Morgunblaðið - 17.01.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 33
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, - UPPSELT
Fim 27/1 kl 20, - AUKASÝNING
Lau 29/1 kl 20, - UPPSELT
Su 30/1 kl 20,
Fim 3/2 kl 20 - UPPSELT,
Lau 5/2 kl 20,
Su 6/2 kl 20,
Fö 11/2 kl 20,
Lau 12/2 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14,
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fi 20/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Fö 21/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, Su 6/2
Ath: Lækkað miðaverð
HÉRI HÉRASON
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson,
Í samstarfi við TÓBÍAS
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
FJÖLSKYLDUSÝNING
The Match, Æfing í Paradís, Bolti
Lau 22/1 kl 14
SÍÐASTA SÝNING
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 20/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Su 30/1 kl 20,
Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
gildir ekki á barnasýningar!
Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00
3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR
Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Banki allra landsmanna
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Fjarskalega
leiftrandi og
skemmtileg
sýning.“
H.Ö.B. RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Fös. 21.1 kl 20 Örfá sæti
Lau. 22.1 kl 20 UPPSELT
Fös. 28.1 kl 20 UPPSELT
Sun. 30.1 kl 14 aukasýn.
Fös. 04.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 05.2 kl 20 Nokkur sæti
Fös. 11.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 12.2 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Munið VISA tilboð í janúar
Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir
• Föstudag 21/1 kl 20 UPPSELT
• Laugardag 22/1 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Föstudag 28/1 kl 20 LAUS SÆTI
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
ERLENDAR sinfóníuhljómsveitir
eru býsna sjaldkomular hingað,
hvað þá skólasinfóníu-
hljómsveitir, og gæti
fámenni, húsnæð-
isskortur og land-
fræðileg einangrun
verið meðal orsaka
þess arna. Hvað áhuga-
og ungmennasveitir
varðar má því vel
spyrja hvort ekki ættu
að vera til samtök til
eflingar tónlistar-
samskipta þjóða á milli
– jafnvel keppnir – er
örvað gætu smáþjóðir
utan alfararleiða til
frekari dáða. Það er
engin spurning að með-
al þess sem stendur klassísku tón-
listarlífi landsins mest fyrir þrifum
er einmitt skortur á hvatningu og
samanburði frá hæfilega tíðum
heimsóknum erlendra hljómsveita.
Þessar vangaveltur kviknuðu þeg-
ar Tufts sinfóníuhljómsveitin (TSO),
að sögn ein af stærstu hljómsveitum
samnefnds háskóla í Boston, kom
fram í Grafarvogskirkju á laug-
ardaginn var. Hljómsveitin var um
60 manna, skipuð ungmennum á
„undergraduate“ stigi eða 18–22 ára
aldri, ýmist í tónlistarnámi eða öðru
óskyldu. Ekki af því að núverandi
þrjár íslenzku áhugamannasinfón-
íusveitirnar þyrftu svosem að
skammast sín í þeim samanburði,
enda heyrðist mér TSO hvorki vera
fremri né slakari en gengur og ger-
ist meðal ungmennasveita á svipuðu
reki utan sérhæfðs tónlistarnáms.
TSO hóf leik sinn á glæsilegum
Candide-forleik Leonards Bern-
steins á hóflegum en öruggum
hraða. Alda Ingibergsdóttir söng
síðan með sveitinni fjórstílaaríuna
frægu, Glitter and Be Gay, við flotta
hæð en svolítið óná-
kvæmt og með tak-
markaðri textatúlkun.
Söngkonan fann sig
heyranlega betur í
þýzku óperettuaríun-
um á eftir, Vilja-söng
Lehárs úr Kátu ekkj-
unni og hláturaríunni
úr Leðurblöku J.
Strauss, Mein Herr
Marquis. TSO lék þar-
næst slyðrulítið fimm-
þættu svítuna úr
Carmen Bizets, nema
hvað óbóinu skjöplaðist
illilega í III. þætti.
Sjeherazade, litrík
sinfónísk svíta Rimskíjs-Korsakoffs
um sögur 1001 nætur af Sindbað sæ-
fara, var eftir hlé; langt verk og
nokkuð krefjandi fyrir unga spil-
endur, ekki sízt fyrir hvað það er
þekkt. Þrátt fyrir æsileg ævintýr
sæfarans bar fátt til stórtíðinda í
frekar hægskreiðum flutningi TSO,
er stóð nærri fjórðungi lengur en al-
gengast er eða 50 mín. Þó var skýrt
og afmarkað stjórnað og leikið af
jafnmiklu öryggi og meðalgæði fjöl-
skrúðugs spilendahóps frekast
leyfðu.
Skólasinfónía að vestan
TÓNLIST
Grafarvogskirkja
Verk eftir Bernstein, J. Strauss, Lehár,
Bizet og Rimskíj-Korsakoff. Bostin Tufts
sinfóníuhljómsveitin. Einsöngvari: Alda
Ingibergsdóttir. Stjórnandi: Malka
Sverdlov Yaacobi. Laugardaginn 15.
janúar kl. 16.
Sinfóníutónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Alda Ingibergsdóttir
DANSARI frá Orto Solar-
ballettinum í Mexíkó dansar hér
verkið „Mujeres de Obsidiana“,
eða Hrafntinnukonur, á
Chabacano-neðanjarðar-
lestarstöðinni í Mexíkóborg fyrir
helgi. Sýningunni er ætlað að
vekja athygli á ofbeldi gagnvart
konum.
Dansað gegn ofbeldi
BÍLASTÆÐI Salarins hrukku
vart til handa tónleikagestum á
fimmtudag þegar sex manna
söngvaralið flennifyllti húsið í til-
efni af útkomu fyrstu
tveggja hljómdiska
með lögum Sigvalda
Kaldalóns á vegum
minningarsjóðs tón-
skáldsins, Menningar-
miðstöðvarinnnar
Gerðubergs og
Smekkleysu. Gagnvart
jafnáþreifanlegum vin-
sældum þessa kannski
mesta laglínusnillings
frá gullaldarskeiði ís-
lenzka sönglagsins
enn þann dag í dag,
nærri 60 árum eftir
andlát hans, má með
sanni segja að hljóm-
andi heildarútgáfa á
verkum Kaldalóns hafi
ekki byrjað degi of snemma. Á
það jafnframt við um þann liðlega
fimmtung af lagasjóðnum sem enn
er lítið þekktur og hér hlaut e.t.v.
sitt fyrsta sanngjarna tækifæri til
að öðlast verðskuldaðan hljóm-
grunn.
Hver söngvaranna fór með fjög-
ur lög. Sigrún Hjálmtýsdóttir var
efst á blaði, og einnig í víðara
skilningi, því hvað raddgæði snert-
ir, söngtækni og meistaralega
túlkun stóð enginn henni á sporði
þetta kvöld. Valdið á hljóðfærinu
var algert. Svanasöngur á heiði
gekk í mænuhríslandi endurnýjun
með óvenjuvíðum styrkbrigðum,
og hin erfiða og sérkennilega
Maríubæn lék í höndum hennar
engu síður en barnagælan Bíum,
bíum bamba og göngulagið ljúfa
Hvíslingar.
Tenórarnir hrifu hlustendur
hvor á sinn ólíka
hátt. Jóhann Friðgeir
Valdimarsson einkum
fyrir sópandi kraft-
inn í Vorvísum og
Stormum (nema
hvað!), Snorri Wium
fyrir raddgöfgina og
ljóðrænuna, þótt ætti
samt nægan þrótt
eftir í Svanurinn
minn syngur. Mezzo-
sópransöngkonurnar
áttu sameiginlegt að
tefla fram fullfáum
litbrigðum, en fóru
að öðru leyti ágæt-
lega með sín lög. Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir
var svipsterkust í
Betlikerlingunni, er bauð einnig
upp á magnaðan sjónleik. Hvað
litbrigðaekluna varðar liggur við
að megi kalla Sesselju Kristjáns-
dóttur löglega afsakaða, þökk sé
að mínu viti hljómfegurstu mezzo-
rödd lýðveldisins sem auðveldlega
dáleiðir hlustandann undan þeirri
bláköldu staðreynd – þrátt fyrir
innlifun og tónnæmi í þverpokum
– að raddbeitingin er meira eða
minna eins.
Ólafur Kjartan Sigurðarson
hreppti heiðurssess síðasta ræðu-
manns og flutti sín lög af ómót-
stæðilegri söng- og leikgleði; í Á
Sprengisandi með þvílíkum eld-
móði að örnefnið varð óhugn-
anlega trúverðugt. Hinzta kveðja
myndaði aftur höfuga legató-
andstæðu, og enn aðra og ver-
búðakersknari Hún Kata litla í
koti. Endað var á nótum epískrar
dramatíkur í Við Kaldalón, og
mátti vart kreista meiri fjöl-
breytni fram úr aðeins fjórum
lögum. Jónas Ingimundarson
studdi hér sem í undangengnu við
sönginn af landskunnri fylgni í
undirleik, og vakti athygli að
syngjandi ásláttarmýktin skilaði
sér engu síður á Steinwayflygil
hússins en á Bösendorferinn sem
hingað til hefur verið kjörharpa
píanistans.
Úr söngvasjóði Sigvalda
TÓNLIST
Salurinn
Einsöngslög eftir Sigvalda Kaldalóns.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Snorri
Wium tenór, Sigríður Aðalsteinsdóttir
mezzósópran, Jóhann Friðgeir Valdimars-
son tenór, Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran og Ólafur Kjartan Sigurð-
arson barýton. Jónas Ingimundarson
píanó. Fimmtudaginn 13. janúar kl. 20.
Einsöngstónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Sigvaldi
Kaldalóns