24 stundir - 09.05.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
VÍÐA UM HEIM
Algarve 24
Amsterdam 23
Alicante 22
Barcelona 20
Berlín 22
Las Palmas 24
Dublin 19
Frankfurt 22
Glasgow 24
Brussel 23
Hamborg 22
Helsinki 12
Kaupmannahöfn 18
London 24
Madrid 23
Mílanó 23
Montreal 10
Lúxemborg 21
New York 17
Nuuk 3
Orlando 21
Osló 22
Genf 21
París 24
Mallorca 25
Stokkhólmur 16
Þórshöfn 17
Austan og norðaustan 10-18 m/s, hvassast
síðdegis. Víða rigning, en rigning eða slydda
fyrir norðan. Heldur kólnandi veður.
VEÐRIÐ Í DAG
5
8
0
1
0
Kólnandi veður
Suðaustan 8-10 m/s og rigning eða súld, en
austan 10-15 við norðurströndina og slydda.
Hiti 1 til 9 stig, svalast norðantil.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
7
1
1
1
Rigning eða súld
Stofnuð hafa verið Foreldrasam-
tök gegn áfengisauglýsingum. Í
lögum samtakanna segir að mark-
mið þeirra sé að berjast gegn birt-
ingu ólöglegra áfengisauglýsinga
og bættu auglýsingasiðferði með
sérstakri áherslu á vernd barna og
unglinga.
„Það er kannski skrýtið að þurfa
að stofna sérstök samtök til að
æskja þess að fólk fari eftir settum
lögum,“ segir Árni Guðmundsson,
formaður samtakanna.
Hann segist hafa fundið fyrir
mikilli óánægju meðal foreldra
með virðingarleysi áfengisfram-
leiðenda fyrir áfengislögum.
„Markmiðið með samtökunum er
að virkja þá krafta sem eru fyrir
hendi og koma þeim öllum á einn
stað, svo að hægt sé að þrýsta á um
að eitthvað verði gert í þessum efn-
um.“
Rafrænt kærueyðublað
Til stendur að stofna heimasíðu í
nafni samtakanna, þar sem foreldr-
um verður að sögn Árna meðal
annars gefinn kostur á að kæra
áfengisauglýsingar með hjálp þar
til gerðs eyðublaðs á rafrænu
formi.
Árni segir nýlegar áfengisauglýs-
ingar utan á strætóskýlum á höf-
uðborgarsvæðinu hafa mælst sér-
staklega illa fyrir hjá þeim sem bera
hag barna fyrir brjósti. „Þar birtist
algjört virðingarleysi við börn og
unglinga, sem eru eins og kunnugt
er helstu viðskiptavinir Strætó.“
hlynur@24stundir.is
„Virðingarleysi við börn“
Stofna Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum
Fjöldi vörubílstjóra kom saman
til mótmæla við Alþingishúsið um
hádegisbil í gær, þar sem þeir
þeyttu flautur og trufluðu umferð.
Sturla Jónsson, talsmaður mót-
mælendanna, segir mótmælin aft-
ur vera komin á fullt skrið. „Miðað
við fund okkar í gærkvöldi [mið-
vikudagskvöld] þá er enn mikil
samstaða innan okkar hóps og við
ætlum að halda áfram.“
Lögregla kom fljótlega á staðinn
eftir að mótmælin hófust og bað
bílstjóra um að færa bílana sem
tepptu umferð.
Sturla segir að eini maðurinn
sem hafi sýnt einhver viðbrögð og
mannvirðingu hafi verið Grétar
Mar Jónsson, þingmaður Frjáls-
lyndra, sem hafi komið út og heils-
að upp á bílstjórana. atlii@24stundir.is
Vörubílstjórar halda mótmælum áfram
Bílstjórar mótmæltu
við Alþingishúsið
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
tveimur Litháum, Arunas Bartkus
og Rolandas Jancevicius, sem voru
dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir
hrottalega nauðgun. Hæstiréttur
lækkaði hins vegar bótagreiðslu til
konunnar sem nauðgað var úr fjór-
um milljónum króna í 1.200.000
krónur. Mennirnir tveir höfðu hitt
konuna á veitingastað á Laugavegi
og hún fylgt þeim þaðan á leið í
gleðskap. Mennirnir lokkuðu konuna inn í húsasund og réðust þar að
henni með hótunum og margvíslegu kynferðislegu ofbeldi. Annar
mannanna sagðist hafa haft kynmök við konuna en hinn bar við ölvun
og minnisleysi. Í dómi héraðsdóms var tekið til þess að mennirnir
hefðu saman brotið gegn konunni á alvarlegan hátt og því bæri að
þyngja refsingu þeirra. Mennirnir ættu sér engar málsbætur og hefðu
unnið til þungrar refsingar. fr
5 ára dómur fyrir nauðgun
Um 200 lítrar af dísilolíu láku á
götuna nærri gatnamótum Borg-
artúns og Höfðatúns um hádeg-
isbil í gær. Að sögn slökkviliðs lak
olían út þegar lyftari sem var að
flytja olíutank fór á hliðina.
Slökkvilið þurfti einnig að
hreinsa upp olíu þegar lak úr bíl
við Vagnhöfða nokkru síðar. aí
Dýrir dropar
fóru til spillis
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur þar
sem fyrirtækið Hringrás var
sýknað af bótakröfu Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins. Slökkvi-
liðið krafði fyrirtækið um rúmar
25,6 milljónir vegna tjóns sem
verktakafyrirtækið E.T. varð fyrir
þegar slökkviliðið fékk aðstoð
þess við slökkvistarfið. Vélar E.T.
skemmdust þegar þær voru not-
aðar til að moka brennandi
dekkjum burtu og einnig þurfti
að hreinsa lóð fyrirtækisins. Vá-
tryggingafélag Hringrásar taldi
dekkjahrúguna ekki vátryggða og
því var málið höfðað.
Hringrás sýknuð af bótakröfu
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Meint kynferðisbrot séra Gunnars
Björnssonar, sóknarprests á Sel-
fossi, gagnvart þremur unglings-
stúlkum er fyrsta kynferðisbrota-
málið sem kemur inn á borð
fagráðs kirkjunnar um meðferð
kynferðisbrota sem fer alla leið til
yfirvalda. Málið er jafnframt það
fyrsta þar sem meintur þolandi er
barn.
Óeðlileg íhlutun kirkjunnar
Eftir að fagráðinu barst tilkynn-
ing um meint brot séra Gunnars,
fór fulltrúi ráðsins til fundar við
fjölskyldu þolanda, þrátt fyrir að í
lögum sé skýrt kveðið á um að
vakni grunur um kynferðisbrot
gagnvart barni skuli tilkynna það
tafarlaust til barnaverndaryfirvalda.
„Þarna er kirkjan með íhlutun sinni
að lengja leið slíkra mála til barna-
verndaryfirvalda og um leið að
hætta á að spilla rannsóknarhags-
munum með því að tefja málið,“
segir Vigdís Erlendsdóttir, sálfræð-
ingur og fyrrverandi forstöðumaður
Barnahúss. „Ég skil ekki tilgang
þessa fagráðs, því þó að þeim gangi
gott eitt til, er mjög sérkennilegt að
kirkjan sé að kanna sín eigin mál
áður en þau berast yfirvöldum.“
Könnun ekki rannsókn
Gunnar Rúnar Matthíasson,
sjúkrahúsprestur og formaður
fagráðsins, neitar að gefa upp
fjölda mála sem komið hafa inn á
borð ráðsins frá stofnun þess árið
1998, en segir þau færri en tíu
talsins. Hann staðfestir þó að í
öllum tilfellum hafi viðkomandi
ákveðið að fara ekki lengra með
málið eftir að hafa ráðfært sig við
fulltrúa fagráðsins.
„Í þessu máli fór fulltrúi okkar
á Selfoss til að ræða við þá aðila
sem bera málið fram við okkur,
en þess var gætt að ekki yrði rætt
við meintan þolanda til að spilla
ekki rannsókninni,“ segir Gunnar
Rúnar. „Við heyrum hvers eðlis
umkvörtunin er og gerum fólki
grein fyrir því hvort umkvört-
unin sé þess eðlis að það beri að
vísa henni til barnaverndaryfir-
valda og hvað í því felist. Frekara
mat á inntaki málsins fer ekki
fram hjá okkur eða rannsókn á
málinu sjálfu.“
Fyrsta málið
sem fer alla leið
Meint brot prests á Selfossi er fyrsta kynferðisbrotamálið sem fer
úr fagráði kirkjunnar til yfirvalda Mál hafa endað í fagráði
Selfosskirkja Sálfræðingur gagn-
rýnir vinnubrögð kirkjunnar varðandi
nýlegt kynferðisbrotamál.
➤ Kirkjuráð útnefnir fagráð ummeðferð kynferðisbrotamála.
➤ Fagráð tilnefnir talsmannsem veitir meintum þolanda
áheyrn, metur efni umkvört-
unar um kynferðisbrot í sam-
ráði við þolanda og veitir fag-
lega ráðgjöf um málsmeðferð
í samráði við fagráð.
FAGRÁÐ KIRKJUNNAR
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Jón Axel Ólafs-
son hefur verið
ráðinn mark-
aðs- og þróun-
arstjóri Árvak-
urs, sem gefur
m.a. út 24
stundir. „Þetta
er eitt áhrifamesta fjölmiðla-
fyrirtæki landsins og það er
spennandi tækifæri að fá að
leiða það uppbyggingarstarf
og breytingarferli sem er
framundan hjá fyrirtækinu,“
segir Jón Axel, sem hefur
starfað sem ráðgjafi hjá fyr-
irtækinu um nokkurt skeið. aí
Breytingar hjá Árvakri
Markaðsstjóri