Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 26

Morgunblaðið - 25.01.2005, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. R íkisstjórnin tók formlega ákvörðun um að sækjast eftir sæti í Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna árið 1998. Allar götur síð- an hefur legið ljóst fyrir að framboðið sjálft og síðan þátttaka í ráðinu yrði mjög kostnaðarsöm. Engar fjárhæðir hafa þó verið nefndar opinberlega fyrr en nú að Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður heldur því fram opinber- lega að kostnaður framboðsins geti orðið á bilinu 800 til 1.000 milljónir króna að óbreyttu. Vill hann að ís- lensk stjórnvöld hætti við framboðið. Utanríkisráðuneytið hefur ekki fengist til að stað- festa þennan kostnað. Kostnaðaráætlun var kynnt ut- anríkismálanefnd Alþingis í nóvember sl. en end- anlegar tölur munu þó ekki liggja fyrir. Ekki er sjálfgefið hvaða útgjöld utanríkisþjónustunnar má heimfæra með beinum hætti undir framboðið til Ör- yggisráðsins en skv. heimildum Morgunblaðsins er sú upphæð sem Einar Oddur heldur fram ekki fjarri lagi, jafnvel hóflega áætluð ef eitthvað er. Ríki sem sóst hafa eftir sæti í Öryggisráðinu hafa þurft að leggja í mikinn kostnað vegna kosningabar- áttu sinnar. Þegar Norðmenn náðu kosningu til Ör- yggisráðsins árið 2000 lýsti Halldór Ásgrímsson, þá- verandi utanríkisráðherra, því yfir í Morgunblaðsfrétt 12. október sama ár að barátta Norðmanna hefði kostað mikla fjármuni og það ylli áhyggjum m.t.t. til framboðs Íslands síðar, hversu hár kostnaður Norðmanna varð. ,,Norðurlöndin munu þurfa að hafa sig öll við til að halda sinni stöðu,“ sagði Halldór. Stærsta verkefnið Framboð Ísland til Öryggisráðs SÞ er án efa eitt stærsta verkefni sem utanríkisþjónustan hefur tekist á við til þessa. Tvö sæti eru í boði í ráðinu fyrir full- trúa frá hinum svonefnda vestræna ríkjahópi og ljóst er að framundan er hörð kosningabarátta, þar sem bæði Austurríki og Tyrkland hafa tilkynnt framboð til Öryggisráðsins fyrir sama tímabil. Lengi vel voru það eingöngu Ísland og Austurríki sem höfðu tilkynnt framboð fyrir tímabilið 2009–2010 en eftir að Tyrkland bættist í hóp framboðsríkja varð borðleggjandi að Íslendingar stæðu frammi fyrir um- fangsmikilli og harðri kosningabaráttu. Aðeins tvö af ríkjunum þremur ná kosningu. Skv. heimildum Morg- unblaðsins er farið að bera á efasemdum um mögu- leika Íslendinga á að ná kosningu, þrátt fyrir ötult kynningarstarf og undirbúning á vettvangi utanrík- isþjónustunnar. Aðrir eru þó þeirrar skoðunar að vel gæti svo farið að Íslendingar næðu kjöri. Markmiðið með framboðinu er ekki að sækjast eft- ir beinum ávinningi fyrir íslenska hagsmuni, heldur styrkja stöðu og virðingu Íslands meðal þjóða og hafa áhrif á alþjóðavettvangi. Stuðningur og vilyrði hafa fengist frá allmörgum ríkjum Framboð Íslands hefur verið kynnt á undanförnum misserum og kynningarefni sent til aðildarþjóða SÞ. Þá hafa borist stuðningsyfirlýsingar og vilyrði frá „allmörgum“ ríkjum eins og það er orðað í samtölum við viðmælendur á vettvangi utanríkisþjónustunnar. Hafa slík vilyrði um stuðning fengist frá ríkjum í öll- um heimsálfum. Hefur m.a. verið sótt um stuðning til smærri ríkja en utanríkisráðuneytið er enn sem kom- ið er ófáanlegt til að gefa upp ákveðna tölu um fjölda þeirra ríkja sem hafa lofað að greiða Íslandi atkvæði. Þá ber að hafa í huga að vafasamt er að slík loforð haldi í öllum tilvikum þegar á hólminn er komið í kosningunum sjálfum haustið 2008. „Talið er að oft séu það um 25 til 30 ríki sem standi ekki við gefin lof- orð um stuðning,“ segir í greinargerð utanríkisráðu- neytisins frá í desember 2002, en hún var tekin sam- an vegna undirbúnings að framboði Íslands. Þar segir að takmarkið í kosningabaráttun fá loforð um stuðning eins margra ríkja og n legt sé til að ná kosningu til setu í Öryggi „Algert lágmark er væntanlega að hafa s nógu margra ríkja til að uppfylla skilyrði sto SÞ um 2⁄3 greiddra atkvæða í allsherjarþingin ná kjöri. Oft er reynt að fá skriflega staðfe loforðum um stuðning þótt því sé líka haldið ekki skipti máli hvort slík loforð séu skrif munnleg, aðalatriðið sé að þau séu afgerandi. mennt þarf að gera ráð fyrir því að loforð um ing haldi ekki alltaf á sama hátt og atkvæð samningar eru ekki alltaf tryggir,“ segir þar. Fjölga starfsmönnum og þjálfa Kosningarnar sjálfar fara fram haustið 20 ríki á sæti á allsherjarþinginu sem kýs til se yggisráðinu. Kosningarnar eru leynilegar. Rí tilheyra svonefndum Vesturlandahópi (WEO framboði annað hvert ár og eru þá tvö ríki framboðsríkja þeirra kosin til tveggja ára Norðurlandahópurinn býður fram í annað hve sem ríki úr WEOG eru í framboði, þ.e.a.s. á ára fresti. Danir tóku sæti í Öryggisráðinu u ustu áramót. Framboð Íslands er um leið norrænt fram út frá því gengið að Norðurlöndin muni st framboð Íslands og vinna því fylgi. Ísland er í hópi fárra ríkja innan Vesturlan ins sem aldrei hafa átt aðild að Öryggisráðin eru þetta smáríki á borð við Liechtenstein, og San Marínó. Mörg dæmi eru þó um að smærri ríki hafi á Öryggisráði SÞ. Alls hafa 36 ríki með færri milljón íbúa átt þar fulltrúa að því er fram rannsókn sem Þröstur Freyr Gylfason stjó fræðingur vann fyrir utanríkisráðuneytið ár vegna framboðs Íslands til Öryggisráðsins. Þ einnig að nái Ísland kjöri yrði það fámennas sem tekið hefur sæti í ráðinu. „Ísland þarf að fjölga starfsmönnum, þjál starfa á vettvangi alþjóðlegra stofnana og byg þekkingu á störfum Öryggisráðsins, áður e ingabaráttan hefst, til þess að tryggja að þess verði tekið alvarlega og njóti nægilegs sagði í áðurnefndri greinargerð utanríkisrá isins. Stjórnmálasambandi komið á við yfir 40 ríki á fjórum árum Einn mikilvægasti þáttur undirbúnings að f Íslands er stofnun stjórnmálasambands við r hingað til hefur ekki verið stjórnmálasamb Stofnun stjórnmálasambands hefur yfirlei fram á milli fastanefnda í New York og felu sér að ríkin skiptist á sendiherrum. Hefur ver ið á stjórnmálasambandi við fjölmörg ríki anförnu. Skv. yfirliti utanríkisráðuneytisin október sl. búið að koma á stjórnmálasamb 163 ríki. Aðeins fjórum árum fyrr eða árið 20 Ísland stjórnmálasamband við tæplega 120 rík Mikil og kostnaðarsöm kosningabarátta fram Vaxandi ef um mögul Fréttaskýring | Meiri þungi er að færast í kosningabaráttu utanrík- isþjónustunnar vegna framboðs Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2009 og 2010. Efasemdir eru þó komnar upp um að hár kostnaður réttlæti eftirsókn Ís- lendinga eftir sæti í ráðinu. Fram- undan er umfangsmikil og hörð kosningabarátta. Ómar Friðriksson fjallar um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Taki Íslendingar sæti í Öryggisráði SÞ þarf Ís AFL EVRÓPU Í annað sinn á innan við viku hafaEvrópusambandsríkin sýnt að þauhafa burði til að standa jafnfætis Bandaríkjunum þegar þau leggja saman krafta sína. Í síðustu viku fögnuðu Evr- ópuríkin nýju risaþotunni frá Airbus, sem ógnar veldi Boeing í Bandaríkjun- um. Ferð geimfarsins Huygens til Tít- ans, tungls Satúrnusar, síðar í vikunni var einkar vel heppnuð. Árangur af evr- ópskum geimrannsóknum þykir mark- verður, þrátt fyrir að Evrópuríkin verji aðeins um fjórðungi þess fjár á hvern íbúa sem Bandaríkin nota til geimferða. Sem efnahagsveldi geta Evrópuríkin í sameiningu skákað Bandaríkjunum. Á sviði tækni og vísinda geta þau náð sama eða betri árangri, eins og smíði Airbus- þotunnar og afrekin í geimnum sýna. En sem pólitískt veldi á alþjóðavísu stendur Evrópusambandið Bandaríkjunum langt að baki. Þar kemur einkum tvennt til; hvort tveggja heimatilbúinn vandi ESB-ríkjanna. Annars vegar gengur þeim illa að móta sér sameiginlega utanríkisstefnu. Þau eru svifasein í ákvarðanatöku og ólík saga og hefðir leiðandi ríkja innan ESB valda sífelldum árekstrum. Hins vegar hafa Evrópuríkin dregizt veru- lega aftur úr Bandaríkjunum hvað hern- aðargetu varðar. Þau verja ekki nægum fjármunum til varnarmála og hafa auk þess að mörgu leyti yfir úreltum herafla að ráða; hafa alltof marga menn undir vopnum, alltof marga skriðdreka og orr- ustuþotur en vantar flutningsgetu til að koma herliði um langan veg með skömmum fyrirvara og skortir hátækni- vopn og vel þjálfaðar úrvalssveitir til að fást við óvini langt frá heimaslóðum. Evrópuríkin eru enn upp á Bandaríkin komin, jafnvel þegar við öryggisvanda- mál í þeirra eigin bakgarði er að glíma, eins og kom svo skýrt í ljós í ófriðnum á Balkanskaga. Evrópu skortir ekki fjármuni og þekkingu til að endurnýja herafla sinn. Bandaríkjamenn eru raunar boðnir og búnir að veita Evrópuríkjunum aðgang að eigin hernaðartækni til að gera þeim kleift að hressa upp á varnir sínar, rétt eins og þeir eru tilbúnir til nánis sam- starfs við þau í geimferðum. Það er póli- tíski viljinn sem skortir. Og um leið blasir við að það umkvörtunarefni Evr- ópumanna, að Bandaríkin komist upp með of mikið á alþjóðavettvangi og séu of einráð, er að mörgu leyti þeirra eigin heimatilbúna vandamál. Með því er ekki sagt að evrópskur herafli, sem væri einhvers megnugur, yrði einhvers konar mótvægi við herafla Bandaríkjanna. Þvert á móti verður að ætla að eftir sem áður taki Bandaríkin og Evrópa í sameiningu á ýmsum ógn- um og hættum á alþjóðavettvangi. En ef Evrópa byggi yfir sambærilegum hern- aðarmætti og Bandaríkin gæti hún jafn- framt gert tilkall til sömu áhrifa á hinar pólitísku lausnir, sem leitazt er við að finna á ýmsum deilum og vandamálum. Því að jafnvel sá, sem vill beita friðsam- legum, pólitískum lausnum og forðast stríð, nær betri árangri ef menn trúa því að hann sé reiðubúinn að beita hervaldi í síðustu lög ef samningar duga ekki. Það væri þess vegna gott fyrir al- þjóðakerfið og myndi stuðla að meira jafnvægi í alþjóðastjórnmálum ef Evr- ópuríkin tækju sig saman í andlitinu og efldu hernaðarmátt sinn og ákvarðana- töku í utanríkismálum. Afrek þeirra í efnahagsmálum, flugvélasmíð og geim- ferðum sýna að þau eru þess vel megn- ug. FORELDRUM VANTREYST Þrátt fyrir mikilsvert hlutverkgrunnskólanna við menntun barna hlýtur meginábyrgðin á uppfræðslu þeirra og þroska ávallt að hvíla á herð- um foreldranna. Að sama skapi verður alla jafna að treysta foreldrum til að meta stöðu barna sinna í námi og veita þeim aðstoð og hvatningu eftir þörfum. Um þetta eru sjálfsagt flestir sam- mála. Nema starfsmenn Námsmats- stofnunar, að því er virðist, en stofnunin hefur sent foreldrum grunnskólabarna í 4. og 7. bekk bréf, þar sem mælst er til þess að þeir undirbúi börn sín ekki sér- staklega fyrir samræmd könnunarpróf sem fara fram í byrjun febrúar. Í bréfinu stendur meðal annars: „Ekki er ástæða fyrir foreldra að und- irbúa börnin sérstaklega fyrir prófin enda eru þau hluti af hefðbundnu skóla- starfi.“ Aðspurður hvers vegna foreldr- um séu send þessi tilmæli svarar sviðs- stjóri prófadeildar hjá Námsmats- stofnun því í Morgunblaðinu í gær að ekki sé ætlunin að keyra upp prófa- stress hjá börnunum vegna könnunar- prófsins. Hann segir kerfisbundna upp- rifjun innan veggja skólans vera mun gagnlegri fyrir börnin en að þau séu til dæmis að fara í gegnum gömul próf með foreldrum sínum. Það er erfitt að átta sig á slíkum hugsanagangi. Sjúklegur prófkvíði get- ur vissulega verið vandamál í ein- stökum tilvikum. En almennt hlýtur venjulegur taugatitringur nemenda fyrir próf frekar að flokkast undir heil- brigðan metnað en sjúkdómsvætt kvíðahugtak. Og spyrja má hversu góð- ur undirbúningur það er undir lífið að komast í gegnum grunnskólanám án þess að þurfa nokkru sinni að „stressa“ sig fyrir próf? Þeir sem hafa reynslu af skólakerfum í helstu viðmiðunarlönd- unum vita aukinheldur að óhóflegar kröfur eru síst að sliga íslenska grunn- skólanema, miðað við jafnaldra þeirra annars staðar. Öllu heldur bendir ým- islegt til þess að kröfurnar mættu vera ívið meiri. Vitaskuld á að treysta foreldrum til þess að meta hvort börn þeirra hafa gagn af undirbúningi fyrir próf. Vand- séð er hvernig slík aðstoð foreldra get- ur skaðað nemendur, sem væntanlega fá sína „kerfisbundu upprifjun“ í skól- anum eftir sem áður. Próf hafa þann til- gang, auk þess að mæla og bera saman kunnáttu nemenda, að hvetja þá til að tileinka sér námsefnið. Það er orðin æði öfugsnúin forræðishyggja þegar ríkis- stofnun mælist sérstaklega til þess að foreldrar stuðli ekki að próflestri barna sinna. Slík forræðishyggja gagnvart for- eldrum er reyndar ekki einsdæmi innan menntakerfisins. Minna má á að for- eldrar leikskólabarna eru víðast skikk- aðir til að taka sér fjögurra vikna sam- fellt sumarfrí á ákveðnum tíma vegna sumarlokana leikskólanna, í nafni „fag- legs skólastarfs“. Foreldrum er þannig ekki treyst til að meta það hvernig best sé að skipuleggja sumarleyfi barnsins og þar með allrar fjölskyldunnar. Sum- arlokanir leikskólanna í Reykjavík skila Leikskólum Reykjavíkur sáralitlum sparnaði, en valda foreldrum og at- vinnurekendum miklum vandræðum ár hvert.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.