Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
niður þó um launatekjur sé að ræða annars stað-
ar frá.
Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið að
þegar ákvörðun var tekin um að taka upp eft-
irlaunamálið á sínum tíma hefði verið um það
fullt samkomulag milli formanna allra stjórn-
málaflokkanna að fara fram með málið. Hug-
myndin hefði verið sú að gera þeim sem hefðu
gegnt stjórnmálastörfum lengi auðveldara um
vik að láta af störfum, en hugmyndin hafi alls
ekki verið sú að bæta kjör þeirra sem færu úr
HALLDÓR Ásgrímsson, forsætisráðherra, seg-
ir að skoða verði eftirlaunamál fyrrum ráðherra
á nýjan leik og breyta núgildandi reglum í þeim
efnum. Hann segist munu beita sér fyrir að það
verði gert.
Fram hefur komið að sjö fyrrum ráðherrar
sóttu um eftirlaun úr ríkissjóði á síðasta ári.
Hluti þeirra átti rétt sökum aldurs samkvæmt
eldri lögum, en hinir öðluðust réttinn með nýjum
lögum sem sett voru í árslok 2003 og tóku gildi í
ársbyrjun 2004. Eftirlaunarétturinn fellur ekki
stjórnmálastörfum og væru í föstum störfum hjá
hinu opinbera.
Halldór sagði að breytingarnar sem gerðar
hefðu verið á eftirlaunamálum ráðherra með
nýju lögunum hefðu haft það í för með sér að eft-
irlaunaaldurinn hefði færst niður fyrir 65 ár sem
hefði gilt samkvæmt eldri lögum. Það atriði hefði
hins vegar ekki verið til umfjöllunar, en þetta
gæfi tilefni til þess að farið yrði yfir málið á nýj-
an leik og lögunum breytt að þessu leytinu til og
hann muni beita sér fyrir því að það verði gert.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um eftirlaunamál ráðherra
Mun beita sér fyrir breyt-
ingum á núgildandi reglum
FORNLEIFARANNSÓKNIR hér á
landi sumarið 2004 verða til umræðu á
ráðstefnu í Þjóðminjasafninu laugar-
daginn 29. janúar næstkomandi. Félag
íslenskra fornleifafræðinga stendur að
ráðstefnunni.
Fornleifauppgröftur var stundaður
óvenju víða um landið sumarið 2004.
Þar munar mest um framlag Kristnihá-
tíðarsjóðs, sem stofnaður var til að
minnast þess að þúsund ár voru liðin
frá því að kristinn siður var lögtekinn
hér á landi. Einnig hafa Fornleifasjóð-
ur, sveitarfélög, byggðasöfn og Rannís
lagt verkefnum á sviði fornleifafræði
lið.
Ragnheiður Traustadóttir, fornleifa-
fræðingur og stjórnandi Hólarannsókn-
arinnar, segir að stærstu rannsóknirnar
hér á landi síðastliðið sumar hafi verið
stundaðar á Hólum í Hjaltadal, að Gás-
um í Eyjafirði, í Skálholti, á Skriðu-
klaustri og á Þingvöllum. Á ráðstefn-
unni verður gerð grein fyrir þessum
rannsóknum og ýmsum smærri rann-
sóknum.
Fjallkona í 600 metra hæð
Óvæntasti fornleifafundur síðasta
árs telur Ragnheiður að hafi verið
þegar „fjallkonan“ fannst í 600 metra
hæð í stórgrýtisurð skammt frá fornri
gönguleið á Vestdalsheiði, um 10-15
kílómetra frá Seyðisfirði. Sá fundur
jók mjög fjölda skartgripa sem hér
hafa fundist frá víkingatíma og höfðu
gripirnir varðveist einkar vel á þess-
um stað.
Sigurður Bergsteinsson, fornleifa-
fræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins,
mun greina í fyrsta sinn opinberlega
frá rannsókn á þessum fornleifafundi
á ráðstefnunni næstkomandi laugar-
dag.
Fornleifarann-
sóknir síðasta
sumars kynntar
Fjallkon-
an á Vest-
dalsheiði
kom mest
á óvart
ÚTFÖR Gunnars Friðrikssonar,
fyrrverandi forseta Slysavarna-
félags Íslands, var gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í gær, að
viðstöddu fjölmenni. Séra Sig-
urður Jónsson í Odda jarðsöng.
Barnabörn Gunnars báru kistu
hans úr kirkju. Þau voru: Gunnar
Friðriksson yngri, Gunnar Freyr
Rúnarsson, Sigurður Narfi Rún-
arsson, Unnur Friðriksdóttir, Mar-
grét Sæmundsdóttir, Kristján
Unnar Kristjánsson, Jón Sæ-
mundsson og Gunnar Heimir
Kristjánsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Útför Gunnars Friðrikssonar
DAGUR Kári Pétursson, kvikmyndagerðar- og
tónlistarmaður, hlaut íslensku bjartsýnisverð-
launin 2004. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands og verndari verðlaunanna, afhenti Degi
verðlaunin við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni,
listasafni Kópavogs, í gær. Dagur Kári hlaut
verðlaunagrip úr íslensku áli auk 500 þúsund kr.
verðlaunafé.
„Þetta eru ótrúlega skemmtileg verðlaun að
fá. Þau er bæði eitthvað svo dularfull og svo
bjart yfir þeim,“ segir Dagur Kári og bætir því
við að verðlaunin hafi komið honum mjög á
óvart. „Það er einvalalið í þessari valnefnd sem
sér ástæðu til þess að vera bjartsýnt fyrir mína
hönd og maður verður bara snortinn yfir því,“
segir Dagur Kári.
Dagur sem er fæddur árið 1973 þykir hafa
sannað sig sem listamaður þrátt fyrir ungan ald-
ur. Hann stundaði nám í kvikmyndaleikstjórn
við Den Danske Filmskole frá 1995–1999. „Verk
Dags Kára hafa vakið mikla athygli. Útskrift-
arverkefni hans Lost Weekend sópaði til sín við-
urkenningum og Nói Albínói hefur vakið athygli
um allan heim. Dagur Kári er nú að ljúka við
gerð myndarinnar Voksne mennesker og er
frumsýning á henni áætluð í maí á þessu ári í
Danmörku. Auk þess að leggja stund á kvik-
myndalist er Dagur Kári afkastamikill tónlist-
amaður en hann skipar ásamt Orra Jónssyni tví-
menningshljómsveitina Slowblow,“ segir í
tilkynningu.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru menning-
arverðlaun, sem fyrst voru afhent árið 1981. Al-
can á Íslandi hefur verið bakhjarl verðlaunanna
frá því að upphafsmaður þeirra, Daninn Peter
Bröste, afhenti þau í síðasta sinn árið 1999.
Meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaunin eru
margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar,
m.a. Garðar Cortes, Björk Guðmundsdóttir,
Helgi Tómasson, Einar Már Guðmundsson og
Sigrún Eðvaldsdóttir.
Dagur Kári Pétursson hlaut
íslensku bjartsýnisverðlaunin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dagur Kári Pétursson, kvikmyndagerðar- og tónlistarmaður, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, við afhendingu íslensku bjartsýnisverðlaunanna í Gerðarsafni í Kópavogi í gær.
SÍÐDEGIS á föstudag kærði
maður þjófnað á yfirhöfn frá veit-
ingahúsi í miðborginni til lögregl-
unnar í Reykjavík.
Maðurinn sagði um að ræða
mjög sérstakan frakka sem væri
forngripur, 75 ára gamall. Hann
sagði að jakkinn væri síður, með
brjóstvasa og áberandi breiðum
kraga. Ekki væri þó gott að segja
til um verðmæti frakkans þar sem
hann væri forngripur.
Fornum frakka stolið