24 stundir - 09.05.2008, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Sænskir hermenn hafa verið sak-
aðir um að kaupa sér þjónustu
vændiskvenna meðan þeir sinntu
friðargæslu á vegum Evrópusam-
bandsins í Austur-Kongó. Reglur
ESB fyrir friðargæsluliða sína
banna vændiskaup. Sænska ríkis-
stjórnin hefur ennfremur sett siða-
reglur sem ná yfir ferðir opinberra
starfsmanna erlendis. Þar eru
vændiskaup bönnuð.
Hermennirnir voru hluti af fjöl-
þjóðlegum herafla sem sendur var
til að gæta öryggis í kringum kosn-
ingar í Austur-Kongó árið 2006.
Segist sænska blaðið Expressen
hafa heimildir fyrir því að menn úr
þeirra hópi hafi keypt vændi. Segja
heimildarmenn blaðsins ennfrem-
ur að yfirstjórn hersins hafi vitað af
þessu um nokkurn tíma. aij
Sænskir friðargæsluliðar í Afríku
Liggja undir grun
um vændiskaup
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
William Earl Lynd var tekinn af lífi
í Georgíufylki aðfaranótt miðviku-
dags. Hann var fyrsti fanginn sem
bandarísk fangelsisyfirvöld gefa
banvæna sprautu síðan í september
á síðasta ári.
Lynd var 53 ára og hafði setið á
dauðadeild síðan hann var fundinn
sekur um morð á unnustu sinni ár-
ið 1998.
Stopp síðan í september
Aftaka Lynd er sú fyrsta síðan
Hæstiréttur Bandaríkjanna tók fyr-
ir mál Ralph Baze og Thomas
Bowling í lok september. Baze og
Bowling voru dæmdir til dauða
fyrir morð í Kentucky árið 1990.
Þeir kröfðust þess að Hæstiréttur
úrskurðaði hvort útdeiling refsing-
arinnar stangaðist á við stjórnar-
skrárvarinn rétt þeirra. Héldu þeir
því fram að vegna fjölmargra
dæma af misheppnuðum aftökum
með banvænni sprautu væri þessi
aðferð of grimmileg til að standast
áttunda viðauka bandarísku
stjórnarskrárinnar.
Banvæna sprautan er í raun kok-
teill þriggja lyfja sem gefin eru í æð.
Fyrst fær fanginn róandi lyf, þá lyf
sem lamar alla vöðva nema hjartað
og loks lyf sem stöðvar hjartslátt.
Er aðferðinni ætlað að valda dauða
á stundarfjórðungi.
Rétturinn kvað upp dóm sinn
16. apríl síðastliðinn. Sjö dómarar
studdu notkun banvænna
sprautna, en tveir lögðust gegn
þeim. Jafnframt var rökstuðningur
dómaranna sem mynduðu meiri-
hluta ólíkur, svo búast má við frek-
ari tilraunum til að fá réttmæti af-
takna hnekkt.
Verður nú spýtt í lófana?
Eftir mánaðalangt hlé stefnir í að
fylkisstjórnir muni taka til óspilltra
málanna við að fullnusta aftöku-
dóma. Texas fer þar fremst í flokki,
enda jafnan það ríki Bandaríkjanna
sem framkvæmir flestar aftökur.
Þar eru fimm aftökur ráðgerðar frá
júní til ágústloka. Virginía kemur
næst með fjóra dauðafanga á skrá
og Louisiana, Oklahoma og Suður-
Dakota eru búin að setja þrjár af-
tökur hvert á dagskrá.
Almenningsálit
Skoðanakannanir benda til þess
að meirihluti Bandaríkjamanna
styðji aftökur. Samtök sem berjast
gegn dauðarefsingum telja snar-
aukningu þeirra geta orðið til þess
að almenningur snúist gegn þess-
um refsimáta.
„Það verða fleiri aftökur en fólk
hefur lyst á, að minnsta kosti í
sumum hlutum landsins,“ segir
Stephen B. Bright, forstjóri Sout-
hern Center for Human Rights.
Gálgafrestur
sleginn af
Réttaróvissa ríkti um aftökur fanga í Bandaríkjunum í sjö mán-
uði Hæstiréttur skar á hnútinn í apríl Fyrstu aftökunni lokið
➤ Í 36 af 50 fylkjum Bandaríkj-anna liggur dauðarefsing við
alvarlegustu glæpum.
➤ Í 35 þeirra má eða skal beitabanvænni sprautu til að aflífa
fanga.
➤ Jafnframt leyfa sum ríki notk-un rafmagnsstóls, gasklefa,
gálga eða aftökusveitar.
➤ Á síðasta ári voru 42 fangarteknir af lífi.
AFTÖKUR FANGA
Sonur fórnarlambs Lögreglumaðurinn Dennis Briscoe er sonur mannsins sem Baze og Bowling voru dæmdir fyrir að myrða.
Til greina kemur að finna
eldflaugavarnarkerfi
Bandaríkjanna stað utan
Póllands, ef viðræður
stjórnvalda ganga illa.
„Bandaríkin vilja mjög
gjarnan koma þessum
eldflaugum fyrir í Pól-
landi,“ segir Stephen
Mull, háttsettur embætt-
ismaður í utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna.
Radek Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, segir stuðning við eld-
flaugavarnarkerfið velta á því hversu mikið Bandaríkjamenn eru
reiðubúnir að leggja fram til að styðja umbætur í pólska hernum.
„Pólland ber hitann og þungann fyrir hönd frelsis og lýðræðis um all-
an heim,“ sagði Sikorski og vísaði þar til stuðnings landsins við hern-
arðaraðgerðir í Írak og Afganistan. „Dyggur stuðningur við Bandarík-
in ætti að hafa hagnýtar afleiðingar.“ aij
Varnarkerfi utan Póllands
Ökunámskeið sem átti að halda í
Björgvin brýtur að mati umboðs-
manns jafnréttismála gegn jafn-
réttislögum. Þingmenn græn-
ingja kvörtuðu undan
námskeiðinu, sem Félag norskra
bifreiðaeigenda, NAF, stóð fyrir.
Þar átti að kenna konum að aka í
gegnum hringtorg.
„NAF mætti frekar einbeita sér
að umferðarfræðslu en kynferði,“
segir græninginn Sondre Båt-
strand. aij
Engin hring-
torganámskeið
Josef Fritzl hefur kennt Þýska-
landi nasismans um að honum
hafi verið innrætt gildismat sem
leiddi til þess að hann læsti dótt-
ur sína í kjallara í 24 ár.
„Ég er af gamla skólanum,“
stendur í bréfi frá Fritzl. „Ég ólst
upp á tíma nasismans, þegar mik-
il virðing var borin fyrir skipulagi
og yfirvaldi.“ Segir Fritzl að þetta
uppeldi hafi ómeðvitað valdið
hörðum viðbrögðum hans þegar
dóttirin Elisabeth hætti að fylgja
reglum hans. aij
Fritzl varpar sök
á nasistana
Það er
Framtíðin kortlögð