24 stundir - 09.05.2008, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
Um 90 prósent landsmanna hafa
aðgang að jarðhita til að kynda hús
sín en íbúar þeirra svæða sem ekki
hafa aðgang að jarðhita og kynda
hús sín með raforku eða olíu njóta
niðurgreiðslna á húshitun. Al-
menn umsýsla með niður-
greiðslum til húshitunar er í hönd-
um Orkustofnunar, sem veitir
frekari upplýsingar og á vef þeirra,
www.os.is.
Heimilt er að veita styrki til nýrra
hitaveitna sem lagðar eru á svæð-
um þar sem áður hefur verið kynt
með rafmagni. Styrkirnir geta
numið allt að átta ára áætluðum
niðurgreiðslum á rafmagni eða ol-
íu til húshitunar á orkuveitusvæði
viðkomandi hitaveitu miðað við
meðalnotkun til húshitunar næstu
fimm ár á undan.
Margir velta því fyrir sér hvort
orku- og heitavatnsnotkunin sé
eðlileg en oft má hafa gagn af við-
miðunartölum. Varmanýting verð-
ur að teljast góð þegar notuð eru
1,2-1,7 tonn (rúmmetrar) af heitu
vatni fyrir hvern rúmmetra hús-
næðis á ári. Á þetta við um með-
alstór einbýlishús. Í stórum húsum
þarf að öllu jöfnu hlutfallslega
minna vatn en í litlum húsum, í
fjölbýli ætti notkun t.d. að vera
hlutfallslega mun minni, vegna
færri útveggja íbúða. Reynslan sýn-
ir að í gömlum húsum þarf yfirleitt
meira vatn til upphitunar en í nýj-
um. Vatnsnotkun til upphitunar
helst í hendur við veðurfar. Það er
eðlilegt að notkun sé nokkuð mikil
á veturna og lítil á sumrin.
svanhvit@24stundir.is
Niðurgreiðsla á húshitun
Greiðsla Þeir sem hafa
ekki aðgang að jarðhita
geta fengið nið-
urgreiðslu á húshitun.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Erlendar kannanir hafa sýnt að Ís-
lendingar hafa ekki haldið í við þau
lönd sem við viljum helst bera okk-
ur saman við, hvað varðar rafræna
þjónustu hins opinbera, að sögn
Margrétar Erlendsdóttur, deild-
arstjóra á sviði stjórnsýslu og
stefnumótunar í félags- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. „Það sem er
svo athyglisvert er að Íslendingar
eru mjög tölvufærir, tölvueign er
mikil og fólk kann að nýta sér raf-
ræna tækni. Það er mikil eftirspurn
eftir þessari þjónustu en framboðið
er ekki eins og það þyrfti að vera.
Það þarf því að efla rafræna op-
inbera þjónustu.“
Aukin sjálfvirkni
Á næstu árum mun því verða
unnið markvisst að því í félags-
og tryggingamálaráðuneytinu
að fjölga rafrænum eyðublöðum
á borð við umsóknir vegna at-
vinnuleysisbóta, fæðingarorlofs
og margt fleira. Margrét segir að
markmiðið hjá ráðuneytinu sé
að efla alla svona þjónustu, bæði
fyrir sitt leyti og hjá stofnunum
ráðuneytisins og að því verður
unnið í samvinnu við þær.
„Stærsta verkefnið sem tengist
félagsmálaráðuneytinu í gegn-
um stofnanir þess er þjón-
ustuvefur Tryggingastofnunar
ríkisins en það er ýmislegt í
þjónustu stofnana ráðuneytisins
sem hægt er að hafa rafrænt,
auka sjálfvirkni og auðvelda
þannig fólki að bera sig eftir
þjónustu. Það er þó ekki þannig
að engin rafræn þjónusta sé í
boði hjá stofnunum ráðuneyt-
isins en hún er mislangt á veg
komin. Grundvallarmarkmið er
að þetta sé til góðs fyrir not-
endur, að auðvelda þeim aðgang
og þetta á líka að koma sér vel
fyrir starfsfólk þessara stofnana
þannig að minni tími fari í
pappírsvafstur og þá er hægt að
einbeita sér að öðrum verk-
efnum. Meginmarkmiðið er að
efla rafræna þjónustu hjá öllum
stofnunum á öllum sviðum þar
sem það er mögulegt.“
Jafnir möguleikar
Margrét segir að þó sé mikilvægt
að
halda því til haga að þegar rafræn
þjónusta er í boði á netinu þá þýðir
það ekki að fólk sem hefur ekki að-
gang að tölvu hafi ekki tækifæri til
að nýta sér vissa þjónustu. „Það
verður lögð áhersla á að allir eigi
jafna möguleika. Nú þegar er tölu-
vert af eyðublöðum sem má finna á
netinu og fylla út en sjálfvirknin í
afgreiðslunni er ekki fyrir hendi.
Við stefnum á að það verði sem
mest sjálfvirkni í afgreiðslu um-
sókna þar sem það er mögulegt,“
segir Margrét og bætir við að áhugi
notenda á rafrænni þjónustu sé
mikill. „Fólki finnst þetta þægilegt
og aðgengilegt. Það eru svo óskap-
lega margir sem hafa tölvur og geta
nýtt sér þá möguleika sem þær
bjóða upp á.“
24Stundir/Kristinn Ingvarsson
Fjölgun rafrænna eyðublaða og aukin sjálfvirkni
Auðveldari aðgangur
fyrir notendur
➤ Rafræn þjónusta hefur aukistjafn og þétt en þó er hægt að
gera miklu betur, að mati
Margrétar.
➤ Rafræn þjónusta er í nokkr-um stigum, allt frá eyðublöð-
um sem þarf að prenta og
senda yfir í rafræn kerfi þar
sem afgreiðslan er meira og
minna sjálfvirk.
➤ Sú rafræna opinbera þjón-usta sem almenningur þekkir
best er í sambandi við skatt-
inn.
RAFRÆN ÞJÓNUSTA
Á næstu árum verður
unnið markvisst að því að
fjölga rafrænum eyðu-
blöðum í félags- og
tryggingamálaráðuneyt-
inu enda sýna kannanir
að Íslendingar eru eftir á í
þeim málum þrátt fyrir
mikla tölvufærni.
Margrét Erlendsdóttir:
„Það verður lögð áhersla á
að allir eigi jafna möguleika.“
Það eru margir sem vilja láta
gott af sér leiða, ferðast til stríðs-
hrjáðra landa og stuðla að friði á
allan mögulegan hátt. Þá er tilvalið
að sækja um starf hjá íslensku frið-
argæslunni en allar upplýsingar
um hana má finna á heimasíðu ut-
anríkisráðuneytisins.
Íslensku friðargæslunni var
komið á fót í núverandi mynd árið
2001. Einn helsti vandi stríðs-
hrjáðra landa er að viðhalda friði. Í
um helmingi þeirra landa þar sem
friður hefur komist á hefjast vopn-
uð átök á nýjan leik innan fimm
ára. Í meira en áratug hefur um-
ræða á alþjóðavettvangi snúist um
það hvernig brúa megi þá gjá sem
hefur verið milli friðargæslu ann-
ars vegar og þróunaraðstoðar hins
vegar. Í því sambandi hafa al-
þjóðastofnanir í auknum mæli lit-
ið til borgaralegra þátta friðar- og
uppbyggingarstarfs. Þátttaka borg-
aralegra starfsmanna í friðargæslu-
verkefnum á vegum Íslands, sem
hófst á síðasta áratug, hefur því
öðlast aukið mikilvægi.
Verk íslenskra friðargæsluliða í
samstarfi við alþjóðasamtök og
-stofnanir hafa verið marg-
breytileg. Í meginatriðum má segja
að tvennt hafi verið haft að leið-
arljósi. Hið fyrra er, að vera til taks
þar sem íslensk reynsla og þekking
nýtist best. Hið seinna er, að leggja
sitt af mörkum til þeirra al-
þjóðastofnana, sem Ísland starfar í
eða hefur samskipti við.
Íslenska friðargæslan í stríðshrjáðum löndum
Stuðlað að friði