Morgunblaðið - 25.01.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 41
DAGBÓK
60 stunda hagnýtt og skemmtilegt tölvu-
námskeið sem er sniðið að þörfum byrjenda.
Farið af mikilli þolinmæði yfir námsefnið,
sem er allt á íslensku. Kennt er á þau forrit
sem mest eru notuð þ.e. Windows, Word,
Excel, Internetið og Tölvupóst.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn til
náms hjá NTV. Ertu búinn að kanna þinn rétt?
Þetta námskeið
hentar vel þeim
sem hafa enga
eða mjög litla
tölvuþekkingu.
Morgunnámskeið
Mán - mið - fös 8:30-12:30
Byrjar 14. feb. - 7. mar..
Kvöldnámskeið
Mán. og mið. 18-22
Byrjar 14. feb. - 16. mar.
Verið velkomin á fyrirlestur um
„Innflutningseftirlit matvæla“ hjá Umhverfis-
stofnun í dag, þriðjudaginn 25. janúar, kl. 15-16
Aðgangur ókeypis.
Fyrirlesari: Herdís Guðjónsdóttir á Matvælasviði Umhverfisstofnunar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í matsal
Umhverfisstofnunar á Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
Upplýsingar á heimasíðu
Umhverfisstofnunar
www.ust.is
Tímarit Félags íslenskra háskólakvenna,1. tölublað, 6. árgangur, er komið út.Að þessu sinni er sjónum beint að list-um. Ábyrgðarmaður tímaritsins er
Geirlaug Þorvaldsdóttir, formaður félagsins.
„Tímaritið hóf göngu sína árið 1998 og kemur
út einu sinni á ári,“ segir Geirlaug. „Það hefur
fengið góðar viðtökur en tilgangurinn er að fé-
lagið hafi málgagn. Við höfum jafnan tileinkað
okkur ákveðið þema í hverju blaði og höfum
fjallað um jarðfræði, lögfræði, viðskiptafræði og
sagnfræði, svo eitthvað sé nefnt, og nú er röðin
komin að listum í víðum skilningi.“
En höfuðáherslan er samt á Norðurbryggju,
menningarhúsið í Kaupmannahöfn.
„Það er rétt. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, var svo almennileg að veita
okkur viðtal um endurbyggingu Norðurbryggju
en það er okkur mikill heiður að hafa hana í
blaðinu. Þá skrifar Anna María Bogadóttir líka
fróðlega grein sem hún kallar Norðurbryggja –
nýtt menningarhús á gömlum grunni en Anna
María hefur starfað sem verkefnisstjóri hjá
Norðurbryggju. Hún varði nýverið meist-
araverkefni um samspil lista, tækni og um-
hverfis við Upplýsingaháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Í þriðja lagi er svo í blaðinu grein eftir Guð-
rúnu Norðfjörð sem nefnist Hvað lærir maður í
lista- og menningarstjórnun? en Guðrún hefur
lokið MA-námi úr lista- og menningarstjórnun
frá Goldsmiths University í London og hlaut
m.a. styrk frá Félagi íslenskra háskólakvenna
til þess.“
Svo minnist þú móður þinnar, Ingibjargar
Guðmundsdóttur lyfjafræðings, sem lést á síð-
asta ári, í formannsspjalli.
„Já, mamma var formaður félagsins í sautján
ár, frá 1962–1978, og gerði geysilega góða hluti.
Mér fannst hún því eiga þetta skilið. Mamma er
líka í mínum huga svo tengd orðinu list. Allt
sem hún gerði varð að list. Fólk minnist oft
pabba, Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk,
sem mikils listunnanda en staðreyndin er sú að
mamma var enginn eftirbátur hans. Uppeldi
hennar var sannkallað listuppeldi.“
Hvernig má nálgast tímaritið?
„Tímaritið er sent til allra félagskvenna, sem
eru um 400 talsins, þeim að kostnaðarlausu, á
bókasöfn og til framhaldsskólanna. Þá liggur
það frammi í Bóksölu stúdenta, þar sem allir
geta nálgast það endurgjaldslaust. Svo getur
fólk bara hringt í mig og gerst áskrifendur. Það
er alls ekkert skilyrði að vera háskólakona.“
Þannig að karlar geta líka tryggt sér áskrift?
„Já mikil lifandis ósköp!“
Útgáfa | Tímarit Félags íslenskra háskólakvenna, sjötti árgangur, komið út
Málgagn háskólakvenna
Geirlaug Þorvalds-
dóttir er fædd í Reykja-
vík árið 1939. Hún lauk
stúdentsprófi frá MR
og prófi í latínu frá HÍ.
Þá lauk Geirlaug einnig
prófi frá Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins. Geir-
laug hefur um árabil
starfað sem kennari við
Menntaskólann við
Hamrahlíð og einnig
gegnt embætti formanns Félags íslenskra há-
skólakvenna, sem stofnað var 1928. Hún á tvö
uppkomin börn, Þorvald og Ingibjörgu.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
85 ÁRA afmæli. Í dag, 25. janúar,verður 85 ára Hildur Eiríks-
dóttir, Meðalholti 8, Reykjavík. Eig-
inmaður hennar er Snorri Dalmar.
50 ÁRA afmæli. Í dag, 25. jan-úar, er fimmtug Kristín S.
Pétursdóttir, Hrísmóum 1, Garða-
bæ. Hún er með heitt á könnunni í
dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag, 25. janúar,er fimmtug Guðrún Langfeldt,
sjúkraliði, Maríubakka 8, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Hilmar Ragn-
arsson.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9. –
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 3).
Árbæjarkirkja. | Foreldramorgnar kl. 10–
12. Fræðsla, spjall, helgistund o.fl. Allir vel-
komnir.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í dag.
Kaffi og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið
upp á léttan hádegisverð. Allir velkomnir.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta alla
þriðjudaga kl. 18:30.
Digraneskirkja | Leikfimi Í.A.K. kl. 11:15. Kl.
12:00 léttur hádegisverður. Hugleiðing sr.
Gunnar Sigurjónsson. Kaffi. 10–12 ára
starf KFUM&K kl. 17:00–18:15, á neðri
hæð. Húsið opnað kl. 16:30. Bænastund
kl. 17:30. Alfa kl. 19:00. Upphaf námskeiðs
(sjá nánar: www.digraneskirkja.is).
Fella- og Hólakirkja | Strákastarf fyrir
3.–7. bekk í kirkjunni alla þriðjudaga kl.
16.30–17.30.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju á þriðjudögum kl. 13 til 16.
Við spilum lomber, vist og bridge. Röbb-
um saman og njótum þess að eiga sam-
félag við aðra. Kaffi og meðlæti kl. 14:30.
Helgistund í kirkjunni kl. 16:00. Akstur
fyrir þá sem vilja. Upplýsingar í síma
895 0169. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | „Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13:30–16. Helgistund, handa-
vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og allt-
af eitthvað gott með kaffinu. Kirkjukrakk-
ar fyrir 7–9 ára í Rimaskóla kl.
17:30–18:30, Æskulýðsfélag Grafarvogs-
kirkju kl. 19:30, fyrir 8. bekk. Þorragleði
eldri borgara í Grafarvogskirkju kl. 12:00.
Páll Pétursson, fyrrv. ráðherra, flytur
gamanmál. Sigurður Skagfjörð syngur ein-
söng, organisti Hörður Bragason. Sig-
hvatur Jónasson og Benedikt Magnússon
leika á harmóniku, Þorvaldur Halldórsson
syngur og spilar. Að lokum verður stiginn
dans.
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum alla
þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Leikfimi,
súpa, kaffi og spjall. Fyrirbænaguðsþjón-
usta alla þriðjudaga kl. 10:30. Beðið fyrir
sjúkum.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta er
í Hjallakirkju á þriðjudögum kl. 9.15–11 í
umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, hér-
aðsprests. Bæna- og kyrrðarstund er í
Hjallakirkju þriðjudaga kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 1 kl.
19:00 www.gospel.is.
Keflavíkurkirkja | Kirkjulundur opinn kl.
10–12 og 13–16 með aðgengi í kirkjuna og
Kapellu vonarinnar. Starfsfólk á sama
tíma í Kirkjulundi. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi kl. 15:10–15:50 8. J.G. í Myllu-
bakkaskóla. Kl. 15:55–16:35 8. E.E. og 8.
Þ.G. í Heiðarskóla. Kl. 16:40–17:20 8. S.T. í
Myllubakkaskóla.
KFUM og KFUK | Ad KFUK í húsi KFUM
og KFUK, Holtavegi 28, kl. 20 þriðjudag-
inn 25. janúar. „Jólabókaflóðið“ rann-
sakað. Arnfríður Einarsdóttir lögfræð-
ingur, Guðrún Kristjánsdóttir prófessor og
Anna Sigurkarlsdóttir öldrunarfulltrúi
segja frá bókum sem þær hafa lesið ný-
lega. Allar konur velkomnar.
Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrðarstund
í kirkjunni þriðjudaginn 25. janúar kl.
12:10.
Kristniboðssambandið | Biblíuskólinn við
Holtaveg býður til fræðslukvölds fyrir al-
menning um Opinberunarbók Jóhannesar,
fimmtudaginn 27. janúar kl. 20 í húsi
KFUM og KFUK við Holtaveg, gegnt Lang-
holtsskóla. Fræðsla kvöldsins verður í
umsjá Ragnars Gunnarssonar skólaprests.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Laugarneskirkja | Kl. 16:00 TTT (5.–7.
bekkur). Kl. 19:45 trúfræðsla. Sókn-
arprestur stýrir umræðum um prédik-
unartexta næsta sunnudags ásamt hópi
annarra leiðtoga. Kl. 20:30 kvöldsöngur í
kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr. Kl. 21:00
síðasta kynning á 12 spora starfi safn-
aðarins. Næst verða hópar myndaðir.
Óháði söfnuðurinn | Alfanámskeið II kl.
19–22. Fjallræðan.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað og jóga
kl. 9, línudans kl. 11, postulínsmálning kl.
13. Hár- og fótsnyrting alla daga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl.
9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.30,
smíði, útskurður kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna,
hárgreiðsla, böðun, vefnaður, leikfimi, línu-
dans, boccia, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og blöðin,
kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45 hár-
greiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl.14 fé-
lagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í
Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl.
13, leshringur kl. 16, umsjón Sólveig
Sörensen. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði, Glæsibæ kl. 10.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Málun
kl. 9.30, karlaleikfimi og bútasaumur kl.
13, vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 9.10, les-
hringur bókasafsins kl. 10.30. Opið hús í
safnaðarheimilinu á vegum kirkjunar kl.
13, kóræfing FEBG á sama stað kl. 17. Fé-
lagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnu-
stofur opnar, m.a. glerskurður, postulíns-
námskeið og perlusaumur án leiðsagnar,
kl. 10.30 létt ganga, „Kynslóðir saman í
Breiðholti“. Af óviðráðanlegum ástæðum
fellur félagsvist fimmtud. 27. janúar niður,
en hún verður 10. febrúar. S. 575-7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, myndlist, hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur,
kl. 12.15 Bónusferð, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9.
Frjáls pjónastund, bridge kl. 13 og saumar
kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl.
9–13, kortagerð o.fl, boccia kl. 9.30–10.30.
Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaað-
gerðir – hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Fræðslufundur í
Miðgarði á morgun, miðvikudag, kl. 10.
Gestur fundarins er Regína Ásvaldsdóttir,
forstöðumaður þjónustusviðs Reykjavík-
urborgar.
Laugardalshópurinn í Þróttarheimilinu |
Leikfimi fyrir eldri borgara í dag kl. 12.15.
Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Bingó í kvöld kl. 19.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 hannyrðir, kl.
10.15– 11.45 enska, kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður, kl. 13–16 postulínsmálun, kl. 13–16
bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 13–
14.30 leshringur, kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, hand-
mennt, morgunstund og leikfimi fyrir há-
degi. Handmennt og félagsvist eftir há-
degi, allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Fjallað um
ný efni í
Hafnarhúsi
NICOLA Stattmann heldur
fyrirlestur í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsinu í dag kl.
17.
Stattmann er þýskur iðn-
hönnuður sem hefur sérhæft
sig í ráðgjöf varðandi ný efni og
tækni sem þeim tengist. Hún
hefur meðal annars skrifað
bækurnar Ultra Light Super
Strong og Handbuch Material
Technologie.
Stattmann hefur haldið fyr-
irlestra og námskeið víða og er
gestakennari hjá vöruhönn-
unardeild Listaháskóla Íslands.
Fyrirlesturinn í Hafnarhús-
inu fjallar um ný efni og mögu-
leika sem þau opna fyrir hönn-
un og nýsköpun.
Fyrirlesturinn er í boði
Listaháskóla Íslands, Opna
Listaháskólans og Iðn-
tæknistofnunar. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku og allir
eru velkomnir.