Morgunblaðið - 25.01.2005, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
SPENNAN í efstu flokkum Cor-
us-skákhátíðarinnar fer vaxandi eftir
því sem nær dregur lokum hennar.
Taflmennskan í A-flokki hefur verið
fjörug en við fyrstu sýn virðist sem
margir tefli undir getu. Þannig hefur
Alexander Morozevich verið heillum
horfinn og Peter Svidler einnig.
Gengi þeirra hefur reyndar farið
batnandi en óhætt er að fullyrða að
taflmennska þess fyrrnefnda hafi
verið afar slöpp. Áhættan sem hann
tekur hefur að jafnaði verið gríðarleg
og hann virðist hættur að tefla eftir
alfaraleiðum í byrjunum. Þetta ætti
ekki að koma á óvart þar sem hann
gaf út þá yfirlýsingu fyrir einu og
hálfu ári að hann liti ekki lengur á sig
sem atvinnumann í skák og að hann
stúderaði lítið. Gengi Viswanathans
Anands og Vladimirs Kramniks hef-
ur tekið mikinn kipp og sérstaklega
þess fyrrnefnda en hann hefur stund-
um verið kallaður sláturhúsið með
hraðar hendur. Anand vann nefni-
lega þrjár skákir í röð eftir að hafa
verið með minna en helmings vinn-
ingshlutfall að fyrstu fjórum umferð-
unum loknum. Kramnik hefur náð
sér á strik eftir skelfilegt tap í ann-
arri umferð gegn Veselin Topalov og
hefur teflt af sinni alkunnu ná-
kvæmni og listfágun. Engu að síður
er hann einum vinningi á eftir efsta
manni sem er einmitt búlgarski stór-
meistarinn Veselin Topalov (2.757).
Að átta umferðum loknum hefur
hann 5½ vinning en næstir koma Pet-
er Leko (2.749), Michael Adams
(2.741) og Viswanathan Anand
(2.786) með 5 vinninga. Alexander
Grischuk (2.710) og Vladimir Kram-
nik (2.754) koma í humátt á eftir með
4½ vinning. Allir þessir kappar eru
kunn nöfn á ofurskákmótum af þessu
tagi og hafa ásamt nokkrum skák-
mönnum einokað þau mót í mörg ár.
Kúbverski stórmeistarinn Lazaro
Bruzon varð heimsmeistari unglinga
fyrir nokkrum árum og hefur ekki
áður fengið tækifæri til að taka þátt í
mótum af þessari stærðargráðu.
Þegar sjöttu umferð A-flokksins lauk
var hann orðinn einn af forystusauð-
um mótsins ásamt þremur öðrum
köppum. Í næstu umferð beið hann
lægri hlut fyrir Anand og í þeirri átt-
undu mætti hann Búlgaranum
snjalla.
Hvítt: Lazaro Bruzon (2.652)
Svart: Veselin Topalov (2.757)
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 Rc6 4. g3 g6
5. Bg2 Bg7 6. c3 Rge7 7. 0–0 0–0 8.
He1 e5 9. Ra3?
Topalov gagnrýndi þennan leik
eftir skákina og taldi að 9. a3 með
hugmyndinni b2-b4 hefði verið betra.
Í framhaldinu teflir Kúbverjinn einn-
ig of hægfara sem gerir svörtum
kleift að hrifsa til sín frumkvæðið.
9. … d6 10. Be3?! b6 11. Dd2 Bg4!
Hárrétt áætlun að skipta upp á
hvítreita biskupnum þar eð þá gefst
tóm til að hrinda peðframrásinni f7-
f5 í framkvæmd fyrr.
12. h3 Bxf3 13. Bxf3 Dd7 14. Bg2
f5 15. exf5 gxf5 16. f4 Had8 17. He2
De6 18. Dc2?!
Bent var á eftir skákina að þessi
leikur veikti valdið á f4-reitnum.
Hins vegar opnast möguleikar með
að koma drottningu fyrir á a4.
18. … Dg6 19. Kh2
19. … Kh8?!
Færi svarts felast í styrkri stöðu á
miðborðinu annars vegar og hins
vegar sóknarfærum á kóngsvæng.
Hvítur verður að reyna að opna taflið
svo að biskuparnir hans fái að njóta
sín ásamt því að koma riddaranum á
a3 í gagnið. Í stað textaleiksins var
19. … d5 betra.
20. Da4 d5 21. fxe5 Bxe5 22. Bf4
Df6!
Það eru oft svona litlir leikir sem
þeir bestu sjá strax en minni spá-
menn átta sig ekki á. Textaleikurinn
styður stöðu svarts á miðborðinu og
kemur drottningunni fyrir á heppi-
legri stað og rýmir g6-reitinn fyrir
riddarann.
23. Bxe5 Rxe5 24. d4 R5g6 25.
dxc5 bxc5 26. Hf1 f4! 27. gxf4 Rf5
28. Dxa7 Dh4
Svartur hefur komið riddurum sín-
um og drottningu í afar fallega víg-
stöðu og skiptir litlu að til hafi þurft
að kosta tveimur peðum. Nauðsyn-
legt var fyrir hvítan að leika nú 29.
Hf3! og hefði hann þá getað haldið
taflinu gangandi.
29. Dxc5? Rxf4 30. Hd2
30. … Rxh3!
Tætir hvítu kóngsstöðuna í sundur
þar eð eftir 31. Bxh3 Dg3+ er öllu
lokið.
31. Dc7 Hd6! 32. Rc2 Dg3+ 33.
Kh1 Hh6 og hvítur gafst upp.
Keppni í B-flokki Corus-skákhá-
tíðarinnar er hörð og afar sterk.
Azerski stórmeistarinn Shakhriyar
Mamedyarov (2.657) er í efsta sæti
og hefur vinningsforskot á Sergei
Karjakin (2.599). Greinarhöfundi
finnst þessi Mamedyarov einkar
frjór og skemmtilegur skákmaður.
Hann virðist geta búið til færi úr ólík-
legustu stöðum. Byrjanir virðast
ekki vera hans öflugasta hlið en
hvöss og nákvæm taflmennska í mið-
tafli er hrífandi. Garry Kasparov ólst
upp í höfuðborg Azera, Baku, og
virðist landið vera góð uppeldisstöð
fyrir öfluga skákmenn. Skemmst er
að minnast þess að Teimour Radja-
bov hefur verið stórstirni í mörg ár
en hann náði stórmeistaratitli fjórtán
ára. Mamedyarov er nítján ára og
hefur alla burði til að ná mjög langt.
Ekki þarf að vera spámannlega vax-
inn til aðgeta sér til um það að innan
nokkurra ára verður hann keppandi
á helstu ofurskákmótum heims. Við
skulum líta á handbragð hans frá
mótinu.
Hvítt: Friso Nijboer (2.599)
Svart: Shakhiyar Mamedyarov
(2.657)
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3
Be6 8. f3 Be7 9. Dd2 0–0 10. 0–0–0
Dc7 11. g4 Rbd7 12. Kb1 b5 13. g5
Rh5 14. Rd5
Þetta afbrigði hefur verið vinsælt
hin síðari ár og virðist sem hvítur fái
gott tafl eftir þennan leik.
14. … Bxd5 15. exd5 Rb6 16. Hg1
Hab8 17. h4 g6 18. f4! Rxf4 19. Bxf4
exf4 20. Dxf4 Hfe8 21. h5 Bf8
Þegar lettneski stórmeistarinn
Lanka hélt sína fyrstu fyrirlestraröð
hér á landi voru stöður sem þessar
teknar til gaumgæfilegrar skoðunar.
Meginatriðið fyrir hvít er að koma
riddara sínum fyrir á c6 og hefja svo
aðgerðir á kóngsvæng. Óvíst er að
aðstæður til þess séu heppilegar í
þessari stöðu en í framhaldinu leggur
hvítur allt kapp á að máta svartan en
því var svarað með skeinuhættri
gagnsókn.
22. hxg6 hxg6 23. Hh1 Bg7 24.
Dh4 Ra4! 25. Hd4 Hbc8 26. Bd3
Svartur má ekki undir neinum
kringumstæðum gefa eftir svartreita
biskup sinn og nú nýtir hann sér
veikleika hvíts á c2 og b2.
26. … He2! 27. Bxg6 Kf8! 28. Hf1
Hxc2!
Nú eru öll sund lokuð fyrir hvítan
eftir að hrókar svarts eru komnar inn
fyrir aðra reitaröðina.
29. Df4 Hxb2+ 30. Ka1 Hg2 31.
De3 He8! 32. Dd3 Hee2 33. Bxf7
Hxa2+ 34. Kb1 og hvítur gafst upp
um leið þar sem hann yrði mát eftir
34. … Hgb2#.
Skákþing Reykjavíkur
komið á rekspöl
Dagur Arngrímsson, Sigurbjörn
Björnsson og Davíð Kjartansson eru
efstir á Skákþingi Reykjavíkur eftir
fjórar umferðir með 3½ vinning.
Þessi röð gæti breyst þar sem alþjóð-
legu meistararnir Sævar Bjarnason
og Jón Viktor Gunnarsson eiga eftir
að mætast en skák þeirra í fjórðu
umferð var frestað. Sævar hefur fullt
hús vinninga að þremur skákum
loknum en Jón hefur 2½ vinning.
Guðmundur Kjartansson, Tómas
Björnsson, Jóhann Ingvason, Hrann-
ar Baldursson, Ólafur Kjartansson
og Halldór Pálsson koma svo næstir
með 3 vinninga. Alls taka 58 skák-
menn þátt í mótinu sem er betra en á
síðasta ári. Teflt er í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12,
á miðviku- og föstudagskvöldum og
síðdegis á sunnudögum. Nánari upp-
lýsingar um gang mála er að finna á
www.skak.is og á heimasíðu Tafl-
félags Reykjavíkur.
Topalov efstur fyrir
lokaumferðirnar fimm
SKÁK
Wijk aan Zee
CORUS-SKÁKHÁTÍÐIN
14.–30. janúar 2005
Shakhriyar Mamedyarov
Veselin Topalov
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Sveit Garða og véla
Reykjavíkurmeistari
Sveit Garða og véla ehf. sigraði í
Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni
sem lauk sl. laugardag. Í sigursveit-
inni spiluðu Símon Símonarson,
Sverrir Kristinsson, Sigfús Örn
Árnason, Friðjón Þórhallsson og
Hermann Friðriksson.
Sveitin tók snemma forystuna í
mótinu og hélt nánast til loka móts,
en átján sveitir spiluðu, þar af ein
gestasveit. Sextán sveitir öðluðust
rétt til þátttöku í undankeppni Ís-
landsmóts.
Lokastaða efstu sveita:
Garðar & vélar ehf. 323
Ferðaskrifstofa Vesturlands 320
Esso-sveitin 312
Grant Thornton 310
Skeljungur 309
Eykt 305
Vinabær 298
Gylfi Baldursson 285
Keppnisstjóri var Björgvin Már
Kristinsson.
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Aðalsveitakeppni félagsins stend-
ur nú sem hæst en að þessu sinni
taka 8 sveitir þátt sem er góð þátt-
taka. Keppnin er spiluð í formi
firmakeppni og er staða efstu sveita
þessi:
Ný-ung 71
VÍS 71
Benni pípari 65
Sparisjóðurinn í Keflavík 61
Toyota 61
SG-bílar 61
Spilaðir eru tveir 16 spila leikir á
kvöldi en keppnin er nú hálfnuð.
Spilað er í félagsheimilinu á Mána-
grund og hefst spilamennskan kl.
19.30.
Aðalsveitakeppnin
í Hafnarfirði
Staðan eftir 4 umferðir í Aðal-
sveitakeppni Bridsfélags Hafnar-
fjarðar er hörkuspennandi:
Dröfn Guðmundsdóttir 72
Guðlaugur Bessason 72
Einar Sigurðsson 69
MAÓ 67
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum mánu-
daginn 17. janúar. Beztum árangri
náðu í NS:
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 289
Dóra Friðleifsd – Jón Stefánsson 278
Ólafur Oddsson – Jón Bjarnar 231
Eysteinn Einarsson – Kári Sigfinnss. 227
AV
Tómas Sigurðss. – Steindór Árnason 296
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 252
Kristinn Guðmss. – Guðmundur Pálss. 242
Þórhildur Magnúsd. – Helga Helgad. 232
Keppnin um
Súgfirðingaskálina hafin
Keppni um Súgfirðingaskálina,
tvímenningsmót Súgfirðingafélags-
ins, hófst um helgina með þátttöku
10 para. Þetta er fjórða árið sem
mótið fer fram.
Keppnin er í 4 lotum og gilda þrjár
bestu til verðlauna.
Úrslit úr 1. lotu urðu þessi en með-
alskor er 108 stig:
Björn Guðbjörnss. - Gunnar Ármannss. 133
Einar Ólafsson - Sigurður Kristjánss. 123
Guðni Ólafsson - Ásgeir Sölvason 120
Finnbogi Finnbogason - Magnús Jónss. 117
Guðrún Jóhannesd. - Gróa Guðnad. 115
Karl Bjarnason - Valdimar Ólafsson 113
Skor Björns og Gunnars er 62%
Næsta lota verður spiluð kl. 13
sunnudaginn 13. febrúar í sal
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 18. janúar var spilað
á 8 borðum. Meðalskor var 168. Úr-
slit urðu þessi í N/S:
Bjarnar Ingimarss - Friðrik Hermannss 203
Ásgeir Sölvason - Guðni Ólafsson 197
Bragi Björnsson - Auðunn Guðmundss. 169
A/V
Kristján Þorlákss - Jón Sævaldsson 195
Bragi V. Björnsson - Guðrún Gestsd. 178
Þorvarður Guðmss. - Sverrir Gunnarss. 170
Frá Breiðfirðinga-
félaginu
Eftir jólafrí þ. 10. jan. mættu spil-
arar til leiks endurnærðir og stút-
fullir af hugmyndum.
Úrslit urðu eftirfarandi í NS:
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfsson 188
Davíð Stefánsson – Gísli Gunnlaugsson 178
Haukur Guðbjarts. – Sveinn V. Kristins. 173
Sigríður Pálsd. – Ingibjörg Magnúsd. 173
AV
Helga Helgadóttir – Ásta Erlingsdóttir 184
Bergljót Aðalstd. – Björgvin Kjartans. 184
Jón Jóhannsson – Birgir Kristjánsson 177
Frá bridsdeild FEBK Gjábakka
Þriðjudaginn 18. jan. var spilaður
tvímenningur á fjórum borðum.
Úrslit urðu þessi:
Magnús Halldórss. – Magnús Oddsson 57
Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 56
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 54
Spilað er alla þriðjudaga og hefst
kl. 13.15
Sveit ÍAV Reykjanes-
meistari í sveitakeppni
Sveit ÍAV sigraði í Reykjanes-
mótinu í sveitakeppni sem spilað var
um helgina. Í sveitinni spiluðu Bern-
ódus Kristinsson, Hróðmar Sigur-
björnsson, Ragnar Jónsson, Georg
Sverrisson og Ingvaldur Gústafsson.
Aðeins fimm sveitir spiluðu í
mótinu að þessu sinni en spilað var
um 3. sæti í undanúrslitum Íslands-
mótsins. Ástæðan er eflaust tvíþætt
eða jafnvel þríþætt. Bridsíþróttin á
mjög undir högg að sækja í Reykja-
neskjördæmi þessi misserin og er í
hálfgerðri tilvistarkreppu. Hin
ástæðan er svo hin makalausa
ákvörðun Bridssambandsins að
dæma af BRU eina sveit í undan-
keppninni vegna mistaka sem
stjórnandi mótsins í fyrra gerði. Þar
var bakari hengdur fyrir smið og
hjálpar Reyknesingum ekki að ná
sér á réttan kjöl á ný.
Loks má geta þess að spilað var í
húsi Bridssambandsins í Síðumúlan-
um en það kom til m.a. vegna þess að
ekki fékkst keppnisstjóri. Það er
óviðunandi að Reykjanesmótið sé
spilað í Reykjavík.
Sveit Sparisjóðsins í Keflavík varð
í öðru sæti í mótinu og sveitin GSE í
því þriðja. Sveit ÍAV hlaut 94 stig,
Sparisjóðurinn 92, GSE var með 78
stig og sveit Drafnar Guðmundsdótt-
ur fjórða með 68.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Reykjanesmeistararnir í sveitakeppni 2005. Frá vinstri: Ragnar Jónsson,
Georg Sverrisson, Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson. Með
þeim í sveit ÍAV spilaði Hróðmar Sigurbjörnsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson