Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 63
*
* *
Nýr og betri
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
*
*
Kr. 500
www.regnboginn.is
VINCE VAUGHNBEN STILLER
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 3.40 og 5.45.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 3.40. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 10.15 B.i. 12 ára.
Jólaklúður Kranks
Jólaklúður Kranks
Óttist endurkomuna því hann er mættur
aftur vígalegri enn nokkru sinni fyrr!!
i í
í l i i i !!
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄❄
❄
❄
Hverfisgötu ☎ 551 9000
Sjáumst
í bíó
Sýnd Kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
Hann er á toppnum...
og allir á eftir honum
Framleidd af Mel Gibson
Pottþéttur spennutryllir...
Sýnd kl. 3.40, 5.45 og 8.
Kapteinn skögultönntei s lt
DV ÓÖH...
EIN ÓHUGNALEGASTA MYND
SEINNI ÁRA
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og
RED DRAGON
Sýnd kl. 2, 6, 8 og 10.
Ein besta
spennu- og
grínmynd ársins
Kr. 500
EIN
ÓHUGNALEGASTA
MYND SEINNI
ÁRA
Sýnd Kl. 4, 6, 8 og 10. Stranglega B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
www.laugarasbio.is
Alls ekki fyrir
viðkvæma
Alls ekki fyrir
viðkvæma
ekki
SVAKALEGA ÖFLUG BARDAGAMYND Í
ANDA BRUCE-LEE
„Balli Popptíví“
„Balli Popptíví“
Með bestu plötum ársinser án efa Panoptikon,þriðja breiðskífa Bost-onsveitarinnar Isis.
Isis er ekki alveg ný af nálinni,
sveitin var stofnuð fyrir sjö árum
vestur í Boston af gítarleikaranum
og söngvaranum Aaron Turner sem
fékk til liðs við sig þá Jeff Caxide á
bassa og Aaron Harris á trommur.
Sveitin bætti snemma við sig öðrum
gítarleikara, Randy Larson, og tók
upp fyrstu lögin. Þær upptökur bár-
ust plötufyrirtækinu Escape Artist
og fyrsta stuttskífan, The Mosquito
Control, kom út 1998. Þá var
Larsen hættur en í hans stað kom
hljómborðs- og hljóðsmalaleikarinn
Chris Mereshuk. Hann hélst þó ekki
í sveitinni nema rétt upptökulotuna,
en í hans stað kom Jay Randall.
Fyrir tónleikaferð til að kynna skíf-
una bætti sveitin við sig gítarleik-
ara, Mike Gallagher.
Með þennan mannskap tók Isis
upp næstu stuttskífu, The Red Sea,
1999, hjá útgáfunni Second Nature
á 8" vínylplötu og geisladisk. Við svo
búið hætti Randall og í hans stað
kom Cliff Meyer, sem greip einnig í
gítar – gítarleikaranir orðnir þrír.
Fyrsta breiðskífa Isis, Celestial,
kom út 2000 og þá má segja að
sveitin hafi loks verið búin að móta
sér stíl, geysiþétt og grípandi rokk,
hægfara þó og hlaðið gítarfrösum
skreytt rafeindahljóðum og drynj-
andi öskrum Turners. Gríðarlöng
tónleikaferð fylgdi í kjölfarið og í
lok hennar kom út stuttskífa með
afgangsupptökum frá því Celestial
varð til og einnig endurunnin lög af
skífunni, SGNL>5.
Haustið 2001 tók sveitin sér frí til
að semja lög og taka upp nýja plötu,
en vinna við hana stóð veturinn
2001/2002. Þegar hér var komið
sögu var Isis búin að semja við
Ipecac um útgáfu sem segir sitt um
þróunina í tónlist hennar eins og
þeir vita sem þekkja til Ipecac og
Mike Patton, eiganda þeirrar ágætu
útgáfu.
Vatnið uppspretta lífs
Stef Ocaeanic er að vatn er upp-
spretta lífs á jörðinni, allt er það til
orðið í hafinu og hélt þaðan upp á
þurrt land. Hljómur á plötunni er
einkar góður, sem skiptir eðlilega
talsverðu í svo flókinni og þéttri tón-
list en við takkana sat Matt Bayles
sem frægur er fyrir vinnu sína með
Mastodon og Pearl Jam svo dæmi
séu tekin.
Plötunni var afskaplega vel tekið
og náði til mun fleiri en hefðbund-
inna þungarokksvina því þó sveitin
hafi hitað upp fyrir hefðbundnar
rokksveitir, til að mynda Neurosis
og Napalm Death, kom hún einnig
fram á tónleikum með Mogwai, Dill-
inger Escape Plan, Dälek og Fenn-
esz og sá síðastnefndi endurvann
fyrir sveitina lög á stuttskífu. Því til
viðbótar má svo nefna að Isis var
boðið að leika á nýbylgjuhátíðinni
All Tomorrow’s Parties í ár og einn-
ig í Nútímalistasafni Los Angeles.
Líkt og eftir Celstial sendi Isis
frá sér stuttskífur og tólftommur á
meðan á stóð tónleikaför til að
kynna skífuna, en á þeim plötum
véluðu um lög Isis menn eins og
Mike Patton (nema hvað), Justin
Broadrick (Jesu, Godflesh), James
Plotkin (Khanate) og Fennesz.
Eftir hæfilegan hamagang til að
kynna Oceanic héldu þeir félagar
aftur í hljóðver að taka upp nýja
skífu og fyrir hálfum öðrum mánuði
kom út þriðja breiðskífa Isis og sú
besta til þessa, Panoptikon.
Lögin á plötunni eru sjö, frá sjö
til fimmtán mínútur hvert sem segir
sitt um framvinduna, gítararnir
seiglast áfram, ýmist grimmd-
arþungir eða rólyndislega tærir,
uppbygging markviss og taktgrunn-
urinn traustur, samsteypa af síð-
rokki, dauðarokki og óhljóðalist, vel
kryddað af harðkjarnakrafti.
Panopticon dregur nafn sitt af
hugmynd enska heimspekingsins
Jeremy Bentham (1748–1832), en
hann hannaði fangelsi fyrir Katrínu
miklu sem byggðist á því að fang-
arnir sæju aldrei verðina en verð-
irnir fangana. Bentham kallaði slíkt
fangelsi Panoptikum og taldi að
myndi leiða til þess að menn myndu
í raun gæta sín sjálfir, því þeir gætu
ekki vitað hvenær væri verið að
fylgjast með þeim og hvenær ekki.
Heimspekingurinn Michael
Foucault heimfærði Panoptikum-
hugmyndina upp á þjóðfélag nú-
tímans, eftirlitsþjóðfélagið, þar sem
söfnun upplýsinga um einstaklinga
sé orðin leið til að stjórna þeim,
valdið verður ósýnilegt líkt og vörð-
urinn í Panoptikon-fangelsi, en um
leið allsráðandi. Foucault varpaði
þessu fram fyrir sautján árum og
margir hafa hent hugmyndina á
lofti, ekki síst á síðustu árum þegar
eftirlit með einstaklingum og upp-
lýsingasöfnun um hátterni þeirra
hefur aukist gríðarlega og meðal
annars réttlætt með „hryðjuverka-
ógninni“.
Landinu stjórnað með ótta
Þeir Isis-menn vitna óspart í skrif
Foucault á umslagi plötunnar nýju
og umslag hennar er skreytt gervi-
hnattarmyndum, rétt til að undir-
strika að víða eru augu.
Aaron Turner, sem er helsti hug-
myndasmiður Isis, er þó ekki á að
Panoptikon sé innlegg í pólitíska
baráttu, en bendir á að nútildags sé
illa hægt að komast framhjá pólitík
þegar menn velti fyrir sér heim-
inum. Einnig segist hann ekki endi-
lega sammála niðurstöðu Foucaults
um samfélagið, en ekki verði á móti
því mælt að kenningar hans passi
býsna vel við það sem gerst hafi
vestan hafs á síðustu árum. „Land-
inu er stjórnað með ótta og var
reyndar nánast byggt á ótta frá
stofnun; fyrst óttinn við breska
heimsveldið, þá kommúnistana og
nú hryðjuverkaárásir.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Isis og eftirlits-
þjóðfélagið
Á nýrri skífu rokksveitarinnar mögnuðu Isis er
mikið undir og þá ekki bara í músíkinni, heldur
byggist platan á djúpspekilegum pælingum um
fangelsið sem við köllum nútímann.