24 stundir - 22.01.2008, Page 14

24 stundir - 22.01.2008, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008 24stundir Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 Acer Aspire 5720Z Intel Core 2 Duo, 2GB vinnsluminni, 80 GB harður diskur 69.900- 99.900-VERÐ ÁÐUR: 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is Prentun: Landsprent ehf. 24 stundir fjölluðu á laugardaginn um þá sérkennilegu stöðu, sem Kaupmannasamtök Íslands njóta. Þau eru í raun orðin klúbbur fyrrver- andi kaupmanna og eins konar fjárfestingarsjóður; ávaxta einhverja tugi milljóna króna, sem haldið var utan við Samtök verzlunar og þjónustu þegar þau urðu til fyrir nokkrum árum. Kaupmannasamtökin láta sjálfsagt sitthvað gott af sér leiða; þau styrkja til dæmis ýmis góð málefni á sviði verzlunarmenntunar og verzlunarsögu. En hagsmunabarátta fyrir hönd verzlunarfyrirtækja og fyrirsvar í við- ræðum við launafólk hefur færzt til Samtaka verzlunarinnar. Kaupmannasamtökin fá hins vegar áfram hlut í launatengdum gjöld- um, sem atvinnurekendur borga í svokallaðan félagsheimilasjóð verzl- unarsamtakanna. Og þau eiga áfram sæti í stjórn Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna, eins stærsta, fjölmennasta og öflugasta lífeyrissjóðs á landinu. Það er ekki sízt síðastnefnda atriðið, sem hinum almenna launamanni hlýtur að þykja furðulegt. Það hefur oft verið gagnrýnt að sjóðfélagar í líf- eyrissjóðunum hafi lítil áhrif á stjórn þeirra. Annars vegar eru það stjórnir stéttarfélaga, sem tilnefna fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóða, hins vegar stjórn- ir samtaka atvinnurekenda. Þetta fyrirkomulag hefur verið réttlætt með því að það sé þetta fólk, sem semur fyrir hönd sinna félagsmanna um kaup og kjör, þar meðtalin lífeyrisréttindi. Hins vegar fer ekki á milli mála að eigendur fjár lífeyrissjóðanna eru launafólk í landinu, almennir sjóðfélagar. Þeir eru ekki allir í stéttarfélagi. Sumir eru í stéttarfélagi, en þó ekki því stéttarfélagi, sem á rétt á að skipa fulltrúa í lífeyrissjóðinn, sem viðkomandi er skyldugur að borga í. Og fæstir eiga hinir almennu sjóðfélagar aðild að sam- tökum atvinnurekenda. Sterkt hagsmunabandalag verkalýðsleiðtoga og at- vinnurekenda hefur áratugum saman staðið gegn því að hinn almenni sjóðfélagi fái að kjósa stjórn í lífeyr- issjóði beint á aðalfundi eða í póstkosningu. Það er út af fyrir sig ekkert skrýtið, því að í gegnum lífeyrissjóð- ina hefur þetta hagsmunabandalag mikil völd, m.a. í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðirnir hafa fjárfest í. Það að klúbbur gamalla kaupmanna skuli í einskis manns umboði áfram fara með stjórnarsæti í einum öflugasta lífeyrissjóði landsins, sýnir á dálítið afkára- legan hátt hvað þetta kerfi er orðið úrelt og á skjön við raunveruleikann. Í hvers umboði? SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Haukur Logi Karlsson staðfestir, að Framsókn hafi keypt föt á Björn Inga Hrafnsson í síðustu borgarstjórn- arkosningum. Fyrrverandi for- maður ungra Framara sá þá fötin á kosn- ingaskrifstofu. Hvorki Björn Ingi né flokk- urinn neita stað- reyndum, veina bara eins og stungnir grísir. Athyglisvert er, að vefur DV er málgagn Björns Inga í málinu. Segir Björn Inga hafa brugðið „sér hinn rólegasti í barnaafmæli“. Í stað þess að kífa í Silfri við Guðjón Ólaf Jónsson uppljóstrara. DV boðar „víð- tækar pólitískar afleiðingar,“ … Jónas Kristjánsson jonas.is BLOGGARINN Framsóknarföt Ég hef um sinn haft það á til- finningunni að töluvert stór hópur í Framsókn, einkum ungt fólk, sé alvarlega að pæla í því að gefa Framsókn upp á bátinn, en getur ekki gert upp við sig hvort það eigi að fara alla leið og ganga yfir í þann flokk sem í senn er sóknarflokkur, umburð- arlyndur einsog enginn veit bet- ur en ég, og tekur vel á móti fólki. Björn Ingi og hans fólk á að ganga í Samfylkinguna, og það ætti reyndar líka Margrét Sverrisdóttir að gera. Við erum vön að taka á móti fólki, og gerum það vel. Össur Skarphéðinsson eyjan.is/goto/ossur Bingi velkominn Það vita allir í Framsókn- arflokknum í Reykjavík að Jón- ína Bjartmarz og Björn Ingi náðu ekki sam- an, en nákvæm- lega í hverju er glæpur Björns gagnvart henni fólginn? Og varðandi Önnu Krist- insdóttur, – hvert er málið, annað en það að Björn vann hana í prófkjöri, þar sem Önnu tókst ekki að nýta sér það forskot að vera borgarfulltrúi og formaður ÍTR? Þetta er ógeðslegt mál, for- maður Framsóknarflokksins kallar þetta „persónulegar deil- ur“ og að hann „standi með sín- um mönnum“. Pétur Gunnarsson eyjan.is/hux Ógeðslegt mál Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Mikil umræða hefur farið fram á und- anförnum misserum um mikilvægi þess að fyllsta öryggis sé gætt við framkvæmdir á eða við götur og vegi. Reykjanesbrautin kemur oft við sögu í þessari umræðu, enda er full ástæða til að gefa ástandinu sem þar hefur verið gaum. Mikill fjöldi kvartana hefur borist frá fólki sem fullyrðir að merkingar þar hafi verið ófull- nægjandi. Vegagerðin, lögreglan, Reykjavíkurborg og fleiri aðilar tóku fyrir nokkrum árum saman hefti um merkingar á vinnusvæðum. Þar eru dæmi um fjölbreyttar aðstæður og hvernig merkja skuli hverju sinni. Hins vegar hafa aðstæður breyst frá því að slíkt hefti kom síðast út, þar á meðal hafa vegir í auknum mæli verið tvöfaldaðir sem getur breytt forsendum töluvert. Fyrir liggur að slíkar leiðbeiningar þurfa að vera síbreytilegar og í samræmi við breyttar aðstæður. Það er ástæða til að taka undir það, að merking- ar hafa verið langt frá því sem eðlilegt er að krefjast í nútímaumferð. Bæði eru skilti lítil og stundum erfitt að koma auga á þau og auk þess koma viðvaranir oft alltof seint, þannig að öku- menn lenda í vandræðum. Fyrir liggur að það er hægt að merkja með þeim hætti að allir geti verið sáttir við fráganginn. Það hafa menn margoft séð. En í raun þarf að eiga sér stað hugarfarsbreyting og það á að vera metnaðarmál verktaka og veghaldara að þessi mál séu í góðu lagi. Það varðar hagsmuni vegfarenda og ekki síður þeirra sem að verkunum vinna. Stefnt er að því að skýra reglur um þetta efni hið allra fyrsta og vonandi leiðir það til þess að fólk, þar á meðal útlendingar sem leið eiga um landið, geti verið visst um að merkingar séu eins góðar og kostur er. Á ann- að er ekki hægt að sættast mið- að við þann hraða sem er ríkjandi í umferðinni. Höfundur er verkefnastjóri Umferðarstofu Merkingar við framkvæmdir ÁLIT Sigurður Helgason siggih@us.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.