24 stundir - 22.01.2008, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir
„Ég lít til seinni umferðarinnar
með mikilli bjartsýni,“ sagði Tadic.
Þátttaka í kosningunum þykir
óvenjugóð, en hún var um 61%.
Telja stjórnmálaskýrendur þetta
sýna að þjóðin líti sem svo á að
kosið sé um þá stefnu sem landið
taki í framtíðinni: hvort það halli
sér frekar upp að Evrópusamband-
inu í vestri eða Rússlandi í austri.
Deila ekki um Kósóvó
Bæði Tadic og Nikolic eru mót-
fallnir því að Kósóvó hljóti sjálf-
stæði undan Serbíu. Báðir benda á
mikilvægi héraðsins sem vöggu
serbnesku þjóðarinnar og hvorug-
ur vill að sín verði minnst sem for-
setans sem lét Kósóvó af hendi.
Þó hefur Nikolic kveðið fastar að
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Fyrsta umferð forsetakosninga fór
fram í Serbíu á sunnudag. Sigur-
vegari kosninganna var þjóðernis-
sinninn Tomislav Nikolic, með
nærri 40% greiddra atkvæða. Fast á
hæla hans kom umbótasinninn
Boris Tadic, með rúm 35% at-
kvæða. Aðrir frambjóðendur kom-
ast ekki í aðra umferð kosning-
anna, sem fer fram 3. febrúar
næstkomandi.
Báðir frambjóðendurnir fögn-
uðu árangri sínum. „Við höfum
opnað leið til sigurs í seinni umferð
kosninganna. Breytingar hafa aldr-
ei verið jafn skammt undan. Ég vil
sameina Serbíu,“ sagði Nikolic.
orði, en hann hefur mælst til þess
að hervaldi verði beitt, sækist Kó-
sóvó eftir sjálfstæði. Tadic hefur
sagt að Kósóvó sé best borgið innan
Serbíu, og Serbíu innan Evrópu-
sambandsins.
Nikolic neitar því að hann sé
einangrunarsinni og stríðsæsinga-
maður. Hefur hann hvatt til þess að
Serbía nýti sér stöðu sína – mitt á
milli vesturs og austurs.
„Serbía kaus í dag bæði Evrópu
og Rússland,“ sagði hann í viðtali á
sunnudag. „Sem stendur er leiðin
til Rússlands greiðari, og ég mun
opna leiðina til Evrópusambands-
ins.“
Hörð barátta framundan
Talið er að fylgismenn þeirra
frambjóðenda sem helst hafa úr
lestinni muni dreifa sér nokkuð
jafnt á þá Nikolic og Tadic. Úrslit
kosninganna í febrúar gætu því far-
ið eftir því hvernig þeir ná að höfða
til óháðra kjósenda.
Í seinni hluta kosningabarátt-
unnar er því líklegt að helstu mál-
efni verði aukin lífskjör og fleiri
störf, auk þess sem fast verður
haldið í að Kósóvó sé enn hluti
Serbíu.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Bæði Evrópa
og Rússland
Þjóðernissinni vann fyrstu umferð forsetakosninga í Serbíu
Forsetaefnin Veggspjöld
Nikolic og Tadic kallast á
➤ Tomislav Nikolic er núverandiforseti Serbíu og formaður
Lýðræðisflokksins. Hann hef-
ur stýrt landinu í átt til Vest-
urlanda, Evrópusambandsins
og markaðsumbóta.
➤ Boris Tadic fer fyrir flokki rót-tækra þjóðernissinna á með-
an formaðurinn Vojislav Se-
selj svarar til saka fyrir
stríðsglæpadómstólnum í
Haag.
FRAMBJÓÐENDURNIR
Breskir ökumenn mega eiga von
á því að lögregla stöðvi þá af
handahófi til að aðgæta hvort þeir
séu undir áhrifum áfengis eða
vímuefna. Mun lögregla setja upp
eftirlitsstöðvar sólarhring í senn
þar sem þeim þykir líklegt að öku-
menn séu á ferli undir áhrifum.
Breytingarnar hafa verið studdar
reynslu ensku og velsku lögregl-
unnar fyrir síðustu jól. Þá leiddi
6% aukning á öndunarprófunum á
milli ára til umtalsverðrar fækkun-
ar á drukknum ökumönnum.
Nýju reglurnar hafa verið gagn-
rýndar fyrir að beinast að mestu
gegn löghlýðnum borgurum.
„Enn og aftur reyna þeir á þolrif
bresks almennings, þegar þeir ættu
frekar að einbeita sér að minni-
hlutanum sem er langt yfir leyfileg-
um mörkum,“ segir John Spellar,
fyrrum samgönguráðherra. aij
Bretland berst gegn stútum undir stýri
Leggja gildrur fyrir
drukkna ökumenn
Franski orkurisinn EDF hefur
hug á að reisa nýjan kjarnakljúf
við Sellafield. Breskt undirfyr-
irtæki samsteypunnar hefur farið
fremst í hópi þeirra sem þrýst
hafa á bresk stjórn-
völd að endur-
skoða afstöðu sína
til kjarnorku. Rík-
isstjórnin hefur
gefið grænt ljós á
byggingu nýrra
kjarnorkuvera, en
nokkra mánuði
getur tekið að koma löggjöfinni í
gegnum þingið.
Starfsemi í Sellafield hefur
minnkað á undanförnum árum.
Komi ekki til nýjar fjárfestingar á
næstu árum, er talið að um 8.000
störf muni fara forgörðum. aij
Orkuframleiðendur
Líta Sellafield
hýru auga
Fjórar sprengjur skóku konungs-
ríkið Bútan á sunnudag. Einn
særðist og minniháttar skemmdir
urðu á byggingum.
Telur lögregla að nepalskir and-
spyrnuhópar standi að baki árás-
unum. Hefur fólki af nepölskum
uppruna verið gert erfitt fyrir að
taka þátt í kosningum sem fara
munu fram í mars – hinum fyrstu
í sögu landsins. aij
Bútan í Himalajafjöllum
Sprengja fyrir
kosningar
Borgin er full af Vildarpunktum
safnaðu þeim með því að setja fasteignagjöldin á VISA
Þeir korthafar sem hafa áhuga á að greiða fasteignagjöld sín
hjá Reykjavíkurborg með VISA Boðgreiðslum geta skráð sig í Rafrænni
Reykjavík á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, hringt í síma 4 11 11 11
og einnig er hægt að skrá fasteignagjöldin á www.valitor.is/visabod