24 stundir - 09.05.2008, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Ólafur Þ. Stephensen
Björg Eva Erlendsdóttir
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Mun fleiri kynferðisbrot gegn börnum hafa verið tilkynnt það sem af er
árinu en á sama tíma í fyrra. Vonandi er það vísbending um að þolendurnir
eða þeir, sem hafa vitneskju um brotin, séu reiðubúnir að segja frá, fremur
en að ofbeldið hafi aukizt. Kynferðisofbeldi er smánarblettur á samfélagi
okkar, en því miður ennþá alltof mikið feimnismál, sem fólk veit illa hvernig
á að segja frá eða taka á.
Þannig segir Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Blátt áfram, í 24
stundum í gær að of mikið sé um að starfsmenn og stjórnendur í skólum
séu óttaslegnir, viti ekki hvert þeir eigi að snúa sér og geri fyrir vikið ekki
neitt þegar grunur vaknar um kynferðisbrot. Sigríður segir vanta meiri
fræðslu og leiðbeiningu og hefur áreiðanlega rétt fyrir sér í því.
Eftir að grunur um kynferðisbrot starfsmanns þjóðkirkjunnar vaknaði,
hafa vinnubrögð kirkjunnar í málinu verið gagnrýnd. Vigdís Erlendsdóttir,
sálfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Barnahúss, átelur vinnubrögð
svonefnds fagráðs kirkjunnar um meðferð kynferðisbrota harðlega í grein í
Morgunblaðinu í gær og í 24 stundum í dag. Vigdís segir að aðrir en barna-
verndarnefndir og lögregla eigi ekki að koma að málum sem þessum á
fyrstu stigum.
Hér er klárlega vandrataður meðalvegur. Þjóðkirkjan hefur að mörgu
leyti verið til fyrirmyndar og leitazt við að vanda sig við umfjöllun um þessi
mál. Um það ber skipan þessa fagráðs vitni, svo og starfsreglur, sem kirkjan
hefur sett sér um meðferð kynferðisbrotamála og bæklingur, sem dreift er
innan kirkjunnar. Þar er m.a. hvatt til þess að þögnin um kynferðisbrot sé
rofin, að engin kynferðisbrot verði liðin í kirkjulegu starfi og að enginn, sem
tekur þátt í starfi kirkjunnar eigi að sitja einn að sársaukafullu leyndarmáli.
Það, sem hins vegar orkar tvímælis í vinnubrögðum
fagráðsins, er að það hafi séð ástæðu til að kanna sér-
staklega sannleiksgildi ásakananna á hendur starfs-
manninum, í stað þess að vísa þeim umsvifalaust til
viðkomandi barnaverndarnefndar, eins og starfsregl-
urnar gera ráð fyrir.
Það er áreiðanlega af hinu góða að stofnanir á borð
við kirkjuna komi sér upp reglum um meðferð kyn-
ferðisbrotamála og tryggi að fólk viti hvert það getur
leitað, þannig að það lendi ekki í því að gera ekki neitt
vegna ótta eða óvissu. En vinnubrögðin verða líka að
vera alveg klár og skýr, þannig að engan gruni að mál-
um sé drepið á dreif eða spillt fyrir hugsanlegri rann-
sókn.
Vandrötuð leið
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Af einhverjum ástæðum þykja ut-
anríkisráðherranum þessar
spurningar pirrandi og reynir að
koma sér undan
með þeim út-
úrsnúningi að
eðlilegt eftirlit
með siðferði eða
siðferðisbresti
stjórnmálamanna
heyri ekki undir
fréttaöflun held-
ur stjórnmála-
starfsemi.
Ef kosningaloforð eru fréttnæm,
af hverju flokkast það þá undir
stjórnmálastarfsemi að spyrja um
efndir þeirra? Með ennþá betri
rökum má halda því fram að
störf formanns Samfylking-
arinnar flokkist ekki undir póli-
tík heldur sýndarmennsku …
Þráinn Bertelsson
thrainn.eyjan.is
BLOGGARINN
Eðlilegt eftirlit
Ráðning verkefnastjóra miðborg-
arinnar, hvernig hana bar að og á
hvaða launakjörum hann verður
veldur gríð-
arlegum titringi
meðal starfs-
manna borg-
arinnar. […]
Persóna Jakobs
Frímanns er ekki
mergurinn máls-
ins hér. Ráðningu
hans er einfald-
lega ekki skynsamlega háttað, síst
af öllu fyrir hann sjálfan. Launa-
kjör hans skapa úlfúð í hópi ann-
arra starfsmanna Ráðhúss og
Reykjavíkurborgar. Hann er póli-
tískt ráðinn, sérlegur ráðgjafi
borgarstjóra en þó situr hann í
nefndum og ráðum sem kjörinn
fulltrúi væri.
Oddný Sturludóttir
oddny.eyjan.is
Titringur
Ólafur F. Magnússon, borg-
arstjórinn í boði Sjálfstæð-
isflokksins, boðaði niðurskurð á
,,óhóflegri þenslu
stjórnkerfis borg-
arinnar“ vegna
fyrirhugaðra
ráðninga sér-
fræðinga á mann-
lausri Mannrétt-
indaskrifstofu nú
fyrr í vikunni. Nú
hefur hann sjálf-
ur hins vegar ráðið sér tvo „að-
stoðarmenn/ framhandleggi“
sem kosta 1.560.000 kr. á mánuði
sjálfur fær hann 1.100.000 kr. í
laun á mánuði. Samtals kostar
tríóið um 32 milljónir á ári.
Allt í boði Sjálfstæðisflokksins en
á kostnað borgarbúa.
Bryndís Ísfold Hlöðvarsdóttir
bryndisisfold.blog.is
Í boði X-D
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@24stundir.is
Ritstjóri 24 stunda fagnaði í leiðara sínum
7. maí komu franskrar flugsveitar hingað
til lands. Í leiðinni fann hann sérstaklega að gagnrýni
okkar í Samtökum hernaðarandstæðinga á dvöl þessa
erlenda herliðs – sem ritstjórinn kallar af hnyttni
sinni „hlífðarfrakka“.
Eins og aðrir stuðningsmenn hersetu á Ólafur Þ.
Stephensen í nokkrum vandræðum með að finna
óvin til að réttlæta vígbúnaðinn en grípur þess í stað
til myndlíkingar við brunavarnir: „Við leggjum ekki
niður slökkviliðið þótt langt sé síðan kviknaði í síð-
ast.“
Gott og vel, tökum þessa líkingu og leiðum hana að-
eins lengra. Ef við metum það sem svo að hætta sé á
eldsvoða er til lítils að starfrækja slökkvilið á fimmtu-
dögum og í júlí. Það getur nefnilega kviknað í alla
daga vikunnar. Slíkar brunavarnir væru álíka skyn-
samlegar og að kaupa sér hlífðarfrakka til að ganga í
sjötta hvern dag og vona að haustlægðirnar raði sér
heppilega niður á dagatalið.
Telji ritstjóri 24 stunda að hringsól orrustuþotna sé
mikilvægt fyrir öryggi Íslands (en því er ég hjart-
anlega ósammála) hlýtur hann að taka upp baráttu
fyrir endurreisn herstöðvarinnar á Miðnesheiði og
stöðugri viðveru slíkra véla á landinu. Það væri jafn
rökrétt og að halda slökkvistöðinni opinni allan árs-
ins hring og geta gengið að hlífðarfrakkanum inni í
skáp.
„Loftrýmiseftirlit“ það sem svo er nefnt getur því
aldrei talist til raunverulegra varna. Af hálfu íslenskra
ráðamanna er hún sýndarmennska og flottræfils-
háttur – en frá sjónarmiði útlendra herforingja er hún
kærkomin og niðurgreidd æfing fyrir
flugmennina. Ritstjóri 24 stunda get-
ur sleppt því að lesa út úr heimsókn
Frakka teikn um miklar breytingar á
franskri utanríkispólitík. Á tímum
þar sem æfingaflug herþotna er víð-
ast hvar illa séð er ekki skrítið þótt
flugherir bíði í röðum eftir að fá að
leika sér í landi sem býður fram leik-
völl og vasapening í kaupbæti.
Höfundur er formaður Samtaka
hernaðarandstæðinga.
Brunaútköllum sinnt vikulega
ÁLIT
Stefán
Pálsson
stefan.palsson@or.is