Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.01.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR N ýlega fagnaði ég tuttugasta og ní- unda afmælisdeg- inum og gantaðist með það við vini mína að nú væri ég kominn á „út- sölualdur“. Því fylgdi sú hnyttna skýring (að mínu mati) að þetta væri í síðasta skipti sem fólk heyrði hvað ég væri gamall og segði: „Hva – bara næstum tvítug- ur?“ rétt eins og þegar kaupmað- urinn lætur vöruna kosta 29.900 og einhvers staðar í undirmeðvit- undinni halda kúnnarnir að hún kosti nálægt 20.000 kr. Á þessum tímamótum rifjast oft upp skemmtilegar minningar og þar með einn af mínum uppáhalds- köflum úr íslenskri bók, þegar prakkararnir Jón Oddur og Jón Bjarni gæddu sér á jarðarberja- tertunni sem móðir þeirra hafði bakað. Þeim fannst berin svo góð að þeir átu bara eitt í einu, til þess að mamma myndi nú ekki taka eftir því. Þeir hugsuðu sem svo að það væri allt í lagi að taka eitt ber, og síðan annað. Ekki þarf að fjölyrða um það að kakan var orðin býsna berangursleg þeg- ar þeir bræður höfðu satt hungur sitt og jarðarberin fínu voru öll komin góða leið niður melting- arveginn. Þetta er einmitt ein af þeim leið- um sem hvað tíðast eru farnar af þeim sem þurfa að valda skaða á umhverfinu. Þeir valda skaða á einum stað í einu, aftur og aftur, þangað til ekkert er eftir. Þetta sést fullvel á nýútkomnu korti sem tíu íslensk náttúruverndarsamtök hafa gefið út undir nafninu „Ísland örum skorið“. Þrátt fyrir að vera umhverfis- verndarsinni (og nokkuð alræmd- ur sem slíkur) hafði mig aldrei grunað að málið liti svona út. Það verður ósköp lítið eftir af fallega hálendinu okkar þegar hinir fram- kvæmdaglöðu hafa náð, með því að narta í eina á í einu, markmiði sínu um uppbyggingu stóriðj- unnar hér á landi. Stóriðju, sem í besta falli er umdeilanlegt hvort veldur samfélagi okkar meiri hag eða skaða. Ásgeir Jónsson, lektor í hag- fræði við HÍ, sagði í viðtali við Morgunblaðið nú á sunnudaginn, 23. janúar, að þjóðhagsleg áhrif stóriðju væru stórlega ofmetin. Engin nauðsyn væri á uppbygg- ingu hennar, þar sem hagvöxtur hér á landi væri í raun óháður henni. Ísland væri ekki í sömu stöðu og þróunarlönd, sem þyrftu að reiða sig á eina eða tvær fram- leiðslugreinar til að leiða hag- kerfið áfram. Ekki þyrfti að byggja álver til að tryggja hag- vöxtinn eða standa straum af vel- ferðarkerfinu eins og svo oft væri viðhaft. Það væru íslenskir at- vinnurekendur fullfærir um, en hæfni þeirra til þess hefði berlega komið í ljós á undanförnum árum. Ég fagna því að nú er Lands- virkjun ekki lengur í einokunar- stöðu til að gefa út litprentaða bæklinga um málstað sinn. Hingað til hefur þetta annars ágæta fyrir- tæki nefnilega unnið nokkuð hörð- um höndum að því fegra eyðilegg- ingu hálendisins fyrir almenningi og réttlæta það sem mér þykir vægast sagt kæruleysisleg nýting á viðkvæmri auðlind. Það hefur líka loðað við undanfarið að nokk- uð langt sé gengið í að ófrægja þá fræðimenn sem hafa talað gegn stóriðjunni. Það er vonandi að hin- um ágæta lektor í hagfræði verði leyft að njóta sannmælis. Eins og ég hef áður sagt er besta leiðin til að byggja upp þetta land að hafa vel og fjölbreytilega menntað vinnuafl með góðan að- gang að stuðningi og fjármagni til að koma hugmyndum sínum í verk. Samfélagið þrífst nefnilega best þegar fólk fær að prófa sig áfram og leita hamingjunnar á eig- in forsendum. Í því ljósi finnst mér t.d. furðulegt að framsóknarmenn í Skagafirði skuli vilja virkja jökul- árnar þegar þeir hafa í héraðinu mikinn fjölda af kláru og vel menntuðu fólki sem er að vinna við uppbyggingu fjölbreytts atvinnu- lífs þar og atvinnuleysi er í raun í lágmarki. Fólksflóttinn frá lands- byggðinni er tímabundinn og óhjá- kvæmilegur fylgifiskur borg- arvæðingar Íslands og þróunin mun væntanlega snúast við þegar menn átta sig á því að það er betra að búa vel að einstaklingum og styðja þá í þeirra verkefnum en að reyna að troða þeim ofan í fyr- irfram ákveðna kassa með X mörgum störfum. Stjórnmálamennirnir okkar tala oft hátíðlega um það að við verð- um að „nýta þær auðlindir sem við höfum á þessu litla landi úti í miðju Atlantshafi“. Þessu er ég sammála, en það er munur á því að „nýta“ og „nota“. Nýtinn maður myndi leita leiða til að fá sem mest út úr hverri orkueiningu og gæta þess að fara í hófi með þennan tak- markaða forða, til að sóa honum ekki til langframa, en sá sem ekki nýtur þessarar guðsgjafar myndi leita að skjótfengnasta gróðanum til skamms tíma. Hann „notar“ svo sannarlega auðlindirnar, en hann nýtir þær ekki vel. Sá maður bruðlar og sukkar, sem er einmitt það sem einkennir stóriðjustefn- una og það er kominn tími til að fólk átti sig á því. Raforka er best nýtt sem stoðafl fyrir háþróað hagkerfi en ekki sem hráefni fyrir framleiðsluhagkerfi. Mér finnst ég sjá einhvern lax- og minkaeldisglampi í augum manna, einhverja von um skjót- fenginn gróða, dálítið eins og glampann sem var í augunum á mönnum þegar verðbréfa- og upp- lýsingatæknibólan var í þann mund að springa framan í þá hér um árið. Þekkingariðnaður og há- tækni eru ekki eins og eitthvert fljót sem maður getur stíflað og horft á „gróðann sprautast út“. Þekkingariðnaður og verð- bréfamarkaður, rétt eins og raf- orkan, eru best nýtt þegar þau eru stoðeiningar í flóknu hagkerfi, en ekki sem hráefni í framleiðslu- hagkerfi. Þekkingariðnaður þrífst í frelsi, rétt eins og hagvöxturinn. Þess vegna ættu menn að sjá hag sinn í því að stíga á bremsuna, slaka á stóriðjustefnunni og sjá hvernig þjóðinni reiðir af ef þeir einbeita sér að því að byggja vel undir innviði atvinnulífsins í stað þess að handstýra því. Þá gætum við, börnin okkar og börnin þeirra lifað í landi velmegunar og heil- brigðrar náttúru. Nýtt Ísland Ekki þarf að fjölyrða um það að kakan var orðin býsna berangursleg þegar þeir bræður höfðu satt hungur sitt og jarð- arberin fínu voru öll komin góða leið niður meltingarveginn. VIÐHORF Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is ✝ Einar Hansenfæddist í Krist- iansund í Noregi 28. ágúst 1906. Hann andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði að kvöldi 15. janúar síð- astliðins. Foreldrar Einars voru Krist- ofer Hansen og Kristin Lövik. Hálf- bróðir Einars er Lor- entz Tjelle, f. 3.12. 1918, d. 9.8. 1996, kvæntur Elsu Tjelle, f. 20.6. 1923. Einar kvæntist 25. desember 1942 Guðmundu Guð- mundsdóttur, f. 6. október 1924. Hún er dóttir Guðmundar Berg- marsson, f. 1966. Börn þeirra eru Vala María, f. 1988, Ásta Sæunn, f. 1991, Íris Tinna, f. 1993, Olga Dröfn, f. 1994 og Sigurður Sjafn- ar, f. 1996. C) Einar Bragi, f. 1968. 2) Drengur, andvana fæddur 1946. 3) Kristín Nanna, f. 1947, maki Tómas Sigurbjörnsson, f. 1948. Börn þeirra eru: A) Einar Hansen, f. 1971, maki Ebba Áslaug Krist- jánsdóttir, f. 1971. Börn þeirra eru Kristín Nanna, f. 1995 og Halldóra Elín, f. 2002. B) Sigríður María, f. 1976, maki Haukur Þór Hannes- son, f. 1976. Sonur þeirra er Kári Tómas, f. 2002. C) Andri Þór, f. 1979, maki Ásdís Helga Jóhannes- dóttir, f. 1981. Sonur þeirra er Tumi Steinn, f. 2004. 4) Elsa, f. 1952, maki Torsten Gunnarsson, f. 1955. Synir þeirra eru Richard Þór, f. 1987, d. 1989 og Kristoffer, f. 1992. Útför Einars verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. mann Jónssonar frá Blönduósi, f. 16. mars 1900, d. 31. janúar 1924 og Sigríðar Kristínar Jónsdóttur frá Hrófá í Stein- grímsfirði, f. 2. ágúst 1883, d. 22. september 1960. Systur Guð- mundu eru Helga Em- ilía, f. 3. júlí 1921 og Sigurbjörg, f. 11. ágúst 1922, d. 18. júlí 1996. Börn Einars og Guðmundu eru: 1) Sig- urður, f. 1938, maki Ásta Kristjánsdóttir, f. 1941. Börn þeirra eru: A) Ragn- ar Bergþór, f. 1963. B) Guðný Sjöfn, f. 1966, maki Ingólfur Valdi- Náttúrubarnið Einar Hansen, tengdafaðir minn, er látinn í hári elli. Einar fæddist á einni af eyj- unum þremur sem mynda hinn vinalega bæ, Kristiansund í Möre- héraði í Noregi. Þar stundaði faðir hans sjóinn og móðirin vann við saumaskap. Þegar Einar var um það bil fimm ára gamall, bar skugga á tilveru hans. Faðir hans lést og einstæð móðirin brá á það ráð að koma drengnum sínum í fóstur á fjölskylduóðalinu í Lövik í Skálavíkurfirði, þar sem Sivert frændi hennar bjó rausnarbúi. Þar ólst Einar upp við leik og störf. Ef- laust hefur umhverfið allt; sjórinn, ár með boldangs laxi og mikið fuglalíf á firðinum, virkað örvandi á veiðieðli snáðans. Mótað ástríðu- fyllsta veiðimann sem ég hef hitt um dagana. Að renna fyrir fisk í söltu eða fersku vatni, ganga til rjúpu, skjóta gæs eða veiða mink og tófu, voru ær og kýr Einars Han- sen. En eins og háttur er góðra veiðimanna bar hann einstaklega mikla virðingu fyrir bráðinni og allri náttúrunni. En það átti ekki fyrir Einari að liggja að verða stórbóndi í Noregi. Að mjólka kýr, slá tún, eða stunda önnur landbúnaðarstörf, heillaði hann ekki. Stéttaskipting, þar sem ekki var ætlast til að fóstursonur- inn léki sér með börnum vinnu- fólksins, fóru illa í hinn frjálshuga dreng. Þegar hann fréttir, á fjór- tánda ári, að móðir hans hafi látist, strauk hann að heiman. Komst um borð í fiskibát sem var að fara á vetrarvertíð við Lófót og réði sig sem kokk. Að vertíð lokinni komst hann á skip sem hélt til selveiða í Norður-Íshafinu. Vafalaust hafa óblíð veður norðursins blásið í brjóst hans þeim mikla lífsvilja og seiglu sem einkenndu allt hans líf. Hann réði sig á skip norsku Suður- Ameríku línunnar og við tók nokk- urra ára tímabil þar sem hann sigldi með kol o.fl. frá Bretlandi til landa Suður-Ameríku og með salt norður á bóginn. Þetta var harður skóli mikillar lífsreynslu, norski fáninn tattóveraður á upphand- legginn til öryggis. Ef hann bæri beinin á þessum slóðum, væri al- tént hægt að sjá að þar væri Norð- maður á ferð. Árið 1930 ákvað hann að hvíla sig í bili á siglingunum og fór í land í Osló, þar sem hann sá auglýst starf á býlinu Laugarnesi á Íslandi. Hann ákvað að slá til og freista gæfunnar. Þar með hófst nýr kafli í lífi þessa ævintýra- manns. Mesta gæfuspor Einars varð þegar hann vann ástir eftirlifandi eiginkonu sinnar, Guðmundu Guð- mundsdóttur frá Blönduósi. Saman stofnuðu þau heimili á Hólmavík á Ströndum. Þar fann Einar sitt fyr- irheitna land. Engan stað á jörðinni hefur honum þótt vænna um. Í ára- tugi gerði Einar Hansen út fiskibát frá Hólmavík. Auk þess var hann liðtækur selveiðimaður og skaut fjölda af hrefnum. Einar veiddi einu skjaldbökuna sem veiðst hefur við strendur Íslands og prýðir skepnan sú húsakynni Náttúru- gripasafns Íslands. Þau hjónin ráku um árabil gistiheimili á Hólmavík. Hann var virkur í íþróttafélaginu Geislanum og var, honum til mikillar gleði, gerður að heiðursfélaga þar fyrir nokkrum árum. Einar og Guðmunda fluttu í Kópavog árið 1976. Þau veittu for- stöðu fjölskylduheimili fyrir fjöl- fötluð börn á vegum Öskjuhlíðar- skóla í 17 ár. Þar naut Einar sín ákaflega vel, því hann var einkar barngóður. Árið 1985 barst Einari bréf frá Noregi. Bréfið var frá manni að nafni Lorentz Tjelle sem kvaðst vera hálfbróðir hans. Í ljós kom að móðir Einars hafði látist af barns- förum. Það varð fagnaðarfundur þegar þeir bræður hittust í Noregi sumarið 1990 og ánægjulegt hefur verið að kynnast þessum norsku ættingjum konu minnar. Einar var handlaginn maður og naut þess að föndra við smíðar, einkum þó að brenna myndir og texta á ýmsar timburvörur. Gekk hann að þessu með sömu atorkunni og að öðru því sem hann fékkst við um ævina. Þessir gripir hans prýða heimili ættingja og vina um allt land. Að sitja með hendur í skauti var ekki stíll Einars Hansen. Síð- ustu mánuðir voru honum erfiðir, hrakandi heilsa batt hendur hans. Hann naut sérlega góðrar umönn- unar á Hrafnistu í Hafnarfirði síð- ustu þrjú árin. Fyrir það ber að þakka. Það væri hægt að rita langa grein um ævi þessa víðförla heið- ursmanns sem við kveðjum í dag, en hér skal látið staðar numið. Að- eins þakkað fyrir hversu vel hann hefur reynst mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Tómas Sigurbjörnsson. Þegar ég sat hjá honum afa mín- um, nokkrum dögum áður en hann lést, fór ég að hugsa um allar þær stundir sem við áttum saman og þau áhrif sem hann hefur haft á mig. Mig langar því að minnast hans með örfáum orðum. Frá því ég man eftir mér vorum við afi saman í skemmtilegum veiði- ferðum, ýmist að leggja net í Stein- grímsfirðinum eða standandi með stangirnar við hinar ýmsu ár í þeirri von að fá þann stóra. Á þess- um ferðum okkar þreyttist hann aldrei á að segja mér ævintýralegar sögur af veiðiferðum sínum í gamla daga. Einnig eru eftirminnilegar ferðir okkar í Laugardalinn á landsleiki í knattspyrnu. Á vellinum sendi þessi rólyndismaður bæði dómar- anum og andstæðingum tóninn með miklum tilþrifum. Hann átti það líka til að sparka með íslensku landsliðmönnunum þegar þeir voru komnir í gott færi og þá fengu þeir sem sátu fyrir framan okkur að kenna á skothörku afa. Sem betur fer fyrir alla þá sem sátu fyrir framan okkur á þessum leikjum, var lítið um upplögð færi hjá ís- lenska landsliðinu á þessum tíma. Það sem stendur þó uppúr fjölda góðra minninga um hann afa eru stundirnar þar sem við sátum bara saman og spjölluðum um daginn og veginn. Hvernig hann reyndi að miðla af reynslu sinnar löngu ævi um hvað það væri sem skipti raun- verulegu máli í lífinu. Eftir að ég eignaðist mína eigin fjölskyldu þá minnti hann mig oft á hvað ég ætti gott og að það yrði hlúa vel að fjöl- skyldunni. Þrátt fyrir að hann væri 65 árum eldri en ég þá var afi einn minn allra besti vinur, alltaf talaði hann af mikilli hreinskilni og einlægni um lífið og tilveruna. Á bakvið sterka andlitsdrættina og kraft- mikinn skrokk var maður sem hafði stórt hjarta, vinur sem minnti mig á frá fyrstu tíð að ekkert skiptir meira máli en fjölskyldan og vin- áttan, án þess ætti maður ekki neitt. Takk fyrir öll árin, vináttuna og stuðninginn afi minn. Vonandi get ég sagt þér sögur af þeim stóra þegar við hittumst næst. Einar Hansen Tómasson. Hann afi minn sannaði það svo eftir var tekið hve aldur er afstætt hugtak. Sama ár og ég fæddist varð afi minn sjötugur, en þegar ég hugsa um allar minningarnar um hann á ég erfitt með að trúa því. Þær tengjast ekki gömlum manni heldur fjörkálfi sem slappaði aldrei nokkurn tíma af – nema jú kannski yfir íþróttunum í seinni tíð. Ég man eftir afa sem sigldi á hraðbátnum um Steingrímsfjörð- inn á sumrin og lagði silungsnet, afa sem vissi ekkert betra en að standa úti í á með veiðistöngina, afa sem var einnig afi allra þeirra barna sem dvöldu á sambýlinu í Garðabæ hjá honum og ömmu, afa sem ferðaðist um Norðurlöndin á níræðisaldri, afa sem var hrókur alls fagnaðar á mannamótum, afa sem eldaði heimsins bestu kjötsúpu og afa mínum listamanninum sem sat löngum stundum við iðju sína í eldhúsinu í Lundarbrekku. Minn- ingarnar eru óteljandi enda var ég svo lánsöm að umgangast afa og ömmu mikið þar sem þau bjuggu í næstu götu við mig alla tíð, eða þar til þau fluttu á Hrafnistu fyrir þremur árum síðan. Þegar afi var um nírætt var stundum rætt hvort ekki væri tíma- bært að sækja um vist á dvalar- heimili. Þá hneykslaðist afi og sagðist ekkert hafa þangað að gera því á slíkum stofnunum væri bara gamalt fólk! Þetta lýsir vel lundar- fari afa því hann var ungur í anda, hafði skýra hugsun og alltaf var stutt í brosið og einstaka kímni- gáfu. Hann sagði ævintýralegar sögur frá ferðalögum sínum um öll heims- ins höf sem voru sumar einum of skrautlegar til að vera sannleikan- um samkvæmar. Ég efast enn um tilvist margra þeirra en vogaði mér þó aldrei að spyrja afa um sann- leiksgildi þeirra. Það er ekki viðeig- andi að spyrja góða sögumenn nán- ar út í ævintýrin. EINAR HANSEN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.