Morgunblaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 68
Morgunblaðið/Júlíus
Mikið tjón varð í verslun Nóatúns sem rekin er í JL-húsinu.
MIKIÐ tjón varð í verslun Nóatúns
í JL-húsinu við Hringbraut í elds-
voða í fyrrinótt, bæði vegna elds og
reyks sem barst um alla búðina.
Eldurinn virðist hafa kviknað í kjöt-
vinnslu og eldhúsi inn af kjötborði
verslunarinnar. Allar vörur eru
ónýtar og óljóst hvenær verslunin
verður opnuð á nýjan leik. Reykur
barst á skrifstofur á efri hæðum en
tjón af hans völdum var ekki talið
mikið. Verslunin var mannlaus þeg-
ar eldurinn kviknaði.
Ekki opnað næstu daga
Tilkynnt var um brunann um
klukkan 00:40, samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins. Í þann mund sem
slökkvilið kom á vettvang sprakk
rúða í versluninni og lagði þykkan
reyk þaðan út. Innandyra skíðlog-
aði en það tók slökkvilið þó skamm-
an tíma að ráða niðurlögum eldsins.
Það tók síðan um tvær klukku-
stundir til viðbótar að reykræsta
húsið og þurrka upp vatn af gólfum.
Tæknideild lögreglunnar í Reykja-
vík rannsakar eldsupptök.
Sigurður Gunnar Markússon,
rekstrarstjóri Nóatúns, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærmorgun
að miklar skemmdir hefðu orðið á
innréttingum og húsnæðinu sjálfu
auk þess sem hann taldi að allar
vörur væru ónýtar. „Það er ljóst að
hér verður ekki opnað næstu daga
en þetta er svo stutt komið að við
vitum ekki enn hvenær það getur
orðið. Við erum bara að átta okkur á
aðstæðum,“ sagði hann.
Myndlistaskólinn í Reykjavík er
á annarri hæð hússins, fyrir ofan
verslun Nóatúns. Sólveig Aðal-
steinsdóttir, deildarstjóri í skólan-
um, sagði að sót lægi þar yfir innan-
dyra og það yrði að hreinsa en að
öðru leyti virtist sem litlar skemmd-
ir hefðu orðið. Það yrði þó kannað
betur, m.a. hvort gólf hefðu
skemmst vegna hita. Kennsla féll
niður í gær, laugardag, en Sólveig
vonaðist til að starfsemi yrði með
eðlilegum hætti á mánudag. Hún
sagði skemmdir annars staðar í
húsinu vera minni.
Fjöldi fyrirtækja og félagasam-
taka er með aðsetur í JL-húsinu.
Þykkan reyk lagði um verslun Nóatúns við Hringbraut í eldsvoða
Allar vörur
ónýtar eftir
brunann
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
ÓLAFUR Haukur Símonarson, leikrita-
skáld, rithöfundur og lagasmiður, hefur
ásamt fjölskyldu sinni flust til Danmerkur
þar sem hann sinnir ritstörfum sínum á
Friðriksbergi í kóngsins Kaupmannahöfn.
Flutningurinn kom þó ekki til af góðu, því
meginástæðan er sú að Ólafur Haukur á
rúmlega tvítuga dóttur, sem er fötluð. Hún
er flogaveik og með fleiri sjúkdóma, sem
hafa hamlað henni í skólagöngu og fleiru.
Eftir að hafa nuddað henni í gegnum skóla-
kerfið, eins og Ólafur orðar það, segir hann
einfaldlega hafa verið komið að því að finna
henni einhvern stað. Á Íslandi hafi ekkert
blasað við, enginn skóli í raun, engin at-
vinna og ekkert sambýli, sem hún gat farið
inn á.
„Við fundum lýðháskóla hér í Danmörku,
sem hefur sérhæft sig í því að taka við fötl-
uðum og langveikum ungmennum af öllu
tagi. Fjórðungur nemendanna er mjög mik-
ið fatlaður og velflestir þeirra eru með
hjálparmenn með sér á skólanum.“
Ólafur Haukur fluttur
til Danmerkur
Ekkert blasti
við dótturinni
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR greiðir lánveitendum
sínum um 41 milljarð króna umfram venjubundn-
ar afborganir, vexti og verðbætur, að mestu á síð-
ustu mánuðum þessa árs og í upphafi næsta árs.
Þessar uppgreiðslur eru að stærstum hluta til
komnar vegna uppgreiðslna í húsbréfakerfinu
vegna lækkunar vaxta og aukinnar samkeppni
um íbúðalán, en einnig er um að ræða uppsafn-
aðar uppgreiðslur í húsbréfakerfinu frá síðasta
áratug.
Þetta kemur meðal annars fram í mánaðar-
skýrslu Íbúðalánasjóðs til Kauphallarinnar.
Samkvæmt því greiðir Íbúðalánasjóður umfram
venjubundnar greiðslur til lánveitenda sinna 10,2
milljarða í húsbréfum í desember, 9,5 milljarða í
janúar þar til viðbótar og aðra 9,2 milljarða í febr-
úar. Að auki greiðir Íbúðalánasjóður ríkissjóði
4,3 milljarða króna í desember, um fjóra millj-
arða til viðbótar í upphafi ársins 2005 og tæpa
fjóra milljarða til viðbótar um mitt næsta ár.
Sigurður Geirsson, sviðsstjóri fjárstýringar-
sviðs Íbúðalánasjóðs, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að með þessum aðgerðum væri verið að
stilla húsbréfakerfið af og jafna fjárstreymið í
því. Þarna væri ekki bara um uppgreiðslur að
undanförnu að ræða heldur uppgreiðslur í hús-
bréfakerfinu allt frá árinu 1993.
Sigurður sagði að uppgreiðslur í húsbréfakerf-
inu að undanförnu vegna vaxtalækkana og auk-
innar samkeppni á markaðnum væru ekki gefnar
upp sérstaklega. Hluta af uppgreiðslunum væri
einnig ráðstafað með öðrum hætti. Til dæmis
væri sumu ráðstafað aftur í útlán og það aftur
minnkaði þörf sjóðsins fyrir að afla sér lánsfjár á
markaði.
24–25 milljarðar í íbúðabréfum
Fram kom að Íbúðalánasjóður hefur aflað sér
um 24–25 milljarða króna í lánsfé með útboðum
íbúðabréfa frá því nýja íbúðalánakerfið tók gildi
um mitt þetta ár. Hluta fjárins hefur verið aflað
erlendis með lokuðum útboðum þar og hluta hef-
ur verið aflað með útboðum hér innanlands. Þar
af hefur níu milljarða króna verið aflað með út-
boðum hér innanlands á þessum síðasta fjórðungi
ársins og var ávöxtunarkrafan í síðasta útboðinu
á árinu 3,55%. Vaxtaálag Íbúðalánasjóðs er 0,6%
og því eru vextir íbúðalána nú 4,15%.
Umframgreiðslur Íbúða-
lánasjóðs 41 milljarður
FUGLAFLENSAN gæti orðið að
faraldri um allan heim en innflú-
ensufaraldrar eru í dag ein helsta
heilbrigðisógn mannkyns, að sögn
dr. Lee Jong-wook, forstjóra
WHO. Ómögulegt er að segja til
um með vissu hvort og hvenær það
myndi gerast. Enn sem komið er
smitast flensan aðeins frá fuglum
til manna en ekki manna á milli.
Mun stökkbreytast
„En á endanum mun veiran
stökkbreytast,“ sagði dr. Lee í
samtali við Morgunblaðið. Hann
var staddur hér á landi í tilefni
fundar framkvæmdastjórnar
WHO. „Þegar það gerist, að veir-
an fer að smitast á milli fólks, þá
verður faraldur.“
Hann segir eitt vandamálið í
þessu samhengi það að lyfjafyrir-
tæki eru ekki tilbúin að framleiða
lyf sem ekki er fullvíst að þurfi að
nota, þ.e. sé enginn öruggur kaup-
andi að þeim. Nú þegar íhugi ríkis-
stjórnir nokkurra landa að kaupa
bóluefni til vonar og vara.
Dr. Lee minnti á að fuglaflensu-
veiruna er ekki aðeins að finna í
kjúklingum heldur einnig í far-
fuglum og þeir væru því „eins og
nokkurs konar sprengjur sem
gætu borið veiruna til allra heims-
horna“.
Dr. Lee segir að reynsla af við-
miðunarreglum, sem WHO gaf út
er bráðalungnabólga, HABL,
braust út á sínum tíma, hafi reynst
vel við að halda útbreiðslu sjúk-
dómsins í skefjum. Þær fólu m.a. í
sér takmörkun á ferðalögum milli
landa. Óvíst er hvort þyrfti að
grípa til svipaðra reglna ef innflú-
ensufaraldur á borð við fugla-
flensu brytist út.
Fuglaflensan gæti
orðið að faraldri
Á endanum/6
HAGNAÐUR af tónleikum sem haldnir voru
til styrktar Félagi krabbameinssjúkra barna
í Hallgrímskirkju nemur 4.748.882 krónum,
sem er í samræmi við upphafleg markmið
tónleikanna. Alls voru listamönnum tón-
leikanna, sem voru þrennir, greiddar ríflega
6,2 milljónir fyrir framlag þeirra. Kemur
þetta fram í fréttatilkynningu frá Kynningu
ehf. sem stóð fyrir tónleikunum. Tekjur
vegna seldra aðgöngumiða námu tæplega
átta milljónum króna en heildartekjur námu
alls ríflega 13,1 milljón króna. Heildarkostn-
aður nam tæplega 8,5 milljónum króna.
Styrktartónleikarnir voru þrennir talsins
og komu þar fram fjórir einsöngvarar auk 23
tónlistarmanna og yfir 160 kórfélaga.
Kostnaður vegna hljóðkerfis og upptöku
vegna fyrirhugaðrar útgáfu efnisins á geisla-
diski nam tæplega 1,5 milljónum króna,
húsaleiga var ríflega hálf milljón króna og
annar kostnaður varð 250 þúsund krónur.
Skipuleggjandi tónleikanna, Kynning ehf. og
Ólafur M. Magnússon, gáfu alla vinnu sína
við undirbúning og framkvæmd verkefnisins.
„Allir þeir sem komu fram á tónleikunum
gáfu stóran hluta af vinnu sinnu og gáfu Fé-
lagi krabbameinssjúkra barna að auki út-
gáfurétt á öllum tónlistarflutningi allra tón-
leikanna,“ segir í tilkynningunni.
Þar er harmað að umræða um þóknanir til
listamanna hafi orðið jafn fyrirferðarmikil og
raun ber vitni.
Ólafur M. Magnússon tónleikahaldari seg-
ist ekki eiga von á því að breyta fyrirkomu-
lagi tónleikanna að ári, þrátt fyrir umræðuna
sem verið hefur í þjóðfélaginu. „Ég harma
það ef einhver misskilningur hefur verið með
það hvernig uppbyggingin á tónleikahaldinu
var, ég ber ábyrgð á því. Það var ekki vísvit-
andi gert heldur mannleg mistök.“
Uppgjör vegna styrktar-
tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega 5
milljóna króna
hagnaður
Listamönnum greiddar
rúmar 6,2 milljónir
Mikilvægt/10
♦♦♦