24 stundir - 09.05.2008, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Starfsmenn bókasafna hafa lengi
talað um að setja upp svona þjón-
ustu og víða erlendis er hún kom-
in í gagnið. Hérlendis erum við í
startholunum og erum að skoða
þá möguleika sem við höfum til
að koma upp þjónustunni hér.
Okkur hugnast vel sú hugsun að
setja þjónustuna inn í Gegni sem
er bókasafnskerfi fyrir allt landið
en ef til vill mun hún þurfa að
vera utanáliggjandi sérbúnaður,“
segir Ingibjörg Steinunn Sverr-
isdóttir landsbókavörður.
Eftirspurn meðal fræðimanna
Ingibjörg segir slíka þjónustu
vera sjálfsagða í því netsamfélagi
sem við búum í. Þegar fólk skráir
sig í þjónustuna skilgreinir það
þá flokka efnis sem það hefur
áhuga á, til að mynda guðfræði,
stærðfræði, ættfræði eða ljóð svo
eitthvað sé nefnt. Notandinn fær
síðan tilkynningu um nýtt efni í
tölvupósti en einnig verður hægt
að fá tilkynningar um nýja tón-
list, kvikmyndir og annað sem
söfnin bjóða upp á. „Þjónustan
getur nýst vel fyrir fræðimenn
sem vilja fylgjast með í sínu fagi
og fyrirspurnir um þjónustuna
hafa komið frá þeim hópi. Einnig
mun hún nýtast vel fyrir hinn al-
menna borgara sem vill fylgjast
með sínum áhugamálum eins og
veiði eða ljósmyndun svo dæmi
séu tekin. Þá mun það spara mik-
inn tíma fyrir starfsfólk að þurfa
ekki að taka efni frá handvirkt
eins og nú er gert og eins veita
aukna möguleika á öðruvísi upp-
lýsingaþjónustu með nákvæmari
leit,“ segir Ingibjörg.
Íslensk bókasöfn framarlega
Íslensk bókasöfn standa vel að
vígi í upplýsingasamfélaginu. Í
fyrsta lagi ber að nefna gegni.is
sem er heildarkerfi yfir safnkost
flestra bókasafna í landinu þar
sem hægt er að sjá hvað er til. Þá
rekur Landsbókasafn hvar.is þar
sem allir landsmenn hafa aðgang
að erlendu, rafrænu efni svo sem
tímaritum og gagnasöfnum.
Bókasöfnin í landinu greiða að
mestu leyti fyrir aðganginn en
einnig taka margar stofnanir og
einkafyrirtæki þátt í kostn-
aðinum. Í landsaðganginum er
veittur aðgangur að öllu því er-
lenda fræðsluefni sem er nauð-
synleg undirstaða fyrir rann-
sóknir, framhaldsmenntun og
nýsköpun í landinu. Í þriðja lagi
er Landsbókasafn Íslands - Há-
skólabókasafn smám saman að
færa íslenska menningararfinn í
stafrænt form og í sambandi við
það bendir Ingibjörg á vefsíðuna
timarit.is. Þar er búið að færa inn
öll íslensk tímarit til ársins 1920
og einnig er verið að setja inn ís-
lensku dagblöðin hvert af öðru.
Segist Ingibjörg reikna með að öll
dagblöð fram til ársins 2000 verði
komin inn á síðuna innan tveggja
ára, en nú er unnið að því að
endurskoða vefinn og bæta útlit
hans.
Auðvelt leitarkerfi
Nú er unnið að því að bæta leit
á timarit.is með því að ljóslesa
gögnin þannig að hægt sé að leita
eftir einstöku leitarorði í stað
tölublaðs eða blaðsíðunúmers.
Einnig heldur bókasafnið út vefn-
um kort.is þar sem gömlum ís-
lenskum kortum hefur verið safn-
að saman og sagnanet.is þar sem
finna má íslensk handrit og efni
um þau. Eins eru uppi áætlanir
um að setja allar prentaðar bækur
á netið og fikra sig áfram við það
smám saman.
Fagna pdf-skjölum
„Nýjasta nýtt hjá okkur er að
safna saman öllum vefsíðum sem
enda á punktur is. Tæknin gerir
okkur kleift að safna þeim saman
en við höfum ekki náð svo langt
að geta leitað í síðunum eða opn-
að þær og munum fá til okkar er-
lendan sérfræðing í sumar til að-
stoðar við það. Þá höfum við
safnað saman fréttum af atburð-
um í kringum alþingis- og sveit-
arstjórnarkosningar og sett sam-
an í smærri, afmörkuð söfn. Loks
viljum við taka á móti rafrænni
útgáfu s.s. þeim vefritum sem nú
eru komin á netið og viljum
einnig gjarnan fá pdf-skjöl af
prentuðum bókum og dag-
blöðum og erum nú að undirbúa
okkur undir að taka á móti slík-
um skjölum,“ segir Ingibjörg.
Bókasöfn landsins sækja í sig veðrið á netinu og halda úti mörgum vefsíðum
Árvekniþjónusta næsta skrefið
➤ Á vefnum timarit.is hafa núöll íslensk tímarit til ársins
1920 verið færð inn.
➤ Bókasafnið heldur úti vefnumkort.is með gömlum íslensk-
um kortum.
➤ Fólk skráir sig í þjónustunaog skilgreinir þá flokka efnis
sem það hefur áhuga á.
ÁRVEKNIÞJÓNUSTA
Hjá Landskerfi bókasafna
og Landsbókasafni Ís-
lands - Háskólabókasafni
er í bígerð að koma upp
árvekniþjónustu í Gegni.
Með þjónustunni verða
notendur látnir vita þeg-
ar nýtt efni á þeirra
áhugasviði kemur á
bókasafnið og mun hún
spara bæði notendum og
starfsfólki tíma.
Einkaleyfastofan áformar nú að
hægt verði að leggja inn umsóknir
um vörumerki, hönnun, einkaleyfi
og greiðslur á rafrænu formi.
Einkaleyfastofa var sett á laggirnar
1. júlí 1991 og tók þá við hlutverki
einkaleyfa- og vörumerkjadeildar
iðnaðarráðuneytisins. Hlutverk
stofnunarinnar er að fara með
málefni varðandi einkaleyfi, vöru-
merki, hönnunarvernd, byggða-
merki og önnur hliðstæð réttindi
sem kveðið er á um í lögum, reglu-
gerðum og alþjóðasamningum um
vernd eignarréttinda á sviði iðn-
aðar.
ELS-tíðindi
Í blaði sem Einkaleyfastofan gef-
ur út einu sinni í mánuði (ELS-
tíðindi) eru birtar auglýsingar og
tilkynningar er varða umsóknir og
skráningar á sviði einkaleyfa, vöru-
merkja, byggðamerkja og hönn-
unar. Blaðið er birt á heimasíðu
einkaleyfastofu um leið og það
kemur út en er einnig fáanlegt í
prentuðu formi.
Einkaleyfistofa skipuleggur næsta skref
Áformar rafrænar umsóknir
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
HJÁ ATVINNULÍFINU
KEMUR ÞÉR Á KORTIÐ
Tölvunarfræði er afar fjölbreytt fagsvið sem býður upp á marga valkosti fyrir nám og störf,
allt frá hagnýtum verkefnum til fræðilegra, frá umsjón tölvukerfa til smíði flókinna hugbúnaðar-
kerfa, frá forritun til stjórnunar. Tölvunarfræðinám er góður grunnur fyrir starfsferil á fjölmörgum
sviðum.
Tölvunarfræðinám við Háskólann í Reykjavík einkennist af fjölbreytileika og skapandi umhverfi
þar sem nemendum gefst kostur á að vinna verkefni í nánum tengslum við fræðimenn og fyrirtæki.
Við bjóðum nýja nemendur velkomna til náms og starfa við öflugustu tölvunarfræðideild landsins.
BSc í tölvunarfræði (90 einingar)
BSc í hugbúnaðarverkfræði (90 einingar)
BSc í stærðfræði (90 einingar)
MSc í tölvunarfræði
MSc í hugbúnaðarverkfræði
MSc í máltækni
PhD í tölvunarfræði
Kerfisfræðigráða (60 eininga
nám í fjarnámi og með vinnu)
TÖLVUNARFRÆÐI
Tölvunarfræðideild HR býður upp á nám í