Morgunblaðið - 25.01.2005, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
AKUREYRI
ÍBÚAR í Síðuhverfi á Akureyri
gerðu sér glaðan dag um helgina,
en þeir efndu til þorrablóts í
hverfinu og var það haldið í Síðu-
skóla. Formaður hverfisnefndar,
Elín Magnúsdóttir, bauð gesti vel-
komna og að því búnu tóku menn
vel til matar síns. Dýrleif Skjóldal
flutti annál ársins á léttum nótum
og þá var farið í leiki sem ungir og
aldnir tóku þátt í. Staðarskála-
systur, Inga og Elín, stjórnuðu
fjöldasöng, öll börn undir fermingu
fóru á svið og sungu nokkur lög við
góðar undirtektir og loks var stiginn
dans. Um 120 manns mættu á blótið
sem nú var haldið fyrsta sinni en
ráðgert að gera að árlegum viðburði.
Hverfisnefnd Síðuhverfis og stýri-
hópur verkefnisins Barnið í brenni-
depli efndu sameiginlega til þorra-
blótsins.
Morgunblaðið/Kristján
Þorrablót Íbúar Síðuhverfis, jafnt börn sem fullorðnir, skemmtu sér vel
á blótinu í Síðuskóla og er ráðgert að halda þorrablót í hverfinu árlega.
Gerðu sér glaðan dag
Upplýsingatækni | Fræðslufundur á
vegum skólaþróunarsviðs kenn-
aradeildar verður haldinn í dag, þriðu-
daginn 25. janúar. Anna Ólafsdóttir,
Med., aðjúnkt við kennaradeild Háskól-
ans á Akureyri, flytur erindi sem hún
kallar: Notkun upplýsinga- og sam-
skiptatækni í námi og kennslu í Háskól-
anum á Akureyri. Fræðslufundurinn,
sem er öllum opinn, verður í stofu 16 í
húsnæði kennaradeildar, Þingvall-
astræti 23, og hefst kl. 16.15.
Neskaupstaður | Á mörgum
heimilum landsmanna eru hald-
in gæludýr af hinum ýmsu gerð-
um en það er væntanlega sjald-
gæft að dómpápi sé gæludýrið.
Fjölskyldan á Þiljuvöllum 32
í Neskaupstað, þau Stefanía
Huld Guðmundsdóttir og
Hjálmar Jóhannsson, ásamt
börnum sínum, eru þó með einn
slíkan í fóstri. Dómpápi er mjög
skrautlegur smáfugl og flækist
stöku sinnum hingað til lands.
Fuglinn sem er í fóstri á Þilju-
völlunum flaug á glugga fyrir
tæplega þremur mánuðum og
dasaðist mikið við höggið. Hlúð
var að honum og síðan er hann
búinn að vera sem gæludýr á
heimilinu og dafnar vel. Ekki er
búið að ákveða hvort honum
verður gefið frelsi með batnandi
tíð og blómum í haga í sumar.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Vel haldinn Dómpápinn sem
fóstraður er í Neskaupstað.
Með dóm-
pápa sem
gæludýr
Skákmót | Nemendur í Brekkuskóla og
Lundarskóla stóðu sig vel á barna- og
unglingaskákmóti sem KB banki stóð
fyrir í samvinnu við Skákfélag Akureyr-
ar í Lundarskóla um helgina. Kepp-
endur voru um 35 talsins og var keppt í 9
aldursflokkum drengja og tveimur ald-
ursflokkum stúlkna og miðað við bekkj-
ardeildir grunnskólanna. Í drengja-
flokki urðu úrslit þessi: 10. bekkur;
Ólafur Evert Úlfsson Lundarskóla, 9.
bekkur; Eyþór Gylfason Lundarskóla,
8. bekkur; Ólafur Ólafsson, Brekku-
skóla, 7. bekkur; Gunnar Atli Eggerts-
son Lundarskóla, 6. bekkur; Alexander
Arnar Þórisson Giljaskóla, 5. bekkur;
Kári Arnarson, Brekkuskóla, 4. bekkur;
Mikael Jóhann Karlsson, Brekkuskóla,
2. bekkur; Úlfur Logason, Brekkuskóla,
1. bekkur; Hlynur Friðriksson, Gler-
árskóla. Í stúlknaflokki urðu úrslit
þessi: 9. bekkur; Guðrún Hilmarsdóttir,
Lundarskóla, 4. bekkur; Lára Ein-
arsdóttir, Brekkuskóla.
Í FYRSTA sinn standa nú yfir mælingar á loftmengun á
Akureyri og munu þær standa fram í apríl. Þær fara
fram í mælistöð sem er á horni Glerárgötu og Tryggva-
brautar og fengin var að láni hjá Reykjavíkurborg.
Mældir eru tveir þættir, svifryk og köfnunarefnisoxíð.
Hægt er að fylgjast með mælingunum á vefnum
www.loft.rvk.is sem er sérstakur loftmælingavefur
Reykjavíkurborgar. Töflur og gröf merkt „færanleg
mælistöð“ koma frá Akureyri. Mælingarnar eru sam-
starfsverkefni Akureyrarbæjar og Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands eystra. Á vef Akureyrarbæjar segir að til-
gangurinn með mælingunum sé að fá vísbendingu um
hugsanlega loftmengun á Akureyri. Fyrirfram er gert
ráð fyrir að styrkur ofangreindra efna sé langt fyrir neð-
an þau mörk sem talin eru skaðleg, en t.d. er talið að á
köldum og kyrrum vetrardögum geti styrkur köfnunar-
efnisoxíðanna á Akureyri nálgast viðmiðunarmörkin.
Fleiri þættir koma til álita þegar loftgæði eru metin, en
talið er að þeir, sem mældir eru að þessu sinni, gefi góða
vísbendingu um loftgæðin á Akureyri.
Loftmengun mæld
ÁÆTLAÐ er að um eitt þúsund
manns hafi lagt leið sína í
Skautahöllina á Akureyri um
helgina, en á laugardag var bæj-
arbúum boðið að nýta sér aðstöð-
una endurgjaldslaust. Hægt var
að fá lánaða skauta án þess að
greiða fyrir það sérstaklega og
féll það vel í kramið hjá bæj-
arbúum sem fjölmenntu í skauta-
höllina og renndu sér af miklu
kappi um svellið. Heilsuefling-
arráð og Skautahöllin stóðu fyrir
þessum skautadegi sem tókst í
alla staði vel. Heilsuátakið „Einn,
tveir og nú!“ stendur sem hæst
um þessar mundir, hófst á liðnu
hausti og stendur fram á vor, en
markmið þess er að fá íbúa bæj-
arins til að hreyfa sig meira.
Þúsund á skautum
Bryggjuhverfi | Hugs-
anlegt er að bryggjuhverfi
verði byggt við Mjóeyr-
arvík á Eskifirði. Um-
hverfisnefnd Fjarðabyggð-
ar fjallaði á dögunum um
uppdrætti og greinargerð
skipulagsfulltrúa sveitar-
félagsins um málefnið. Er
áætlaður heildarkostnaður
við slíka framkvæmd um
140 milljónir króna og lóð-
ir um 40 talsins. Fyrir
liggur að verði farið í upp-
byggingu bryggjuhverfis
við Mjóeyrarvík þurfi að
gera hættumat vegna of-
anflóða, aflétta strand-
vernd á svæðinu og breyta
aðalskipulagi. Bæjarráð
Fjarðabyggðar mun fjalla
fljótlega um málið.
Þorri | Þorrablótshald geis-
ar nú um Austurland sem og
aðra landsfjórðunga og var
riðið á vaðið að kveldi bónda-
dags, föstudagsins 21. jan-
úar. Má búast við að þorra-
blótshrinunni ljúki ekki fyrr
en nokkuð er liðið á febr-
úarmánuð. Eru þorrablót
austanlands skv. lauslegri
talningu á þriðja tuginn og
fleiri hundruð vinnustundir
fólks í fjórðungnum hafa far-
ið í undirbúning skemmti-
atriða, kartöfluskrælingar,
niðurskurð og uppröðun súr-
matar, svo eitthvað sé nefnt.
Umhyggja | Börn sem taka
þátt í starfi Egilsstaðakirkju
hugsa til þeirra sem um sárt
eiga að binda vegna hamfar-
anna í Asíu. Börnin gáfu
rúmar þrettán þúsund krón-
ur sem renna munu til hjálp-
arstarfs á flóðasvæðunum.
Neskaupstaður | Hópur áhuga-
manna um stofnun „Strætóm-
injasafns“ gekk á föstudag frá
kaupum á strætisvagni Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað. Kaup-
verð vagnsins er ein króna.
Á vef Síldarvinnslunnar, sem
greinir einatt frá fleiru en bein-
hörðum útgerðarfréttum, segir að
vagninn sé fyrsti sjálfskipti bíllinn
sem Strætisvagnar Reykjavíkur
eignuðust á sínum tíma, en hann
var tekinn í notkun árið 1973 og
hóf feril sinn á leið 2 í Reykjavík.
Bíllinn kom til Norðfjarðar í nóv-
ember 1993 og hefur verið í notkun
hjá Síldarvinnslunni síðan og séð
um að ferja starfsfólkið utan úr bæ
í Neskaupstað og inn í bræðslu og
fiskiðjuver. Starfsfólk Síldarvinnsl-
unnar kveður strætóinn sinn því
með söknuði.
Hans Sigfússon hefur keyrt bíl-
inn frá upphafi, en hann hefur ver-
ið opinber strætóbílstjóri hjá Síld-
arvinnslunni í rétta þrjá áratugi.
„Ég er búinn að vera fastráðinn í
þessari keyrslu frá því árið 1975 en
var þá búinn að vera í afleysingum
frá 1961,“ segir Hans. „Þetta er
þriðji strætóinn sem ég keyri hjá
Síldarvinnslunni og hafa þeir allir
verið keyptir frá Reykjavíkurborg.
Sá fjórði var sömuleiðis keyptur
þaðan. Þar áður var hér Dodge-
vagn sem kom frá Akureyri og
Chevrolet árgerð 1947 á undan hon-
um. Það er sennilega búið að keyra
starfsfólkið hjá Síldarvinnslunni í
lokuðum farþegabílum frá því árið
1957,“ segir Hans.
Kaupendur vagnsins stefna að því
að koma á fót strætósafni og er
markmiðið að koma vagninum í
upprunalegt horf og mála hann
grænan og hvítan. Þeir sem komu
að ná í vagninn voru þeir Hall-
grímur P. Gunnlaugsson, Valdimar
Jónsson og Kjartan Pálmason, segir
á sildarvinnslan.is.
Öðruvísi útgerðarfrétt
Síldarvinnslan selur strætó
Ljósmynd/Síldarvinnslan
Sá gamli seldur á krónu Hans Sigfús-
son strætóbílstjóri til þrjátíu ára af-
hendir Hallgrími P. Gunnlaugssyni
lyklana.
Djúpivogur | Þau Margrét Vilborg
Steinsdóttir, André Sandö og
Sandra Sif Karlsdóttir skemmtu sér
afskaplega vel á skautum og hjóli á
risastóru svelli sem myndast hefur á
söndunum utan við Djúpavog. Svæð-
ið er mjög vinsælt til útivistar og
hefur verið þar margt um manninn
undanfarna daga. Fólk er á skaut-
um, gönguskíðum, sleðum, eða bara
á göngu með börnin sín eða fjalla-
hundana. Litadýrð lággengrar sólar
umvefur mannfólkið á þessum blíð-
viðrisdögum þorra.Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Leikið í lita-
dýrð á þorra