24 stundir - 09.05.2008, Síða 56
Afgreiðslustarf
Þórsbakarí bistró
Ármúla 21
Afgreiðslustarf í boði fyrir viðmótsþýðan,
hressan og snyrtilegan starfskraft sem elskar
að bjóða fram góðan mat, frábær og holl
brauð og ómótstæðilegar kökur.
Framtíðarstarf.
Hringið í síma 588 0780 milli kl. 9 og 12.
56 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Þegar ég lít tilbaka þá hefði
ég líklega átt að vera hrædd-
ur en ég var það ekki.
Stride-fyrirtækið, sem er þekktur
tyggjóframleiðandi í Bandaríkj-
unum, hefur ákveðið að leggja
sitt af mörkum til að stuðla að
gerð betri kvikmynda. Fyrirtækið
hefur heitið því að ef milljón
manns skrifar undir bænaskjal,
þar sem leikstjórinn Uwe Boll er
beðinn um að hætta að framleiða
kvikmyndir, fyrir 14. maí muni
fyrirtækið senda hverjum og ein-
um aðila á listanum einn pakka
af tyggigúmmíi. Boll er einn um-
deildasti leikstjóri síðari ára en
hann er fyrst og fremst þekktur
fyrir að gera afskaplega lélegar
bíómyndir, byggðar á tölvu-
leikjum. Nú þegar hafa um
250.000 manns skrifað undir
fyrrnefnt bænaskjal en ljóst er að
meira þarf til ef það á að takast að
bola Boll í burtu. vij
Allir vilja stoppa Uwe Boll
Bresku poppararnir í Oasis munu
í ágústmánuði gefa út sjöundu
breiðskífu sína en platan hefur,
enn sem komið er, ekki fengið
nafn. Nú hafa þrjú lög af plöt-
unni lekið á netið og hafa Oasis-
aðdáendur farið víða til að leita
að lögunum. Lekinn hefur ekki
fallið vel í kramið hjá hljómsveit-
inni og útgáfufyrirtæki þeirra því
stafrænir sporhundar elta nú
uppi þessi lög og eyða þeim hvar
sem þau finnast.
Oasis-lög farin að leka á netið
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Þetta eru mjög spennandi tímar
núna því nú eru svo margir sem
eru að gera heimildamyndir og ég
held að á vissan hátt séu heim-
ildamyndirnar komnar í tísku,“
segir Albert Maysels en hann er
staddur hér á landi til að vera við-
staddur Skjaldborgar-heim-
ildamyndahátíðina sem fram fer á
Patreksfirði um helgina. Maysels er
talinn vera frumkvöðull í gerð
heimildamynda en hin heimsfræga
heimildamynd hans, Gimme Shel-
ter, verður sýnd á hátíðinni.
Á síðasta ári gáfu IDA-samtökin,
sem eru alþjóðleg samtök heim-
ildagerðarmanna, út lista yfir 25
bestu heimildamyndir allra tíma. Á
þeim lista voru þrjár af heim-
ildamyndum Maysels, þar á meðal
Gimme Shelter.
Rolling Stones og Hell’s Angels
Í Gimme Shelter fylgdi Maysels
stórhljómsveitinni Rolling Stones á
tónleikaferð hennar um Bandarík-
in árið 1969 en sú tónleikaferð
endaði með ósköpum. „Þetta var
spennandi, sérstaklega undir lokin
þegar ég áttaði mig á því að ég væri
að mynda sögufrægan atburð.“
Tónleikaferðin endaði með hin-
um skelfilegu Altamont Free-
tónleikum þar sem meðlimir mót-
orhjólagengisins Hell’s Angels sáu
um gæsluna. Tónleikarnir og gæsl-
an fóru algjörlega úr böndunum
og á endanum var einn tónleika-
gestur stunginn til bana af meðlimi
Hell’s Angels. „Þetta var mjög
óhugnanlegt en ég var svo ákveð-
inn í að festa allt á filmu. Þegar ég
lít til baka þá hefði ég líklega átt að
vera hræddur en ég var það ekki.“
Heimildamyndir í tísku
Þökk sé heimildamyndagerð-
armönnum á borð við Michael
Moore og Morgan Spurlock njóta
heimildamyndir nú mikilla vin-
sælda. Maysels segir að það sé mik-
il breyting frá fyrri tímum.
„Nú eru mun meiri tækifæri fyr-
ir fólk til að sjá heimildamyndir.
Það eru kvikmyndahúsin, sjón-
varpstækið, DVD-diskar, netið og
svo framvegis. Þetta er ekki eins og
í gamla daga þegar maður gerði
mynd og beið síðan, líkt og ég
gerði, í mörg ár eftir því að mynd-
in væri sýnd.“
Sannur frumkvöðull Menn
eins og Michael Moore geta
þakkað Maysels fyrir að hafa
lyft heimildamyndunum á
hærra plan.
Frumkvöðull heimildamynda gestur á Skjaldborgarhátíð
Heimildamyndir
komnar í tísku
Einn virtasti heimilda-
myndagerðarmaður
heimsins, Albert Maysels,
er staddur hér á landi.
Mynd hans, Gimme Shel-
ter, er talin 8. besta heim-
ildamynd allra tíma.
➤ Albert vann flestar sínarmyndir með bróður sínum,
David.
➤ Leikstjórinn frægi George Lu-cas vann sem tökumaður við
myndina Gimme Shelter,
meðal annars á hinum frægu
Altamont-tónleikum.
ALBERT MAYSELS
Hancock, hin nýja kvikmynd
Wills Smiths, virðist vera mun
drungalegri og alvarlegri en aug-
lýsingar fyrir myndina hafa gefið
til kynna. Samkvæmt grein í New
York Times hefur myndin tvisvar
sinnum farið í skoðun hjá banda-
ríska kvikmyndaeftirlitinu og í
bæði skiptin hefur myndin fengið
R-stimpilinn, sem þýðir að mynd-
in sé bönnuð innan 17 ára.
„Auglýsingaherferðin fyrir
myndina er mun vinalegri en
myndin sjálf,“ sagði Peter Berg,
leikstjóri myndarinnar, í viðtali við
New York Post og bætti við að
myndin væri mjög trú hinu upp-
runalega kvikmyndahandriti sem
hefur flakkað á milli kvikmynda-
veranna síðastliðinn áratug.
Sony-kvikmyndaverið vill nú að
Berg og lið hans dragi úr hneyksl-
unargildi myndarinnar til að fá
myndina leyfða 13 ára og eldri en
Berg þráast við og vill halda mynd-
inni í því horfi sem hún er í núna.
Því er spurning hvort búið verði
að sótthreinsa myndina af kynlífi
og ofbeldi þegar hún kemur fyrir
sjónir Íslendinga í sumar. vij
Myndin Hancock mun dekkri en talið var
Engin barnamynd
MYNDASÖGUR
Aðþrengdur
JÚ, ÞETTA VAR AÐ GANGA NOKKUÐ VEL HJÁ MÉR.
SVO ÞURFTUM VIÐ AÐ FARA Í STURTU OG GERVI
HÚÐFLÚRIÐ MITT SKOLAÐIST Í BURTU.
Bizzaró
Bizzaró
Lítil gömul kona greip
mig, snéri mér í hringi
nokkra snúninga, svo
stakk hún þessu í
vasann hjá mér.
„Skoðaður
af númer 36“
Ég færist niður löng og dimm göng í
áttina að björtu ljósi .... ég fer í gegnum hlið
inn í ljósið ... þar er löng röð af fólki ...
vinslamlegast tæmið vasana og farið úr
skónum ... ég er látinn sýna skílríki mín
aftur og aftur ...