Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 35 miðum fyrir neðan alþjóðleg miðgildi í hæð og þyngd. Barn skortir vatn þegar það hefur að- eins aðgang að yfirborðsvatni eða meira en 15 mínútna gangur er að næsta vatnsbóli. Skortur er á hreinlæti þegar barn hefur engan aðgang að salerni af neinu tagi í grennd við híbýli sín. Skortur í heilbrigðismálum verður þegar börn hafa ekki verið bólusett við neinum sjúkdómum, hafa nýlega fengið niðurgang án þess að fá læknisráð eða -hjálp. Börn í híbýlum þar sem búa fleiri en fimm í herbergi eða ekkert efni er á gólfi líða skort í húsnæðismálum. Börn á aldr- inum sjö til 18 ára, sem aldrei hafa farið í skóla, skortir menntun. Börn á aldrinum þriggja til 18 ára, sem engan aðgang hafa að útvarpi, sjón- varpi, síma eða dagblöðum heima við skortir að- gang að upplýsingum. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar líður einn milljarður barna skort af einhverju tagi. Eins og komið hefur fram er það tæpur helmingur barna í heiminum. Misjafnt er eftir heimshlutum hvaða þættir vega þyngst. Þannig er húsaskjóli helst ábótavant í Afríku, Mið-Austurlöndum, Mið- og Vestur-Asíu, róm- önsku Ameríku og Karíbahafi. Hreinlætismál eru helsti vandinn í Suður-Asíu og vatn í Aust- ur-Asíu og Kyrrahafi. Áhrif stríðs á börn Ekkert hefur jafn af- gerandi áhrif á líf jafn margra barna og stríð. Í skýrslunni kemur fram að á þeim 14 árum, sem liðin eru frá lokum kalda stríðsins, frá 1990 til 2003, hafa brotist út 59 meiriháttar átök á 48 stöðum. Að- eins í fjórum tilvikum var um að ræða stríð milli ríkja. Óbreyttir borgarar eru í mun meiri hættu í stríði en áður. Talið er að 90% þeirra, sem fall- ið hafa í átökum eða vegna þeirra frá árinu 1990 hafi verið óbreyttir borgarar og 80% þeirra hafi verið konur og börn. Í sumum tilfellum er of- beldinu sérstaklega beint gegn óbreyttum borg- urum. Í öðrum eru þau óbein fórnarlömb, sem verða fyrir skoti eða sprengingu. Þegar rætur átakanna liggja í hatri milli þjóðarbrota eða ættbálka beinist ofbeldið gegn öllum meðlimum þeirra, ekki aðeins þeim, sem eru undir vopn- um. „Börn eru alltaf meðal þeirra fyrstu, sem finna fyrir afleiðingum átaka, hvort sem það er beint eða óbeint,“ segir í skýrslunni. „Vopnuð átök breyta lífi þeirra á margan hátt og jafnvel þegar þau eru ekki drepin eða særð geta þau misst foreldra sína, verið rænt, nauðgað eða orðið fyrir djúpu tilfinningalegu eða sálrænu áfalli við það að vera útsett fyrir ofbeldi, nauð- ungarflutningum, fátækt eða missi ástvina.“ Ekki er vitað hve mikið er um það að börn séu notuð í hernaði, en í skýrslunni er leitt get- um að því að þau séu örlög mörg hundruð þús- und barna: „Börn eru skráð í heri, þeim er rænt eða þau þvinguð til að ganga í vopnaðar sveitir. Þau taka ekki öll þátt í bardögum, en útbreiðsla léttra vopna hefur gert það að verkum að hægt er að gera börn undir tíu ára aldri að drápurum. Börn eru einnig þvinguð í kynlífsþrælkun og látin vinna, elda og þjóna eða gerð að sendiboð- um og njósnurum. Sérstaklega eiga stúlkur á hættu að vera misnotaðar kynferðislega, hvort sem það er af einum yfirmanni eða heilu sveit- unum. Margar þeirra eru einnig sendar í fremstu víglínu með drengjunum.“ Stúlkur í stríði Stúlkur í stríði eru sérstakt vandamál vegna þess að þáttur þeirra hefur verið gróflega vanmetinn eins og kemur fram í skýrslu UNICEF. Fyrir vikið er ekki gripið til viðeigandi ráðstafana fyrir þær þegar átökum lýkur. Þær njóta ekki aðstoðar og oft er þeim hafnað af fjölskyldum sínum og samfélagi vegna skammarinnar, sem fylgir því að hafa verið nauðgað eða átt börn með kvöl- urum sínum. Fyrr í þessari viku kom út skýrsla mannréttindasamtakanna Amnesty Internation- al um stöðu kvenna í stríði þar sem fjallað er um ofbeldi gegn konum og undirstrikar hún nauðsyn þess að grípa til aðgerða. Ein átakanlegasta lýsingin í skýrslunni á ör- lögum barna í átökum er frá Úganda. Fyrr á þessu ári skrifaði Carol Bellamy, framkvæmda- stjóri UNICEF, sláandi grein um ástandið í Úganda, sem birtist meðal annars í Morgun- blaðinu: „Ég hef orðið vitni að mörgum skelfilegum hlutum í starfi mínu fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Ekkert er þó eins átak- anlegt og það að sjá „næturferðalangana“ í norðurhluta Úganda. Þessir ferðalangar eru 44.000 börn sem fara frá þorpum sínum á hverjum degi til að leita athvarfs í nálægum bæjum fyrir dagsetur af ótta við að liðsmenn Andspyrnuhers Drottins (LRA) ræni þeim. Heimsbyggðin kann að hafa gert sér grein fyrir neyðinni í Súdan en hefur nánast gleymt hryllingnum í grannríkinu Úganda þar sem LRA hefur rænt um 12.000 piltum og stúlkum á síðustu tveimur árum. Ólíkt öllum öðrum stríð- um er þetta stríð á hendur börnum. Hermenn LRA, sem eru flestir börn sjálfir, leggja til atlögu í rökkrinu. Þeir umkringja litlu byggðirnar, ráðast inn í þær til að ræna mat og nema á brott börn til að neyða þau í herinn. Árásirnar eru undantekningarlaust blóðugar. Börn eru oft neydd til að drepa foreldra sína og önnur börn. Þau sem eru numin á brott, sum þeirra aðeins sex ára, eru hneppt í kynlífsánauð í uppreisnarhernum, neydd til að vinna sem þrælar eða til að gerast hermenn. Í uppreisn- arhernum eru börn talin geta byrjað að berjast sjö ára. Erfitt var að útskýra fyrir piltunum og stúlk- unum hvers vegna heimsbyggðin er svo af- skiptalaus um hryllinginn í Úganda þegar ég hitti þau í síðasta mánuði í móttökumiðstöð í Gulu fyrir börn sem hafa sloppið undan LRA. Ég ræddi við ungar konur sem höfðu fætt börn sem getin voru þegar þær voru neyddar til að eiga mök við yfirmenn LRA. Ég talaði við pilta sem voru neyddir til að fremja óumræðileg of- beldisverk þegar þeir hefðu átt að vera að læra að lesa fyrstu orðin. Átökin í norðurhluta Úganda hafa staðið í átján ár og gert að engu hugmyndina um að barnæskan eigi að vera verndaður tími heil- brigðs uppvaxtar. Foreldrarnir eru orðnir svo örvæntingarfullir vegna óttans við að börn þeirra verði numin á brott eða myrt að þeir hafa þurft að láta börn sín ganga langa leið ein síns liðs á næturnar, því að það er eina von þeirra. Síðdegis á hverjum degi, þegar sólin tekur að setjast, koma börnin af ökrunum og safnast saman á rykugum vegunum. Eldri börnin halda á þeim minnstu eða láta þau sitja á stöngum reiðhjólanna. Mæður halda á ungbörnunum sín- um, en flestir næturferðalangarnir eru börn sem eru ein síns liðs. Þau sem eru heppin fá athvarf í nokkrum bráðabirgðaskýlum, sem reist hafa verið til að hjálpa börnunum, og þar geta þau fengið vatn og teppi og notað kamra. Önnur sofa í kirkjum, rútubiðskýlum eða rykugum inngöngum húsa. Á morgnana fara börnin aftur heim til sín eða í skóla. Úganda er réttilega álitið fyrirmyndarland í þróunarmálum í Afríku. Stjórn Yoweris Musev- enis forseta hefur komið á friði í mestum hluta landsins, breitt út barnaskólamenntun og tekist á við alnæmisfaraldurinn af hugrekki og hug- kvæmni. Norðanvert landið er hins vegar í hróplegu ósamræmi við þennan árangur – og stefnir honum í hættu. Eitt af meginhlutverkum ríkisstjórna er að tryggja borgurunum vernd. Stjórn Úganda hef- ur brugðist fólkinu í þessum efnum og heims- byggðin hefur nánast ekkert gert til hjálpar. Ríkisstjórnir heimsins hafa aðeins lofað um 20% af þeirri 127 milljóna dollara aðstoð (níu millj- arðar kr.) sem Sameinuðu þjóðirnar hafa óskað eftir. Næturferðalangarnir eru óhugnanlegt dæmi um það sem getur gerst þegar hluti þjóð- félagsins nýtur engrar verndar. UNICEF hefur einsett sér að lina þjáningar barnanna í norðurhluta Úganda með aukafjár- framlögum og aukinni hjálparstarfsemi í miðju átakasvæðisins. Ljóst er þó að miklu meira þarf að gera til að stöðva þetta stríð á hendur börn- um. Við skorum á stjórn Úganda og þjóðir heims að beita þeim pólitíska vilja sem þarf til að leysa þetta vandamál með sama hætti og gert hefur verið á öðrum svæðum. Hræðslan við myrkrið er hvarvetna hluti af uppvextinum. En fyrir piltana og stúlkurnar í norðurhluta Úganda er svo sannarlega ástæða til að óttast næturmyrkrið. Þeir sem hafa bol- magn og vald til að stöðva þessa martröð mega ekki láta hana viðgangast lengur.“ Það er erfitt að ímynda sér mitt í allri hinni vestrænu velmegun að þessi martröð skuli vera veruleiki. Einstaklingurinn hefur þó ýmsa möguleika til að láta að sér kveða, meðal annars með því að styrkja ýmis þau samtök og stofn- anir, sem nefndar eru í grein Skapta Hallgríms- sonar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um hjálparstarf og milliliði. Stjórnvöld geta einnig lagt sitt af mörkum, bæði með því að auka fram- lög til þróunaraðstoðar og nota hvert tækifæri til að þrýsta á um aðgerðir. Í raun er óskilj- anlegt að ekki skuli vera meira gert til þess að létta á þeirri sáru neyð, sem ríkir víða í heim- inum, af einföldum mannúðarástæðum, en þeim, sem ekki duga slík rök, má einnig benda á eig- inhagsmuni. Spyrja má hvað framtíðin ber í skauti sér í heimi þar sem helmingur barna líð- ur skort. Misskipting auðs og gæða – bilið milli vellystinga og örbirgðar – í heiminum kyndir undir óstöðugleika og ofbeldi, ógnum og hryðju- verkum. Fátækt og skortur er vandi allrar heimsbyggðarinnar og að búa börnum heimsins örugga framtíð er á ábyrgð okkar allra. Reuters Í Búrúndí er nú að hefjast verkefni, sem Sameinuðu þjóðirnar og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna kosta, til að hjálpa um 2.000 börnum, sem gerð voru að hermönnum, að laga sig að samfélaginu. Í Gitega bíða bardagabörn, sem hafa verið afvopnuð, bak við gaddavír. Aðlögun þeirra mun taka nokkra mánuði, en spyrja má hvort þau munu nokkurn tímann bíða þess bætur að hafa verið gerð að vígamönnum. Misskipting auðs og gæða – bilið milli vellystinga og ör- birgðar – í heim- inum kyndir undir óstöðugleika og of- beldi, ógnum og hryðjuverkum. Fá- tækt og skortur er vandi allrar heims- byggðarinnar og að búa börnum heims- ins örugga framtíð er á ábyrgð okkar allra. Laugardagur 11. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.