstu mánuði og misseri, í að- draganda að kosningum til sveitar- stjórna vorið 2006 og til Alþingis 2007. 135 milljarða arðsemi ef byggt verður í Vatnsmýrinni Í ályktun þeirra sem kynnt var í gær ítreka samtökin að Vatnsmýr- arsvæðið sé mikilvægasta og verð- mætasta byggingarland Reykjavík- ur og skorað er á borgaryfirvöld að hraða undirbúningi þess að það verði nýtt undir miðborgarbyggð. „Með heildarhagsmuni borgarbúa fyrir augum telja samtökin nauð- synlegt að hefja þegar í stað opna og lýðræðislega endurskoðun á for- sendum Aðalskipulags Reykjavíkur og flýta brottflutningi flugvallarins svo unnt verði að hefja uppbyggingu á svæðinu eigi síðar en 2008,“ segir í ályktuninni. Halda samtökin því fram að þjóð- hagsleg arðsemi þess að byggja í Vatnsmýri sé a.m.k. 135 milljarðar kr. Miðborgin er eiginlega dauð „Meginatriðið er að tekin verði ákvörðun strax, hún verði mjög sýnileg og dagsett, þannig að sam- félagið sé ekki að fjárfesta á röngum stað,“ segir Örn. „Nú er svo komið fyrir borgar- samfélaginu að miðborgin er eigin- lega dauð og hún á sér endurlífg- unartíma og hann snýst um þessa fjárfestingu. Það verður að taka ákvarðanir núna. Það verður eitt- hvað að gerast fyrir kosningarnar 2006,“ segir hann. Samtök um betri byggð kynna baráttumál næstu mánaða Vilja stöðva út- þenslu borgar BÍLABÚÐ Benna hefur lækkað verð á bílum. Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri segir að staða gjaldmiðla gefi tækifæri til lækk- unar. „Við höfum reyndar verið að lækka verðið jafnt og þétt vegna gengisþróunar undanfarinna mán- aða.“ Breyting gengis kemur fyrr fram í bílum eins og Porsche sem eru sérpantaðir fyrir viðskiptavininn og því ekki lagervara á gömlu gengi. Porsche Cayenne-jeppinn hefur lækkað úr 6.600.000 kr. í 6.290.000 kr. sem er tæplega 6% lækkun á nokkrum mánuðum. Benedikt sagði að vandamálið væri að aðeins örfáum bílum væri óráðstafað af framleiðslukvóta Bílabúðar Benna næstu mánuði. Bílabúð Benna lækkar verð á bílum SKÁKSAMBAND Íslands og Lands- bankinn standa fyrir skákmóti í dag, sem kallað er Friðriksmót til heiðurs Friðriki Ólafssyni stór- meistara. Skákmennirnir setjast að tafli í dag, sunnudag, kl. 10.30 í aðal- útibúi bankans við Austurstræti, en þá keppa 14 bestu unglingar lands- ins og mun sá sem fer með sigur af hólmi hljóta þá sæmd að keppa við eldri skákmenn síðar um daginn. Mótið sjálft, sem er hefðbundið hraðskákmót, hefst kl. 15. Sterk- ustu skákmenn landsins munu taka þátt, alls 14 skákmenn, þar á meðal Friðrik Ólafsson. Mótið er hluti af aðventu- og jólahátíð Landsbankans. Skákunum verður varpað á risaskjá til að gera áhorfendum betur kleift að fylgjast með framvindu skákanna. Auk þess verða til sýnis verð- launagripir, fréttamyndir og annað fróðlegt efni um feril Friðriks Ólafssonar. Morgunblaðið/Ómar Friðrik Ólafsson stórmeistari mun keppa á mótinu. Friðriksmót haldið í Landsbankanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.