24 stundir - 09.05.2008, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Garðar Hilmarsson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, segist hafa fengið talsvert af
tölvupóstum vegna athugasemda
við ráðningarkjör Jakobs Frímanns
Magnússonar.
Í bréfi óánægðs borgarstarfs-
manns til Garðars segir m.a.: „Mig
langar að láta í ljós gífurlega
óánægju mína með laun Jakobs
Frímanns ... Við hin megum
kannski eiga von á allsvakalegri
launahækkun? Ég væri alveg til í að
skrifa fleiri orð en ég verð bara svo
reið að ég get ekki sett saman al-
mennilegar setningar.“
Jakob Frímann hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri miðborgar-
mála. Hlýtur hann 861 þúsund
krónur í mánaðarlaun, að með-
töldum launum fyrir nefndarsetur.
hos
Óánægja með kjör Jakobs Frímanns
Borgarstarfsmenn
láta heyra í sér
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Það sem er á dagskrá um hvíta-
sunnuhelgina er hvítur stormsveip-
ur í miðborginni. Þar er verið að
taka ærlega til hendinni í samvinnu
allra og ná öllu rusli úr görðum,
lóðum, portum og af víðavangi og
koma því fyrir kattarnef,“ segir Jak-
ob Frímann Magnússon, nýráðinn
framkvæmdastjóri miðborgarmála
í Reykjavík.
Brenndar tennur
„Það má segja að ungfrú Reykja-
vík sé með dálítið brenndar tennur
í þeim gómi sem Hverfisgatan er en
mun hvítari á móti í efri gómi,“
segir Jakob en unnið hefur verið að
fegrun Laugavegar upp á síðkastið.
Nú á að taka til við Hverfisgötuna.
„Ef almennt ástand borgarinnar
færist niður á ákveðið plan er
ósköp eðlilegt að virðing fólks fyrir
henni minnki,“ segir Jakob Frí-
mann og bætir við: „Við skulum
ekki gleyma því að eitt frægasta,
vinsælasta og umtalaðasta gleði-
hverfi Evrópu er 101 Reykjavík og
því fylgir mikið álag, gleðskapur og
oft galskapur. Það þarf auðvitað að
taka til eftir partíið um hverja helgi.
Ef það er ekki skúrað almennilega
mun eitthvað undan láta því álagið
á miðborginni er gríðarlegt.“
Hann segir pólitískan vilja hafa
þurft til að gera það að forgangs-
máli að fullur sómi verði að útliti
miðborgarinnar.
Reynslan úr græna hernum
„Ég hugsa að reynslan sem nýtist
mér best í þessu starfi sé þátttaka í
því verkefni sem Ólafur kallaði mig
til fyrir 8 árum og var baráttan fyrir
verndun Eyjabakka. Þar voru verk-
in látin tala og það dugði til því við
fengum verkið afturkallað,“ segir
Jakob Frímann. Hann segist einnig
reiða sig á reynsluna af Græna
hernum, verkefni sem hann stóð að
á svipuðum tíma. „Þessi tvö verk-
efni eru þau mest gefandi sem ég
hef tekið þátt í á mínum ferli,“ seg-
ir hann.
Jakob Frímann gegnir einnig
formennsku í hverfisráði miðbæjar.
Hann sér ekki í fljótu bragði að það
starf stangist á við starf fram-
kvæmdastjórans en útilokar það þó
ekki. „Ef framkvæmdastjóri mið-
borgar situr í hverfisráði með
rekstraraðilunum, starfsmönnum
þjónustumiðstöðva, fulltrúum
minni- og meirihluta er það mun
líklegra en ella til að halda honum
upplýstum, veita honum aðhald og
stuðning til að vinna vinnuna
sína,“ segir hann.
Þegnskylda
„Að fenginni fyrri reynslu er ég
tilbúinn að fara í þennan leiðangur
með Ólafi F. Magnússyni sem ég
þekki að góðu einu og treysti betur
en nokkrum öðrum stjórnmála-
manni,“ segir Jakob Frímann.
Hann vill ekki tjá sig um þá um-
ræðu sem orðið hefur um ráðn-
ingu hans. „Pólitísk keiluspil í
kringum ráðningar eru ekki mitt
mál, ég er fenginn til þessa í ljósi
reynslu minnar og getu. „Ég treysti
því að hér verði gengið til góðra
verka í þágu Reykvíkinga allra.
Þetta er þegnskylduvinna í mínum
huga,“ segir hann og bætir við að
þó einhverjum kunni að hafa fund-
ist launakjör hans há séu þau lægri
en miðborgarstjóra R-listans og
allra sviðsstjóra borgarinnar. „Ég
ber engan kinnroða af því að vera á
þeim launum sem mér hefur verið
skenkt hér. Meðallaun mín undan-
farin 5 ár hafa ekki verið neitt laun-
ungarmál enda árlega birt í Frjálsri
verslun í grein um tekjuhæstu lista-
menn Íslands. Ég var tvístígandi
meðal annars vegna þeirrar launa-
skerðingar sem fylgir þessari breyt-
ingu á starfi. En ég lít á þetta sem
ögrandi og spennandi áskorun sem
ég hef ákveðið að taka og ætla ekki
að hafa um það neitt fleiri orð en
láta verkin tala.“
Snyrtimennska
í fyrirrúmi
Brenndar tennur ungfrú Reykjavíkur Pólitískan vilja þurfti til
að málefni miðborgarinnar væru sett í forgang
➤ Jakob Frímann er tónlist-armaður að mennt.
➤ Hann lauk MBA-prófi frá Há-skólanum í Reykjavík 2006.
➤ Hann er stofnandi Grænahersins og gegndi fram-
kvæmdastjórastöðu hans og
Umhverfisvina.
JAKOB FRÍMANN
Landsvirkjun hefur ekki
heimild ríkisstjórn-
arinnar til eignarnáms
vegna Urriðafossvirkj-
unar. Þetta kom fram í
svari umhverfisráðherra
við spurningu Atla Gísla-
sonar í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær. Atli spurði
hvað hæft væri í orðum
Friðriks Sophussonar sem
hefur sagt að Lands-
virkjun hafi fullt umboð til að fara með þessi mál og gefið í skyn að
eignarnámi yrði beitt, að mati Atla.
„Það má vel vera að forstjóri fyrirtækisins haldi einhverju öðru fram
en það liggur algerlega fyrir af minni hálfu að forstjóri Landsvirkjunar
hefur ekki umboð frá ríkisstjórn Íslands til að fara í eignarnám,“ sagði
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og bætti því við að hún
væri ekki samþykk því að eignarnámi verði beitt þar sem almanna-
hagsmunir væru ekki í húfi. Hún sagðist telja það hlutverk sveit-
arstjórnarmanna að hlusta á og taka tillit til óska íbúa í virkjana- og
umhverfismálum sem öðrum málum.
Ekki náðist í Árni M. Mathiesen vegna málsins. fifa@24stundir.is
Ekki heimild til eignarnáms
Hæstiréttur hefur þyngt dóm
Héraðsdóms Austurlands yfir 44
ára karlmanni, Bjarna Tryggva-
syni. Dóminn hlaut hann fyrir
nauðgun. Bjarni hlaut 18 mánaða
fangelsisdóm í héraði en Hæsti-
réttur þyngdi dóminn í tvö ár.
Bjarni Tryggvason var dæmdur
fyrir kynferðisbrot gagnvart
konu með því að hafa haft sam-
ræði við hana á heimili sínu á
Neskaupstað í október 2006,
meðan hún gat ekki spornað við
verknaðinum sökum ölvunar og
svefndrunga. aí
Þyngir dóm
yfir nauðgara
Borgarráðsfulltrúar minnihlutans
hafa óskað eftir upplýsingum um
launakjör ýmissa starfsmanna borg-
arinar, svo sem sviðsstjóra, skóla-
stjóra og leikskólastjóra. Kemur fyr-
irspurnin í framhaldi af ráðningu og
ráðningarkjörum Jakobs Frímanns
Magnússonar, sem framkvæmda-
stjóri miðborgarmála í Reykjavík.
hos
Óska eftir upplýsingum um laun
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Að þessu sinni skoða Neytendasamtökin hvað kostar
að fara með dúnsæng í hreinsun. Verð er á bilinu
2.100 til 2.900 krónur og lægst hjá efnalauginni Hreint
út á Akureyri. Þeir sem eiga þurrkara geta jafnvel
þvegið sængurnar sjálfir. Ef sængin er þeim mun dýr-
mætari borgar sig eflaust að láta fagmenn um verkið.
38% verðmunur á
hreinsun dúnsængur
Brynhildur
Pétursdóttir
flugfelag.is
Ferðalag er góð
fermingargjöf
Pantaðu gjafabréf
í síma 570 3030
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
4
15
36
0
4
/0
8
HJÁLPUM FÓRNARLÖMBUM
NÁTTÚRUHAMFARANNA
Í MJANMAR (BÚRMA)
907 2020Söfnunarsími www.raudikrossinn.is
NEYTENDAVAKTIN
Hreinsun á dúnsæng
Efnalaug Verð Verðmunur
Hreint út á Akureyri 2.100
Fönn Reykjavík 2.170 3 %
Hraðhreinsun Austurlands 2.200 5 %
Efnalaug Suðurnesja 2.215 5 %
Kjóll og hvítt Reykjavík 2.450 17 %
Efnalaug Garðabæjar 2.500 19 %
Múlakot Borgarnesi 2.900 38 %