Morgunblaðið - 12.12.2004, Page 59

Morgunblaðið - 12.12.2004, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 59 MENNING Nýbakaður Turner-verðlaunahafi, JeremyDeller, er meðal þeirra myndlistarmanna sem væntanlegir eru hingað til lands á Listahátíð í Reykjavík á næsta ári. Frá þessu greindi Jessica Morgan, sýning- arstjóri myndlistarþáttar Listahá- tíðar, í Lesbók Morgunblaðsins í gær. Það er auðvitað til marks um framsýni hennar og gott innsæi í myndlistarheiminn að hafa bókað manninn áður en hann hlaut verðlaunin, því víst er að á næstu miss- erum á hann eftir að verða mjög eftirsóttur til sýningahalds – Turner-verðlaunin kalla það yfirleitt yfir þá myndlist- armenn sem þau hljóta. En hver er þessi Jeremy Deller?    Fyrst má nefna að hinn 38 áraDeller er ekki menntaður í myndlist, heldur listasögu. Hann lauk BA-gráðu í faginu árið 1988 með áherslu á barokklist og arki- tektúr og MA-gráðu árið 1992. Það skýrir ef til vill hvaða tök- um hann tekur myndlistina. Deller er nefnilega enginn handverks- maður, heldur allur í því að skapa „prójekt“. „List snýst ekki um það sem þú gerir, heldur það sem þú lætur gerast,“ hefur hann sjálfur sagt um myndlist sína. Verkið sem hann hlaut Turner- verðlaunin fyrir í byrjun mánaðar- ins heitir Memory Bucket, og inni- heldur meðal annars heimild- armynd sem fjallar um pílagrímsför að heimabæ George Bush í Texas og uppáhalds- hamborgarabúllu hans, og skrúð- göngu sem hann stóð fyrir í gegn um spænsku borgina San Sebast- ian með minnihlutahópum, meðan alþjóðlegi myndlistartvíæringurinn Manifesta 5 fór þar fram. Deller réð ungmenni til að gera myndina á Spáni, enda má frekar líta á hann sem stjórnanda, leik- stjóra, „kúrator“ eða eitthvað þannig, fremur en gerandann sjálf- an. Það er til marks um hversu af- stætt hugtakið list er, og hann hef- ur sjálfur útskýrt málið á þessa leið: „List er oft á tíðum hug- myndin. Yfirleitt hef ég enga stjórn á atburðinum sjálfum.“    Verkið Memory Bucket þótti„andríkt“, „fagna sköp- unargleði einstaklinga“ og inni- halda „félagslegt og menning- arlegt samhengi“ í röð „prójekta“, að mati dómnefndar. Sagt er að Deller sé ákaflega, jafnvel óvenjulega vel liðinn, bæði í listheiminum og meðal almenn- ings. Kannski er það vegna fjar- veru hans sjálfs í verkunum, en ólíkt mörgum myndlistarverkum, sem verða til um þessar mundir, kemur höfundurinn sjálfur sára- sjaldan fyrir í verkum Dellers. „Ég er ekki þar, vegna þess að verkið fjallar ekki um mig,“ segir hann sjálfur um verk sín.    Sagt hefur verið um verk Dell-ers að þau eigi sér að mestu stað utan gallería, og það sem sett sé á sýningu sé bara „hreyturnar af einhverju stórfenglegu“, eins og Michael Morris í Artangel orðar það. Vegna þessa er Deller varla lík- legur til að vera söluvænn mynd- listarmaður, ólíkt Turner- verðlaunahafanum frá því í fyrra, Grayson Perry sem getur notað orðstír verðlaunanna til að búa til dýra og söluvæna leirgripi. En Deller sagði í samtali við breska blaðið The Guardian í vikunni að sér væri alveg sama. „Ég hef ekki hugsað mér að nota verðlaunin sem stökkbretti til að hagnast,“ sagði hann. Í sama viðtali var hann spurður hvort best væri að skilja listsköpun hans sem uppreisn gegn því sem hann lærði í listasögunni? Gegn æðri list, gegn sölumennsku, gegn peningum? „Þvert á móti,“ svaraði hann. „Ég sérhæfði mig í 17. aldar list, og er enn að vitna til Carav- aggio. Hann vildi ná til áhorfenda, grípa þá og gera þá að hluta af listaverkinu. Ég vil líka gera það.“ Jeremy Deller hefur líka svar á reiðum höndum við spurningunni hvernig hann dirfist að kalla sjálf- an sig listamann, þegar hann geti ekki málað og ekki teiknað. „Heimurinn hefur þróast. Það er ekki verið að skrifa með fjöðrum á handrit lengur. Hvers vegna er listin það eina sem ekki má þróast þegar kemur að framsetningu?“    Ríflega fjórðungur áðurgreindsviðtals við Jeremy Deller í The Guardian fór í að ræða hve illa honum væri við athyglina sem hann hefur hlotið í tengslum við Turner-verðlaunin. Miklar mynda- tökur fóru fyrir brjóstið á honum, sérstaklega þegar hann kyssti for- eldra sína eftir viðtöku verð- launanna. Hann notaði tækifærið til að biðjast afsökunar á því við lesendur blaðsins að hann væri enn og aftur viðfangsefni þess. Kannski væri honum meinilla við þessa umfjöllun hér. Að minnsta kosti ættum við alls ekki að biðja hann að koma í Spurt og svarað þegar hann kemur hingað til lands í vor. Það sem þú lætur gerast ’„Hvers vegna er listinþað eina sem ekki má þróast þegar kemur að framsetningu?“‘ AF LISTUM Inga María Leifsdóttir ingamaria@mbl.is AP „List er oft á tíðum hugmyndin. Yfirleitt hef ég enga stjórn á atburðinum sjálfum,“ segir Turner-verðlaunahafinn Jeremy Deller um listsköpun sína. LISTASAFNIÐ Louvre í París á nú í samningaviðræðum um möguleika á útibúi í The High Museum of Art í Atlanta-borg í Bandaríkjunum. Safnið er með nýjan væng í bygg- ingu sem verður lokið við árið 2006. The Guardian greindi frá þessu í vikunni. Safnið mun fá einn af þremur byggingum vængsins til afnota í þrjú ár, og verða verk eftir Raph- ael, Velasquez, Dürer, Rubens, Watteau og Rembrandt flutt frá París til Georgíuríkis, þar sem sett- ar verða saman sýningar sem byggjast ýmist á þema eða tímabili. Milljónasamningur Safnið í Atlanta er mun minna þekkt en Louvre, en samstarfið á rætur að rekja til persónulegra kynna forstöðumannanna tveggja, Henri Loyrette og Michael Shapiro. Loyrette, sem er forstöðumaður Louvre, hefur margsinnis rætt hús- næðisskort safnsins, en samningur þessi er ekki tilkominn vegna pláss- leysis heldur peninga. Safnið í Atl- anta hefur ekki staðfest upphæð- ina, en sögur herma að það muni greiða 10 milljónir dollara, ríflega 600 milljónir, fyrir lánið. Louvre- safnið fær tvo þriðju af árlegu rekstrarfé sínu sem hljóðar upp á 155 milljónir evra, um 13 milljarða, frá ríkinu. Samkvæmt nýjum reglu- gerðum þarf safnið hins vegar að fjármagna viðgerðir upp á eigin spýtur. Associated Press Glerpíramídi I.M. Pei við Louvre í París. Louvre til Ameríku? Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.