Morgunblaðið - 12.12.2004, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 43
UMRÆÐAN
Í GREIN Þorsteins Siglaugsson-
ar hagfræðings í Morgunblaðinu 27.
nóvember bregst hann við ummæl-
um mínum í Spegli Ríkisútvarpsins
um Reykjavíkurborg og Kára-
hnjúkavirkjun. ÞS sak-
ar mig um yfirgrips-
mikla vanþekkingu í
fjármálafræðum og að
beita sjónhverfingum.
Undir þeim ásökunum
sit ég ekki.
Forsaga máls er við-
tal í Speglinum 16. nóv-
ember við Þorsteinn
Siglaugsson og daginn
eftir við SJ. Í fyrra við-
talinu reiknaði Þor-
steinn Siglaugsson
fram tap borgarinnar
af K með hundakúnst-
um. Hann gefur sér að arðsemi
virkjunarinnar verði í besta falli 3%
en hefði átt að vera 8% og mismun-
inn, 5%, reiknar hann síðan til 3,5
milljarða á ári og heldur því rang-
lega fram að borgin eigi 65% í
Landsvirkjun. Ég benti á að borgin
stóð frammi fyrir því að skrifa upp á
lánin eða gera það ekki. Ef síðari
kosturinn hefði verið valinn hefði
borgin ekki borið neina áhættu og
ekki fengið neina ávöxtun. Þorsteinn
virðist telja sig handhafa sannleik-
ans í fjármálafræðum með því að
kynna fyrir lesendum að það að haf-
ast ekki að leiðir ekki af sér neina
áhættu. En hann verður að gera bet-
ur en að jafna athafnaleysi við
áhættulausa fjárfestingu.
Í Speglinum 17. nóvember var
leiddur fram dr. Sigurður Jóhann-
esson Zoëga hagfræðingur og virtist
honum í mun að sýna fram á að
borgin hafi víst fjárfest í virkjuninni.
Orðrétt segir hann: … „það er eig-
inlega ósköp lítill munur á því eins
og að leggja hreinlega fram fé af því
... lánin geta fallið á borgina og þá
tapar hún nákvæmlega þessu sem
hún gengst í ábyrgð fyrir. Þannig að
það má alveg segja að hún hafi fjár-
fest í Kárahnjúkavirkjun.“ En dr.
Zoëga bætir svo við : „við getum tap-
að þessu öllu en við getum líka kom-
ið út á sléttu, við getum líka grætt
aðeins.“ Sem sagt af því að lánin
gætu fallið á borgina þá hefði borgin
alveg eins átt að leggja
fram fé! Gætu fallið? Í
viðtali við Spegil brást
ég við þessum ummæl-
um SJ og benti á að
hægt sé að meta lík-
urnar á því að lánin
falli á borgina. Ég
minnti á að nefnd skip-
uð fulltrúum eigenda
Landsvirkjunar hefði
gert áhættugreiningu
þar sem fram kom að
litlar líkur væru á að
þetta gerðist. Það er
eitt hvort virkjunin nái
ávöxtunarkröfu markaðarins og
annað hvort lánin falli á eigendur.
Fjárfestingu borgarinnar í Kára-
hnjúkavirkjun má meta út frá af-
leiðufræðum og á grundvelli lík-
indareiknings má reikna út hvort
verð á afleiðunni sé hærra eða lægra
en ábyrgðargjaldið. Augljóst er hins
vegar að verðið á afleiðunni er langt-
um lægra en nemur ábyrgðunum.
Ályktun Þorsteins Siglaugssonar
um að ég teldi fjárfestingu í Kára-
hnjúkavirkjun nær áhættulausa er
því byggð á fullkomnum misskiln-
ingi.
Mér sýnist ekki hafa þýðingu að
reyna að rökræða við Þorstein Sig-
laugsson, enda sýna útúrsnúningar
og hótfyndni í grein hans að það er
til lítils. Spurning hvort hann ætlast
til að vera tekinn alvarlega.
Svar til Þorsteins
Siglaugssonar
Sigurður Snævarr svarar
Þorsteini Siglaugssyni ’Mér sýnist ekki hafaþýðingu að reyna að
rökræða við Þorstein
Siglaugsson, enda sýna
útúrsnúningar og hót-
fyndni í grein hans að
það er til lítils.‘
Sigurður Snævarr
Höfundur er borgarhagfræðingur.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Glæsileg fullinnréttuð 117 fm íbúð
á efstu hæð að Naustabryggju 27.
Íbúðin er á tveimur hæðum, vel
skipulögð og mun stærri en skráð
stærð segir um. Allar innréttingar
sérsmíðaðar og loft fallega upp-
tekin, tvennar salir og þvottahús er
í íbúðinni - stæði í lokaðri bíla-
geymslu. Fallegt útsýni. Þessi íbúð
er ein sú glæsilegasta í Bryggju-
hverfinu. Verð 23,0 milljónir.
Opið hús í dag, sunnudag,
milli kl. 15.00 og 17.00
(bjalla, merkt: Ágúst og Ragna).
BRYGGJUHVERFIÐ - GRAFARVOGI
OPIÐ HÚS Í NAUSTABRYGGJU 27
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Skútuvogur
- atvhúsnæði til leigu/sölu
Nýkomið í einkasölu glæsilegt atvinnuhúsnæði,
skrifstofu/verslunarhúsnæði, samtals ca 1.000 fm
á þessum vinsæla stað. Eignin er fullinnréttuð
á vandaðan máta. Eign í sérflokki.
Möguleiki að selja eignina í þremur
einingum. Verðtilboð.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Skrifstofuhúsnæði óskast - Staðgreiðsla
Höfum kaupendur að vönduðum skrifstofurýmum, m.a. 1000 fm -
200 fm og 250 fm. Allar nánari uppl. veita Sverrir og Óskar.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Þverholt - Heil húseign
auk byggingarréttar
Hér er um að ræða heila húseign
sem er 2.923 fm og skiptist í kjallara
og fjórar hæðir. 1.-4. hæð eru góðar
skrifstofuhæðir, hver með 6-10 af-
stúkuðum skrifstofum, opnum vinnu-
rýmum, skjalageymslum, tækjarým-
um og salernum. Svalir eru á hverri
hæð og útsýnis nýtur af efri hæðum.
Kjallari hússins er með mikilli lofthæð
og góðum innkeyrsludyrum og var
upphaflega teiknaður sem bílageymsla. Húsið býður uppá ýmsa nýtingar-
möguleika og hefur m.a. verið teiknað 107 herbergja hótel í því og einnig gæti
húsið verið vel til þess fallið að hýsa stofnanir. Allar nánari upplýsingar og
teikningar á skrifstofu.
Fagrihvammur - Hf. Glæsileg 326 fm
efri hæð auk 49 fm tvöfalds bílskúrs á
frábærum útsýnisstað í Hafnarfirði.
Eignin skiptist m.a. í samliggjandi stofur
með arni og m. útg. á stórar svalir, eld-
hús með eikarinnrétt., vönd. tækjum og
stórum borðkrók, vandað endurnýjað
baðherbergi, stórt alrými og tvö her-
bergi, geta verið fleiri. Fallega ræktuð
verðlaunalóð. Vel staðsett eign í enda
götu. Verð 45,7 millj.
Hvannalundur – Gbæ Fallegt 141 fm
einbýlishús á einni hæð auk 41 fm bíl-
skúrs. Eignin skiptist í flísal. forstofu,
rúmgóðar samliggj. stofur, eldhús með
nýl. tækjum og góðri borðaðst., þvotta-
herb./búr, sólskála með hita í gólfi, fjög-
ur herb. og nýlega endurnýjað baðherb.
Hús nýmálað að utan. Hiti í innkeyrslu
og stéttum fyrir framan hús. Falleg
ræktuð lóð með timburverönd, skjól-
veggjum og lýsingu. Verð 31,9 millj.
Garðastræti Höfum fengið í einkasölu
glæsilegt 330 fm einbýlishús í miðborg-
inni. 4 sérbílastæði á lóðinni. Eignin
skiptist þannig að efri hæð er glæsileg
110 fm 4ra herb. íbúð sem er öll nýlega
innréttuð á afar vand. og smekklegan
máta. Neðri hæð er innréttuð sem 4ra
herb. íbúð og er í ágætu ásigkomulagi.
Kj. hússins er í dag innrétt. sem
geymslur, þvottaherb. og íbúðarherb.
Mögulegt er að tengja saman neðri hæð
og kj. og gera úr því eina íbúð. Einnig er
húsið mjög vel til þess fallið að breyta
því í einbýlishús.
Langholtsvegur Falleg og mikið endur-
nýjuð 81 fm íbúð í kj. Ný og glæsileg
innrétt. í eldhúsi, rúmgóð stofa, 2 herb.
og flísalagt baðherb., nýr sturtuklefi.
Parket á gólfum. Þvottaaðst. í íbúð.
Laus strax. Verð 14,4 millj.
Naustabryggja Stórglæsileg 114 fm
4ra herb. útsýnisíbúð á 3. hæð í glæsi-
legu lyftuhúsi. Rúmgóð stofa m. útg. á
flísal. svalir, 2 flísal. baðherb., 3 herb.,
öll með skápum og eldhús m. vönd.
innrétt. úr kirsuberjaviði. Gegnheilt
parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla í
kj. og sameign til fyrirmyndar. Frábær
staðsetn. við smábátahöfnina. Falleg
útsýni út á sundin. Áhv. húsbr. 9,1 millj.
Verð 22,5 millj.
Nesvegur Falleg 86 fm 4ra herb. íbúð
með sérinngangi. Íbúðin skiptist í for-
stofu, hol, bjarta stofu m. útsýni til sjáv-
ar, flísal. baðherb. sem er nýlega upp-
gert, 3 herb., þvottaherb. og eldhús m.
fallegri innrétt. Geymsluris yfir íbúð.
Verð 17,5 millj.
Sólheimar 85 fm íbúð á 5. hæð í góðu
lyftuhúsi. Opið eldhús, stofa, 2 herb.,
bæði með skápum og flísal. baðherb.
Stórkostlegt útsýni, svalir eftir endil.
stofunni. Sérgeymsla í kj. og önnur á
hæðinni. Verð 15,7 millj.
Laugavegur Mjög falleg, opin og
skemmtileg 189 fm íbúð á 3. hæð
(efstu) í nýlegu húsi í hjarta borgarinnar.
Stór stofa m. mikilli lofthæð, 3 rúmgóð
herb. og flísal. baðherb. Svalir út af
stofu. Flísar og parket á gólfum. Hús í
góðu ástandi að utan. Áhv. húsbr. 3,4
millj. Verð 27,9 millj.