Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Regnbogamessa verður haldin í Lang-holtskirkju í kvöld kl. 20. Þar samein-ast söfnuðirnir þrír umhverfis Laug-ardalinn; Langholts-, Ás- og Laugar-
nessöfnuður – í almennri kvöldmessu á jólaföstu
og kalla samkynhneigða og fjölskyldur þeirra sér-
staklega til þessa samfélags. Áhugahópur sam-
kynhneigðra um trúarlíf (ÁST) og Æskulýðs-
samband kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts-
dæmum (ÆSKR) standa einnig að messunni.
„Regnboginn táknar sáttmálann milli Guðs og
manneskjunnar, hann brúar bilið á milli manna
sem hafa fjarlægst vegna fordóma og hræðslu
hver við annan, hann felur í sér fyrirheit fjöl-
breytileikans og hann er tákn réttindabaráttu
samkynhneigðra,“ segir Grétar Einarsson, for-
maður ÁST. „Regnbogamessan er tilboð um opið
og öruggt samfélag í kirkju sem boðar skilyrð-
islausa gæsku Guðs. Í henni viljum við biðja sam-
an og hvíla í samfélaginu við Guð sem hefur skap-
að okkur öll og elskar okkur öll. “
Er kirkjan að færast nær samkynhneigðum?
„Já, kirkjan er að gera það. Í því sambandi má
benda á samstarf PÍ og FAS (Félag aðstandenda
samkynhneigðra) um tvö málþing á þessu ári og
eitt á því næsta sem hefur leitt til vakningar um
málefni samkynhneigðra innan kirkjunnar. Einn-
ig má benda á starfshóp kirkjunnar um samkyn-
hneigð og kirkjuna en þar er fulltrúi frá ÁST. Það
má segja að umræðan innan kirkjunnar hafi ekki
verið nógu upplýst en með tilkomu starfshópsins
mun það breytast.“
Hvernig er hægt að bæta samfélag kirkjunnar?
„Samfélag kirkjunnar er gott. En eins og svo
oft er ein leiðin til betra samfélags upplýsing.
Kirkjan þarf að læra af fólkinu sem innan hennar
er og hún þarf að hlusta og þetta á við um allt
samfélag kirkjunnar. Henni ber að upplýsa um
leið og hún sjálf upplýsist. Samkynhneigðir eru
líka hluti af samfélagi hennar og við erum starf-
andi innan hennar og það er mjög mikilvægt að
þau okkar sem það eru séum sýnileg í öllu starfi
hennar. Samfélag kirkjunnar þarf að gera sam-
kynhneigðum það kleift að vera þeir sjálfir innan
hennar án alls feluleiks. Slíkur feluleikur er um
leið feluleikur kirkjunnar sjálfrar. Samfélag kirkj-
unnar má ekki verið feimið við að taka á mál-
efnum samkynhneigðra né annarra. Hún á að
hætta öllum tepruskap og þögn og hún á að þora
að taka það frumkvæði sem þarf, ekki síst sjálfrar
sín vegna.“
Hvað er fram undan í þessu starfi?
„Starfshópur kirkjunnar um samkynhneigð og
kirkjuna hefur mikið á prjónunum og það er gíf-
urlega spennandi ár fram undan. Það verður mik-
ið af spennandi fundum og fyrirlestrum og ýmis-
legt fleira verður gert. Það má því gera ráð fyrir
miklum umræðum um málefni samkynhneigðra
og kirkjunnar á næstu misserum.“
Trúmál | Regnbogamessa þriggja safnaða í Langholtskirkju í kvöld
Guð elskar okkur öll
Grétar Einarsson er
fæddur í Hveragerði ár-
ið 1969.
Hann stundaði nám
við Fjölbrautaskóla
Suðurlands og Tónlist-
arskóla Árnesinga, Tón-
skóla FÍH og Tónskóla
þjóðkirkjunnar.
Grétar hefur unnið
við ýmis störf en und-
anfarin ár hefur hann
mestmegnis starfað við verslun.
Grétar er í sambúð með Óskari Ásgeiri Ást-
þórssyni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ferðaáætlanir eða ráðagerðir sem
tengjast útgáfu og menntun virðast
mögulegar um þessar mundir. Alls kyns
spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir
hendi núna. Jibbí.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugsanlegt er að þú sjáir nýjar leiðir til
þess að fá leyfi, aðstöðu, stuðning, fé eða
tæki til þess að sinna vinnunni þinni.
Bolmagn annarra kemur þér að gagni á
einn eða annan hátt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta er frábær dagur til þess að njóta
samræðna við náungann. Makar og nán-
ir vinir virðast einstaklega hressir og
skemmtilegir. Samskipti þín við almenn-
ing ganga vel.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Heilsa þín virðist betri en ella í dag. Það
er ekki síst vegna þess að þú ert bjart-
sýnni um framtíðina nú en endranær.
Glaður hugur leiðir til kraftmeiri líkama.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert að springa úr krafti og bjartsýni á
framtíðina og ekkert fær stöðvað þig.
Horfur í ástalífinu eru góðar og mikið af
skapandi verkefnum á döfinni. Fjár-
málin lofa góðu líka.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Haltu þínu striki með áætlanir um að
færa út kvíarnar heima fyrir. Fasteigna-
viðskipti ættu að skila góðum hagnaði.
Allt sem þú gerir á heimilinu kemur
bæði þér og öðrum til góða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Systkini og nýir kunningjar sýna þér
einstaka hjálpsemi. Þú nýtur þess að
tala við aðra. Fólk fær stórbrotnar hug-
myndir og leyfir þér að gera hvað sem
þér dettur í hug.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag eru aðstæður góðar fyrir verslun
og viðskipti. Þú færð tækifæri til þess að
auka tekjur þínar og ná auknum árangri
í vinnu. Hafðu augun opin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ekki laust við að dagurinn í dag sé
einn sá besti sem þú hefur átt í langan
tíma. Þér líður sem sigurvegara og ert til
í að klífa hæsta tindinn. Ertu kannski
búinn að því?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Trú þín á sjálfa þig hefur aukist nokkuð
frá árinu 2003, steingeit. Þú áttar þig á
því að takmarkanir þínar eru oft af þín-
um eigin völdum. Það skiptir öllu að hafa
trú á sjálfum sér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þetta er frábær dagur til þess að eiga
samneyti við vini og kunningja. Þiggðu
heimboð og vertu í góðu sambandi við fé-
laga og félagasamtök. Hreyfðu þig í leik-
fimi og íþróttum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er rétti tíminn til þess að tala við for-
eldri eða yfirboðara og biðja um það sem
þig langar í. Fólk er einstaklega mót-
tækilegt fyrir þér núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú tjáir þig mikið með líkamanum og
andlitinu. Þú setur þig í snertingu við
umheiminn með líkama þínum og hefur
jafnan óvenjulega rödd. Þú hefur sjálfs-
traust, ert sjálfu þér nógt og kannt að
skemmta öðrum. Þín bíður mikilvægur
valkostur á næsta ári.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 forða frá, 4
óþétt, 7 mannsnafn, 8 ótti,
9 elska, 11 hey, 13 upp-
stökk, 14 plati, 15 þungi,
17 ófögur, 20 töf, 22 hefja,
23 illkvittin, 24 stækja, 25
seint.
Lóðrétt | 1 skjót, 2 grip-
deildin, 3 svara, 4 hugboð,
5 vinningur, 6 líffærið, 10
nef, 12 þræta, 13 skil, 15
skessur, 16 skottum, 18
viðurkennt, 19 fjallstoppa,
20 bera illan hug til, 21
krukka.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 haldgóður, 8 frægt, 9 ættin, 10 tíð, 11 móana, 13
innar, 15 sunna, 18 firra, 21 til 22 rugga, 23 auðan, 24 nið-
urgang.
Lóðrétt | 2 alæta, 3 detta, 4 ónæði, 5 urtan, 6 æfum, 7 knár,
12 nón, 14 nei,15 súra, 16 nagli, 17 ataðu, 18 flagg, 19 rúð-
an, 20 asni.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Tónlist
Grensáskirkja | Kirkjukór Grensáskirkju
ásamt kammersveit heldur Aðventu-
tónleika kl. 17. Jólakantötur eftir Buxte-
hude og kórar úr Kantötum eftir J.S. Bach.
Einsöngvarar: Ingibjörg Ólafsdóttir, Hellen
Helgadóttir og Ingimar Sigurðsson. Einnig
verður samleikur á básúnu og orgel.
Stjórnandi: Árni Arinbjarnarson.
Hallgrímskirkja | Jólaóratóría Bachs
(kantötur I–III) í barokkflutningi kl. 17.
Kammerkórinn Schola cantorum og frá-
bærir einsöngvarar syngja með alþjóðlegri
barokksveit, The Hague International
Baroque Orchestra. Stjórnandi er Hörður
Áskelsson.
Seltjarnarneskirkja | Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna flytur verk eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur við sögu eftir Jón Guð-
mundsson kl. 17. Einnig verður flutt Exsul-
tate, jubilate eftir Mozart, Flugeldasvítan
og aríur úr Messíasi eftir Händel. Hallveig
Rúnarsdóttir og Ólafur Rúnarsson syngja.
Stjórnandi er Hildigunnur Rúnarsd.
Mannfagnaðir
Skaftfellingabúð | Aðventustund Skaftfell-
ingafélagsins í Reykjavík verður haldin kl.
16 í dag. Söngfélag Skaftfellinga tekur
nokkur lög, einnig verður hljóðfæraleikur,
upplestur og gengið í kringum jólatré.
Jólasveinninn kíkir í heimsókn.
Myndlist
Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej-
anninn – málverk.
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Á næstu grösum | Rakel Steinarsdóttir –
Hringrás vatnsins með manninum.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli
Gallerí Banananas | Hrafnkell Sigurðsson
– Verkamaður / Workman.
Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins-
son – Ókyrrar kyrralífsmyndir.
Gallerí Tukt | Fjölbreytt skúlptúrverk átta
myndlistarnema.
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efn-
ið og andinn.
Grafíksafn Íslands | Í dimmunni – samsýn-
ing.
Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í
Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra
Íslendinga.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hólmaröst, Lista- og menningarverstöð |
Jón Ingi Sigurmundsson – Olíu– og vatns-
litamyndir.
Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sýnir í Menningarsalnum.
Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð-
argjöf í Hönnunarsafninu.
Kirkjuhvoll Akranesi | Gylfi Ægisson sýnir
um 60 akrylmyndir.
Kling og Bang gallerí | Sigurður Guð-
jónsson – Hýsill.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Ný ís-
lensk gullsmíði,Salóme eftir Richard og úr-
val verka úr einkasafni Þorvaldar Guð-
mundssonar og Ingibjargar
Guðmundsdóttur.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Graf-
ísk hönnun á Íslandi. Erró – Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textillist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Myndir úr Kjarvalssafni.
Listmunahúsið Síðumúla 34 | Verk Valtýs
Péturssonar
Norræna húsið | Vetrarmessa
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir – Inni í
kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir – Ei-
lífðin er líklega núna.
Skólavörðustígur 20 | Gunnella sýnir ný
málverk.
Suzuki Bílar | Björn E. Westergren – mynd-
ir málaðar í Akrýl og Raf.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir –
sKæti–
Tjarnarsalur Ráðhúss | Ketill Larsen – Sól-
stafir frá öðrum heimi.
Listasýning
Handverk og hönnun | Jólasýningin „Allir
fá þá eitthvað fallegt…“
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Upplestur
úr nýjum bókum í stofunni kl. 15.30. Að-
gangur ókeypis. Gerður Kristný les úr
verðlaunabókinni Bátur með segli og allt.
Bragi Ólafsson les úr Samkvæmisleikjum,
Einar Már Guðmundsson les úr Bítlaávarp-
inu. Kristín Ómarsdóttir les úr Hér.
Þjóðminjasafn Íslands | Stekkjarstaur
kemur í heimsókn kl. 13.
Veitingahús
Á næstu grösum | Spessi útbýr frið-
armáltíð ársins kl. 19.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer sunnudagsins
12. desember er 2479.
www.ljosmyndakeppni.is | Fyrstu ljós-
myndakeppninni lýkur 13. desember, þátt-
taka er öllum heimil og kostar ekkert.
Þema keppninar er jól og verður að taka
myndina frá 1. des til 13.des.
Börn
Árbæjarsafn | Tækifæri til að rölta á milli
gömlu húsanna og fylgjast með undirbún-
ingi jólanna eins og hann var í gamla daga.
Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga
og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að
föndra, syngja jólalög og ferðast um á
hestvagni. Messa og sögustund fyrir börn.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Fréttir á SMS
KÓR Bústaðakirkju efnir til tónleika í Bústaðakirkju í kvöld kl. 20. Þar mun koma fram,
auk kórsins, Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór. Þá leikur Bjarni Þór Jónatansson á
píanó, en stjórnandi kórsins er Guðmundur Sigurðsson.
Á tónleikunum í kvöld verður leitast við að bera á borð fjölbreytta efnisskrá í nýjum og
ferskum útsetningum. Þetta árið verða fluttar nýjar kórútsetningar Gunnars Gunn-
arssonar á þekktum kirkjulögum. Einnig munu heyrast útsetningar Guitars Islancio á ís-
lenskum jólaþjóðlögum, kirkjulegum einsöngslögum, negrasálmum og vel þekktum dæg-
urperlum. Þá skipar Duke Ellington veigamikinn sess á tónleikunum.
Kirkjuleg jólasveifla í Bústaðakirkju
Morgunblaðið/Kristinn