Morgunblaðið - 12.12.2004, Side 40
40 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
GAM-ANON-SAMTÖKIN eru
sjálfbær samtök eiginkvenna, eig-
inmanna, ættingja og náinna vina
spilafíkla. Gam-Anon-samtökin
urðu til í New York árið 1960 þeg-
ar fjórar eiginkonur
spilafíkla komu sam-
an til að ræða sam-
eiginlegt vandamál
sitt. Fulltrúum frá
Al-Anon-samtökunum
var boðið á fundinn
til að ræða hvernig sá
hópur tekur á því að
búa með alkóhólista
og niðurstaðan varð
að sömu meginregl-
unum mætti beita við
það að búa með spila-
fíkli. Árið 1961 voru
margir Gam-Anon-
hópar stofnaðir í Los Angeles og
síðan hafa samtökin vaxið stöðugt
um allan heim.
Gam-Anon á Íslandi
Gam-Anon-samtökin eru lítt þekkt
á Íslandi, aðeins hafa verið stofn-
aðar tvær deildir. Þegar samtök
áhugafólks um spilafíkn voru
stofnuð var Gam-Anon-deild stofn-
uð í kjölfarið. Markmið Gam-
Anon-stefnunnar er að aðstoða
einstaklinga sem tengjast spilafíkli
við að finna hjálp með því að
breyta eigin lífsháttum. Að búa
með virkum spilafíkli eða tengjast
honum veldur þjáningum sem eru
sér á parti. Fyrir flesta er það
skelfileg reynsla: álagið á fjöl-
skylduna verður óþolandi og heim-
ilislífið er þrungið beiskju, von-
brigðum og gremju. Það hafa
margir aðstandendur spilafíkla
haft samband við okkur hjá Sam-
tökum áhugafólks um spilafíkn og
lýst þeim hörmungum sem þeir
eru að ganga í gegnum. En vanda-
málið er að það eru mjög fáir sem
þora að mæta á Gam-Anon-fund.
Spilafíkn er fjölskyldu-, fé-
lagslegur og andlegur sjúkdómur
sem fylgir mikil skömm og felu-
leikur.
„Af hverju þurfum við Gam-
Anon?“ Og svarið er: „Fjölskyldur
spilafíkla hafa komist að raun um
að það er skelfileg reynsla að búa
við spilafíkn. Hver og einn okkar
hefur átt við sama vanda að etja
og þú. Í Gam-Anon læra aðstand-
endur spilafíkla að ná tökum á
vandamálinu með því að fylgja
andlegum meginreglum sem hóp-
ur.“ Til að framfylgja
markmiðum sínum
reyna Gam-Anon-
samtökin að finna
lausnir á algengustu
vandamálum félaga
sinna. Margir að-
standendur þurfa
hjálp við að skilgreina
hlutverk sitt sem
maki, ættingi eða vin-
ur spilafíkils. Margir
aðstandendur spila-
fíkils velta því fyrir
sér hvernig þeir geti
sem best hjálpað
maka, ættingja eða vini sem er í
GA-samtökunum (Gamblers
Anonymous) eða ekki.
Hér eru 15 ráð fyrir nýliða sem
tileinka sér og fara í Gam-Anon-
samtökin:
Viðurkenndu þá staðreynd að
spilafíkn er sjúkdómur og lærðu
að lifa með henni.
Að spyrja eða yfirheyra spila-
fíkilinn er ekki til neins. Þú hefur
ekkert vald yfir þessum að-
stæðum. Ef hann vill leyna ein-
hverju er ekki hægt að þvinga
fram sannleikann. Því skyldirðu
þá reyna?
Að nöldra við maka, ættingja
eða vini vegna peninga sem hann
hefur tapað eða tala um hvað hefði
getað orðið, hefði hann ekki
stundað fjárhættuspil, er skaðlegt
fyrir bata hans og þinn eigin bata.
Fortíðinni verður ekki breytt
og þú færð ekki sálarfrið nema þú
sættir þig við hana beiskjulaust.
Spilafíkillinn, ekki maki, ætt-
ingi eða vinur hans, á að bera
ábyrgð á því að fara til lán-
ardrottna og greiða skuldir sínar.
Taktu ekki þá ábyrgð frá honum.
Reynslan hefur kennt okkur
að það sé ekki heillavænlegt að fá
lánað fé eða skrifa upp á skulda-
viðurkenningar, hvorki meðan
maki stundar fjárhættuspil eða
þegar hann gengur í GA-samtökin.
Það er ekki mælt með því að
maki spilafíkils fari sérstaklega í
vinnu til að greiða spilaskuldir.
Skynsemin segir okkur að
spilafíkill sé sjaldnast fær um að
sjá um fjármál fjölskyldunnar.
Kannski breytist það þegar hon-
um miðar áfram á bataveginum.
Ráddu vinum og ættingjum
frá því að lána spilafíklinum pen-
inga.
GA-samtökin og batastefna
þeirra er fyrir spilafíkla. Aðstand-
endur ættu ekki að blanda sér í
það.
Það kann að vera ráðlegt að
hvetja spilafíkilinn til að fara á
fyrstu GA-fundina, en eftir það
verður hann að ráða gerðum sín-
um sjálfur. Að þvinga spilafíkilinn
til að sækja fundi er líklegra til að
gera illt en gott.
Spilaskuldir hans hlóðust ekki
upp á stuttum tíma svo þú skalt
ekki láta hugfallast þótt hann
þurfi að endurgreiða þær með
litlum afborgunum á löngum tíma.
Venjuleg fjölskylduútgjöld verða
að hafa forgang.
Batinn er hægfara þróunar-
ferill fyrir spilafíkilinn. Veittu
honum hvatningu.
Gerðu heiðarleg reikningsskil
yfir þína eigin skapgerðarbresti
og reyndu að lagfæra þá.
Komdu á Gam-Anon-fundi
jafnvel þótt maki þinn eða að-
standandi haldi áfram að stunda
fjárhættuspil.
Stuðningshópsvinna
með fagaðilum
Samtök áhugafólks um spilafíkn
hvetja aðstandendur spilafíkla til
að kynna sér Gam-Anon-samtökin.
SÁS-samtökin eru með vikulega
stuðningshópsvinnu með fag-
aðilum sem þekkja vel til spila-
fíknar. Það er Gam-Anon-fundur á
mánudögum í húsnæði SÁS í
Skúlatúni 6, 3. h. klukkan 20:00 og
stuðningurinn er á fimmtudögum
kl. 18:00. Þú getur haft samband
við okkur í síma 897-6628 og feng-
ið allar upplýsingar um fundi og
stuðninginn. Það er einnig hægt
að kynna sér þessi mál og hafa
samband við okkur í gegnum vef-
síðu SÁS sem er www.spilavandi-
.is.
Sjálfshjálparsamtök fyrir
aðstandendur spilafíkla
Júlíus Þór Júlíusson fjallar
um Gam-Anon-samtökin ’Spilafíkn er fjöl-skyldu-, félagslegur og
andlegur sjúkdómur
sem fylgir mikil skömm
og feluleikur.‘
Júlíus Þór Júlíusson
Höfundur er formaður
Samtaka áhugafólks um spilafíkn.
smáauglýsingar mbl.is
Úrslitin í ítalska bolt-
anum beint í símann þinn
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Sýnum í dag þetta glæsilega einlyfta steinsteypta einbýlishús. Um er að ræða
alls 194 fm hús og er bílskúrinn 52 fm, þ.a. frístandandi tvöfaldur með háum
hurðum. Húsið skiptist í 4 góð herbergi með parketi. Vandað baðherbergi,
flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og baðkar. Eldhús með kirsuberjainnréttingu
og góðum borðkrók. Þvottahús með sérhurð og einnig innangengt. Rúmgóðar
stofur, þ.e. aðalstofa með arni og borðstofa. Vandað massíft olíuborið eikar-
parket á holi og stofum. Úr stofu er gengið út á timburverandir í suður með
skjólveggjum og heitum potti með nuddi. Hátt er til lofts í húsinu og er inn-
byggð lýsing í hluta lofta. Í enda bílskúrs er ca 20 fm herbergi með góðum
glugga og sérinngangi, hentar vel sem unglingaherbergi. Hellulagt bílaplan og
aðkoma einnig með hitalögnum undir ásamt útiljósum. Fullbúin og vönduð eign
á góðum stað. Tilboð óskast í eignina.
Reynir og Kristín taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16
VIÐARÁS 20 - EINBÝLISHÚS
Bæjarhraun - Hf.
Til leigu/sölu
Nýkomið sérlega gott ca 800 fm atvinnuhús-
næði, sem skiptist í 550 fm lagerpláss með
innkeyrsludyrum og ca 250 fm verslun-
ar/skrifstofupláss.
Afhending um nk. áramót.
Frábær staðsetning og gott
auglýsingagildi.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Rúmgóð 4ra herb. (125 fm) íbúð
á 2. hæð í góðu fjölbýli með út-
sýni til sjávar og fjalla. Eignin
skiptist í anddyri m/skápum,
eldhús m/borðkrók, baðherbergi
m/sturtu og tengi fyrir þvottavél,
rúmgóða stofu og borðstofau,
stórt hjónaherbergi m/svölum í
suður og tvö rúmgóð barnaher-
bergi. Glæsilegt útsýni til sjávar
og fjalla úr stofu og eldhúsi.
Á gólfum er gegnheilt parket, flísar og korkur á svefnherbergjum.
Stutt í alla þjónustu. Verð 18,7 millj.
Hólmgeir tekur á móti gestum frá kl. 15.00-17.00 í dag.
VESTURGATA 73 - ÍBÚÐ 102
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 12. DESEMBER