Morgunblaðið - 12.12.2004, Side 53

Morgunblaðið - 12.12.2004, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 53 AUÐLESIÐ EFNI MILTIS-BRANDUR kom upp í hrossum á Vatns-leysu-strönd. 3 hross drápust og 1 var lógað. Þetta gerðist við eyði-býlið Sjónar-hól. Miltis-brandur er hættulegur sjúk-dómur. Hann hefur ekki komið upp á Íslandi síðan árið 1965. Öll dýr með heitt blóð geta fengið hann. Gras-bítar eru í mestri hættu. Geta lifað mjög lengi í jarð-vegi Ástæðan fyrir sýkingunni er enn ókunn. Kannski er það vegna land-brots sem varð síðasta vetur í fjörunni fyrir neðan bæinn. Vitað er um 60 staði á Íslandi þar sem dýr með miltis-brand hafa verið grafin. Unnið er að því að finna fleiri staði. Miltis-brands-gró geta lifað í jarð-vegi í mörg ár og jafnvel aldir. Hræin af hrossunum verða brennd. Það verður fylgst vel með hrossum og kindum í nágrenninu. Miltis-brandur berst sjaldan í fólk. 10 manns sem komust í snertingu við veiku hrossin hafa fengið sýkla-lyf til vonar og vara. 4 hross fengu miltis-brand Morgunblaðið/RAX Brenna þurfti hræin af hrossunum sem drápust. NÝJAR forseta-kosningar hafa verið boðaðar í Úkraínu 26. desember. Síðustu kosningar voru 21. nóvember. Viktor Janúkóvítsj fékk flest atkvæði. Hann er forsætis-ráðherra núna. Viktor Jústsjenkó var í framboði fyrir stjórnar-andstöðuna. Hún sakaði stjórnina um kosningasvik. Hæstiréttur ógilti úrslitin og ákvað að það ættu að verða nýjar kosningar. Barist um völdin Á miðvikudag breytti þingið stjórnar-skránni. Forsetinn fær minna vald en þingið meira vald. Sumum finnst þetta vera ósigur fyrir Jústsjenkó því hann er leið-togi þeirra sem eru í minni-hluta á þingi. Ef hann verður forseti gæti hann þurft að sætta sig við að Janúkóvítsj yrði forsætis-ráðherra og með meiri völd. NATO-ríkin og Rússar hafa lofað að vinna saman að því að tryggja að úkraínska fólkið fái þann forseta sem það vill. Reuters Mikill fögnuður braust út þegar það var ákveðið að tryggja lýðræðis-legar kosningar í Úkraínu. Forseta-kosningar í Úkraínu 26. desember Helena hættir Helena Ólafsdóttir verður ekki áfram þjálfari lands-liðsins í fót-bolta. KSÍ vildi að hún myndi hætta. Henni var sagt að liðið hefði ekki staðið sig nógu vel undir hennar stjórn. Helena er ósátt við þessa niður-stöðu. Hún hefur þjálfað liðið í 2 ár. Strákarnir sjálfs-öruggari Stelpur í 10. bekk eru betri í stærð-fræði en strákar. Þeir hafa þó betra sjálfs-álit og halda að þeir séu betri en stelpurnar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var gerð í OECD-löndunum. Ísland er eina landið þar sem mældist mikill munur á kynjunum í stærð-fræði. Dauði á 5 sekúndna fresti Á hverju ári deyja meira en 5 milljónir barna úr hungri. Það þýðir að á hverjum 5 sekúndum deyr eitt barn. Lítið hefur miðað í baráttunni gegn hungri í heiminum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá FAO sem er stofnun undir Sameinuðu þjóðunum. Biskupinn kærður Biskupi Íslands hefur verið stefnt. Hann skipaði tengda-son sinn sem sendiráðs-prest í Lundúnum. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir hlaut ekki stöðuna. Hún krefst þess að skipunin verði dæmd ólög-mæt og að kirkjan þurfi að greiða skaða-bætur. Gríðarleg fátækt 1,4 milljarðar verka-fólks lifa undir fátæktar-mörkum. Mörkin miðast við 125 krónur á dag. Mesta fátæktin er meðal verka-fólks í land-búnaði. Þetta kemur fram í nýrri skýrlu Alþjóða- vinnumála-stofnunarinnar. Stutt BJÖRK Guðmundsdóttir og Emilíana Torrini eru tilnefndar til Grammy-verðlauna. Það eru bandarísk tónlistar-verðlaun. Þetta er í fyrsta sinn sem Emilíana fær tilnefningu. Hún er tilnefnd fyrir lagið „Slow“ en hún er með-höfundur að því. Kylie Minogue flytur lagið. Það er tilnefnt í flokknum besta dans-lagið. Björk er tilnefnd til tveggja verðlauna. Platan hennar Medúlla er tilnefnd sem besta jaðar-platan. Lagið „Oceania“ af sömu plötu er tilnefnt fyrir besta flutning popp-söngkonu. Björk hefur nokkrum sinnum verið tilnefnd en aldrei fengið Grammy-verðlaun. Grammy-verðlaun til Íslands? KENNARAR hafa loksins fengið nýjan kjara-samning. Hann var sam-þykktur naum-lega síðasta mánudag. 51,2% sögðu já við samningnum en 36,4% sögðu nei. Það þýðir að ekki þarf að skipa gerðar-dóm. Eiríkur Jónsson er formaður Kennara-sambandsins. Hann segist halda að margir hafi sagt já til þess að deilan færi ekki fyrir gerðar-dóm. Launa-nefnd sveitar-félaganna sam-þykkti líka samninginn. 8 menn sögðu já en einn sat hjá. Birgir Björn Sigurjónsson er formaður samninga-nefndar sveitar-félaganna. Hann segir að margir sveitar-stjórnar-menn hafi efa-semdir um samninginn. Hann sé dýr en að það þurfi að kynna hann vel. Þó segir hann að flestir séu sáttir. Stjórnin kærð? Ríkis-stjórnin setti lög á kennara í nóvember. Hugsan-lega verða þessi lög kærð. Ástæðan er sú að í lögunum segir að ekki megi raska forsendum annarra kjara-samninga. Eiríkur segir að þá hefði gerðar-dómur þurft að miða við samning sem kennarar hefðu hafnað. Margir kennarar sögðu upp eftir að ríkis-stjórnin setti lögin. Sumir hafa dregið uppsagnir sínar til baka en ekki allir. Kennarar með samning Morgunblaðið/Ásdís Skólastarf er að komast í eðli-legt horf. Piltur lést í elds-voða á Sauðár- króki PILTUR lést og þrennt slasaðist þegar eldur kom upp í húsi á Sauðár-króki um síðustu helgi. Pilturinn hét Elvar Fannar Þorvaldsson og var fæddur 1983. Ein stúlka stökk út úr brennandi húsinu og 2 menn gripu hana. Reyk-kafarar fundu einn pilt og annar stökk af svölunum. Það er verið að rann-saka hvers vegna kviknaði í. Lögreglan hefur rætt við fjölda fólks. Einn maður hefur réttar-stöðu grunaðs manns. Hann segist ekkert muna. KEFLVÍKINGAR eru komnir í 8 liða úrslit í bikarkeppni Evrópu í körfu-bolta. Þeir töpuðu fyrir Madeira í Portúgal síðasta fimmtudag. Leikurinn fór 92:82. Samt komst Keflavík í 2. sæti í riðlinum. Liðið mætir því Mlekarna frá Tékklandi. Vinna þarf 2 leiki til að komast áfram í undan-úrslit. Fyrsti leikurinn verður 13. janúar. Keflvíkingar í 8 liða úrslit

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.