Morgunblaðið - 25.01.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.01.2005, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSLENSK myndlistarkona, Hanna Ólafs- dóttir, sem búsett er í Danmörku, mynd- skreytir nýja handbók um þroskaferil barna, 0–10 ára, sem LEGO-leikfangafyr- irtækið sendir frá sér um næstu mán- aðamót. Vinna við bókina sjálfa, sem skrif- uð er af breskum barnasálfræðingi, hefur staðið í nokkur ár, en Hanna var kölluð til starfans seint á síðasta ári og beðin að myndskreyta hana. Alls eru fimmtán myndir eftir hana í bók- inni auk þess sem hún aðstoðaði við hönnun bókarinnar, þ.m.t. bókarkápu. Voru komnir langt frá upphaflegu hugmyndinni Að sögn Hönnu hafði LEGO haft uppi áform í nokkurn tíma um að gefa út hand- bók fyrir starfsmenn sína sem nýtast myndi við þróun barnaleikfanga. Verkið sé mjög viðamikið, bókin um 250 blaðsíður, og á seinni stigum hafi verið ákveðið að selja það öðrum fyrirtækjum, s.s. IKEA, Pampers og fleiri aðilum sem þróa vörur handa börnum. Bókin verður kynnt í næsta mánuði á LEGO-ráðstefnu í London og í kjölfarið verður henni dreift til starfsmanna fyrirtækisins um allan heim og síðan sett í almenna sölu. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig að þeir skyldu velja mig til að sjá um allar myndskreytingar,“ segir Hanna, en þetta er í fyrsta sinn sem LEGO ræðst í verkefni af þessu tagi. Bók- inni er skipt upp eftir þroskastigum barna og hvað örvar þau og vekur áhuga þeirra hverju sinni. „LEGO hefur verið komið svo- lítið langt frá sinni upphaflegu hugmynd um þróun barnaleikfanga. Þeir eru núna að fara til baka og spyrja hver var upphaflega ástæðan fyrir því að við fórum að gera LEGO?“ Búsett í Danmörku í níu ár Hanna hefur búið í Danmörku sl. níu ár, fyrst við nám, en hefur undanfarin fimm ár haft atvinnu af myndlistinni eingöngu. „Það er frábært að takast á við þetta og líka sem myndlistarmaður. Núna eftir á, þegar ég er að mála, skjóta hugmyndir upp kollinum í málverkum sem eru eiginlega tengdar LEGO-verkefninu, sem er frekar skemmtilegt.“ Að sögn Hönnu settu forsvarsmenn LEGO sig í samband við hana. Þeir höfðu ákveðið að hafa ljósmyndir í bókinni en vildu bæta við myndskreytingum sem myndu ýta við ímyndunarafli lesenda. „Þeir voru að skoða póstkort frá ýmsum listamönnum og duttu niður á verk eftir mig og þannig var haft samband við mig,“ segir Hanna, sem hafði mjög frjálsar hendur við vinnu sína og sótti m.a. innblástur til barnanna sinna. Myndskreytir stóra bók frá LEGO Ein af myndum Hönnu sem prýða bókina.Hanna ásamt yngsta syni sínum, Tindi Snæ. LANDSVIRKJUN hefur óskað eft- ir tilboðum í rannsókn á rústum á Hálsi við Jökulsá á Brú sunnan Kárahnjúka. Sjálft útboðið fer fram 1. mars næstkomandi. Rústirnar munu fara í kaf þegar Hálslón myndast. Páll Pálsson frá Aðalbóli fann rústirnar við smalamennsku haustið 2003 og er með kenningu um að þarna sé fundið svonefnt Reykjasel, sem kemur við sögu í Hrafnkels sögu Freysgoða. Segir þar af smal- anum Einari sem reið í óleyfi hesti Hrafnkels, honum Freyfaxa, og kom í þetta sel í leit að týndum sauðum. Gert er ráð fyrir að vettvangs- rannsókn hefjist í sumar og að henni ljúki í haust, en verkefninu á að vera lokið að fullu haustið 2006. Að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar felur verkið í sér rannsókn með uppgreftri á tveimur samliggjandi rústum, forvörslu forn- gripa sem finnast, töku og greiningu sýna, ásamt greinargerð og skýrslu um rannsóknina. Að sögn Sigurðar Arnalds hjá Landsvirkjun benda forrannsóknir á öskulagi þarna til þess að rústirnar séu a.m.k. eldri en frá árinu 1262 og hugsanlega eldri en frá 1150. Landsvirkjun býður út rannsókn á rústum við Kárahnjúka Sel frá dögum Hrafnkels Freysgoða? Morgunblaðið/ÞÖK Páll Pálsson á Aðalbóli við rústirnar sem hann fann við Jöklu. HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær rúmlega tvítugan mann í hálfs árs fangelsi fyrir fíkni- efna- og umferðarlagabrot. Í dómi segir að við ákvörðun refsingar verði að líta til þess að auk hass og amfetamíns, maríjúana og kókaíns hafði ákærði töluvert magn af E-töflum sem hann hafði til sölu. Um sérstaklega saknæma og hættulega háttsemi hafi verið að ræða og taka bæri hart á þeim að- ilum sem gerðust sekir um dreif- ingu og sölu hættulegra fíkniefna. Sérstaklega í ljósi þess að öðrum ungmennum stafaði ógn af þeim. Dómurinn segir að hins vegar leiðist ungmenni sem ánetjast fíkni- efnum oft út í vítahring við fjár- mögnun á eigin neyslu og leiðist þá sjálf út í sölu á fíkniefnum til þess að geta fjármagnað eigin neyslu. Sú hafi verið raunin í þessu máli. Í ljósi alvarleika brotsins og að mað- urinn, sem fæddur er 1981, hafi ætlaði að selja hættuleg fíkniefni í ágóðaskyni væri hæfileg refsing hans hálfs árs fangelsi Nokkrum sinnum hafði lögregla afskipti af manninum í september, október og nóvember sl. Hafði hann þá samtals um 550 grömm af hassi í fórum sínum, 50 E-töflur, rúm 13 grömm af amfetamíni, á annað gramm af kókaíni og rúm 3 grömm af maríjúana. Ólöf Péturs- dóttir dómstjóri dæmdi málið. Verj- andi var Hilmar Ingimundarson hrl. og sækjandi Karl Vilbergsson fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi. Hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot ÍSLAND er í fimmta sæti á lista yfir hvernig ríki heims standa sig varð- andi sjálfbæra þróun, samkvæmt nið- urstöðum alþjóðlegs rannsóknar- verkefnis sem nefnist Environmental Sustainability Index (ESI). Þetta kemur fram í frétt sem birtist í The New York Times í gær. Löndin fjögur sem lenda ofar en Ísland á listanum eru Finnland, Noregur, Úrúgvæ og Svíþjóð, en í sjötta til tíunda sæti listans lenda Kanada, Sviss, Gyana, Argentína og Austurríki. Í greininni kemur fram að það eru lönd í Norður- og Mið-Evrópu ásamt Suður-Amer- íku sem lenda í efstu sætum listans af þeim 146 löndum sem á honum eru, en botnsæti listans verma lönd á borð við Norður-Kóreu, Haítí, Taívan, Írak og Kúveit. Listinn er unnin af vísindamönnum í Yale- og Columbia-háskólunum í Bandaríkjunum í samvinnu við stofn- unina World Economic Forum, og er hann birtur í tengslum við fund stofn- unarinnar í Sviss síðar í vikunni. Er þetta í annað sinn sem slíkur listi er unninn fyrir stofnunina, fyrra skiptið var árið 2002, en þá lenti Ísland í 8. sæti. Löndin á listanum eru metin út frá 75 aðskildum mæliþáttum, þeirra á meðal er árangur landanna við að viðhalda eða bæta loft- og vatnsgæði, hlutfall barna sem deyja úr öndunar- færasjúkdómum, fólksfjölgun, of- veiði, losun gróðurhúsalofttegunda og brennisteinstvíildi sem á þátt í svo- nefndu súru regni og samvinna landa við önnur lönd um umhverfisvernd- armál. Aðstandendur ESI taka fram að enn sem komið er sé listinn ekki ná- kvæmur vegna skorts á upplýsingum á ýmsum sviðum en engu að síður veiti hann nokkra vísbendingu um hvernig löndin standa sig þangað þar til betri og öflugri tæki finnast til þess að mæla frammistöðu þjóða á þessu sviði. Ánægjuleg staðfesting „Það er mjög ánægjulegt að fá þarna staðfestingu á því að við stönd- um mjög vel og það hvetur okkur svo sannarlega til að gera enn betur,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, þegar Morgun- blaðið leitaði viðbragða hennar. „Þessi niðurstaða sýnir í raun góða stöðu okkar hvað þessi mál snertir. En við erum t.d. sú þjóð í heiminum sem hefur besta stöðu hvað orkunotk- un varðar því 70% af allri okkar orku er endurnýjanleg orka,“ segir Sigríð- ur Anna og bendir á að íslensk stjórn- völd hafi auk þess markað sér skýra stefnu hvað varðar sjálfbæra þróun og vísar hún þar m.a. til skýrslunnar Velferð til framtíðar sem birt var 2002. Að sögn Sigríðar Önnu á nú í vetur að fara yfir stefnu mála og end- urskoða skýrsluna, en sjálfbær þróun verður aðalefni umhverfisþings sem haldið verður í október nk. Þar munu koma saman fulltrúar stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga, atvinnulífs, um- hverfisverndarsamtaka og annarra félagasamtaka auk almennings. Segir ekkert um hvernig til hefur tekist með náttúruvernd „Sjálfbær þróun byggist á þremur stoðum, þ.e. umhverfisvernd, fé- lagslegri velferð og efnahagslegri þróun sem bitni þó ekki á umhverfinu. Hvað varðar efnahagslega þróun og félagslega velferð þá stöndum við Ís- lendingar afar framarlega, enda ein af ríkustu þjóðum heims, en það segir í sjálfu sér ekkert um hvað okkur hefur tekist vel í umhverfismálum eða nátt- úruvernd,“ segir Árni Finnsson, for- maður Náttúruverndarsamtaka Ís- lands. „Íslensk stjórnvöld eru t.d. að ganga á auðlindir okkar á hálendi Ís- lands án þess að blikna og hafa enn ekki sett sér nein skýr markmið um verndun hálendis Íslands sem er okk- ar auðlegð,“ segir Árni og veltir fyrir sér hvort verndun óspilltrar náttúru hafi verið meðal þeirra 75 mæliþátta sem tekið var tillit til í fyrrnefndri rannsókn. „Ég held að við megum einnig taka okkur töluvert á t.d. varðandi útblást- ur gróðurhúsalofttegunda, en það gildir reyndar um flest iðnríkin,“ seg- ir Árni og nefnir að í lok skuldbind- ingartímabils Kyoto-samningsins ár- ið 2012 sé gert ráð fyrir að losun á hvern Íslending verði 11,6 tonn, að stóriðjulosun frátalinni. „Það segir eitthvað um okkar „sjálfbæra lífsstíl“ að við erum að menga gríðarlega mik- ið þrátt fyrir alla þá hreinu orku sem við höfum aðgang að,“ segir Árni og bendir á að 98% húshitunarorku Ís- lendinga sé frá vatnsorku eða jarð- varma. „Það þarf því að draga úr los- un frá fiskveiðum og samgöngu- geiranum.“ Ísland talið framarlega á sviði sjálfbærrar þróunar         !"  # #                    ! "   ## $%  & #&'     !"#$%& '   !" ( ") *   +!,*- ' . ,   /012 /  3455              (

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.