Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 13
ÚR VERINU
Hafnargata 57, Keflavík S. 421 5222
www.icehotels.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
8
17
GISTU Á FLUGHÓTELINU Í KEFLAVÍK
svo flú getir sofi› lengur á›ur en flú fl‡gur
af sta› í fríi›. A›eins 5 mínútna akstur til
flugstö›varinnar.
Gisting í tveggja manna herbergi kostar
a›eins 3.500 kr. á mann og innifali› er
stæ›i fyrir bílinn í upphita›ri bílageymslu í
allt a› flrjár vikur.
GISTING Í TVEGGJA MANNA HERBERGI
3.500 KR. Á MANN
MIKIL vinna hefur verið við loðnu-
frystingu og frá því í desember
hafa verið fryst um 1500 tonn hjá
Hraðfrystistöð Þórshafnar.
Þegar svona vinnutörn stendur
yfir er unnið er á sólarhring-
svöktum og skapast þá gjarnan sér-
stök stemming og mikill kraftur er
á mannskapnum.
Um 170 tonn voru fryst á einum
sólarhring í liðinni viku og var þá
boðið upp á veislumat á vöktunum,
lambalæri og tilheyrandi svo starfs-
fólkið var vel haldið.
Frystingin hefur gengið mjög
vel, að sögn verkstjóra en nýlega
var skipað út um 1.000 tonnum af
frystri loðnu frá Hraðfrystistöðinni
og Þorsteini ÞH og er það ein
stærsta útskipun sem hér hefur
verið.
Fjör á loðnuvöktum
Morgunblaðið/Líney
Loðnufrysting Hanna Sigfúsdóttir er vön að standa vaktir á vertíðinni.
PHILIPPE Darthe-
nucq hefur verið ráð-
inn framkvæmda-
stjóri SIF France,
dótturfélags SÍF hf. í
Frakklandi. Philippe
Darthenucq, sem er
47 ára, hefur starfað hjá mat-
vælafyrirtækinu Labeyrie Group
frá 1990 en starfaði áður við
sölu- og markaðsmál hjá alþjóð-
lega fyrirtækinu Colgate-Palm-
olive. Hjá Labeyrie hóf Philippe
Darthenucq störf sem aðalbók-
ari, varð síðar sölustjóri hjá
Labeyrie í Frakklandi og loks
yfirmaður sölu- og markaðsmála
félagsins.
Ákveðið hefur verið að Xavier
Govare verði forstjóri yfir starf-
semi SÍF hf. í Frakklandi og
undir hann heyri bæði Labeyrie
Group og SIF France. Xavier
Govare, sem er 46 ára, gegndi
stöðu forstjóra Labeyrie Group
þegar SÍF keypti félagið á síð-
asta ári. Hann hefur starfað hjá
Labeyrie frá árinu 1989 og hefur
víðtæka reynslu úr viðskiptalíf-
inu. Meðal fyrri starfa má nefna
stjórn markaðsmála hjá alþjóð-
lega fyrirtækinu CPC
International og fram-
leiðslustjórn hjá efna-
framleiðandanum
Ciba Geigy.
Roland Wolfrum,
sem gegnt hefur starfi
framkvæmdastjóra SIF France,
snýr aftur til sinna fyrri starfa
sem framkvæmdastjóri fjármála
SIF France. Aðrir fram-
kvæmdastjórar hjá SIF France
eru: Sigurður Pétursson, fram-
kvæmdastjóri kælisviðs, Guð-
mundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri frystisviðs og
Pascal Roth, framkvæmdastjóri
saltfisksviðs.
Fjármálastjóri Labeyrie Gro-
up er Philippe Perrineau. Hann
mun einnig bera höfuðábyrgð á
fjármálum SÍF hf. í Frakklandi.
Philippe Perrineau, sem er 48
ára, hefur starfað hjá Labeyrie
frá árinu 2000. Hann hóf starfs-
feril sinn hjá endurskoðunar-
félaginu KPMG. Áður en Phil-
ippe Perrineau kom til Labeyrie
gegndi hann ýmsum störfum hjá
alþjóðlega fyrirtækinu Chargill í
Frakklandi og víðar.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
SIF France AFLI íslenzkra loðnuskipa á vertíðinni er núorðinn 110.000 tonn. Erlend skip hafa landað
6.000 tonnum og því hafa verksmiðjurnar
tekið á móti ríflega 116.000 tonnum.
Mest af loðnu hefur nú borizt til Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað, 20.500 tonn,
samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fisk-
vinnslustöðva. Eskja á Eskifirði er næst með
tæp 20.000 tonn, 16.000 tonn hafa borizt til
Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, HB Grandi
á Vopnafirði hefur tekið á móti 13.000 tonn-
um og loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði er með
12.800 tonn. Aðrar verksmiðjur eru með
minna.
Það sem af er árinu hafa skip Eskju land-
að yfir 20.000 tonnum af loðnu og hefur afl-
anum öllum verið landað hjá Mjöl- og lýs-
isvinnslu félagsins á Eskifirði. Jón
Kjartansson SU-111 kom um helgina með
fullfermi af loðnu og er þá heildarafli skip-
anna kominn í 21.500 tonn. Hólmaborg hefur
landað um 11.500 tonnum og Jón Kjartans-
son rétt tæplega 10.000 tonnum. Eskja á nú
eftir af úthlutuðum loðnukvóta sínum um
45.000 tonn, samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu félagsins.
Norsku skipin eru nú komin með um
31.500 tonn samkvæmt tilkynningum þeirra
til Landhelgisgæzlunnar. 25 skip mega vera
að veiðum hverju sinni og svo er nú auk þess
sem nokkur eru innan lögsögunnar og bíða
eftir að komast að. Norsku skipin mega nú
veiða alls 78.600 tonn og hafa leyfi til að taka
allan sinn kvóta fram til 15. febrúar.
Skip Eskju
með 21.500
tonn af loðnu
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
HAGNAÐUR
Sparisjóðs Kópa-
vogs (SPK) á
árinu 2004 nam
134 milljónum
króna eftir
skatta. Árið áður
nam tap sjóðsins
8 milljónum. Arð-
semi eigin fjár
eftir skatta var
22,1% í fyrra
samanborið við 1,2% neikvæða arð-
semi á árinu 2003.
Meginskýringin á auknum hagn-
aði SPK milli ára er 165 milljóna
króna lægra framlag á afskrift-
areikning útlána nú en árið áður.
Framlagið 2004 var 57 milljónir en
222 milljónir 2003 vegna 114 milljóna
króna afskriftar skuldbindinga eins
aðila við sparisjóðinn.
Hreinar vaxtatekjur SPK jukust
um tæp 11% á milli ára og voru 389
milljónir króna. Hreinar rekstrar-
tekjur námu 627 milljónum og jukust
um rúm 11%.
Útlán til viðskiptamanna námu 8,2
milljörðum og jukust um 43%. Inn-
lán námu 6,6 milljörðum, sem er
7,5% aukning. Eigið fé nam 734
milljónum í lok ársins 2004 og jókst
um rúm 15% á árinu og CAD-eig-
infjárhlutfall var 12%.
SPK hagnast um
138 milljónir
%++,
%++,
"!.
/!".
!
/'
0
112
-!
31 4-156
+
HAGNAÐUR Sparisjóðsins í Kefla-
vík, SpKef, á árinu 2004 nam 409
milljónum króna samanborið við 604
milljónir árið áður, sem er nær þriðj-
ungsminnkun á milli ára.
Hreinar vaxtatekjur SpKef jukust
um 7% á árinu og námu 770 millj-
ónum. Hreinar rekstrartekjur dróg-
ust hins vegar saman um 10% í 1.655
milljónir mest vegna talsvert minni
gengishagnaðar af annarri fjármála-
starfsemi en árið áður. Þar liggur
jafnframt skýringin á minni heildar-
hagnaði ársins.
Innlán SpKef námu í lok ársins
2004 11,8 milljörðum króna og er það
aukning um 9% á milli ára. Útlán
sjóðsins jukust
hins vegar um
28% og námu 20,7
milljörðum.
Eiginfjárhlut-
fall samkvæmt
CAD-reglum er
12,56% en var
14,95% á sama
tíma árið áður.
Arðsemi eigin
fjár var 17,3%.
Áætlanir SpKef fyrir árið 2005
gera ekki ráð fyrir eins góðri afkomu
og árið 2004 og skýrist það einkum af
þeim gengishagnaði sem varð af
annarri fjármálastarfsemi árið 2004.
Hagnaður SpKef
409 milljónir króna
%++,
%++,
" .
!#" .
&
%
0
112
-
31 7
457
+
LAGT hefur verið lögbann við því að
fjórir af fimm fyrrum starfsmönnum
SÍF og Iceland Seafood Internation-
al ráði sig í þjónustu Seafood Union
ehf. eða haldi við slíkri ráðningu,
hvort heldur sem launþegar, ráðgjaf-
ar, stjórnarmenn eða sjálfstæðir
verktakar eða taki á nokkurn annan
hátt þátt í starfsemi Seafood Union
til 30. júní 2005. Sem kunnugt er
sögðu starfsmennirnir upp störfum
fyrir áramót og stofnuðu fisksölufyr-
irtæki sem ætlað er að fara í beina
samkeppni við SÍF og Iceland Sea-
food.
Sýslumaðurinn í Reykjavík sam-
þykkti í gær lögbannskröfu á hendur
fjórmenningunum en kröfu um lög-
bann á fimmta starfsmanninn var
hafnað. Segir í tilkynningu frá SÍF að
vegna tæknilegra atriða hafi sýslu-
maður ekki talið ráðlegt að leggja
lögbann á störf hans. Þeirri niður-
stöðu verði vísað til héraðsdóms.
Alls sögðu átta starfsmenn SÍF og
Iceland Seafood International upp
störfum um áramót og hófu sam-
keppni við félagið en SÍF krafðist
lögbanns á hendur fimm þeirra. Seg-
ir í tilkynningu SÍF, að stjórnendur
félagsins hafi ítrekað óskað eftir við-
ræðum við starfsmennina vegna
starfsloka þeirra hjá félaginu en þeir
hafi alfarið hafnað þeim óskum.
„Reyndu að skaða félagið“
Stjórnendur SÍF og Iceland Sea-
food telja þessa niðurstöðu sýslu-
manns eðlilega og sanngjarna og hún
renni stoðum undir þau sjónarmið að
viðkomandi starfsmenn hafi brotið
gegn ráðningarsamningum sínum og
skuldbindingum með því að hefja
samkeppni við félagið. Enn fremur
að tímasetning og umgjörð uppsagna
þessara starfsmanna hafi verið með
þeim hætti að markmiðið hafi verið
að reyna að skaða félagið og dóttur-
félög þess. Benda þeir jafnframt á að
ólíðandi sé að starfsmenn noti tíma
sinn í vinnu fyrir félögin til að und-
irbúa samkeppni við þau.
Kristinn Björnsson, lögmaður Sea-
food Union, segir lögbannið vissulega
takmarka frelsi þeirra aðila sem það
Lögbann lagt á fjóra
fyrrum starfsmenn SÍF
er lagt á en eftir eigi að reyna á það
fyrir dómi hvort um lögmæta aðgerð
sé að ræða. Kristinn segir að gerð-
arbeiðanda [SÍF] beri að höfða mál
innan viku til staðfestingar á lög-
banninu. Þá reyni á hvort þessi
ákvörðun sýslumanns um lögbann
hafi verið lögmæt. Verði hún fundin
ólögmæt, þá geti gerðarbeiðandinn
orðið bótaskyldur gagnvart þeim að-
ilum sem lögbannið hefur verið lagt
á.