Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 12.12.2004, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 27 Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is Brúðkaup • Pökkun • Merking í þágu þjóðarinnar og komandi tíma. Hér er ritgerð um þetta efni frá árinu 1895 eftir Sigurð Pálsson sem síðar varð bóndi. Hvers vegna er það skylda hvers manns að elska ættjörð sína og í hverju er hin sanna ættjarðarást fólgin? (1895) Hver maður, sem kominn er til vits og ára ætti að elska fósturjörð sína og stuðla að því af öllu megni að framfarir hennar yrðu sem mestar. Hann hlýtur að bera elsku til þess lands, sem hann er fæddur í ef hann horfir til bernsku- stunda sinna og allra þeirra gleðitíma, er hann naut er hann var ungur. Hann verður að kannast við með sjálfum sjer hversu margs góðs hann hafi orð- ið aðnjótandi, og þótt síðar hafi eitt- hvað það komið fyrir hann, sem hon- um í einhverju hefur fundist vera mótdrægt, þá má hann alls eigi hata fósturjörð sína fyrir það, því margar orsakir hafa getað verið til þess, sem hann sjálfur ef til vill hefði getað af- stýrt, ef hann hefði haft nóga fyrir- hyggju. Ættjörðin hefur fóstrað hann, veitt honum uppeldi eptir því, sem hún frekast gat. Hann á henni að þakka allar sínar gleðistundir, auðæfi, met- orð og heiður, sem hann öðlast. Þegar ættjörðin leggur þannig allt sitt fram, er hún hefur til að bera, þá ætti það líka aptur á móti að vera skylda hvers manns að bera umhyggju fyrir velferð hennar og vinna að því að hagur henn- ar í öllum greinum tæki sem mestum framförum. Að þessu hafa líka hinir mestu ættjarðarlandsvinir allra þjóða stuðlað, frá því fyrstu sögur fara af og munu ávallt gera. Vjer sjáum að ýmsar þjóðhetjur hafa af helgri ættjarðarást ofrað sjer og mönnum sínum. Sem betur fer eru allflestir þannig gerðir, en samt eru þeir til, sem ef allt fellur þeim eigi vel heima á fósturjörð sinni, leita ham- ingjunnar í öðrum löndum og reyna þá opt að kasta skugga á sína gömlu ætt- jörð, eigna henni það, sem hún verð- skuldar eigi, og reyna til að draga úr áliti hennar, sem mest hjá öðrum þjóð- um. Þeir menn, sem þannig eru gerðir, mega sannarlega kallast landráða- menn, þeir hugsa ekkert um þær skyldur, sem þeim ber að sýna fóst- urjörð sinni. Opt er það að þessir menn gera þetta í ágóða skyni t.d. einsog vesturfaratúlkarnir, sem hjer hafa gengið um sem grenjandi ljón til þess að fá fólk til Ameríku. Þeir hafa beitt ýmsum brögðum til þess að tæla fólk, fegrað fyrir því sæluna þar vestra og reynt til að minnka föðurlandsást hvers eins með því að útmála hve aumt væri hjer heima, harðstjórn, eldgos, hafís, en þar eilíf sæla. Þessir menn, er þannig hafa breitt eða breita við ætt- jörð sína, þeir hafa sannarlega enga ættjarðarást. Ættjörðin hlýtur að fella harmatár yfir þessum mönnum og segja: „Þið synir mínir, sem jeg hef fóstrað og frætt, og veitt allt það gott er jeg á í skauti mínu, þið getið orðið til þess að gera mjer það mein sem í ykkar valdi stendur.“ Vjer álitum það skyldu vora að elska þá, sem okkur standa næstir, svo sem foreldra og ættmenn, og þá menn, er vjer höfum eitthvað gott af þegið, hvað eigum vjer þá að gera við ættjörð vora, sem er vor sameiginleg móðir? Hver og einn hlýtur að játa að honum beri að elska hana, sakir þess mörgu gæða sem hún veitir honum. Hin sanna ættjarðarást er í því fólgin að vjer reynum til að verða dugandi menn í þjóðfjelagi voru, leggumst allir á eitt til þess að efla hag og velgengi hennar hver hendin má eigi vera upp á móti annari. Ef vjer lítum til hins al- kunna þjóðskörungs vors, Jóns Sig- urðssonar, sem með sanni var kallaður „Sómi Íslands, sverð þess og skjöld- ur“, þá sjáum vjer að hjá honum kom fram hin sanna ættjarðarást, hann varði öllu lífi sínu til þess að fá því vel- ferðarmáli landsins, sem öllum lá þá á hjarta, framgegnt; af því hafði hann engan hagnað; það var aðeins ættjarð- arástin, sem knúði hann til þess. Ef vjer Íslendingar ættum marga hans líka, þá mundi landi voru vera fyrir höndum mikil og glæsileg fram- tíð. Sigurður Pálsson Fjósið, skólahúsið og bókhlaðan árið 1894. Landsins útvöldu synir – Ritgerðir skólapilta Lærða skólans í íslenskum stíl 1846–1904 er tekin saman af Braga Þorgrími Ólafssyni. Bókin er 7. sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar og kemur út hjá Háskólaútgáfunni. Hún er 365 bls.                                                       !           !           !    !""#$ "%& &' "''(#&#)"%&& " &*"''#+#"#&)&&",& #%-&))#"+,#&+&&%   &' !""#$ "%+ #.  /% &  "##.&"& " ! ! ! ##$%$$$       & 01 &# !""#$ "&"# 23  /#/4&/  "5/#                    
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.