Morgunblaðið - 25.01.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 25.01.2005, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ LJÓÐASAFN Einars Más Guð- mundssonar, Ræk mig nordlysene, er að mati gagnrýnanda Politiken í Danmörku dýrðleg og kröftug lesning. Ljóða- safnið kom út í Danmörku fyrir stuttu í þýðingu Eriks Skyum Nielsen og hefur hlotið lofsamlega dóma þar í landi. Frískt loft Gagnrýnandi Politiken, Kim Skotte, segir að í fyrstu hafi Einar Már ort um stjórnmál og síðan um íslenska náttúru en best sé skáldið „þegar þessir tveir sjónarhólar á veru- leika tíunda áratugarins renna saman og ljá hlutunum nýja merk- ingu“. Gagnrýnandinn segir Einar vel kunnan í Danmörku fyrir afrek sitt Engla alheimsins og Reykja- víkur-trílógíuna (Riddara hring- stigans, Vængjaslátt í þakrennum og Eftirmála regndropanna) en það sé vissulega vel þess virði að kynnast betur ljóðskáldinu Einari Má. Hann bætir við að það að lesa ljóð Einars Más Guðmundssonar „sé eins og láta opna glugga upp á gátt og finna ferska íslenska vinda streyma inn“. Skotte lýkur dómn- um á að kalla ljóðasafnið dýrðlega og kröftuga lesningu. Röntgengeislar, eldar og orð Tilvistarlegt kastvopn sem sveiflast á milli lífsþorsta og von- brigða, hugsjóna og uppgjafar, segir Liselotte Wiemer í Week- endavisen. „Hérlendis þekkjum við Einar Má Guðmundsson best sem frábæran prósahöfund sem tekst áreynslulaust að teygja regnvott hversdagsraunsæi langt út yfir mörk veruleikans. Þarna er horft á heiminn neðanfrá, þar sem himinn- inn speglast best. Og víða í ljóða- gerð hans mætir manni sami óræði sorti og grafalvarlegi léttleiki sem sóttur er beint í íslenska brælu.“ Gagnrýnandinn segir að lokum: „Einar Már Guðmundsson færir okkur sjálfur norðurljósin í ljóðum sínum. Eins og fjarlæga drauma, kalda röntgengeisla, loga og lif- andi orð.“ Danir molbúar miðað við Íslendinga Gagnrýnanda Jyllandsposten, Erik Svendsen, verður tíðrætt um afkastagetu íslensku þjóðarinnar: „Við tölum um að við Danir vinnum mikið en miðað við Íslend- ingana erum við hreinir molbúar. Ungur náungi frá Íslandi á núorð- ið stærstan hluta Magasíns og nú- tímatónlist getur þakkað Björk margt. Á bókmenntasviðinu er það síðan hið stóra og alþjóðlega nafn Einars Más Guðmundssonar, en verk hans eru kunn á dönsku.“ Í tilefni af útkomu ljóðasafnsins var samkoma haldin í Svarta Dem- antinum, byggingu Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn, þar sem Einar Már las úr bókinni ásamt hinum þekkta danska höf- undi Johannesi Møllehave og hlýddi fjöldi manns á þá félaga. Bókmenntir | Ljóðasafni Einars Más vel tekið í Danmörku „Dýrðleg og kröftug lesning“ Einar Már Guðmundsson MIKIÐ eiga börnin á Íslandi gott að eiga að listamenn á borð við þá Þórarin Eldjárn, Atla Heimi Sveinsson og Guðna Franzson sem yrkja fyrir þau ljóð og lög – og mikið eiga þau líka gott að eiga leikhúsfólkið í Möguleikhúsinu sem á sunnudag frumsýndi í leik- stjórn Ágústu Skúladóttur leik- gerðina Landið vifra byggðri á ljóðum Þórarins með tónlist Atla Heimis sem útsett er af Guðna. Þrír trúðar og töframenn; þau Aino Freyja Järväla, Alda Arn- ardóttir og Pétur Eggerz, með lít- inn sirkusvagn í farteskinu töfra fram með látbragsleik, söngvum og tali hnyttnu og hugmyndaríku ljóðin hans Þórarins – til dæmis ljóðið um hann Guðmund á Mýr- um sem borðar bækur. Hér eru engar ofskýringar, aðeins örlitlar myndtengingar, og orðin og brag- urinn skýr. Menn leika sér einsog skáldið að orðum. Og í lokin án þess að leikurinn og bragurinn sé rofinn, en alveg frá upphafi er beint samband við salinn, verða börnin sjálf þátttakendur, sex ljóð eftir heppna áhorfendur eru lesin upp. Það er eitthvað vita áreynslu- laust, gamansamt, mjúkt og vand- virknislegt við leikstjórn Ágústu Skúladóttur og Möguleikhúsið ætti að fá hana sem oftast til sam- starfs. Búningar og leikmunir Katrínar Þorvaldsdóttur eru ein- faldir, glaðlegir og fallegir. Leik- arar leika allir vel, stærðin á Pétri sem stundum áður hefur verið til trafala, fær virkilega að njóta sín, ég hefði viljað fá að heyra Öldu syngja meira og Aino Freyja var óborganleg í látbragðsleiknum þótt minnisstæðast verði sennilega þegar hún reynir að halda lagi í einum söngnum. Mikið gagn og gaman hefðu öll lítil börn á Íslandi, sem eru farin að njóta þess að leika sér með orð, af að sjá og heyra þessa sýningu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikið eiga íslensk börn gott að eiga Möguleikhúsið að, segir María Kristjánsdóttir meðal annars. Gagn og gaman LEIKLIST Möguleikhúsið Eftir Þórarin Eldjárn ljóðin. Leikgerð: Leikhópurinn. Viðbótartexti í bundnu máli: Pétur Eggerz. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikmynd: Bjarni Ingvarsson og Katrín Þorvaldsdóttir. Leikmunir og búningar: Katrín Þorvaldsdóttir. Tónlist: Atli Heimir Sveinsson. Útsetningar og hljóðmynd: Guðni Franzson. Leikarar: Aino Freyja Järvelä, Alda Arnardóttir og Pétur Eggerz. Möguleikhúsið, sunnudag 23. janúar kl. 14.00. Landið vifra María Kristjánsdóttir Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Stóra svið Nýja svið og Litla svið HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Fim 27/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, - UPPSELT Su 30/1 kl 20, - UPPSELT Lau 5/2 kl 20, - UPPSELT Su 6/2 kl 20, Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 11/2 kl 20, - UPPSELT, Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT Fi 17/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20, - UPPSELT Lau 19/2 kl 20 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 30/1 kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14, SÍÐUSTU SÝNINGAR HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 28/1 kl 20, Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Lau 29/1 kl 20, Su 6/2, Fö 11/2 kl 20 Ath: Miðaverð kr. 1.500 HÉRI HÉRASON Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Su 30/1 kl 20, Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT Lau 12/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA gildir ekki á barnasýningar! BOUGEZ PAS BOUGER Frönsk - japönsk nýsirkussýning Lau 29/1 kl 20 - kr 2.100 Aðeins þessi eina sýning SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20 Fi 3/2 kl 20, Lau 5/2 kl 20 • Föstudag 28/1 kl 20 LAUS SÆTI • Föstudag 4/2 kl 20 LAUS SÆTI geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON ☎ 552 3000 www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími Leikhúsferð til Akureyrar! Óliver! Eftir Lionel Bart Fös. 28.1 kl 20 UPPSELT Sun. 30.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT Fim. 03.2 kl 20 aukasýn. Örfá sæti Fös. 04.2 kl 20 UPPSELT Lau. 05.2 kl 20 Örfá sæti Sun.. 06.2 kl 20 aukasýn. UPPSELT Fös. 11.2 kl 20 Nokkur sæti Lau. 12.2 kl 20 Nokkur sæti Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Tilboð til Visa-vildarkorthafa: Fljúgðu á Óliver á punktum til 6. feb TÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 27. JANÚAR KL. 19.30 Verk fyrir flautu og hljómsveit eftir Mozart og Carl Nielsen Sönglög og óperuaríur eftir Mahler, Bizet og Rossini Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson Einleikari ::: Hafdís Vigfúsdóttir, flauta Einsöngvari ::: Sólveig Samúelsdóttir, mezzósópran Miðasala í síma 545 2500 I www.sinfonia.is Ungt listafólk 2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – 3. sýning 18.feb. kl 20.00 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 6. sýning 27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00 8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00 Miðasala á netinu: www. opera.is Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Banki allra landsmanna Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.